Lesbók Morgunblaðsins - 21.12.1992, Síða 29
„Heldurðu að þú passir í þessa skó, Dóra mín’“, spurði konan.
Teikning: Árni Elfar.
föngin hjá Jakobsen í síðasta sinn fyrir
jólin. Jú, og það var gefið eftir. Það var
stundum látið eftir þeim. Þessar systur
voru eins og litlar prinsessur. Þær hlupu
frá fólkinu.
Sú yngri varð á undan að glugganum
þá sá hin sér leik á borði og faldi sig
á bak við handvagn og stökk svo fram
og öskraði ógurlega. Eins og við mann-
inn mælt hjóðaði sú yngri upp og kall-
aði á mömmu sína. „Látið ekki svona
stelpur,“ kallaði mamma, „og drífið
ykkur, það verður farið að hringja eftir
stutta stund.“ Andartak horfðu systurn-
ar á dýrðina í glugganum. Hvað af þess-
um gersemum myndu þær fá? Ekki
yrði það mágasleði því að hann fengu
þær í fyrra.
Þær komu hlaupandi þegar fjölskyld-
an var komin á móts við nýja Lands-
bankahúsið sem enn var í byggingu.
Landsbankahúsið var talið vera vandað-
asta hús sem fram að þeim tíma hafði
verið byggt á íslandi og víst er að það
var glæsilegt. Talandi um stórhug, þá
reistu menn Ingólfslíkneski Einars Jóns-
sonar á Arnarhóli í byijun desember.
Þau gengu framhjá Austurvellinum þar
sem líkneskja Thorvaldsens stóð innan
girðingar og minnti menn á glæsilegan
son þjóðarinnar sem fæddist í útlöndum
og varð heimsfrægur listamaður. Fram-
hjá vellinum þeim þar sem Jörundur
gerði byltingu sína og Napóleon prins
lét hljóðfæraflokk skemmta bæjarbúum,
en það mun hafa verið í fyrsta sinn.
En fjölskyldan var ekki með hugann
við sögulegar staðreyndir.
Fjölskyldan komst öll að kirkjutröpp-
unum þegar byijað var að hringja inn
jólin. Systurnar tóku 'hvor sína höndina
á afa eins og alltaf þegar þær leiddu
hann til kirkju. Á hveijum sunnudegi
voru þær vanar að leiða hann í 11-
messu. Þau settu öll upp sinn hátíðleg-
asta svip og þá sérstaklega afinn, því
að hann var mjög trúaður. Það mátti
aldrei segja ljót orð í návist hans, enda
gerði það enginn. Þannig var afínn, það
stafaði af honum einhveijum myndug-
leik og virðingu.
Litla 10 ára dökkhærða stúlkan var
vel klædd. Hún var í ljósgrænum taft-
kjól undir nýju kápunni sinni. Kjóllinn
var fagurlega skreyttur blúndum og
með uppsettan fald sem myndaði fallega
hangandi boga allan hringinn með litlum
slaufum á milli. Hún var með þykkar
lúffur á höndunum og eyrnaskjól úr
skinni.
Þar sem hún sat undir meSsunni varð
henni hugsað til þess hvað biði hennar
þegar heim kæmi. Fjölskyldan myndi
setjast við stóra dökka borðstofuborðið
og borða hangikjöt með uppstúfi og
kartöflum. Allir hlutirnir í stofunni stíf-
bónaðir og hreínir. Píanóið með gljáf-
ægðum kertastjökunum. Grammifónn-
inn yrði lokaður því að nú yrði ekki
hlýtt á plötur með útlenskum stórsöngv-
urum. Þá yrði snætt í rólegheitunum.
Síðan settust þær á gólfið og fengju
að opna pakkana sem voru undir jólat-
rénu. Jólatréð hafði verið skreytt fallega
með smákökum, sælgætispokum og
eplum. Svo fengju þær að velja sér
sælgætispoka efti að gengið hafði verið
í kringum jólatréð. Já, það var fastur
liður að ganga í kringum jólatréð. Þá
yrði sungið; Gik jeg over se og land og
Bro bro og brille klokken ringer elleve,
því að flest jólalögin voru á dönsku en
það voru líka sungin íslensk lög.
Litla hnátan hlakkaði mikið til kvölds-
ins.
Eins og hún hlakkar enn til þessa
kvölds. Stúlkan er núna 79 ára gömul
og það er enn eins og hún sé 10 ára.
Á aðfangadag árið 1922 kemur fjöl-
skyldan hennar, börnin hennar, barna-
börn og barnabarnaböm, saman á heim-
ili hennar. Þar verður gengið í kringum
jólatréð sem staðið hefur á þeim sama
stað í meira en 40 ár. Húri leikur á
píanóið af æskuheimili sínu og fjölskyld-
an syngur jólalögin ekki á dönsku held-
ur öll á íslensku. Gekk ég yfir sjó og
land. Allt er leikið af fíngrum fram og
stundum er stoppað því að nótumar eru
ekki á sínum stað í kollinum.
Hún kallar á Gunnu systur sína sem
hún gat aldrei látið vera að stríða, þeg-
ar þær voru litlar og biður hana að
taka við. „Æ, ég gat stundum verið svo
kvikindisleg við hana þegar við vomm
litlar,“ segir hún stundum í dag.
Gunna kallar til hennar: „Þú getur
þetta, Sigga mín, þetta er g.“
„Já, já.“ Hún heldur áfram.
Þessi stúlka er föðuramma mín og
heitir Sigríður Beinteinsdóttir. Stúlkan
í fyrri sögunni, Halldóra Jónsdóttir, er
móðuramma mín og lést 4. september
1976.
Þegar jólin nálgast hugsa ég til jól-
anna þeirra og hversu ólíkur uppvöxtur
þeirra var. Þá er komið að þriðju sög-
unni, en hún er styttri en hinar tvær.
Því að minningarnar um þessar ömmur
mínar og þessar sögur sem þær gáfu
mér tengjast jólunum mínum óijúfan-
legum böndum.
Heimildir:
Frásögn Halldóru Jónsdóttur sem er mér I barnsminni.
Frásögn Sigríðar Beinteinsdóttur í desember 1991.
Vestri, Isafirði 1903.
Morgunblaðið í desember 1923.
Gamla Reykjavik, Árni Óla, Ísafoldarprentsmiðja
1969.
Öldin okkar, Minnisverð tfðindi 1901-1930.
Höfundur er aðstoðarskólastjóri Æfingaskóla
Kennaraháskólæíslands.
PETUR ÞORSTEINSSON
Einnar-
messu-
madurinn
Sumir fara í messu á aðfanga-
dagskvöld,
en aðeins þá.
Þegar þeir yfirgefa kirkjuna,
þá getur þú hérumbil heyrt þá
segja:
„Nú hefi ég gert gott Guð“,
og fara síðan heim.
Þeir hafa gefið Guði töluvert —
eina klukkustund á ári.
Allir aðrir dagar eru þeirra.
Þeir þurfa að njóta skemmtunar
fyrir komandi viku.
Þeir verða því vart í messu
á_ sunnudaginn kemur.
Á páskum skíðaferð og
um hvítasunnuna tiltekt í garðin-
um.
Guð hlýtur að skilja það,
að vinnan krefst síns tíma
og fjölskyldan jafnframt.
Einnig þurfa þeir að komast yfir
flest það, sem Mammon getur
gefið,
áður en þeir deyja.
Þangað til ætla þeir aðeins
að fara í messu á aðfangadags-
kvöíd.
Bless á meðan Guð
fram að næsta aðfangadags-
kvöldi.
Vonandi, að heimsóknir, vont veð-
ur,
steikarát eða jólabókalesning
hamli ekki messuferð þá.
Biskupsmessan í gláperíinu
myndi bara
bjarga því, ef svo yrði.
Höfundur er litlu meir
en einnarmessumaður.
ÞÓRA BJÖRK
BENEDIKTSDÓTTIR
\
Týndar
perlur
Hver var það er gekk um
garðinn minn í nótt?
Hann gekk svo undurhljótt
ég starði út í nóttina
hún var svo hversdagsleg
en skrefin voru svo hrein svo djúp.
Var það kannsk'i Kristur
að vitja mín að nýju,
eftir hin dökku ár.
Ég hef týnt og glatað
perlum mínum
á langri leið en samt stuttri.
Höfundur er nuddkona í Reykjavík.
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 21. DESEMBER 1992 29