Morgunblaðið - 01.03.2001, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 01.03.2001, Qupperneq 12
FRÉTTIR 12 FIMMTUDAGUR 1. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ KRISTINN H. Gunnarsson, stjórn- arformaður Byggðastofnunar, seg- ir að Sjóvá-Almennar séu ekki með kröfu í þrotabú Nasco á Bol- ungarvík. Þeir hafi ekki lánað til fyrirtækisins og séu því ekki að tapa neinu á þessu þrotabúi. Byggðastofnun sé hins vegar að tapa tveimur stórum lánum sam- tals að upphæð tæplega 150 millj- ónir króna. Staða þessara tveggja aðila sé því afar ólík gagnvart þrotabúinu. Forstjóri Sjóvár-Almennra sagði í samtali við Morgunblaðið í síð- ustu viku að tryggingafélagið væri reiðubúið að falla frá málsókn á hendur Byggðastofnunar vegna ágreinings um veðréttarröð. Kristinn sagði að Sjóvá-Almenn- ar væru með tryggingabréf til tryggingar kröfum í öðru fyrirtæki óskyldu Nasco Bolungarvík. Sjóvá gerði kröfu til þess að komast framar í veðröðinni og ryðja burtu veði Byggðastofnunar. Skiptastjóri hefði samþykkt veðröðina eins og hún væri og þar með veðröðina eins og hún væri á veðbókarvott- orði, en Byggðastofnun ætti þriðja veðrétt og Sjóvá fjórða veðrétt. Er Sjóvá hefði samþykkt að taka fjórða veðrétt án athugasemda hefði fyrirtækið samþykkt veðröð- ina eins og hún er á veðbókarvott- orði. Kristinn sagði að tilboð heima- aðila, en tryggingafélagið segðist vera tilbúið að falla frá málshöfðun ef Byggðastofnun féllist á tilboðið, lyti bæði að Sjóvá-Almennum og Byggðastofnun og byði Sjóvá greiðslu upp í helminginn af þeirra kröfu. Tilboðið geri hins vegar þá kröfu gagnvart Byggðastofnun að hún afskrifi hluta af sínu veði. Sjóvá væri að tengja saman máls- höfðun á hendur Byggðastofnun og samþykkt tilboðs þriðja aðila og spurningin væri af hverju trygg- ingafélagið væri að því. Veð Byggðastofnunar vel tryggt „Tilboðið sem þessi þriðji aðili gerir í eignirnar er 236 milljónir kr. Samkvæmt því er veð Byggða- stofnunar vel tryggt, því það nær upp í 187 milljónir og jafnvel þótt veðröðinni yrði breytt í samræmi við kröfur Sjóvá væru veð okkar líka innan 236 milljóna kr.,“ sagði Kristinn. Hann sagði að samkvæmt þeim reglum sem Byggðastofnun starf- aði eftir sem opinber stofnun þá gæti hún ekki afskrifað lán sem væri tryggt. Ríkisendurskoðun myndi aldrei samþykkja það þann- ig að samþykkt í stjórn Byggða- stofnunar um að afskrifa trygga kröfu myndi aldrei ná fram að ganga. „Við höfum hins vegar boðið heimaaðilum að breyta hluta af okkar láni yfir í hlutafé. Það telj- um við okkur hafa heimild til að gera af því þá værum við með eign á mót okkar kröfu. Það má auðvit- að deila um hversu verðmikil sú eign er í því rekstrarumhverfi sem er í rekstri rækjuverksmiðja,“ sagði Kristinn. Hann sagði að málin stæðu þannig að heimaaðilar væru að skoða þann grundvöll sem Byggðastofnun hefði lagt upp. Þeim stæði til boða að breyta hluta af láninu yfir í hlutafé eða að Byggðastofnun lánaði þeim það sem krafan væri upp á ef þeir vildu ekki hlutafé. „Almennt má segja að ef menn ætla að stofna fyrirtæki sem á rækjuverksmiðju án þess að eiga nokkurn kvóta í þessu umhverfi sem er í dag og er fyrirsjáanlega á þessu ári að minnsta kosti þá þarf það fyrirtæki að hafa sterka eig- infjárstöðu. Þeir sem ætla af stað í slíkan rekstur með veika eigin- fjárstöðu fara út í mikla óvissu og Bolvíkingum er enginn greiði gerður með því. Þvert á móti ættu allir sem láta sig málið varða að sameinast um að koma á fót fyr- irtæki sem er sem öflugast,“ sagði Kristinn H. Gunnarsson ennfrem- ur. Hann sagði aðspurður að lán Byggðastofnunar á þriðja veðrétti sem Sjóvá-Almennar héldu fram að væri víkjandi lán væri það ekki í skilningi almennra laga og sam- kvæmt skilmálum bréfsins, eða samkvæmt lögum sem giltu um Vestfjarðaaðstoð. Sjóvá-Almennar ekki með kröfu í þrotabúið Stjórnarformaður Byggðastofnunar um málefni Nasco GRÆNLENDINGAR skrifuðu fyrir nokkrum árum undir verndar- áætlun um verndun fuglategund- anna stuttnefju og langvíu en áætl- unin var samþykkt af umhverfis- ráðherrum allra arktísku landanna átta. Greint var frá því í sunnudags- blaði Morgunblaðsins að sextán langvíubyggðum hafi verið útrýmt á Grænlandi en þar átti að standa sextán stuttnefjubyggðum. Bendir flest til að stofninum verði að mestu útrýmt innan skamms tíma. Ævar Petersen, dýrafræðingur og forstöðumaður Reykjavíkurseturs Náttúrufræðistofnunar Íslands, seg- ir fyrrnefnda verndaráætlun hafa orðið til innan samstarfs norður- slóðalandanna, CAFF-samstarfsins sk., en hún var ekki síst tilkomin svo löndin gætu í sameiningu staðið að verndun þeirra stofna sem flakka á milli landanna, líkt og stuttnefjan gerir. Verndaráætlanir eru ekki lagalega bindandi en innihalda yfir- lýsingar um að komið sé í veg fyrir ofveiði. Stuttnefjan telst í yfirvofandi hættu hér á landi samkvæmt válista fugla sem kom út haustið 2000. Teg- und telst vera í yfirvofandi hættu ef miklar líkur eru á að hún verði út- dauð í náttúrunni í framtíðinni ef nú- verandi fækkunar heldur áfram að gæta, eins og segir á heimasíðu Náttúrufræðistofnunar. Þar segir enn fremur að stuttnefjunni, sem er ein einkennistegunda íslenskra fuglabjarga, hafi fækkað um allt að 30 til 40% á síðustu 15 árum. Ástæð- ur fækkunarinnar eru ekki að fullu ljósar en sérfræðingar Náttúru- fræðistofnunar telja umrædda of- veiði við Grænland langlíklegustu skýringuna, þar sem íslenskar stuttnefjur eiga sér vetrarstöðvar þar. Ævar segir stofnunina hafa haft í hyggju að senda umhverfisráðu- neytinu formlegt bréf til að vekja at- hygli á veiðum Grænlendinga, en af því hefur ekki enn orðið. Ráðuneyt- inu var sendur válistinn þegar hann kom út og er vonast til að mótaðar verði tillögur um hvað þurfi að gera gagnvart íslenskum fuglategundum sem eru í útrýmingarhættu, þar á meðal stuttnefju. Náttúrufræði- stofnun hvetur til þess að vöktun stuttnefjunnar í fuglabjörgum sé aukin, sérstaklega í stóru fugla- björgunum á Vestfjörðum þar sem meirihluti íslenska stofnsins verpir. Yfirlýsing um að komið sé í veg fyrir ofveiði orðin að engu Ljósmynd/Jóhann Óli Hilmarsson
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.