Morgunblaðið - 01.03.2001, Page 6
FRÉTTIR
6 FIMMTUDAGUR 1. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Austurstræti 17, 4. hæð, 101 Reykjavík, sími 562 0400, fax 562 6564,
netfang: prima@heimsklubbur.is, heimasíða: http://www.heimsklubbur.is
Útnefnd í alþjóðasamtökin
EXCELLENCE IN TRAVEL NETWORK
fyrir frábærar ferðir
Suður-Afríka
HEIMSREISA FYRIR
SÓLARLANDAVERÐ!
Ætlarðu að missa af?
Páskar 2001 – 8.-16. apríl
– aðeins 3 vinnudagar.
Pöntunarsími
56 20 400
Síðustu forvöð!
FRANSKA sýningin Náttúrusýnir
sem verið er að setja upp í Lista-
safni Íslands og fengin er að láni
frá Borgarlistasafni Parísar, Petit
Palais, er tryggð fyrir rúma sex
milljarða króna. Þar af er eitt
verkanna, Sólarlag við Signu eftir
Claude Monet, tryggt fyrir einn
milljarð króna.
Að sögn Ólafs Kvaran, for-
stöðumanns Listasafns Íslands, er
hér á ferð tímamótasýning en
þetta er í fyrsta sinn sem verk
listamanna á borð við Gustave
Courbet, Claude Monet, Paul Céz-
anne, Alfred Sisley, Camille Piss-
arro og Jean Baptiste Corot eru
sýnd í íslensku safni. „Síminn
styrkir sýninguna sérstaklega
með myndarlegu framlagi,“ segir
Ólafur og bætir við að án þess
hefði sýningin ekki getað orðið að
veruleika. Alls eru á sýningunni
74 verk eftir 45 listamenn.
Meginhluti verkanna er eftir
meistara landslagsmálverksins í
Frakklandi á 19. öld en einnig er
þar að finna verk eftir hollenska
17. aldar málara sem höfðu afger-
andi áhrif á þróun landslags-
málverksins í Evrópu á 19. öld.
Opnun sýningarinnar fyrir
boðsgesti verður á sunnudag en
sýningin verður opnuð almenn-
ingi nk. þriðjudag og stendur til
22. apríl.
Morgunblaðið/Golli
Sólarlag við Signu er titill þessa þekkta verks eftir Claude Monet sem gestir Listasafns Íslands geta séð þar á næstunni. Ólafur Kvaran safnstjóri stend-
ur við verkið sem er tryggt fyrir einn milljarð króna en í heild er sýningin tryggð fyrir rúma sex milljarða.
Franskir dýr-
gripir tryggðir
fyrir 6 milljarða
VERKALÝÐSFÉLAG Raufarhafn-
ar hefur ákveðið að kæra til félags-
dóms ákvörðun SR-mjöls að taka sjö
starfsmenn loðnubræðslu fyrirtækis-
ins á Raufarhöfn af launaskrá. Fram-
kvæmdastjórn Starfsgreinasam-
bandsins hefur samþykkt að styðja
málshöfðun félagsins.
Kristján Bragason, framkvæmda-
stjóri Starfsgreinasambandsins,
sagði að málsatvik væru þau að 19.
janúar sl. hefðu sjö menn verið teknir
af launaskrá hjá SR-mjöl á Raufar-
höfn án nokkurs fyrirvara. Hann
sagði að loðnubræðslustarfsmenn
væru ekki með kauptryggingar-
samning líkt og starfsfólk í fisk-
vinnslu. Fyrirtækið hefði bent mönn-
unum á að skrá sig á á
atvinnuleysisbætur.
Atvinnuleysistrygingasjóður hefði
hins vegar hafnað því að greiða
mönnunum atvinnuleysisbætur á
þeirri forsendu að þeim hefði ekki
verið sagt upp með formlegum hætti
og þessi aðgerð stæðist ekki lög.
Starfmenn væru hins vegar búnir að
verið launalausir í ákveðinn tíma.
Hann sagði þessa ákvörðun SR-mjöls
sérkennilega í ljósi þess að hún væri
tekin í loðnuvertíð og því væri ekki
hægt að bera fyrir sig hráefnisskort.
Kristján sagði að lögmenn samb-
andsins hefðu skoðað þetta mál og
teldu þeir góðan grundvöll fyrir
félagsdómsmáli. Þeir legðu hins veg-
ar mikla áherslu á að Starfsgreina-
sambandið kæmi að málinu vegna
víðtækra áhrifa sem dómurinn hefði,
þ.e. gildi fyrir alla starfsmenn í
loðnubræðslum.
Málið verður skjalfest fyrir helgi
og leggur Starfsgreinasambandið
áherslu á að það fái flýtimeðferð.
Ákveðið að vísa máli gegn
SR-mjöli til félagsdóms
TÆPLEGA 26 prósent Íslendinga
eru mjög eða frekar ósammála því að
Reykjavíkurflugvöllur verði áfram á
núverandi stað sem er tæplega tíu
prósentum færra en í október síðast-
liðnum. Óákveðnum hefur hins vegar
fjölgað að sama skapi. Þetta er meðal
niðurstaðna í nýrri viðhorfskönnun
sem PricewaterhouseCoopers fram-
kvæmdi í febrúar. Ríflega 50 prósent
sögðust mjög eða frekar sammála því
að Reykjavíkurflugvöllur verði áfram
á sama stað.
Úrtakið í könnuninni, sem gerð var
símleiðis, var 1200 Íslendingar um
allt land á aldrinum 18-75 ára en svar-
hlutfall var rúm 60 prósent. Af þeim
sem tóku afstöðu voru 35,2% mjög
sammála því að Reykjavíkurflugvöll-
ur verði á sama stað og nú, 15,5%
voru frekar sammála, 23,5% hvorki
sammála né ósammála, 10,3% frekar
ósammála og 15,5% mjög ósammála.
Í sambærilegri könnun, sem fram-
kvæmd var í október síðastliðnum,
var andstaðan við flugvöllinn svipuð
og nú en rúmlega 52% svarenda sögð-
ust þá vera mjög eða frekar sammála
því að völlurinn verði áfram á sama
stað.
Flugvöllur í Vatnsmýri
Óákveðn-
um hefur
fjölgað
VERÐ á raforku til almennings á
svæði Orkuveitu Reykjavíkur lækk-
ar um 10% í dag. Hver kílóvattstund,
kWh, lækkar úr 6,34 kr. í 5,71 kr. án
virðisaukaskatts og nær lækkunin til
rúmlega helmings heimila í landinu
eða heimila í Reykjavík, Kópavogi,
Mosfellsbæ, á Seltjarnarnesi og
hluta heimila í Garðabæ.
Ástæða þess að unnt er að lækka
orkuverð nú er tilkoma raforkuvers-
ins á Nesjavöllum. Raforka sem þar
hefur verið framleidd hefur ein-
göngu verið seld til stóriðju fram til
þessa. Rafmagn frá Nesjavöllum
kemur í fyrsta sinn á markað á svæði
Orkuveitunnar 1. mars nk. Áætlað er
að það nægi til að uppfylla um 10% af
orkuþörfinni á svæðinu.
Rafmagnsreikningur á meðal-
heimili er á bilinu 40-50 þúsund kr. á
ári og leiðir lækkunin því til 4-5 þús-
und kr. lægri raforkureiknings á ári.
Orkuveita
Reykjavíkur
Raforku-
verð lækk-
ar um 10%
SÍFELLT FLEIRI skemmti-
ferðaskip leggjast að bryggju í
Reykjavíkurhöfn ár hvert og hafa
lengri viðkomu en áður. 48
skemmtiferðaskip hafa nú þegar
bókað komu sína til Reykjavíkur í
sumar og segist Ágúst Ágústsson,
markaðsstjóri hjá Reykjavíkur-
höfn, reikna með að leiri eigi eftir
að bætast við.
Fjöldi ferðamanna sem koma á
skemmtiferðaskipum hefur tvö-
faldast á síðustu árum og segist
Ágúst eiga von á enn frekari fjölg-
un farþega í ár. Í fyrra höfðu tæp-
lega 26.000 farþegar skipanna
landvist í Reykjavík og var árið
2000 metár í sögu skemmtiferða-
siglinga á Íslandi en árið 1999 voru
farþegarnir átján þúsund. Þjóð-
verjar hafa löngum verið fjölmenn-
astir á gestalistum skipanna en þar
á eftir koma Bandaríkjamenn og
Bretar. Í sumar er von á fyrsta jap-
anska skemmtiferðaskipinu, Nipp-
on Maru, hingað til lands.
Ágúst segir það einnig gleðilegt
að skipin koma nú ekki aðeins um
hásumarið líkt og áður heldur
langt fram í september. Öll þessi
skip greiða bæði hafnar- og vita-
gjöld og segir Ágúst þau skila „dá-
góðum tekjum“.
Heimili milljónamæringa
Haustið 2002 ættu skipaáhuga-
menn að hafa ríka ástæðu til að
fara niður á höfn þegar eitt glæsi-
legasta skemmtiferðaskip veraldar
hefur hér þriggja daga viðkomu.
Skipið, sem hefur hlotið heitið
World Residence, er eins og fljót-
andi þorp þar sem farþegarnir
kaupa sér íbúðirnar en leigja ekki
til skamms tíma eins og tíðkast
hefur hingað til.
Íbúðirnar sem kosta á bilinu 2 til
6,5 milljónir Bandaríkjadala, eða
172 til 559 milljónir íslenskra
króna, eru allar seldar þó skipið sé
enn í smíðum og verði ekki hleypt
af stokkunum fyrr en næsta vor.
Tilvonandi skipverjar hafa því að-
eins getað séð hvernig skipið komi
til með að líta út á teikningum
hönnuða þess, sem virðist þó ekki
hafa spillt fyrir kaupunum.
Fleiri skipa að vænta
en nokkru sinni fyrr
♦ ♦ ♦