Frjáls verslun - 01.02.2000, Síða 69
STJORNUN
spurningin: Er ekki hægt að finna einhveija
lausn sem virkar? Því miður, þarna er eng-
in ein lausn og hvað á þá að gera? Jú, það
þarf að læra að lifa með þessum vanda, með
þessum andstæðu pólum, og gera sér grein
fyrir því að hægt er að vera sterkur án þess
að vera sífellt að leita að einni lausn.
Annað vandamál sem sífellt skýtur upp
kollinum er fjölskyldan og vinnan. Vinnan
tekur mikinn tíma og maður sinnir fjöl-
skyldunni illa. Hvað er til ráða? Augljóst
svar er að minnka vinnuna en það er ekki
endilega rétta svarið. Vandinn liggur í þvi að fjölskyldunni er illa
sinnt og það er þar sem taka þarf á og það gerist ekki sjálfkrafa
með því að vinna minna.
Hvernig kennir maður næmni? Algengt er að stjórnendur skorti
næmni. En hvernig er hægt að kenna næmni? Er það ekki eitt-
hvað sem er meðfætt? „Nei,“ segir Ketill. „Það er hægt að kenna
næmni á ýmsa vegu. Til dæmis með þvi að láta fólk lesa sér til
um efnið og kynna sér það. En ókostur
þess er sá að það er ekki sjálfgefið að fólk
notfæri sér þekkingu sína og þvi er oft ár-
angursríkara að þjálfa fólk í að gera sér
grein fyrir aðstæðum annarra, að gefa því
færi á að setja sig í þess spor. Við erum oft
full af fordómum og ástæða þeirra er fyrst
og fremst vanþekking. Ef við fáum tæki-
færi til að setja okkur inn í aðstæður ann-
arra verðum við næmari á líðan þeirra."
Tígullinn er fyrst og fremst ætlaður
sfiórnendahóp fyrirtækja, en Ketill segir
það vera framtíðarmarkmið að gefa almenningi kost á honum.
Nokkur fyrirtæki hér á landi hafa nýlega notfært sér Tígulinn,
þ.ám. Landsvirkjun og Orkuveita Reykjavíkur og eftirspurnin er
mikil. Hins vegar er módelið svo fjölbreytt að ekkert er því til fyr-
irstöðu að fólk sem ekki er í stjórnunarstöðu, heldur vill bara
læra betur að þekkja sjálft sig og styrkja sig, notfæri sér það.
Nánari upplýsingar um Tígulinn er að finna á vefsíðu Skrefs
fyrir skref: www.skreffyrirskref.is H3
Vandamál Lausnir
Freyja Sigurðardóttir er aðstoðarforstjóri í meðalstóru fyrirtæki í Reykjavik, Landsiðnaði hf. (LI),
sem á í margvíslegum erlendum viðskiþtum. Sem stjórnandi stendur hún frammi fyrir margs konar
vandamálum sem hún tekst á við með tækjum og aðferðum STEPS þjálfunarinnar.
1. Landsiðnaður stendur frammi fyrir því að gera mikilvæga
viðskiptasamninga við erlenda stórfyrirtækið Design Prod-
ucts (DP). Freyja þarf að leiða málið til lykta og funda m.a.
með hinum erlendu samstarfsaðilum yfir helgi. Vandamál
Freyju er að að Stella, dóttir hennar, ákvað fyrir ári síðan að
gifta sig þessa sömu helgi og samningar eiga að takast.
2. Freyja þarf að ákveða hvort hefja eigi formlegt samstarf
með langtímasamningi við DP sem líkur eru á að muni auka
framleiðslugetu LI en felur einnig i sér áhættu þess, tap og úti-
lokun samstarfs við önnur erlend fyrirtæki.
3. Freyja þarf að takast á við mismunandi viðhorf og skoð-
anir innan LI hvað varðar ákvörðunina um að undirrita samn-
ing við DR Hún þarf að verja ákvörðun sína á mörgum víg-
stöðvum innan LI.
4. Nokkrir stjórnendur og starfsfólk LI fá vitneskju um um-
talsverða gengishækkun á næstunni á hlutabréfum fyrirtækis-
ins í kjölfar samninga við DP. Sumir þeirra kaupa hlutabréf
stuttu fyrir aðalfund LI. Vandamálið er að fjölmiðlar fá ábend-
ingu og hringja í Freyju vegna orðróms um innherjaviðskipti
og vilja ummæli vegna fréttaflutnings af málinu.
5. LI er í harðri samkeppni við annað innlent fyrirtæki.
Margt bendir til þess að samkeppnin muni harðna. Á stjórnar-
fundi bendir forstjóri LI á mikilvægi nýsköpunar til að halda
stöðu LI á markaði. Freyju er falið að þróa nýjar hugmyndir og
koma með tillögur.
DÆMIUM AÐFERÐIR ÚR STEPS TIL LAUSNAR:
Freyja beitir „spennukorti" Leiðtogatígulsins. Skilgreinir
andstæða póla, vinnur kostina úr báðum og forgangsraðar
með „bæði/og“ aðferðinni í stað „annað hvort/eða“.
DÆMI UM ADFERÐIR ÚR STEPS TIL LAUSNAR:
Nýtir sér tengslanet úr STEPS, upplýsingaleikni og beitir
streitustjórnun. Metur sig út frá persónulegri greiningu úr
Leiðtogatíglinum.
DÆMIUM AÐFERÐIR ÚR STEPS TIL LAUSNAR:
Freyja nýtir sér greiningardæmin úr STEPS, aðferðir úr
hlutverkaleikjum og gripur til „siðferðisvogarinnar" og sjálfs-
skoðunarkorts úr Leiðtogatíglinum. Breytir kvíða í jákvæða
orku með „afstöðuaðferðinni" og með þekkingu á vaxtarferlum.
DÆMI UM ADFERÐIR ÚR STEPS TIL LAUSNAR:
Nýtir þjálfun úr STEPS til að takast á við hið óvænta og
tengslanet. Virkjar þjálfun í fiölmiðlaframkomu. Beitir streitu-
stjórnun og notar „siðferðisvogina".
DÆMI UM AÐFERÐIR ÚR STEPS TIL LAUSNAR:
Nýtir erlent tengslanet úr STEPS og beitir hliðskipaðri
hugsun við þróun verkefna og De Bono aðferðafræði. Notast
við eigin leiðtogaþjálfun úr Leiðtogatíglinum i framsýni og
djörfung.
69