Morgunblaðið - 25.02.2001, Síða 1
MORGUNBLAÐIÐ 25. FEBRÚAR 2001
47. TBL. 89. ÁRG. SUNNUDAGUR 25. FEBRÚAR 2001 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
STOFNAÐ 1913
Í þágu almennings
10
Líffærameina-
fræðin er listræn
28
REYNSLA VEITIR
ÓMETANLEGT FORSKOT
SUNNUDAGUR
25. FEBRÚAR BLAÐB
SUNNUDAGUR
Ríflega þrettán ár eru nú frá því Upp-
gjör konu, ævisaga Höllu Linker, kom út
á Íslandi og varð metsölubók.
Hispurslausar lýsingar ræðis-
manns Íslands í Los Angeles á hjóna-
bandi sínu við sjónvarpsmanninn Hal
Linker, ferðalögum um öll heimshorn
og af lífi og starfi fjarri heimahögunum
vöktu mika athygli og Halla Linker varð
ein þekktasta kona landsins. „Bókin
breytti öllu fyrir mig. Hún veitti mér
styrk, fjárhagslegt öryggi og eftir ritun
hennar tók við stærsta ævintýri lífs
míns,“ segir Halla í viðtali við Björn
Inga Hrafnsson, en hún ber nú eftir-
nafnið Aguirre, eftir giftingu hennar og
úrúgvæska hershöfðingjans og diplóm-
atans Francisco Aguirre, sem m.a. hef-
ur gegnt ráðherraembætti í heimalandi
sínu./B16
Lífið er
eitt samfellt
ævintýriTveir rómantíkerar úr ólíkum áttum sameinaðir í
Los Angeles.
Morgunblaðið/BIH
Ríflega sjötug segir Halla Linker Aguirre að ástin og hamingjan blasi við sér
Þorði ekki að
svara í símann
af ótta við
slæmar f́réttir
6
Breyttir tímar
16
Druslustimpilllinn stjórntæki
20
30
COLIN Powell, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, kom til Kaíró í
Egyptalandi í gær og var það fyrsti
áfanginn í ferð hans um Miðaust-
urlönd. Mun hann meðal annars
leita eftir stuðningi ráðamanna í
arabaríkjum við stefnu Bandaríkj-
anna gagnvart Írak og hann ætlaði
að fara fram á það við egypsku
stjórnina, að hún beitti sér fyrir því,
að Ísraelar og Palestínumenn tækju
aftur upp viðræður. Í gær átti hann
einnig sinn fyrsta fund með Ígor Ív-
anov, utanríkisráðherra Rússlands,
í Kaíró. Auk þess var fyrirhugaður
fundur með leiðtogum Ísraela og
Palestínumanna.
Innfellda myndin er af Powell við
komuna til Kaíró en sú stærri sýnir
umferð eftir helstu „þjóðbrautinni“
á Gaza en Ísraelar hafa eyðilagt
þjóðveginn, sem tengir tvö helstu
svæðin þar, þannig að nú verða
Gazabúar að fara fjöruna.
AP
„Þjóðvegurinn“ um Gaza
ANFINN Kallsberg, lögmaður Fær-
eyja og leiðtogi Fólkaflokksins, hefur
lagt til, að þjóðaratkvæðagreiðslunni
um sjálfstæði eyjanna verði aflýst.
Segir hann, að hörð viðbrögð Dana
valdi því og ekki sé hættandi á, að
meirihluti landsmanna hafni fullveld-
istillögunni. Fulltrúar hinna flokk-
anna tveggja í landstjórninni hafa
lýst yfir andstöðu við afstöðu Kalls-
bergs.
Kallsberg skýrði frá þessari af-
stöðu sinni á fundi með samstarfs-
mönnum sínum í landstjórninni, úr
Þjóðveldisflokknum og Sjálfstýri-
flokknum, en fyrirhugað var, að þjóð-
aratkvæðagreiðslan yrði 26. maí
næstkomandi. Poul Nyrup Rasmus-
sen, forsætisráðherra Danmerkur,
lýsti því hins vegar yfir, að sam-
þykktu Færeyingar að segja skilið
við dönsku krúnuna, fengju þeir
áfram danska styrkinn, sem nemur
þriðjungi færeysku fjárlaganna, í
fjögur ár en ekki 12 eins og færeyska
landstjórnin vill.
Skoðanakönnun, sem gerð var í
Færeyjum eftir yfirlýsingu Rasmus-
sens sýndi, að ákveðinn meirihluti
landsmanna ætlaði að segja nei 26.
maí.
Kallsberg leggur nú til að í stað
þjóðaratkvæðagreiðslunnar fari
Færeyingar að vinna að því af krafti
að taka við ýmsum málaflokkum sem
nú eru kostaðir af Dönum. Þar á með-
al eru kirkjan, menntamál og fleiri.
„Sjálfstæðisbaráttan er slagur á
milli okkar og Dana og það væri ekk-
ert annað en stórslys, sem hefði af-
leiðingar langt inn í framtíðina, ef
meirihluti landsmanna segði nei í
þjóðaratkvæðagreiðslunni,“ sagði
Kallsberg.
Hinir flokkarnir andvígir
Samstarfsmenn Kallsbergs í Þjóð-
veldisflokknum og Sjálfstýriflokkn-
um eru ekki sammála honum um að
rétt sé að aflýsa þjóðaratkvæða-
greiðslunni. Þjóðveldisflokksmaður-
inn Högni Hoydal, sem fer með sjálf-
stæðismálin, kvaðst í gær vera
andvígur afstöðu Kallsbergs og
flokkurinn vildi standa við fyrri
ákvarðanir landstjórnarinnar. Hel-
ena Dam í Sjálfstýriflokknum er á
sama máli og Högni en vill fresta
þjóðaratkvæðagreiðslunni til 14.
september. Sumarið skuli nota til að
skýra betur út fyrir landsmönnum
hugmyndir landstjórnarinnar um
sjálfstæðismálin.
Ekki verður endanlega ljóst fyrr
en eftir nokkra daga hvað ofan á
verður í þessum málum eða hvaða
áhrif þau muni hafa á samstarfið í
landstjórninni.
Lögmaður Færeyja á fundi með samstarfsflokkunum í landstjórninni
Vill aflýsa þjóðaratkvæða-
greiðslu um sjálfstæði
Þórshöfn. Morgunblaðið.
GRÆNLENSKIR skotveiði-
menn eru komnir vel á veg með
að útrýma heilu fuglabyggðun-
um og stjórnmálamenn í Græn-
landi láta sem þeir viti ekki af
því. Kemur þetta fram í danska
blaðinu Aktuelt, sem aftur vitn-
ar í grein í tímariti danska
fuglaverndarfélagsins. Þar seg-
ir, að litið sé á Grænlendinga
sem „svarta sauðinn“ meðal
þjóðanna á norðurhveli enda
skeyti þeir í engu um mótmæli
Íslendinga og Kanadamanna.
Í blaði danska fuglaverndar-
félagsins, Fugle og Natur, seg-
ir, að búið sé að útrýma sextán
langvíubyggðum og flest bendi
til, að langvíunni verði að mestu
útrýmt. Þá séu kría og æðar-
fugl að fara sömu leið.
Í blaðinu segir, að ástæðan
fyrir þessari þróun sé meðal
annars sú, að Grænlendingum
hafi fjölgað og næstum allir hafi
þeir aðgang að nýtískuvopnum
og vélbátum. Þá séu engin um-
hverfisverndarsamtök starf-
andi í landinu ef undan er skilin
nýstofnuð deild í danska fugla-
verndarfélaginu.
Blaðið segir, að hluti af
langvíunni í Grænlandi sé fugl
frá Íslandi og Svalbarða og
mikið af æðarfugli við vestur-
ströndina komi frá Kanada.
Græn-
lendingar
útrýma
fuglinumMIKIL reiði ríkir í röðum banda-rískra demókrata vegna hinna um-
deildu sakaruppgjafa, sem Bill Clint-
on, fyrrverandi forseti, undirritaði á
síðasta degi sínum í embætti. Hafa
sumir þeirra gagnrýnt dómgreindar-
leysi hans og ráðleggja honum að fara
í langt frí fjarri sviðsljósinu.
Opinber rannsókn er nú hafin á
nokkrum sakaruppgjöfum Clintons
og í síðustu viku var síðan upplýst, að
Hugh Rodham, bróðir Hillary, eigin-
konu Clintons, hefði þegið stórfé fyrir
að mæla með náðun tveggja afbrota-
manna. Þá kveðst Roger, bróðir
Clintons, hafa beitt sér í náðununum
og segist raunar vera mjög reiður
bróður sínum fyrir að hafa ekki náðað
sex menn, sem hann kynntist er hann
sat sjálfur á bak við lás og slá.
New York Times sagði í gær, að Al
Gore, fyrrverandi varaforseti, væri
„vonsvikinn og miður sín“ yfir fram-
ferði Clintons og James Carville,
fyrrverandi kosningastjóri Clintons,
sakaði hann um dómgreindarleysi og
undir það tók Terry McAuliffe, for-
maður Demókrataflokksins. Joan
Walsh, mikill stuðningsmaður Clint-
ons til þessa, sagði, að nú yrði hann að
„fara í langt frí fjarri sviðsljósinu“.
„Demókratar þurfa síst af öllu á að
halda stefnulausum, óöguðum, fyrr-
verandi forseta, sem vill ekki láta sig
hverfa,“ sagði Walsh.
„Clinton
fari í
langt frí“
Washington. AFP, AP.
GEORGE W. Bush, forseti Banda-
ríkjanna, lýsti í fyrrakvöld að lokn-
um fundi með Tony Blair, forsætis-
ráðherra Bretlands, yfir stuðningi
sínum við stofnun evrópsku hrað-
sveitanna. Mjög vel fór á með þeim
leiðtogunum á fundinum.
Bush kvaðst hafa samþykkt þau
rök Blairs, að evrópsku hraðsveitirn-
ar myndu ekki verða til að grafa und-
an NATO og þeim yrði aðeins beitt
við friðargæslu og þegar NATO
sjálft ætti ekki hlut að máli. Blair
lagði áherslu á, að ekki yrði um
fastaher að ræða, heldur úrræði,
sem nauðsynlegt væri að geta gripið
til. Það yrði hlutverk NATO hér eftir
sem hingað til að standa vörð um
friðinn í Evrópu.
Blair lýsti ekki yfir stuðningi við
eldflaugavarnaáætlun Bandaríkja-
manna en kvaðst hins vegar vera
sammála þeim um, að nauðsynlegt
væri að vera á verði fyrir utanað-
komandi ógn. Um Írak voru þeir
leiðtogarnir sammála og sögðu, að
halda yrði aftur af Saddam Hussein
Íraksforseta.
Bush styð-
ur hrað-
sveitirnar
Camp David. AP, AFP, Reuters.