Lesbók Morgunblaðsins - 21.12.1992, Blaðsíða 44

Lesbók Morgunblaðsins - 21.12.1992, Blaðsíða 44
Stanley, stærsti bærinn á Falklandseyjum. F ólk, mór og mörgæs- ir á Fálklandseyjum ví meir sem ég ferðast þeim mun ríkari verður sú tilfínning að ég sé alltaf að fara af einu styrjaldarsvæðinu á annað. Aldrei hefí ég þó fundið svo sterklega fyrir því sem þá er ég fór í breskri herflugvél til Falklandseyja í janúar- mánuði 1990. Ástæðan fyrir því að farið var með herflugvél var sú, að eyjamar voru þá enn taldar hemaðarsvæði eftir styrjöldina við Argentínumenn 1982. Það var meira að segja svo að í tollinum vom okkur sýndar jarðsprengjur og önnur vopn sem notuð vom gegn einstaklingum. Fyrsta daginn sem við vomm að skoða fugla var staðið við girðingu sem reist var kringum svæði þar sem enn vom jarð- sprengjur. Þaðan horfðum við á mörgæs- imar í sandhólunum. Það var í sjálfu sér afrek að komast til Falklandseyja. Þar eð farið var í herflug- vél varð hún að millilenda á Ascension- eyju (St. Helenu) í miðju Atlantshafi. Ver- ið var að endurbæta flugbrautina og því vom lendingar flugvéla mjög takmarkað- ar, og sagði fararstjórinn okkar, Engiend- ingur, að innanríkisráðuneytið, utanríkis- ráðuneytið, varnarmálaráðuneytið, Marg- 'aret Thatcher og fjöldinn allur af stórlöx- um hefði orðið að beita áhrifum sínum til þess að orðið gæti af þessari för. Það vom ísjakar á hafinu í kringum Falklandseyjar þegar við flugum inn að þeim. Ekið var með okkur á þægilegt „sveitahótel" í Stanley. Eins og í öðmm húsum sem við komum í var þama verönd og ræfilslegar geraníur í pottum. Stanley- borg er byggð á hæð við flóann og tekur ein bogadregin húsaröðin við af annarri. Engin miðborg er í Stanley. í West Store fæst allt (eins og kaupfélagi úti á landi á íslandi) og það sem ekki fæst er hægt að panta eftir vömli^tum frá Englandi. West Store á mest allt land á eyjunum og í höndum þessa verslunarfélags er nær öll verslun þar. Enda þótt Stanley sé smábær er þama aðalhöfn eyjanna og þangað koma Allt þarna ber þess merki að vera breskt, og gætir þess miklu meira en í Bretlandi sjálfu. Hér eigum við heima, en við viljum vera bresk. Fólkið er líka af breskum uppruna ef frá eru taldir nokkrir gamlir íbúar frá Chile, en þó er fólkið örlítið blandað írum og Dönum og fleiri þjóðum. / Eftir TERRY G. LACY Mörgæsahópur á Sæljónaeyju. öll börn sem fara í framhaldsnám eftir að þau hafa lokið heimanámi með aðstoð út- varpsins. Eina sjúkrahús eyjanna er þar og ófrískar konur koma þangað til að ala börn en sé um einhveijar meiriháttar að- gerðir að ræða er farið með sjúklingana til Lundúna. í bátsferð til Kidney-eyjar gafst mér tækifæri til þess að ræða við skipstjórann. Hann er Breti eins og flestir þarna. Hann og margir fieiri hafi framfæri af því að feija menn til og frá veiðiskipum úti á rúmsjó. Þar eru stundaðar veiðar á smokk- fiski frá stórum verksmiðjuskipum og er síðan lestað í stór flutningaskip á hafi úti. Smokkfískurinn er seldur til Japan og Evrópu. Fiskveiðar eru undir eftirliti allt að 75 sjómílur frá landi en þar fyrir utan er allt frjálst og 6-700 fískiskip veiða þar eins og þau framast geta. Eftir að ég kom úr þessari ferð samdi Margaret Thatcher við Árgentínustjórn um að flugvélar frá Argentínu megi lenda á Las Malvinas (Falklandseyjum). Falklend- ingum er í fersku minni stríðið 1982 sem stóð í 74 daga og þeir eru því ekkert hrifn- ir af því að breska stjómin semji bak við þá. Þeim fannst líka undarlegt að heyra þessa frétt fyrst hjá fískimönnum frá Chile en ekki frá eigin ríkisstjórn. Fiskimennim- ir hafa mikið samband við útlendinga og talsverðir flutningar á sjó eru á milli Falk- landseyja og Punta Árena í Chile og Montevideo í Urugay. Á heitum degi er ég reikaði um Stanley rabbaði ég við gamlan mann sem var að þurrka ull á girðingu sem reist var utan um garðinn við hús hans. Hann keypti ull og bjó til ábreiður. Hann þvoði, táði og spann sjálfur ullina. Bærinn er sambland af gróðurhúsum, kjúklingum, viktoríönsk- um húsagöflum, tilbúnum húsaeiningum, köttum, flagnaðri málningu, nýrri máln- ingu, Land-Roverum, móhraukum og all- mörgum skiltum sem á stóð: Bönnum hval- veiðar. Næsta dag var haldin veisla. Leiðsögu- maður okkar frá Guernsey hafði meðferð- is ávaxtaköku sem skreytt var fána Falk- landseyja úr ís. Veislan var á hótelinu og þangað komu heimamenn sem margir eru ættaðir frá Guemsey. Þarna komu blaða- menn og landstjórinn skar kökuna. Þetta var skemmtileg aðferð til að kynnast fólk- inu. Langar samræður við heimafólkið færði heim sanninn um að sveitafólk er gætt þolinmæði sem borgarfólk hefur glat- að. Augljóst var að barinn var helsti sam- komustaður margra þar í bæ. Maður sem ég hitti þar hafði verið á íslandi í þeim erindum að kaupa skip. Annar ræddi lengi um hvernig unnt væri að losna við að borga virðisaukaskatt þegar farið væri milli Englands og Frakklands. Það var engu líkara en London væri í næsta ná- grenni og eru þangað þó 12.000 kílómetr- ar. Allt þarna ber þess merki að vera breskt, og gætir þess miklu meira en í Bretlandi sjálfu. Hér eigum vi heima en við viljum vera bresk. Fólkið er líka af breskum uppruna ef frá eru taldir nokkrir gamlir íbúar frá Chile, en þó er fólkið örlítið blandað írum og Dönum og fleiri þjóðum. Þarna má líka greina mismunandi framburð sem sýnir að fólkið er komið víða að. Eftir stríðið urðu Bretar að gera upp við sig hvað gera ætti við Falklandseyjar. Stór herstöð með fjölbýlishúsum og sjúkra- húsum var ekki fýsilegur kostur. Þá var komið á fót Þróunarfélagi Falklandseyja. Ein hugmyndin var að rækta grænmeti í sérstakri gerð gróðurhúsa; tómata, salat, agúrkur. Tvö okkar fengu tækifæri til þess að skoða slík gróðurhús. Gróðursett er í fíberglastúbum og næringarefni blönd- uð sjálfkrafa og veitt til hverrar plöntu fyrir sig. Hingað til hefur þetta ekki borg- að sig. Þessi hús eru hituð upp með mó. Það er mórinn sem hingað til hefur verið helsti hitagjafi í öllum húsum á eyjunum. Þarna er lítill sem enginn tijágróður en mórinn gerði eyjarnar byggilegar. Nægur mór er í grennd við Stanley og er ætlað að hann muni endast í 100-150 ár. Haustið 1878 var snjór óvenjumikill á eyjunum og 29. nóvember skreið hæð sem að mestu var úr mó yfír þorpið. Árið eftir fór mórinn enn af stað og fórust þá tveir menn í móskriðu. Á Falklandseyjum er maður annaðhvort í Stanley eða í „camp“ (dregið af campos í spænsku). Þegar farið er milli tveggja stærstu eyjanna og reyndar hinna 700 minni er mest notast við litla flugvél eða 44

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.