Lesbók Morgunblaðsins - 21.12.1992, Blaðsíða 23

Lesbók Morgunblaðsins - 21.12.1992, Blaðsíða 23
Séð yfir öskjugígana miklu, Sete Cidades. MiIIi vatnanna tveggja er hægt að aka yfir á brú. tijástofna, sem grafist hafa í gjóskunni fyrr á öldum, þegar vikur féll yfir skóglendi. Eðlilega geta komið geilar í vikurskaflana þegar regnvatn streymir niður hlíðar, en gróðurinn verndar yfirborðið víðast hvar og jarðvegseyðing er því fátíð. Einu gróðurlausu svæðin eru í malarnámum og nýjum hraun- um. Fyrir ofan 2.000 metra er fyrst hægt að finna gróðurlaust svæði í hæstu fjöllum eins og á Pico, sem nær 2.351 m hæð. Ann- ars eru ótal eldgígar grasi grónir. Þangað í gígbotnana safnast vatn, sem síðan er hægt að veita niður til byggða í rörum eða gömlum hefðbundnum veitustokkum úr hlöðnum steini. Fróðlegt var að skoða hinar ótalmörgu eldstöðvar og höfðum við ágæta leiðsögu- menn og fróða bílstjóra sem óku okkur út um eyjarnar í skoðunarferð.ir. Á San Miguel, sem er stærsta eyjan í klasanum, eru stórir sprengigígar eða öskjur, svo sem öskjurnar í Furnas-dalnum. Þar eru nú miklir gígbotn- ar og sigdalir fylltir vatni. Eru þar á stöku stað hverir og laugar í gömlu eldstöðvunum. Víða hefur svæðið verið friðað fyrir ferða- menn sem koma og skoða hverina og nátt- úrufegurðina í kring. Hefur fram að þessu einkum mátt nýta hitann í laugunum til baksturs og matargerðar. Nú eru hins vegar uppi hugmyndir um að bora í þessi svæði og er samband haft við Orkustofnun hér á landi við þær væntanlegu framkvæmdir, og einnig hefur Norræna eldfjallastöðin í Reykjavík leiðbeint vísindamönnum þar með jarðreksmælingar. Lengra niðri í dalverpinu er þorp og veitingastaður. Þar er hægt að fá að bragða á góðmsætum hverabökuðum réttum, svo sem „Cozido nas Caldeiras", sem er blanda af kjöti og grænmeti moðsoðið í heitum leirnum. Þar innar af veitingastaðnum er frægur garður með burknatijám, musteris- tijám (Ginko biloba) og skrauttjömum. Var garðurinn upphaflega gerður á 18. öld af óðalsbónda, sem var mikill listamaður og fagurkeri. Fleiri eru þorp í dalnum með heit- um og köldum uppsprettum. Var athyglis- vert að koma að hringtorgi eins þorpsins þar sem bullandi heitt vatn rennur úr einni lind en kalt jámmengað ölkelduvatn úr annarri. Þar er hvítur kísill og hverahrúður sem hrú- gald á miðju torgi, en hús og tijálundir allt í kringum þetta náttúmgerða skrautverk. Austur á eynni San Miguel er askjan mikla, sem heitir því einkennilega nafni „Sete Cida- des“, eða Borgirnar sjö. Er þar um að ræða ógnarstóra sprengigíga. í þeim eru tvö vötn samliggjandi, Græna- og Bláa-lón, og liggur brú -á milli þeirra. Stendur þorp í sigdældinni austanvert við annað lónið, en skógar eru ræktaður í barmi gígsins. Ekkert afrennsli er úr vötnunum, en rás hefur verið gerð í barminn, til þess að hleypa burt yfírfalls- vatni, þannig að aldrei hækki svo í stöðuvatn- inu að það flæði upp í þorpið. Frá San Miguel flugum við til Faial-eyju. Höfuðstöðvar á þeirri eyju em í bænum Horta. Þaðan fómm við upp um dalverpi, sem var byggðasvæði Flæmingjanna frá Hol- landi. Þarna hafa þeir stundað nautgriparækt og gert osta,_ sem kallaðir em Flæmingjar (Flamingo). Á ökrum sínum ræktuðu þeir hveiti og möluðu kornið í vindmyllum að hollenskum sið. Ekið var upp á hæsta fjall eyjarinnar, sem er Geitafjall, rúmlega þúsund metra hátt. Þar var útsýni mikilfenglegt. Fjallið er í brún mikillar öskju, sem er tveir km í þvermál. Komið er að háum hrygg gígbarmsins og þar gengið inn um jarðgöng að innri barmi gígsins. Blasir þá við 400 m djúpur gígsvelg- ur, og blæs þaðan köldu upp úr djúpinu. Lentum við þarna í hagléli og stormi. Eitt sinn var vatn í gígbotninum, en árið 1957 þvarr vatnið í gígnum, en á sama tíma gaus vestar á eynni. Gaus' þá af sjávarbotni rétt vestan við Faial-eyju. Fóru hús undir ösku í nærliggjandi þremur þorpum og varð fólk að yfirgefa staðinn, því askan var víða þriggja metra þykk. Smám saman hlóðst upp eyja áþekk Surtsey, sem varð svo að lokum áföst landi við endurtekið gos, sem stóð í marga mánuði og lauk síðast i október 1958. Var merkilegur viðburður að sjá þetta svæði, sem nú pr nefnt Punta dos Capelinhos. Þarna lengdist landið út um einn km, en sjórinn brýtur ört af móberginu í elddyngjunni. Ekki er mér kunnugt um að þarna fari fram athuganir á landnámi lífs á þessu eyði- landi, en skógræktar- og landgræðslumenn eru áhugasamir um að sá og planta í svæð- ið, þar sem berangur höfðans stingur í stúf við gróðursæld annarra svæða. Handan sundsins frá Faial blasir við Pico- eyja með samnefndu risafjalli. Við sigldum yfir til þorpsins Magdalena á þeirri eyju og dvöldumst þar í nokkra daga í góðu yfirlæti í hálftómu gistihúsi. Pico er önnur stærsta eyjan í klasanum (447 km2) og liggur nálægt Faial, en straum- ar eru miklir í sundinu á milli eyjanna og sigling oft erfið. SNJÓLÍNA12.000 M HÆÐ Fjallið gnæfir upp risahátt frá ströndinni og nokkuð ber þar á nýlegum hraunum. Þegar komið er spölkorn upp í hlíðar fjallsins er þar farið yfir lítt gróið hraun, sem rann þar úr axlargígum 1720. Hraunrennsli hefur mönnum frá Portúgal þótt dularfullt fyrir- brigði og er hraun nefnt „misterios" þar um slóðir. Skógi hefur verið plantað í hlíðar fjallsins og nær hann upp í 1,500 m hæð. Álgengust er þar japönsk Cryptomería, en ofar er mjög kröftugur runnagróður, hávaxin beitilyngtegund svo þéttvaxið kjarr að það er ófært skepnum. Ofan 2.000 metra er ber- angur og var sá hluti hvítur af snjó þessa daga sem við dvöldumst á eynni, því kulda- kast hafði gert. Eyjarskeggjar hafa lifað á því að rækta upp hraunið eða sækja sjó. Á tímabili voru þarna stundaðar miklar hvalveiðar, en nú eru veiði- og bræðslutæki aðeins safngripir. Eru skutlar, sveðjur og suðupottar víða til sýnis fyrir ferðalanga og litlir rennilegir hvalveiði- bátar liggja í naustum. Bændur eru natnir við að tína hraungrýtið og hlaða því í gijót- garða, en bera salla og leir á völlinn, svo hægt sé að rækta grænmeti og aldin í gerðun- um á milli. Liggja þessir hraungarðar eins og net um allar hlíðar, en fíkjutré og jarðlæg- ur vínviður vex í skjóli þeirra. Á öðrum stöð- um eru svín og alifuglar inni í þannig gerð- um, en annar búpeningur gengur á betra engi. Vikurflákar og gamlir gígar eru grasi grónir en beitilöndin þar eru öll í smáum hólfum, afgirtum með limgerðum úr þessum innlendu runnum. Er því allt landið, hraun og engi, eins og völundarhús eða útskorið flúr og víravirki yfir að líta. Mörg húsanna eru hlaðin úr hraunsteini og falla vel inn í gijótgarðaumhverfið. Við komum þar inn á heimili þar sem konur sátu við hannyrðir, saumuðu og hekluðu hördúka. Húsgögn voru heimagerð og þar var ylur frá opnum eldi, því annars er rakt í þessum stein- hlöðnu vistarverum. Á Asoreyjum er nóg framleiðsla á góðum matvælum, loftslag milt og fólk getur unað við sitt. Stundum hafa eyjamar legið í þjóð- braut, en nú virðast þær vera komnar úr alfaraleið. Ferðamenn sækja þangað ekki til þess að njóta sólar og við lslendingar þekkj- um lítið þessa nágranna okkar í suðri, aðra eyjarskeggja í Atlantshafí. Höfundur er erfðafræðingur. STEFANÍA EYJÓLFSDÓTTIR Fjötrar O! að ég værí frjáls sem fuglinn værí fijáls og svifi um loftin blá — en ég er mannsbarn Ég er fangi fangi allsnægtanna og hef selt mig í ánauð fyrír fáeina koparskildinga vinnulúin daglangt Ég ligg andvaka og hlusta á umferðarniðinn liðlanga nóttina Reikningar skuldaskilanna hrannast upp hrunadansins kringum gullkálfmn Ó! að ég væri frjáls frjáls sem fuglinn þá flygi ég um himnasali þar sem þekkjast engin landamæri Þá syngi ég um dýrðina á sólskinsdögum skynjaði líf alheimsins angan blómanna og ilm jarðarinnar — en ég er mannsbarn Áfall Áfallið reið yfir eins og brotsjór ég fékk ekki rönd við reist var slitin upp með rótum Holskeflan þrýstist inn í öll vit blóðið rann rangsælis og fraus í æðum kökkur settist í hálsinn Flóðaldan kippti fótunum undan tilverunni og hreyf mig út í hyldýpið flæddi yfir líkama og sál Ég varð flakandi und sundurtætta heltók doðinn mig og dró úr mér allan mátt Ég var sem þangið er sogast viljalaust fram og til baka í takt við aðfallið Fengi ég aftur fest rætur og þegið næringu frá móður jörð? Örlaganomir spunnu tíminn staðnaði í álagafjötrum í hundrað ár. Höfundur er útivinnandi húsmóðir í Reykjavík. íslendingar þekkja vel hvað hraungijót er gott í hleðslur. Á Asoreyjum er gnægð af þessu byggingarefni og hér sést hvernig þeir nota það, svo og gráan vikur- stein, til húsbygginga. LESBÓK MORGUNBIAÐSINS 21. DESEMBER 1992 23

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.