Morgunblaðið - 25.02.2001, Page 49
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25. FEBRÚAR 2001 49
DAGBÓK
SNILLDIN er stundum
tvíbent. Einn vel lesinn
„snillingur“ fékk að kenna á
því í upphafi tvímennings
Bridshátíðar. Hann sat í
vestur í vörn gegn þremur
gröndum:
Vestur gefur; NS á hættu.
Norður
♠ Á10654
♥ 10
♦ ÁD763
♣ 107
Vestur
♠ 982
♥ G852
♦ K10
♣ Á965
Vestur Norður Austur Suður
Pass 1 spaði 2 hjörtu 3 grönd
Pass Pass Pass
Margur maðurinn hefði
sagt fjögur hjörtu við þrem-
ur gröndum, en þessi vestur
taldi ástæðulaust að fórna
með svo góð varnarspil –
kóng og ás til hliðar og fjög-
ur spil í líflit makkers. Lát-
um vera. Útspilið var að
sjálfsögðu hjarta upp á kóng
makkers og ás sagnhafa.
Þar með lá ljóst fyrir að suð-
ur var með ÁD í hjarta.
Næst kom smár tígull að
borðinu. – Yfir til lesandans.
Norður
♠ Á10654
♥ 10
♦ ÁD763
♣ 107
Vestur Austur
♠ 982 ♠ DG7
♥ G852 ♥ K97642
♦ K10 ♦ –
♣ Á965 ♣ G932
Suður
♠ K3
♥ ÁD
♦ G98542
♣ KD4
Vestur hafði séð þetta í
bók. Sagnhafi á G9x heima.
Hann svínar auðvitað
drottningunni og fær óhjá-
kvæmilega fimm slagi á lit-
inn. Nei – það mátti ekki
gerast. Vestur lét kónginn
og var snöggur að því! Hug-
myndin var auðvitað sú að
láta sagnhafa svína níunni í
bakaleiðinni.
Sagnhafi þurfti nú ekki að
velta fyrir sér tígulíferðinni
og tók 11 slagi og uppskar
vel. Ef vestur lætur tíuna og
sagnhafi stingur upp ás, fást
aðeins níu slagir og þá hefðu
AV tekið inn meirihluta stig-
anna.
„Hefði hann ekki hvort
sem er svínað?“ sagði vestur
afsakandi.
„Það veit enginn,“ svaraði
austur, sem var eins um-
burðarlynt svar og hægt var
að ætlast til.
BRIDS
Umsjón Guðmundur Páll
Arnarson
STJÖRNUSPÁ
ef t i r Frances Drake
FISKAR
Afmælisbarn dagsins: Þú átt
gott með að finna þér skjól
þar sem þú getur verið einn
með hugsunum þínum. Þú
ert næmur á umhverfi þitt.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Eitt og annað kann að fara
úrskeiðis í dag en þú skalt
bara halda þínu striki því
annars áttu á hættu að allt
það sem þú vinnur að renni út
í sandinn.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þér standa ýmsir möguleikar
opnir og vissulega er vandi að
velja en undan honum getur
þú ekki vikist. Gefðu þér tíma
til að kanna málin.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Gleymdu því ekki að segja
vinum þínum og vandamönn-
um hversu vænt þér þyki um
þá. Þeir gætu ofan í kaupið
veitt þér aðstoð við það verk-
efni sem þú vinnur að.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Ef þér mislíkar eitthvað í fari
annarra gerir þú rétt í því að
láta það í ljósi. En mundu að
slíkt má segja á tillitssaman
og kurteisan máta.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þú vilt umfram allt halda
áfram en fyrst þarft þú að
ganga úr skugga um að þeir
sem með þér eru séu tilbúnir
því annars líður verkefnið
fyrir misvægi ykkar.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Ef þér finnst aðrir of kröfu-
harðir á athygli þína skaltu
segja þeim það og taka sjálf-
ur stjórn á hlutunum. Ein-
beittu þér að því sem skiptir
máli.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Ef þér finnst þú ekki ráða við
ákveðið verkefni upp á eigin
spýtur þá skaltu ekki hika við
að leita þér aðstoðar hjá þeim
sem þú veist að geta hjálpað
þér.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Það er bara til óþurftar að
reyna að grugga vatnið og
hefur því lítið upp á sig.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Það er stórskemmtilegt að
horfa á hlutina með augum
barnsins. Mundu að enginn
er eldri en hann finnst hann
vera hvað svo sem árunum
líður.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Enda þótt þú sjáir ekki fram-
tíðina fyrir þá er skynsamlegt
að reyna að gera sér sem
gleggsta grein fyrir því sem
framundan er. Það sparar
bæði tíma og fyrirhöfn.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Það er ekki nóg að sjá bara
hinar breiðu línur því einnig
þarf að skyggnast undir yf-
irborðið eftir smáatriðunum.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Þótt eitt og annað megi lesa
út úr vísbendingum sem
blasa við skaltu varast að
gera svo mikið úr þeim að þér
fallist hendur. Haltu því sem
truflar í burtu frá þér.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
LJÓÐABROT
TIL SKÝSINS
Sortnar þú, ský,
suðrinu í
og síga brúnir lætur.
Eitthvað að þér
eins og að mér
amar, ég sé þú grætur.
Virðist þó greið
liggja þín leið
um ljósar himinbrautir,
en niðri hér
æ mæta mér
myrkur og vegarþrautir.
Hraðfara ský,
flýt þér og flý
frá þessum brautum harma,
jörðu því hver
of nærri er
oft hlýtur væta hvarma.
Jón Thoroddsen.
Árnað heilla
85ÁRA afmæli. Á morg-un, mánudaginn 26.
febrúar, verður 85 ára Gest-
ur Guðjónsson, Skjólvangi,
Hrafnistu, Hafnarfirði.
Gestur og eiginkona hans,
Svava Hannesdóttir, taka á
móti ættingjum og vinum í
dag, sunnudaginn 25. febr-
úar, kl. 15-18 í sal á 5. hæð
Hrafnistu, Hafnarfirði.
Myndasmiðjan ehf.
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman í Egilsstaðakirkju af
sr. Láru G. Oddsdóttur
Steinunn Snæland og Ellert
Grétarsson. Heimili þeirra
er að Útgarði á Egilsstöð-
um.
SPÆNSKI stórmeistarinn
Alexei Shirov (2718) tefldi
ekki eingöngu einvígið við
Simen Agdestein í heimsókn
sinni til Björgvinjar fyrir
stuttu. Degi eftir að því lauk
tefldi hann fjöltefli við val-
inkunna skákmenn. Einn
þeirra var Helgi
Hauksson sem
tókst að véla af
Spánverjanum
þrjú peð en fékk
hinsvegar á móti
afleitlega kóng-
stöðu. Staðan er
frá þeirra viður-
eign og hafði sá
spænski hvítt:
20.f5! b6 Til álita
kom að leika 20...h6
þar sem eftir texta-
leikinn er staða
svarts gjörsamlega
vonlaus. 21.Dg5 f6
22.Dxg7 Dxa3 23.Dxh8+
Df8 24.Hd8+! Kxd8
25.Dxf8+ Kc7 26.Dd6+ Kb7
27.exf6 e5 28.Hc1 c5
29.Dd5+ Kc7 30.Dxa8 og
svartur gafst upp. Kvenna-
meistaramót Taflfélagsins
Hellis hefst kl.13.00 í dag,
25. febrúar, í húsakynnum
félagsins í Þönglabakka 1 í
Mjódd. Atkvöld Hellis hefst
kl. 20.00 26. febrúar. Ljúf-
feng verðlaun verða í boði
Dominos-pizza!
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
MORGUNBLAÐIÐ
birtir tilkynningar um
afmæli, brúðkaup, ætt-
armót og fleira lesend-
um sínum að kostnaðar-
lausu. Tilkynningar
þurfa að berast með
tveggja daga fyrirvara
virka daga og þriggja
daga fyrirvara fyrir
sunnudagsblað. Sam-
þykki afmælisbarns
þarf að fylgja afmælis-
tilkynningum og/eða
nafn ábyrgðarmanns
og símanúmer. Fólk
getur hringt í síma 569-
1100, sent í bréfsíma
569-1329, eða sent á
netfangið ritstj @mbl.-
is.
Einnig er hægt að
skrifa:
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1, 103
Reykjavík
Voruð það þér sem pöntuðuð flamberaða steik?
COSPER
Sumarið er
í Storkinum
Rowan
prjónablaðið er
komið
Nýtt garn
Nýir litir
Laugavegi 59, sími 551 8258.
Þarftu nudd?
Kolbrún Þóra Sverrisdóttir nuddari FÍN
Gamlir og nýir viðskiptavinir velkomnir í
Hólagarð • Lóuhólum 2–6 • S. 557 5959 • 862 9740
Býð m.a upp á kínverska punkta, vöðva-,
sogæða-, ilmolíu- og svæðanudd.
DÚNDUR TILBOÐ
Yfirhafnir
tvær fyrir eina
Greitt fyrir dýrari flíkina
Opið í dag frá
kl. 13 – 17
Mörkinni 6,
sími 588 5518
FRÉTTIR
ÞÓTT enn séu sjö vik-
ur til páska og góan
rétt hafin hafa páska-
liljur í görðum nýtt sér
hina góðu tíð að und-
anförnu og potast upp
úr jörðu. Plantan er
þannig rótbúin að þó
að aftur kólni eru
blöðin með nokkurs
konar frostvörn þann-
ig að hún lifir af kulda-
kafla og tekur sig svo
til og sprettur á ný
þegar aftur hlýnar.
Páska-
liljur
lifna úr
jörð
Þótt enn séu sjö vikur til páska hafa páskalilj-
ur potast upp úr jörðu.