Lesbók Morgunblaðsins - 21.12.1992, Blaðsíða 46
Valgerður Þóra
Fylltu hús þitt
með rósum
og góðum ilmi
Þá færðu að fmna
Hvílíkur unaður
Það er að vera til
Mitt í angandi kyrrð og gleði
Og frjóum litum
Þú skilur ekkert
Að þú skulir geta verið svo kyrr en kát
Bara algjörlega alein
Full af gleði og friði
Ilmandi af gulum rósum
Sem geta ekki dáið
Af því að þessi litur er eini liturinn
Sem alltaf angar
Hvar sem hann grær
Úti eða inni
Allir aðrir litir ilma
En ekki jafn sterkt
Enginn litur angar eins
Þú sest og lest
Og lesturinn verður Ijúfur og hægur
Blítt og sætt liðast kvöldið fram
Og er sama um tímann
Því það er svo rótt og hljótt hér inni í ilmi og litum
Samt er lágur hljómur
Ómur einhvers sem er
Bæði inni í mér og úti
Einhver óttalaus ómur um enga kvöl
Þannig að önd minni léttir
Og ég anda út lengi og vel
Ég fer samt að hugsa
Hver getur truflað mig
Kvölin er á mig vill leita
ViII ekki frið
Hún getur aldrei staðist
Þann mikla ilm
Sem kemur af öllum gróðri
Sem andar hjá mér
Og svo fer þessi ómur að hljóma
Innra sem yst
Og kvölin fær ekki staðist
Þá miklu kyrrð
Sem kemur af ómi og ilmi
Þess vegna verð ég að setjast
Hvem einasta dag fram á kvöld
Við óminn og ilminn hjá rósum í litum og dýrð
Og fara svo hægt út á brautina beinu
Með töskuna fulla af ilmi
Og láta þar alla og allt fá að anga
Ojg hlæja með mér
Uti á brautinni upplýstu beinu
Með ægisterk Ijós
Því að Ijósið það fylgir með ilmi
Það er alltaf með
Og þarna er friðsælt og fagurt
Og enginn sem deyr.
Höfundur er Ijóðskáld og hefur oft áður birt Ijóð í Lesbók.
ILLUGI JÖKULSSON
Blásvartur
— Ástarljóð —
Ég veit, að úti í hafmu er hvalur sem mun deyja
með nafn mitt á vörunum. Blásvartur, blóðugur
veltist hann í hafrótinu og yfir honum sveima
hræfuglar sjávarins og hann finnur hjartað sitt stóra
að bresta og þá mun hann neyta fjörbrotanna
til að sigra síðustu ölduna og ofursmáu augun
horfa tárvot til himins og hann prísar sig sælan
fyrir löðrið svo hræfuglarnir hlakkandi í loftinu
sjái ekki veiklyndi hans á dauðastundinni og
hann mun blása í síðasta sinn, og nefna mitt nafn
um leið og hann deyr.
Veiðimaðurinn I
Loftið er kalt og tært í norðrinu og undir vörðunni
situr grænklæddur veiðimaður og bíður og hlaup byssunnar
beinist yfir sléttuna og veiðimaðurinn sogar ofan í sig
sígarettureyk og fleygir glóðinni út á kalda sléttuna og
hallar sér upp að vörðunni og augu hans stara þrjú út á
frostbarða sléttuna þar sem refurinn bíður; þar sem
melrakkinn smeygir sér milli steina og étur helfrosna
kríuunga í hreiðrum sínum og færir sig nær vörðunni og
stígur varfæmislega yfir mosagróinn fótlegg og nartar
í beinabera höndina sem beinir auga byssunnar í átt
að heimskautinu og mjóslegnar gráleitar rottur í holum
augntóttunum skjótast út í urðina og hverfa.
Veiðimaðurinn II
Hjarta veiðimannsins sló eitt
högg og hann heyrir
óm annars hjarta í auðninni
vonar hann og rís á fætur
og fetar sig út á sléttuna
í leit að því, út á freðna sléttuna
og hefur grun um hann hafi þegar fundið það en
viti ekki hvar það er
og sígarettan veitir engan yl
á sléttunni og blóðið
rennur hægt um æðarnar og það eru
frostrósir á augunum, ugglaust tár
hugsar hann en man ekki
neitt
nema það
hann vonar að
fyrír honum verði um síðir hlýtt brjóst
sem hann geti borað í krókloppnum höndunum
undurmjúkt og gætilega gróðursett
þar fingur sína
og fylgst með
grænu kími skjóta rótum í auðninni.
Höfundur er rithöfundur í Reykjavík
Hve margir sigldu með Kólumbusi?
Þegar borin er saman frásögn Lesbókar
við hinar frásagnimar ber nokkuð mikið á
milli um fjölda þeirra manna, sem vom í
þessum tveim ferðum Kólumbusar. Afar
ósennilegt er að 900 manns (Lesbók) hafí
verið í fyrstu ferðinni eða að jafnaði 300
manns á hverju hinna litlu skipa.Ekki er
getið um stærð þeirra 17 skipa, sem tóku
þátt í annarri ferð Kólumbusar, en Lesbók
segir 12.000 manns í þeirri ferð, þ.e. um
700 manns á hveiju skipi að jafnaði.
Ólíklegt er að allur þessi fjöldi manna
hafi rúmast á þessum 17 skipum hafi stærð
þeirra verið eitthvað svipuð og stærð skip-
anna í fyrstu ferð Kólumbusar. Eru því frá-
sagnir þær, sem vitnað er í hér að framan
um stærðir skipa og fjölda leiðangurs-
manna, sem tóku þátt í þessum tveim ferð-
um Kólumbusar til Ameríku, öllu sennilegri
en það, sem birtist í Lesbók.
ÁRNI E. VALDIMARSSON.
0 - Athugasemd við grein í Lesbók
ILesbók Morgunblaðsins 27. tbl. 15.
ágúst 1992-67 árg. er grein með
yfirskriftinni: Ameríka fyrir daga
Kólumbusar, þar sem m.a. er skýrt
frá ferðum Kólumbusar til Ameríku. Segir
þar, að í fyrstu ferð hans þangað hafi 3
skip verið í leiðangri hans, forystuskipið
„Santa Maria“ og tvö minni skip, „Pinta“
og „Nina“ og að 900 manns hafí verið á
þessum þrem skipum, þ.e. um 300 manns
á hveiju skipi. Ennfremur segir Lesbók, að
í annarri ferð Kólumbusar hafi verið 17
skip með samtals 12.000 manns, þ.e. 700
manns á hveiju skipi. Ekki stenzt þetta við
frásögn um þessar ferðir í Skipabók Fjölva,
útg. 1979.
Þar segir, að áhafnir þessara þriggja fyrr-
nefndu skipa hafí verið um 120 manns, þar
af um 30 afbrotamenn, því erfítt hafði ver-
ið að manna skipin í þessa ferð. Einnig
segir í Fjölva um stærð skipanna, að „Santa
Maria" hafí verið talin um 100 lestir og
hin skipjn, „Pinta“ og „Nina“, eitthvað
minni. í tímaritinu The Compas, no.
1.1992, ergrein um ferðir Kólumbus-
ar. Þar segir að hann hafí látið úr
höfn í sína fyrstu ferð föstudaginn
3. ágúst 1492, á fyrmefndum
þremur skipum með samtals 90
manns og í annarri ferð hans árið
eftir hafi verið 17 skip með sam-
tals 1.500 manns. í The Compas
er „Santa Maria“ talin vera um 80
feta löng (um 24 m) og um 100
tonn, en „Pinta" og „Nina“ um 60
tonn.
í bókinni Warships of the World eft-
ir Gino Galuppini, útg. 1989, segir að í
fyrstu ferð Kólumbusar hafí áhöfn „Santa
Maria“ verið 39 manns, en ekki er getið
um áhafnir hinna skipanna, sem að öllum
líkindum hafa verið eitthvað fámennari.