Lesbók Morgunblaðsins - 21.12.1992, Blaðsíða 2

Lesbók Morgunblaðsins - 21.12.1992, Blaðsíða 2
Blár jóladagsmorgunn við nunnubústaðina í Garðabæ. Var það bænhiti þeirra sem bræddi snjóinn af þaki kapellunnar? HRÆRINGAR eftir sr. Öm Bárð Jónsson GUÐ Á SKJÁNUM Jóladagsmorgunn við eld- hússkjáinn. Kyrrð. Alhvít jörð. Vetrarbirtan undurfög- ur í fjölbreytni blárra iit- brigða. Pjallakransinn við Flóann virkar eins og múrar ævintýraheims. Kyrrð yfir heimilum nágrannanna. Bærinn sefur meðan jólaljósin vaka. Syst- umar eru vaknaðar til bæna. Ég sé þær ekki en ég veit að þær vaka og biðja innan veggja hinnar fögru byggingar með sín tíu píramídaþök. Þökin eru þakin snjó — öll utan eitt. Snjórinn á stærsta þakinu, yfír kapellunni, er hruninn af til hálfs. Hvers- dagsleg sjón, eða hvað? Það er einmitt þetta sem vekur athygli mína, talar til mín þennan jóladagsmorgun. Það var á jólanótt forðum sem Guð kom til manna og hrærði við veröld sinni á einstakan hátt. í nótt hafði engill Drottins stigið niður og hrært við bænastaðnum sem við mér blasir á eld- hússkjánum eins og þegar postulamir komu saman í árdaga kirkjunnar og báð- ust fyrir. Guð talaði sterkt til mín í þessari kyrru og tæra vetrarmynd. Ég fylltist lotn- . ingu yfir lífinu, dásemdum þess, ljósum og leyndum. JÓLINBOÐAVON Jólin era tákn þess að veröldin er ekki guðvana, köld og dauð. Hún er snortin af Guði, kölluð af Guði sem gefur henni til- gang og markmið. Hún ferðast í köllun sinni í straumi tímans á vit nýrrár verald- ar. Skaparinn hefur kallað veröld sína og stefnir henni á braut kærleika, réttlætis og friðar. Hann hefur sjálfur vitjað lýðs síns og gjört kunnan vilja sinn. Við búum í hrærðum heimi. Jólin hræra við hjörtum okkar flestra. Þrangin leyndardómi snerta þau ár hvert við innsta kjama kristinna manna. Undur jólanna birtist meðal annars í því að Guð kemur á allt annan hátt en við ætlum. Hann kom forðum í baminu í Betlehem sem horfði við veröldinni, tærum, tindrandi bamsaugum. Á fræðimáli er talað um inkamasjón Guðs, sem merkir að Guð varð hold, varð manneskja með sömu kenndir og þrár og við. Jóhannes guðspjallamaður tjáir þetta er hann segir: „Og Orðið varð hold, hann bjó með oss, fullur náðar og sannleika, og vér sáum dýrð hans, dýrð, sem sonurinn eini á frá föðumum." Postu- lamir sáu dýrð Jesú Krists. Þeir skynjuðu hver hann var í raun og veru. Þeir höfðu hlýtt á mál hans og deilt kjöram með hon- um. Andi Guðs hrærði við hjörtum þeirra og gaf þeim skilning á því hver hann var. Enginn mannlegur máttur gat gefið þeim þennan skilning. Engin mannleg skyn- semi. Engin jarðnesk þekking. Guð einn opinberar sannleikann í Jesú Kristi eins og fram kom í máli Jesú við Pétur í Ses- areu Filippí. Hold og blóð hafði ekki opin- berað Pétri að Jesús væri Kristur, Immanú- el, Guð meðal manna. Hann skynjaði það vegna þess að andi Guðs hrærði við hjarta hans, opnaði sálarskjá hans og gaf sýn til himinhæða. Ég minnist jólanna fyrir mörg- um áram þegar leyndardómur þeirra laukst upp fyrir mér á nýjan hátt í orði Guðs af vöram biskupsins á skjánum og ég fann hvemig andi Guðs hrærði við köldu hjarta mínu sem aldrei fyrr. Og aldrei gleymi ég þeirri sýn sem við mér blasti við eldhússkjá- inn nokkram áram síðar þegar mér fannst veröldin ný og fögur vegna þess að kvöld- ið áður hafði ég i einrúmi orðið fyrir hrær- ingu anda Guðs sem gjörbreytti lífi mínu. Jólin eru opinn skjár sem hleypir birtu inn í dimma veröld, skjár sem opnar sýn til himinhæða. Jólin boða tengsl tveggja heima, himins og jarðar. Þau boða að leið- in er greið til himinsins heim. Þau era eins og skýstólpinn forðum sem leiddi ísraels- þjóðina um eyðimörkina til fyrirheitna landsins. Vitundin um betri heim, nýjan himinn og jörð, er okkur hvatning til góðra verka. GRÓÐUREYÐING í MENNINGUNNI Það má með ákveðnum rökum halda því fram að hugsjónir kristinnar kirkju hafi holdgerst að vissu marki meðal vest- rænna þjóða þar sem lýðræði stendur hvað styrkustum fótum, lífskjör era hvað best og samhjálp mest. Þetta er ekki sagt af neinni sigurhyggju, en það er þakkarefni að boðskapur Jesú Krists hefur verið afl- vaki þjóðfélagslegra umbóta. Við höfum erft uppsöfnuð verðmæti, þjóðfélags- og menningarleg. Það hefur tekið nær tvö þúsund ár að byggja upp þau þjóðfélög sem við viljum bera okkur saman við. Kynslóð- imar hafa varðveitt og eflt þennan arf. En nú era breytingar fyrir dyrum. Upp- blástur og gróðureyðing á sér stað á sviði menningar og trúar. Það á vel við að nota líkingu af gróðurfari þegar talað er um menningu. Um menningu er notað orðið kultura á mörgum erlendum málum, eins og einn prófessora minna minnti gjaman á, en það merkir ræktun. Menningu þarf að næra og viðhalda, annars afskræmist hún og ef hún nýtur ekki næringar frá uppsprettu ails lífs og fegurðar hættir hún að vera menning og snýst upp í andhverfu sína. Ætla má að kristin áhrif á menningu Evrópu fari dvínandi. Sú þróun helst í hend- ur við þverrandi kirkjusókn í álfunni. Kirkj- umar vinna nú markvisst að því að snúa þessari þróun við og er það vel. Þunga- miðja kristninnar hefur færst úr stað. á síðustu öld bjó meiri hluti kristinna manna í hinum vestræna heimi. Nú búa tveir þriðju hlutar kristinna manna utan þess heims- hluta. Kristnum fjölgar ört í svonefndum þriðja heimi. í Afríku, Asíu og víðar vex kirkjan og dafnar dag frá degi. Kristnum mönnum í þriðja heiminum blöskrar and- varaleysi Vesturlandabúa og því era þeir tímar rannir upp að Afríkuþjóðir era fam- ar að senda kristniboða til Evrópu. Skjáfæði Gott Og Slæmt Fjölmiðlar hafa mikil áhrif á menning- una. Ég hef rætt um skjái og sýn til betri heims. Því get ég ekki látið hjá líða að ræða um þann skjá sem hvað mest áhrif hefur á samtímann, skjáinn sem flytur okkur því miður allt of mikið af myrkri í stað birtu og fagurra hugsjóna. Ofbeldið á skjánum síast inn um sálarskjá bamanna og afskræmir gildismat þeirra — og við, svokallað fullorðið fólk, föram ekki heldur varhluta af áhrifamætti þessa sterka mið- ils sem smátt og smátt lamar siðferðisþrek okkar og þjóða heims. Ég ætla þó ekki alfarið að dæma þetta undratæki sem sjón- varpið er því vissulega er það til margra hluta nytsamlegt. En veldur hver á heldur. Dagskrárstjórnun er vandasamt starf og vanþakklátt því aldrei verður öllum gert til hæfis. Spumingin er hvort mark- aðurinn eigi alfarið að ráða, ofbeldisfíknin eða sá siðferðisgrandvöllur sem þjóðin stendur á? Ef kirkjan hefði í árdaga látið veröldina ráða dagskrá sinni færi vafalaust lítið fyrir áhrifum kristinnar trúar í samtím- anum. Kirkjan er send með ákveðið erindi og þetta erindi boðar hún hvað sem veröld- in raular eða tautar því hún veit að Guðs- ríkið kemur og að kærleiksríkur hugur skaparans er bakhjarl í hugsjónastarfí hennar. Vald íjölmiðla er mikið og þeirra sem kenna og móta líf og hugsjónir fólks. Jakob postuli, bróðir Drottins, varar þá við er hann segir í riti sínu: „Verið eigi marg- ir kennarar . . . Þér vitið, að vér munum fá þyngri dóm.“ Við eram áhrifagjöm og læram af því sem fyrir okkur er haft. Maðurinn lifir ekki á brauði einu saman heldur á því orði sem fram gengur af munni Guðs. Trúin kviknar og nærist á orði Guðs. Ef orð hans hljómar ekki stöðugt í veröldinni í fjölbreyttum myndum, hins góða, fagra og fullkomna, dofnar trúin og deyr að lokum. Orð Guðs, boðskapur Guðs, finnst víðar en á síðum Biblíunnar. Boðskapur Guðs birtist í öllu því sem byggir upp, bætir og fegrar mannlífið. Því ber að þakka allt það góða efni sem birtist á skjánum en um leið er þess vænst að hlutfall þess vaxi á kostnað hins sem brýtur niður og veldur uppblæstri gildismats almennings. GuðErMeð Oss Við búum ekki í yfirgefnum heimi held- ur heimi sem Guð hrærir við á sinn kyrrl- áta og hljóða hátt. Hann fer ekki með háreysti á strætum eða notar sér háværar og ofurskreyttar auglýsingaherferðir. Guð birtist Elía spámanni forðum, ekki í storm- inum, er tætti fjöllin og molaði klettana, ekki í landskjálftanum eða eldinum, heldur í hinum blíða vindblæ, í ómi mildrar þagn- ar eins og prófessorinn innblásni og ljóð- ræni orðar það neðanmáls í Fyrri konunga- bók. Guð talar í þögninni og kyrrðinni, í fegurð himins og jarðar, í orðum heilagrar ritningar og atvikum daglegs lífs. Því hann er með oss, Immanúel, „Guð á þorpsgöt- unni“ (Gott im Dorfe). Við búum í heimi sem Guð hefur hrært við og hrærir enn. Leggjum við hlustir, ljúkum upp slq'áum og beinum sjónum að honum sem fer fyrir okkur og vísar veginn til betri heims þar sem réttlæti, friður og fögnuður grær. Gleðileg jól! Höfundur er prestur og starfar á Biskups- skrifstofunni. Jólablað 1992 Forsíðan: Helgisögnin um hinn sanna kross, hluti úr fresku eftir ítalska málarann Piero della Francesca, birt í tilefni umtföllunar um hann vegna 500. ártíðar hans. Hræringar - jólahugvekja eftir séra Örn Bárð Jónsson. Ósýnilega félagið á Hólum. Grein eftir BoIIa Gústavsson, vígslubiskup. Smám saman fennir í sporin. Grein eftir Böðvar Guðmundsson, rithöfund, um stöðu Gunnars Gunnarssonar í dönskum bókmenntum. Sambýli trúarbragða. Grein og myndir: Þórður Harðarson, læknir. Gjöfin. Smásaga eftir Kristin R. Ólafsson í Madrid. Málarinn mikli frá Leiden. Grein um Rembrandt eftir Braga Ásgeirsson. Þá hló Marbendill. Teikningar og samantekt um mennskar eða hálfmennskar þjóðsagnaverur í hafinu eftir Harald Inga Haraldsson. Jóhannes Jósefsson á Olympíuleikun- um í London 1908. Grein eftir Þorstein Einarsson, fyrrv. íþrótta- fulltrúa, um fyrstu þátttöku íslendings í Olympíuleikum. Að eiga fullan pabba í rútunni. Smásaga eftir Guðberg Bergsson, rithöfund. Þeir una glaðir við sitt á Asoreyjum. Ferðafrásögn eftir dr. Sturlu Friðriksson. Heimsljósið í fjarvíddarglugganum. Grein eftir Ólaf Gíslason um einn helzta brautryðjanda fjarvíddar í myndlist, Piero della Francesca, í tilefni 500. ártíðar hans. Jólin þeirra. Ásgeir Beinteinsson rifjar upp jólin hjá ömm- um hans tveimur. Heimspekingurinn Brynjólfur frá Minna Núpi. Grein eftir Atla Harðarson. Lífið í Jember á Jövu. Ferðafrásögn frá Indónesíu eftir Sólveigu K. Einarsdóttur. Keltar - fyrstu Evrópumennirnir. Grein eftir Björn Jakobsson í tilefni ítalskrar sýningar á sögu og lifnaðarháttum Kelta. Kirkjustaðurinn í Görðum á Álfta- nesi. Samantekt eftir Gísla Ragnarsson. Dagur í lífi kristniboða. Grein eftir Mathias Mjölhus, norskan kristni- boða í Tanzaníu. Fólk, mór og mörgæsir á Falklands- eyjum. Ferðafrásögn eftir Terry G. Lacy, kennara. Skapadægur Herdísarvíkur-Surtlu. Frásögn eftir Jón Steingrímsson. Verðlaunamyndagáta og verðlauna- krossgáta. Ljóð eftir Matthías Johannessen, Hölderlin (í þýð- ingu Hannesar Péturssonar), Heine (í þýð- ingu Ólafs Tryggvasonar), Steingerði Guð- mundsdóttur, Agústínu Jónsdóttur, Jón Val Jensson, Kristján Jóhannsson, Hrafn Harðar- son, Valgerði Þóru, Braga Benediktsson, Pétur Þorsteinsson, Þóru Björk, Stefáníu Eyjólfsdóttur, Kristin Magnússon, Þóru Ingi- marsdóttur og Unni Sólrúnu Bragadóttur. 4 2

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.