Morgunblaðið - 01.03.2001, Page 13

Morgunblaðið - 01.03.2001, Page 13
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. MARS 2001 13 landaflutninga en innanlandsflutn- inga. Búferlaflutningar innanlands dreifast misjafnlega yfir árið og eru jafnan mestir á þriðja ársfjórðungi. Á síðastliðnu ári jukust búferlaflutning- ar af höfuðborgarsvæðinu á lands- byggðina, en dró úr flutningum í hina áttina. Þá voru flutningar í báðar átt- ir minni en þeir höfðu verið árið 1999. Á SÍÐASTA ári dró úr búferlaflutn- ingum af landsbyggðinni til höfuð- borgarsvæðisins, samkvæmt upplýs- ingum úr Hagvísum Þjóðhagsstofn- unar. Nettóflutningar frá lands- byggðinni til höfuðborgarsvæðisins á árinu 2000 voru 750 manns og hafa þeir ekki verið minni frá árinu 1993. Í fyrsta skipti fjölgaði íbúum höfuð- borgarsvæðisins meira vegna milli- Dregur úr sókninni suður MATREIÐSLUMAÐURINN Björg- vin Mýrdal, sem starfar í veitinga- húsinu Perlunni, varð í gær í þriðja sæti í keppninni um matreiðslu- mann Norðurlanda sem haldin var í Bella Center í Kaupmannahöfn. Keppnin var hörð en Svíinn Benny Cederberg bar sigur úr býtum og er þetta í fjórða sinn í röð sem Svíar vinna. „Auðvitað finnst manni maður alltaf geta gert betur en ég get ekki annað en verið ánægður þar sem ég var að keppa við tvær af sterkustu þjóðum heims í matreiðslu,“ sagði Björgvin, en Norðmaðurinn Erling Sunddal varð í öðru sæti. Björgvin, sem er 23 ára, var næst- yngstur keppenda sem voru margir hvergir útkeyrðir eftir erfiða keppni og langan undirbúning. Keppendur hefja leikinn um fimmleytið um morguninn með vali á hráefni, elda svo frá kl. 7 og fram á miðjan dag. Máttu þeir einungis nota hráefni sem fæst á Norð- urlöndum. Gefnar eru einkunnir fyrir bragð, útlit, frumleika og und- irbúning. Björgvin eldaði perluhænu broc- hette með sveppum og súpu úr perluhænu, steiktan skötusel með jómfrúrhumri og spínati og háf með gulrótum, kartöfluterríni og sum- arsósu og glasseruð epli með lime- ís, karamellusósu og sætu kexi. Svíar sigruðu í keppni um matreiðslumann Norðurlanda Ísland í þriðja sæti Kaupmannahöfn. Morgunblaðið. Sigurvegarinn Benny Cederber fagnar, en til hliðar við hann standa Erling Sunddal og Björgvin Mýrdal sem lentu í öðru og þriðja sæti. Morgunblaðið/Urður Björgvin Mýrdal, aðrir keppendur og dómarar bíða spenntir úrslitanna. YFIRBORÐ Lagarfljóts mun kólna lítils háttar ef virkjað verður við Kárahnjúka og vatn úr Jökulsá á Dal fer að renna þangað úr Hálslóni. Kólnunin er mest að sumarlagi, að meðaltali um 0,5°C en getur nálgast 1°C undir haust. Yfirborðshiti Lag- arfljóts nú mælist að jafnaði á bilinu 8-10°C á sumrin en 0-2°C á vetrum. Yfirborðshiti vatnsins gæti lækkað á veturna um 0,2°C að meðaltali vegna Kárahnjúkavirkjunar. Þessar spár eiga við áhrif af fyrri áfanga Kára- hnjúkavirkjunar. Þetta kemur fram á Kárahnjúka- vef Landsvirkjunar. Þar segir jafn- framt að gert sé ráð fyrir að síðari áfangi virkjunar hafi lítil áhrif en þó frekar í þá átt að draga úr kólnun á sumrin og færa ástandið nær því sem það var fyrir virkjun. Verkfræðistofa Sigurðar Thor- oddsen (VST) er að vinna að skýrslu um rannsókn á hugsanlegum hita- breytingum Lagarfljóts í tengslum við mat á umhverfisáhrifum Kára- hnjúkavirkjunar. Notað var sérstakt reiknilíkan til að meta áhrif virkjun- arinnar með gögnum frá Orkustofn- un, Veðurstofu Íslands og VST um veður og vatnsrennsli fyrir og eftir virkjun. Á Kárahnjúkavefnum segir að nið- urstaða sérfræðinga sé sú að Kára- hnjúkavirkjun myndi sáralítil áhrif hafa á vatnshita í Lagarfljóti. Ís- myndun myndi nánast ekkert breyt- ast og áhrif á veðurfar við vatnið yrðu lítil sem engin. Hugsanlegra áhrifa kólnunar myndi gæta allra næst vatninu. Á sumrin getur orðið verulega heitt á íslenskan mæli- kvarða í Fljótsdal. Við þær aðstæður er vatnið kaldasti hluti umhverfisins og eykur þar með stöðugleika lofts á svæðinu. Eftir virkjun telja vísinda- mennirnir að vatnið verði aðeins kaldara en áður og gæti því tilhneig- ing til myndunar hitahvarfa yfir vatninu orðið sterkari í hægum vindi, þ.e. kalt loft blandast hægar heitara lofti örfáum metrum ofan við vatnsborðið. Áhrif á hitastig ættu þó að vera hverfandi. Yfirborð Lagarfljóts kólnar lítillega við Kárahnjúkavirkjun

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.