Morgunblaðið - 01.03.2001, Síða 9
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. MARS 2001 9
LÆKNAR Heilsugæslustöðvarinn-
ar í Árbæ munu ekki sjálfviljugir
láta af hendi gögn um látna sjúk-
linga, geðfatlaða, elliæra, eða aðra
skjólstæðinga sem eru ófærir um að
taka afstöðu til þess hvort heilsu-
farsupplýsingar um þá fari í miðlæg-
an gagnagrunn á heilbrigðissviði. Að
sögn Gunnars Inga Gunnarssonar,
yfirlæknis heilsugæslustöðvarinnar,
verða gögnin því aðeins látin af
hendi liggi fyrir dómsúrskurður þar
að lútandi.
„Samkvæmt áliti lögfræðings
landlæknisembættisins hafa ná-
komnir ættingjar látinna og jafn-
framt lögráða einstaklinga enga sér-
staka heimild til að höndla með
upplýsingar sem höfðu safnast fyrir
um hina látnu,“ segir Gunnar Ingi.
Mun reyna á
eiðsvarna lækna
„Þetta segir okkur fyrst og fremst
það að nú muni reyna á eiðsvarna
lækna á Íslandi því við erum senni-
lega eini hópurinn sem getur staðið
vörð um réttarstöðu þessa hóps og
jafnframt þess hóps sem hefur af
öðrum ástæðum enga möguleika á að
taka afstöðu til málsins, þ.e. einstak-
lingar sem eru geðfatlaðir, elliærir
og geðsjúkir. Þessi hópur hefur, auk
þeirra sem látnir eru, greinilega ekki
hlotið neina afgreiðslu í gagna-
grunnslögunum. Það tel ég vera al-
varlegasta ágalla laganna.
Varðandi upplýsingar um þá
skjólstæðinga Heilsugæslustöðvar-
innar í Árbæ, sem létust fyrir gild-
istöku laganna, eða gátu af öðrum
ástæðum ekki tekið afstöðu til máls-
ins, þá mun heilsugæslustöðin því
aðeins afhenda upplýsingarnar í
gagnagrunn Íslenskrar erfðagrein-
ingar að fyrir liggi um það úrskurður
dómstóls. Það má deila um það hvort
þeir sem frískir eru og færir um að
taka afstöðu eigi að fara eina leið eða
aðra til að taka afstöðu til gagna-
grunnsins en varðandi hina er málið
afar skýrt. Þetta fólk hefur enga
möguleika til að taka afstöðu og því
verður læknastéttin að koma sér-
staklega til varnar þeim,“ segir
Gunnar Ingi.
Læknar Heilsugæslustöðvarinnar í Árbæ láta ekki af
hendi gögn um látna eða geðfatlaða í gagnagrunninn
Ætla eingöngu að hlýða
úrskurði dómara
NÝJASTA hafísársskýrsla Veður-
stofu Íslands, sem gefin var út í nóv-
ember 2000, greinir frá hafís við
strendur landsins frá október 1989
til september 1990 og kemur þar
fram að landfastur ís hafi verið á
Vestfjörðum svo dögum skipti í des-
ember 1989. Hafísársskýrslur Veð-
urstofunnar hafa komið út frá því
rétt fyrir 1970 og er nýjasta árs-
skýrslan um áratug of sein.
Í formála ársskýrslunnar er þess
getið að skýrslan sé síðbúin, en sam-
kvæmt upplýsingum Þórs Jakobs-
sonar, verkefnisstjóra hafísrann-
sókna Veðurstofu Íslands, hafa annir
á Veðurstofunni valdið því að ekki
hefur verið unnt að uppfæra skýrsl-
urnar eins og óskandi hefði verið. Á
þessu ári er hins vegar stefnt að því
að gera upp árin frá 1990 til 1996 á
einu bretti.
Hafísársskýrsla
Veðurstofu tíu
árum of sein
Stuttir og síðir frakkar,
úplur og leðurjakkar
Engjateigi 5, sími 581 2141.
Opið virka daga frá kl. 10.00—18.00, laugardaga frá kl. 10.00—15.00.
á horni Laugavegs og Klapparstígs
sími 552 2515
Sígild verslu
n
Afmæli
Við erum 6 ára og bjóðum
af því tilefni 4 Funkis-sófasett
með 100 þúsund kr. afslætti.
Einnig önnur afmælistilboð
í gangi.
Funkis-stólar
Bankastræti 9, sími 511 1135
Í t ö l s k h ö n n u n
www.jaktin.is
Spennandi tilboð í gangi
Sérverslun með ítalskar vörur fyrir dömur og herra
Ljósakrónur Bókahillur
Borðstofustólar Íkonar
12 manna borðstofuborð og stólar
Antíkmunir, Klapparstíg 40, sími 552 7977.
...drengjaskyrtur kr.69,-
Erum flutt á Laugaveg 101 við Hlemm
BRJÁLUÐ
ÚTSALA
10-25%
afsláttur
Opið virka daga frá kl. 11-18
Laugardaga frá kl. 11-16