Lesbók Morgunblaðsins - 21.12.1992, Blaðsíða 19

Lesbók Morgunblaðsins - 21.12.1992, Blaðsíða 19
 Glímuflokkurinn á Ólympíuleikunum í London 1908. Talið frá vinstri: Jóhannes Jósefsson, sem keppti fyrstur íslendinga á Ólympíuleikum, hér í búningi að hætti fornmanna. Hann keppti í frjálsu fangi. Hinir sýndu íslenska glímu. Talið frá Jóhannesi: Hallgrímur Benediktsson, Guðmundur Sigurjónsson Hofdal, Sigurjón Pétursson, Páll Guttormsson, Jón Pálsson og Pétur Sigfússon. þurfti hann að koma til að leiðbeina og skera úr og því von á fréttnæmu í návist hans. Sir William framkvæmdastjóri sagði hárri röddu frá samþykkt bresku ólympíu- nefndarinnar um þátttöku íslendinga. Við hans orð opnaðist veggur Dana. Þeir voru þarna sjálfir með tvo sýningarflokka í leik- fimi. Auðséð er á skrifum blaðamanna að þeir hafa hrifist af festu Jóhannesar og hans karlmannalega fasi, þar sem hann rann eigi af hólmi fyrir dönskum kapteini. Blaðamenn munu hafa átt við hann nokk- urt viðtal. Kynni blaðanna af íslensku sveit- inni og foringja hennar munu hafa orðið þess vaidandi hve glímusýningin fékk mikla athygli blaðanna og blaðamenn fylgdust vel með frammistöðu Jóhannesar í fangbragða- keppninni. Fasmikil sveit undir Hvítblánum hélt inn á leikvanginn þar sem laugardaginn 12. júlí var efnt til fjölþættra íþróttasýninga á leikvangi ÓL. Áhorfendur voru um 20.000. í Sports Supplementary í blaðinu The We- ekly Dispatch mátt lesa um sýningu glímu- mannanna: „Nokkur sýningaratriði voru þama, ekki var síst áhugaverð sýning ís- lensku fangbragðamannanna." Mörg atriðin á sýningunni hlutu enga umfjöllun. Blaðið The Sporting Life birti stóra mynd 13. júlí sem The World’s Graphic Press tók. Þessi mynd er birt hér með greininni í fyrsta skipti á íslandi. Sama dag birtist í blaðinu The Daily Mirror mynd af glímumanni taka mjaðmahnykk. Undir myndinni stóð: „Áhorfendur á leikvanginum sl. laugardag sáu athyglisverða sýningu íslendinga á fangbrögðum. Sérkenni þessa íslenska fangs eru belti sem iðkendur bera. Ó1 um mitti og ein um hvort læri. í ólarnar eru höndum gripið til átaka.“ Sýning glímumannanna hefur greinilega vakið athygli, því að myndir birtust vart af öðrum sýningum. Ólympíuleikar í Mótun Flokkur glímumanna frá UMFÍ hafði lokið fyrri sýningu sinni undir stjóm Jóhann- esar Jósefssonar. Daginn eftir skyldu Ólympíuleikamir, hinir fjórðu í röð þeirra endurvöktu, verða settir á White-City-leik- vanginum í London af Játvarði VII. Þarna skyldi fara fram keppni í fijálsum íþróttum, sundi, hjólreiðum og fangbrögðum fyrir augum 68.00 áhorfenda 13.-25. júlí. Leik- vangurinn var nýstárlegur og þótti undra- vert að Englendingum tókst að reisa hann á l‘/2 ári. Þeir höfðu hlaupið í skarðið fyrir ítali, sem höfðu tekið að sér leikana en orð- ið að hætta við vegna goss í Vesúvíusi og fjárskorts. Desborough lávarður, enskur skylmingakappi á Aþenuleikunum 1896, lyfti því Grettistaki að sameina dreifð sam- tök íþróttamanna, ráðamenn Lundúna, ríkis- ins og þeirra, sem áttu að standa að heims- sýningu þetta ár, til þess að taka að sér leikana. Horfið var að því ráði að leikarnir skyldu fara fram 27. apríl til 31. október eða vara í sex mánuði og dreifast víða á aðstöðu til keppni ýmissa íþrótta, t.d. Temsá (róður), Wight-eyju (siglingar) o.s.frv. Keppni í knattleikjum fór ekki fram fyrr en í október. Sú nýjung var upptekin á þessum leikum, að sjálfstæðar þjóðir skyldu ganga inn á aðalleikvang við setningarathöfn leik- anna undir þjóðfánum og keppendur klædd- ir sérstökum íþróttabúningum. Vanda skyldi til athafnarinnar svo að hún yrði vegleg hátíð. Leikvangurinn var rúmur rammi fyr- ir margþætt hátíðahöld. Hlaupabrautin var að lengd um 540 m og utan hennar hjól- reiðabraut rúmlega 600 m að lengd, sund- laug 100 yarda löng og viðarpallar. Það var dapurt fyrir þjóðrækna og vörpulega unga íslendinga að fá ekki að ganga inn á þetta glæsta svið í fylkingu 2.056 keppenda und- ir fánum 22 þjóða. I setningarathöfninni var Jóhannes í fylk- ingu Dana. Pétur Sigfússon, sem var yngst- ur í glímumannasveitinni, skrifaði í ævisögu sína eftirfarandi: „Við íslendingarnir vorum ekki þátttakendur í skrúðgöngunni inn á leikvanginn, þegar leikamir voru settir, en það var mikilfengleg sjón og hátfðleg stund og leikvangurinn var stórkostlegur." Hugleiðingar þessar lét Jóhannes hafa eftir sér í ævisögu sinni: „Nú má hver meðal- sauður ímynda sér hvernig mér hafi liðið, þegar að kappglímunum kom, að ganga til leiks í flokki þeirra, sem höfðu gert sig bera að fjandskap gegn íslenzkum þjóðar- sóma, og það undir blaktandi Dannebrog. Og greindur maður má spyija sem svo, hvemig annar eins funa þjóðernissinni og Jóhannes Jósefsson hefði mátt orka því að ganga þannig undir merki Dana. Sannleikurinn er sá, að það var ekki skap- stillingu minni að þakka, heldur hinu, að mér heppnaðist að telja sjálfum mér trú um að ég gengi ekki undir danska fánanum, heldur fyrir aftan hann! Þar væri ég ekki í hópi danskra íþróttamanna af fijálsum vilja, heldur hlekkjaður af mínum hluta þeirra viðja, sem Danir höfðu haldið íslendingum öllum í um aldir. Og þessa hlekki hafði ég heitstrengt að hjálpa til að bijóta. Mér var fróun í því að horfa á bakið á danska glímumanninum, sem gekk á undan mér. Hann var í milliþyngdarflokki. Ef svo vildi til að við glímdum saman, þá skyldi hann fínna fyrir því með hvaða hugarfari ég hefði gengið nauðugur í dönskum flokki til þessa leiks.“ JÓHANNESí Grísk-rómversku Fangi í 1. tbl. 7. árgangs Ólympíublaðsins er greinin „Jóhannes á Borg keppti fyrstur Islendinga á Ólympíuleikunum". Greinar- höfundur getur þess að Jóhannes hafí keppt í grísk-rómversku fangi í flokki Dana, sem er rétt, því að í leikaskrá er hann skráður „Danmörk (ísland)“. Sjá má af skrifum enskra (Life og Evening News) og danskra (Politiken) blaða, að eftir að blaðamenn í fylgd með framkvæmdastjóra leikanna, William Henry, urðu áheyrendur að er hann varð að skera úr þrætu fararstjóra danska Ólympíuliðsins, Fritz Hansen, og Jóhannes- ar Jósefssonar, þá gættu þeir í skrifum sín- um, og jafnframt í Politiken, að geta Jó- hannesar sem íslendings. Af skrifum þeirra þá daga meðan keppni í grísk-rómversku fangi fór fram var Jóhannes sá er þeir fylgd- ust nánast með og dáðu. Þeir hrifust greini- lega af einurð hans og karlmennskusvip, þar sem hann stóð í litklæðum framan sveit- ar glímumannanna og krafðist þess að þeir fengju að ganga inn á leikvanginn til sýning- ar á glímu sem íslendingar. I opinberri frá- sögn forstöðunefndarinnar að leikunum loknum, þar sem greint var frá þátttökuþjóð- unum og fjölda íþróttamanna frá þeim, stendur: „Iceland 1“ (ísland einn þátttak- andi). Eins og sjá má á árangursskrá 73 kg flokksins í grisk-rómversku fangi, sem hér er birt, stendur: Jósefsson, Jóhannes IC (nr. 7). IC stendur fyrir Iceland. Á þremur stöðum (nr. 5, 14, 17) stendur við þijú nöfn DE, þ.e. Denmark. Það er því eigi ofsagt hjá ritstjóra Ólympíublaðsins að Jóhannes keppti fyrstur Islendinga í ÓL. Hitt er svo annað mál að flokkurinn gekk ekki inn til setningarhátíðarinnar og Jóhannes gekk í flokki Dana næst eftir væntanlegum við- fangsmanni sínum, Anders Andersen, sem Jóhannes kveðst í ævisögu sinni hafa lesið pistilinn um hvers hann mætti eiga í vænd- um. Þó Jóhannes segi sig hafa látið Danann í keppninni fínna fyrir Islendingnum, þá er hið rétta að þeir áttu að eigast við um 3. verðlaun (bronsið) en Jóhannes mætti ekki til leiks vegna meiðsla. (Sjá á árangursskrá nr. 7 og 17.) í fyrmefndri grein er tekið upp úr ævisögu Jóhannesar (sjá bls. 153-155) að andstæðingurinn hafí leikið sér að því að viðbeinsbijóta hann. Sá hafi heitið Frank Andersson. Hann hét Mauritz Andersson (Svíi), sem Jóhannes átti við er hann meiddist, og hlaut 2. verðlaun í flokkn- um (silfur). Jóhannes og Mauritz áttust við út lotu (20 mín.) án þess að annar hvor hlyti byltu og dómarar treystu sér ekki að gera upp á milli þeirra í stigagjöf, því voru þeir látnir halda áfram í 10 mín. í viðbót. ... Að þeim loknum dæmdist Mauritz hafa borið af Jóhannesi að stigum og unnið sér rétt til að keppa við landa sinn, Frithiof Mártensson um gullið, en Jóhannes skyldi fást við Danann um bronsið, sem hlaut það án viðureignar. Jóhannes, eins og allir sem lentu í 4. sæti, hlaut: „Diplom of Special Merit“ (sjá mynd af sliku heiðursskjali). Á skrá yfir sigurvegara í tveimur flokkum keppnisgreinarinnar er þessa getið. Rétt þykir að birta þessar heimildir ásamt þeim hluta bréfs Thure Petersson, formanns skráningamefndar FILA (Alþjóða fang- bragðasambandsins), til þess að taka fyrir allar missagnir um frammistöðu Jóhannes- ar. Ekki síst í ævisögu hans sjálfs. Einnig hafði greinarhöfundur undir hönd- um blaðagreinar skrifaðar í ensk og dönsk blöð meðan á leikunum stóð. í einni er náið rakin beiting bragða og gefnar upp tíma- lengdir viðureigna, sem ber saman við tíma- skráningu viðureigna Jóhannesar, sem Thure Petersson skýrði frá í bréfi sínu frá í ágúst 1989 til greinarhöfundar: „Hér skalt þú fá greinargóða frásögn um viðureignir Jóhannesar Jósefssonar í 73 kg flokknum í ÓL í London 1908. Tuttugu og einn keppandi kom til leiks i flokknum. Tíu áttust við í fyrstu umferð, en ellefu sátu hjá, meðal þeirra Jóhannes. Lotulengd 20 mínútur. Sá er tapaði viðureign var úr leik, því voru 16 sem gengu til leiks í ann- arri umferð. í henni mætti Jóhannes Ung- verja, Miklos Orosz. Sigraði Jóhannes með byltu eftir 12.10 mín. á haustaki ásamt mjaðmarhnykk. í þriðju viðureign fékkst hann við Svía, Axel Frank. Vann viðfangs- manninn eftir 2Vi mín. á því að endastinga honum á herðamar. Jóhannes var hér með kominn í undanúrslit og átti þá við Svía, Mauritz Andersson, í heila lotu og 10 mín- útna framlengingu. Yfirdómari leitaði álits meðdómara, sem dæmdu Svíann sigurveg- ara á stigum. Jóhannes hafði þar með unn- ið sér rétt til að keppa um bronsverðlaunin við Dana, Anders Andersen. Jóhannes varð að gefa viðureignina sökum meiðsla, sem hann hafði orðið fyrir í undanúrslitunum." Formaður skráningamefndar FILA tók fram í lok bréfs síns, að upplýsingar þessar væm fengnar úr opinberum ólympskum skýrslum ÓL 1908. UMSAGNIRBLAÐA Hinn 21. júlí stóð í danska blaðinu Politik- en: „í dag hafa íjjórir af fangbragðamönnum okkar í miðþungaflokki grísk-rómversks fangs verið í eldlínunni og unnu allir. Axel Larsen lagði Hollendinginn Duym, Johannes Eriksen sigraði hinn enska meistara E.H. Bacon, íslendingurinn Jósefsson, sem er „Medlem af det danske HoId“, lagði Ung- veijann Orosz og Anders Andersen sigraði á stigum hinn sterkbyggða Hollending Lor- enz.“ í The Sporting Life spáði einhver F. Lord J. Jósefssyni (Iceland) sigri. Danska blaðið Politiken 21. júlí 1908: „Viðureignir í mið- þungaflokki í grísk-rómversku fangi hófust í gær kl. 10 á stóra pallinum við enda sund- laugarinnar inni á ÓL-Ieikvanginum. Viður- eignirnar vora mjög áhugaverðar fyrir áhorfendur. Danimir þrír, Axel Larsen, Anders Andersen og Johannes Eriksen og íslendingurinn Jósefsson sigruðu allir í fyrstu umferð. (Þeir sátu yfir í 1. umferð, LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 21. DESEMBER 1992 19

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.