Lesbók Morgunblaðsins - 21.12.1992, Blaðsíða 10

Lesbók Morgunblaðsins - 21.12.1992, Blaðsíða 10
ferðamanna, sem heimsóttu hofið í pfla- grímsferðum. Artemis var kona. hreinlíf, en tákn fijósemi og jarðargróðurs, hin mikla móðurgyðja þekkt um öll Austurlönd og alit til Norðurlanda. Silfursmiðir í Efes- us seldu á ferðamannatímanum fjöldamörg smálíkneski af Artemishofinu og henni sjálfri og er hún venjulega þakin að því er virðist bijóstum á bringu og niður á kvið. Reyndar telja fræðimenn nú, að „bijóstin“ séu eistu nauta, sem fómað var Artemis til heiðurs. Frábærar höggmyndir sömu gerðar eru nú á safni nálægt Efes- us. Páll postuli kom tvívegis til Efesus á 6. áratug eftir Krist. Fylgismenn hans boðuðu kristna trú í útileikhúsinu mikla, sem rúmaði a.m.k. 24 þúsund gesti. Postu- lasagan segir frá því, að silfursmiðimir stóðu fyrir uppþoti gegn boðskapnum, en væntanlega hafa þeim verið hin veraldlegu gæði hugleiknust. Demetrios silfursmiður sagði: „Góðir menn, þér vitið að velmegun vor hvílir á þessari atvinnu og þér sjáið og heyrið að Páll þessi hefur með fortölum snúið fjölda fólks... Hann segir að eigi séu það neinir guðir sem með höndum eru gjörðir. Nú horfír það ekki einungis iðn vorri til smánar, heldur einnig til þess að Moskan í Cordoba. helgidómur hinnar miklu gyðju Artemisar verði einskis virtur og að hún, sem öll Asía og heimsbyggðin dýrkar verði svipt tign sinni.“ Vinir Páis sluppu með naumind- um frá þessum hagsmunagæslumönnum í ferðamannaiðnaði, en borgarbúar æptu í 2 klst. samfellt „Mikil er Artemis Efesus- manna.“ En síðan gerist undrið. Jóhannes postuli, sem líklega er rétt- nefndur höfundur guðspjallsins, sem við hann er kennt, fluttist til Efesus og bjó þar skv. sagnfræðingnum Eubiosi til dauðadags. Honum til minningar var reist þar mikil dómkirkja og standa bogar henn- ar enn. Skv. Jóhannesarguðspjalli sá Jesús á krossinum móður sína standa þar og lærisveininn sem hann elskaði (þ.e. Jóhann- es). Segir hann við móður sína „Kona, nú er hann sonur þinn“, en við lærisveininn „Nú er hún móðir þín“. Og frá þeirri stundu tók lærisveinninn hana heim til sín. Nærri má því geta, að María hefur fylgt Jóhannesi til Efesus og væntanlega borið þar beinin eins og hann. Reyndar var það staðfest á frægu Alkirkjuþingi árið 431. Á 19. öld sá þýsk nunna, Katarina Emm- erich, sem aldrei hafði yfírgefið klaustur sitt, fyrir sér bústað Maríu. Lýsti hún leið- inni þangað með svo mikilli nákvæmni, að rústir hússins fundust á fjalli skammt frá Efesus. Það var endurbyggt og nefnist nú hús Maríu. Tugþúsundir ferðamanna heimsækja Efesus árlega. Fjölmargir þeirra ganga í hús Maríu á fjallinu. Ekki þarf mikið hug- myndaflug til að sjá ýmsar hliðstæður með hinni fornu Artemis og Maríu mey og furðuleg er sú tilviljun að báðar þessar öndvegiskonur trúarbragða skuli hafa átt sína helstu pílagrímsstaði í sömu borg. Aðrir en ég kynnu að sjá silfursmiðina enn að verki. Sáu þeir þess kost vænstan að bjóða Jóhannesi og Maríu til Efesus? Sáu Sambýli trúarbragða Leiðir kristinnar trúar, íslams og hinna rómversku trúarbragða hafa hvað eftir annað legið saman í löndunum við Miðjarðarhafið. María guðsmóðir tók við af gyðjunni Artemis í Efesus og moskan mikla í Cordoba á Spáni var í fymdinni rómverskt hof, kirkja á tímum Vestgota, moska múhameðstrúarmanna og loks dómkirkja kaþólskra. Eftir ÞÓRÐ HARÐARSON Gyðjan Artemis, móðurgyðjan mikla. Hún virðist marg- brjósta á myndinni, en hugsanlega eru þetta eistu nauta, sem fómað var henni til heiðurs. Rústir Jóhannesarkirkjunnar í Efesus. jaldan verður ósætti jafn biturt og þegar ólík trúar- brögð taskast á. Einu gildir þótt um líkan átrún- að sé að ræða, af sömu rót. Nægir að minna á hin miklu eingyðistrúarbrögð, sem áttu upptök sín í Austurlöndum nær, kristna trú, gyðingatrú og íslam. Fylgjendur þeirra hafa borist á banaspjót frá upphafi, þótt öll boði þau umburðarlyndi og náungakærleik. I í þessu ljósi er fróðlegt og oft óvænt að finna víða, einkum í nánd Miðjarðarhafs- ins, stórkostleg merki um átakalítið sam- býli eða samruna trúarbragða. Skammt sunnan Ismir í Tyrklandi éru rústir grísku borgarinnar Efesus, sem m.a. er kunn af bréfum Páls postula. Þar var í fomöld ein af stærstu hafnarborgum Miðjarðarhafs- ins. Stolt borgarinnar var Artemishofíð, sem taldist eitt af sjö furðuverkum verald- I ar. Borgarbúar höfðu æmar tekjur af fjölda Hús Maríu í Efesus

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.