Morgunblaðið - 01.03.2001, Qupperneq 2
FRÉTTIR
2 FIMMTUDAGUR 1. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ
SLITNAÐ hefur upp úr samninga-
viðræðum milli Félags háskólakenn-
ara og samninganefndar ríkisins.
Boðað hefur verið til fundar í félaginu
í dag og segist Sigríður Björnsdóttir,
framkvæmdastjóri félagsins, reikna
með að á fundinum komi fram tillaga
um boðun verkfalls. Hægt miðar í við-
ræðum BHM-félaga við ríkið, en þó
hefur eitt félag undirritað samning.
Sigríður sagði að á fundi með
samninganefnd ríkisins í fyrradag
hefði ríkið lagt fram launatölur en
samkvæmt þeim ættu byrjunarlaun í
A-ramma að vera 108 þúsund krónur
á mánuði, en byrjunarlaun sam-
kvæmt nýjum samningi framhalds-
skólakennara væru 121 þúsund kr.
Byrjunarlaun framhaldsskólakenn-
ara í B-ramma væru 160 þúsund
krónur en háskólakennurum hefðu
verið boðin 139 þúsund. Byrjunarlaun
framhaldsskólakennara í C-ramma
væru 175 þúsund kr. en háskólakenn-
urum hefðu verið boðin 158 þúsund.
Í fundarboði Félags háskólakenn-
ara kemur fram að meðaldagvinnu-
laun framhaldsskólakennara séu
samkvæmt nýja samningnum 215
þúsund krónur á mánuði en meðal-
dagvinnulaun lektors með doktors-
próf verði samkvæmt tilboði samn-
inganefndar ríkisins 180 þúsund
krónur. Meðaldagvinnulaun dósents
með doktorspróf verði 220 þúsund á
mánuði.
Þá slitnaði upp úr viðræðum
Félags íslenskra náttúrufræðinga og
samninganefndar ríkisins í gær. Að
sögn Ínu Bjargar Hilmarsdóttur, for-
manns félagsins lagði ríkið fram til-
boð sem færði viðræðurnar aftur á
byrjunarreit og því ákvað samninga-
nefnd náttúrufræðinga að gera hlé á
viðræðum til að ráðfæra sig við stjórn
félagsins.
Herdís Sveinsdóttir, formaður
Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga,
sagði í samtali við Morgunblaðið að
mjög hægt miðaði í samningaviðræð-
um hjúkrunarfræðinga og ríkisins.
Mikillar óþolinmæði væri farið að
gæta hjá hjúkrunarfræðingum enda
væru fjórir mánuðir liðnir frá því að
samningur félagsins rann úr gildi.
Eitt félag búið að semja
Félag háskólamenntaðra starfs-
manna stjórnarráðsins undirritaði
nýjan kjarasamning sl. þriðjudag, en
það er fyrsti samningur sem félag há-
skólamanna gerir við ríkið. Samning-
urinn gildir frá 1. febrúar sl. til 30.
apríl 2004. Samningurinn felur í sér
6,9% hækkun 1. febrúar. Taxtar
hækka um 3% um næstu áramót og
um önnur 3% 1. janúar 2003 og um
1,5% 1. janúar 2004.
Ólafur Grétar Kristjánsson, for-
maður félagsins, sagði að til viðbótar
hefði orðið samkomulag um að rýmka
launarammann. Hann sagði þetta
þýða aukið svigrúm til að raða mönn-
um í launaflokka, sem í einhverjum
tilvikum ætti að leiða til hækkunar.
Ólafur sagði að til viðbótar væru í
samningnum svipuð ákvæði og í
samningi framhaldsskólakennara um
desemberuppbót og orlofsuppbót.
Sama ætti við um ákvæði um veik-
indarétt, fæðingarorlof, fjölskyldu- og
styrktarsjóð og ákvæði um lífeyris-
sparnað. Félagið hefði lengi barist
fyrir því að fá greiðslu þegar félags-
menn væru á ferðalagi erlendis yfir
helgi á vegum stjórnarráðsins. Hann
sagði að samkomulag hefði náðst um
að félagsmenn fengju fasta greiðslu
fyrir frídaga ef þeir væru á ferðalagi
erlendis. Auk þess væri tilteknum
kjaraatriðum vísað til samstarfs-
nefnda inni á vinnustöðunum eins og
t.d. yfirvinnu á ferðalögum erlendis
og námsleyfum.
Um 270 eru í Félag háskólamennt-
aðra starfsmanna stjórnarráðsins.
Tillaga um verkfall lögð
fyrir fund háskólakennara
FRAMKVÆMDIR í Þingvallabæn-
um standa nú sem hæst en að sögn
Skarphéðins Steinarssonar hjá for-
sætisráðuneytinu er verið að auka
við aðstöðu ráðherrabústaðarins
sem verður nú fjórar burstir í stað
tveggja. Þegar er búið að opna á
milli annarrar og þriðju burstar frá
suðri sem áður voru aðskildar með
vegg. Nyrsta burstin verður svo að-
greind frá hinum og verður til af-
nota fyrir þjóðgarðsvörð og prest.
„Forsætisráðherra hefur í aukn-
um mæli boðið erlendum gestum til
Þingvalla og aðstaðan hefur verið
mjög lítil og óhentug fyrir slíkar
móttökur. Það er fyrst og fremst
verið að mæta þessum þörfum með
breytingunum,“ segir Skarphéð-
inn.
Búist er við að framkvæmdum
ljúki fyrir páska. Morgunblaðið/RAX
Opnað á
milli bursta
eth hefði bæði greitt fyrir flugfarið og
uppihald. Hann hefði einnig bókað
fyrir hann gistingu á sama gistiheim-
ili og Gareth og unnusta hans dvöldu
á í London.
Breytti framburði
Gareth var fyrst boðaður til yfir-
heyrslu 15. ágúst. Hann neitaði þá að
eiga fíkniefnin eða að hafa beðið Víði
um að flytja þau til landsins. Hann
hefði heldur ekki orðið var við með-
sem var vinnuveitandi hans fyrir
nokkrum árum. Lögreglan hóf þá eft-
irlit með Gareth og hleraði síma hans.
Við yfirheyrslur bar Víðir að hann
hefði tekið að sér að flytja efnin til
landsins gegn 350.000 króna greiðslu
frá Gareth. Hann kvaðst hafa verið
orðinn þreyttur á að vera sífellt
blankur og eiga ekki fyrir skuldum.
Víðir lýsti atvikum svo að hann
hefði farið með sömu flugvél og Gar-
eth og unnusta hans til London. Gar-
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur
dæmdi í gær þá Gareth John Ellis og
Víði Þorgeirsson í sjö ára fangelsi
fyrir aðild sína að innflutningi á rúm-
lega 5.000 e-töflum í júlí í fyrra.
Í dómnum sem Ingibjörg Bene-
diktsdóttir héraðsdómari kvað upp,
segir að mennirnir hafi bent hvor á
annan og hafi við yfirheyrslur reynt
að gera hlut sinn í fíkniefnainnflutn-
ingnum sem minnstan.
Tollverðir á Keflavíkurflugvelli
fundu fíkniefnin í farangri Víðis þeg-
ar hann kom til landsins úr helgar-
ferð til London 24. júlí sl. Í farangri
fundust pakkningar sem reyndust
innihalda 5007 e-töflur og 5,05 g af e-
töflumulningi.
Við fyrstu yfirheyrslu hjá lögreglu
viðurkenndi Víðir að hann hefði flutt
fíkniefnin til landsins fyrir Gareth
ferð fíkniefna á gistiheimilinu í Lond-
on. Þegar Gareth var tilkynnt við yf-
irheyrslur um tveimur vikum síðar að
fingraför hans hefðu fundist á pakkn-
ingunum sem e-töflurnar voru í
breytti hann framburði sínum.
Hann kvaðst þá hafa keypt fíkni-
efnin fyrir Víði á bar í London. Töfl-
urnar voru þá í plastpokum en Gar-
eth vafði þá með brúnu límbandi.
Síðar sagðist Gareth hafa talið að
Víðir hefði ætlað að flytja fíkniefnin
til Spánar. Hann neitaði að eiga nokk-
urn þátt í innflutningi fíkniefnanna.
Í niðurstöðum dómsins segir að
mennirnir hafi báðir játað að hluta
aðild sína að innflutningi á e-töflun-
um. Framburður Víðis hafi verið trú-
verðugur og stöðugur í öllum meg-
inatriðum. Framburður Gareths er
hins vegar sagður óstöðugur og á
stundum ótrúverðugur. Þrátt fyrir
það þótti dómnum ekki sannað að
hlutur Gareths hefði verið annar en
sá að kaupa efnin og afhenda Víði
þau.
Þeim var báðum gert að greiða
verjendum sínum 120.000 í máls-
varnarlaun. Verjandi Víðis var Karl
G. Sigurbjörnsson hdl. en Róbert
Árni Hreiðarsson hdl. varði Gareth.
Kolbrún Sævarsdóttir sótti málið af
hálfu ákæruvalds.
Dæmdir í sjö ára fang-
elsi fyrir e-töflusmygl
Sakborningarnir báru hvor annan sök og reyndu að gera hlut sinn sem minnstan
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.isFleiri Finnar falla
á lyfjaprófi / C1
Óskabyrjun Svens Görans Eriks-
sons með Englendinga / C2
4 SÍÐUR
Viðskiptablað
Morgunblaðsins
Sérblað um viðskipti/atvinnulíf
8 SÍÐUR
Sérblöð í dag
MJÓTT var á munum í Há-
skólakosningunum í gær. Í
kosningunum til Stúdentaráðs
sigraði Röskva með 49,4% at-
kvæða gegn 47,6% atkvæða
Vöku og hlaut þar með fimm
menn gegn fjórum.
Í kosningum til Háskóla-
fundar hlaut Röskva 49,8 % at-
kvæða á móti 47,4 % atkvæða
Vöku. Auðir seðlar og ógildir
voru 1,4 prósent. Alls kusu 3151
sem er 47,6 % kjörsókn og held-
ur meiri en undanfarin ár.
Röskva fékk
5 fulltrúa
Stúdentaráð HÍ
VERÐ á bensíni hjá Olíufélagi
Íslands, ESSO, hækkar um 1,60
kr. hver lítri í dag. Verð á 95
oktana bensíni hækkar úr 94,30
kr. í 95,90 kr og á 98 oktana
bensíni úr 99 kr. í 100,60 kr.
Díselolía hækkar um 60 aura
eða úr 45,70 krónum lítrinn í
46,30 krónur sem er 1,3% hækk-
un. Flotaolía lækkar um 60 aura
lítrinn en svartolía hækkar.
Hjá Skeljungi og Olís fengust
þær upplýsingar í gærkvöldi að
ákvörðun um það hvort fyrir-
tækin myndu hækka verð á
bensíni og olíu yrði tekin í dag.
Bensín
hækkar
um 1,60
krónur
KJARASAMNINGUR milli
Íslenska álfélagsins hf. og
starfsmanna var samþykktur á
kjörfundi í gær.
Tíu verkalýðsfélög eiga aðild
að samningnum og voru at-
kvæði greidd í tvennu lagi.
Samningar
hjá Ísal sam-
þykktir