Morgunblaðið - 01.03.2001, Síða 18
AKUREYRI
18 FIMMTUDAGUR 1. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ
NEFND á vegum héraðsnefndar
Eyjafjarðar, sem skipuð var til þess
að koma á auknu samstarfi milli
skóla og skólastiga á Eyjafjarðar-
svæðinu, efnir til samráðsfundar fyr-
ir grunn- og framhaldsskóla á Eyja-
fjarðarsvæðinu næstkomandi föstu-
dag, 2. mars klukkan 14.
Fundurinn verður haldinn í Gryfj-
unni, sal Verkmenntaskólans á Ak-
ureyri. Á fundinum verður fjallað um
valkvætt nám í 9. og 10. bekk grunn-
skóla, inntökuskilyrði í framhalds-
skóla og samræmd próf í grunn-
skóla, námsráðgjöf í grunn- og
framhaldsskólum og innritun í fram-
haldsskóla.
Fundurinn er öllum sem áhuga
hafa opinn.
Fundur um
samstarf skóla
og skólastiga
HAUKUR Viggósson lektor flytur
fyrirlestur í Háskólanum á Akur-
eyri, Þingvallastræti 23, á fimmtu-
dag, 1. mars kl. 16.15. Fyrirlest-
urinn nefnir hann Fjarlægðin gerir
fjöllin blá: Samanburðarrannsókn á
íslenskum og sænskum grunnskól-
um.
Í fyrirlestrinum mun Haukur
fjalla um doktorsritgerð sína þar
sem íslenskir og sænskir skólar
voru bornir saman með tilliti til
þess hvernig kennarar upplifa
stjórnun skólastjóra sinna og hvaða
þýðingu nálægð skólastjórans hefur
fyrir samskipti hans við kennara.
Haukur Viggósson er lektor við
kennaramenntunarstofnun Háskól-
ans í Malmö.
Fyrirlesturinn er öllum opinn.
Samanburð-
ur á íslensk-
um og sænsk-
um skólum
TRÍÓIÐ GUITAR ISLANCIO leik-
ur á tónleikum á veitingastaðnum
Við Pollinn á Akureyri í kvöld, 1.
mars, kl. 21. Tríóið skipa þeir Björn
Thoroddsen og Gunnar Þórðarson á
gítara og Jón Rafnsson á kontra-
bassa.
Á efnisskránni kennir ýmissa
grasa. Tónleikarnir hefjast eins og
áður sagði kl. 21 og eru aðgöngu-
miðar seldir við innganginn.
Guitar Islancio
á Pollinum
ÖRFÁ pláss eru laus á námskeiðið
Að lesa í skóginn og tálga í tré, sem
haldið verður í gróðrastöðinni í
Kjarnaskógi nú um helgina. Slíkt
námskeið var haldið fyrir skemmstu
og reyndist áhugi mikill, þannig að
ákveðið var að halda annað sams
konar námskeið nú.
Leiðbeinendur eru Guðmundur
Magnússon, smíðakennari á Flúð-
um, og Ólafur Oddsson, starfsmaður
Skógræktar ríkisins. Námskeiðið
hefst á föstudag. Skráning á nám-
skeiðið er hjá Skógræktarfélaginu í
Kjarnaskógi.
Að lesa í skóg-
inn og tálga í tré
SÝNINGUNNI Detox lýkur á
Listasafninu á Akureyri á morgun,
föstudaginn 2. mars.
Um er að ræða margmiðlunar-
sýningu og er þetta eitt stærsta
verkefni á sviði rafrænnar mynd-
listar sem ráðist hefur verið í á
Norðurlöndum. 16 norskir lista-
menn unnu að gerð verkanna í sam-
vinnu við tölvufræðinga og tækni-
menn.
Sýningunni
Detox lýkur
SAMKVÆMT kostnaðartölum frá
Verkfræðistofu Sigurðar Thorodd-
sen er áætlaður heildarkostnaður
við byggingu fjölnota íþróttahúss á
Akureyri rúmar 400 milljónir
króna, sem er um helmingi hærri
fjárhæð en ráð var fyrir gert í
þriggja ára áætlun bæjarins.
Þórarinn B. Jónsson, formaður
íþrótta- og tómstundaráðs, sagði að
eftir væri að fara yfir fyrirliggjandi
kostnaðartölur en að þar væri verið
að tala um töluvert stærra hús en
upphaflega var gert ráð fyrir að
byggja. Þórarinn sagði að sam-
kvæmt upphaflegum hugmyndum
hefði stærð hússins verið 76x108
metrar en stærra húsið væri 80x120
metrar og að þar munaði rúmum 40
milljónum króna á byggingarkostn-
aði. „Mér sýnist að við verðum að
gíra okkur eitthvað niður.“
Í fyrirliggjandi kostnaðartölum
er m.a. verið að tala um 120 bíla-
stæði til viðbótar við þau bílastæði
sem eru við Hamar og spurði Þór-
arinn hvort það væri nauðsynlegt.
„Það er vandalaust að lækka
kostnaðinn um 100 milljónir króna
og það er trúlega hægt að byggja
hús í upphaflegri stærð með gervi-
grasi fyrir 300 milljónir króna. Þá
þyrfti að vinna verkið í þremur
áföngum, hefja framkvæmdir í ár,
koma húsinu upp á því næsta og
leggja gervigrasið í þriðja áfanga
árið eftir. Það þýðir jafnramt að
leika þarf eitt tímabil í húsinu á
möl. En það er ekki nema tvennt í
stöðunni, annaðhvort hleypum við
þessum framkvæmdum af stað eða
ekki og ég þori ekki að segja til um
það á þessari stundu hvort verður
ofan á.
Þórarinn sagði jafnframt að erfið
fjárhagsstaða íþróttafélaganna væri
bæjaryfirvöldum mikill höfuðverk-
ur, þar sem bærinn þyrfti að láta að
lágmarki 100 milljónir króna í
félögin vegna þeirrar stöðu sem
uppi væri.
Byggja mætti fyrir
300 milljónir
Óvissa um byggingu fjölnota íþróttahúss
ÖSKUDAGURINN var hátíð-
lega haldinn af akureyrskum
börnum líkt og vani er til norð-
an heiða, en þann dag klæða
krakkarnir sig í búninga af
ýmsu tagi og ganga milli versl-
ana og fyrirtækja. Þar taka
þau lagið og fá að launum sæl-
gæti í poka. Um hádegisbil
fara þau að tínast heim þar
sem fengnum er bróðurlega
skipt.
Á ferð
og flugi
á ösku-
daginn
Morgunblaðið/Kristján
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦