Morgunblaðið - 01.03.2001, Qupperneq 19
LANDIÐ
Borgartúni 28, 562 2901
www.ef.is
OSO
hitakútar
úr ryðfríu stáli
30 ára frábær reynsla á
þúsundum íslenskra heimila
30/50/100/120/200 eða 300 lítra
Blöndunar- og öryggisloki fylgir
20% orkusparnaður
Hagstætt verð
ISO 90
02
Frábæ
r endi
ng!
Ólafsvík - Samningur um rekstur
þjónustuvers samgöngumála fyrir
Snæfellsnes var undirritaður á
þriðjudaginn sl. Sturla Böðvarsson
samgönguráðherra undirritaði
samninginn fyrir hönd samgöngu-
ráðuneytisins og stofnana þess og
Kristinn Jónasson, bæjarstjóri í
Snæfellsbæ, fyrir hönd sveitar-
félagsins. Athöfnin fór fram í húsi
Vegagerðarinnar í Ólafsvík þar
sem þjónustuverið verður staðsett.
Um er að ræða samstarfsverk-
efni samgönguráðuneytisins, Vega-
gerðarinnar, Flugmálastjórnar Ís-
lands, Siglingastofnunar Íslands
og sveitarfélagsins Snæfellsbæjar.
Samningsaðilar líta á verkefnið
sem tilrauna- og þróunarverkefni
og gildir samningurinn til ársloka
2002. Með samningnum verður
starfsemi þessara stofnana á Snæ-
fellsnesi rekin undir sama hatti,
þjónustuveri samgöngumála með
aðsetur í Ólafsvík. Verkefnið gerir
samningsaðilum kleift að samnýta
tækjakost og starfskrafta ásamt
því að bæta þjónustu og tryggja
öryggi þjónustunnar, eins og segir
í fréttatilkynningu.
Eitt nýtt starf verður til við
þessa breytingu en það er starf
forstöðumanns þjónustuversins
sem hefur yfirumsjón með starf-
seminni.
Sturla Böðvarsson samgöngu-
ráðherra sagði að með stofnun
þjónustuversins væri ráðuneytið
að sýna vilja sinn í verki með að
færa verkefni af höfðuðborgar-
svæðinu út á land. Ráðherra vísaði
þar m.a. til bréfs frá því í sept-
ember 1999 sem hann skrifaði til
undirstofnana ráðuneytisins um að
leita skyldi leiða til að flytja störf
út á landsbyggðina.
Sturla sagði jafnframt að með
þessu tilraunaverkefni væri farin
ný leið í samskiptum ríkis og sveit-
arfélaga sem hefði það markmið að
treysta starfsemi stofnana ríkisins
á landsbyggðinni og bæta þjón-
ustuna við íbúana. Kristinn Jón-
asson, bæjarstjóri í Snæfellsbæ,
sagði að hér væri um afar spenn-
andi verkefni að ræða. ,,Ef verk-
efnið gengur vel vonumst við til að
geta tekið að okkur fleiri verkefni
fyrir ríkið en mestu skiptir auðvit-
að að með þessum samningi er
verið að bæta þjónustuna við íbúa
sveitarfélagsins og fjölga störfum,
sagði Kristinn ennfremur. Hann
telur að verkefnið geti orðið öðrum
sveitarfélögum mikilvægt fordæmi.
Í stjórn þessa nýja þjónustuvers
verða þrír menn, einn frá sam-
gönguráðuneyti, einn frá Vega-
gerðinni og einn frá Snæfellsbæ.
Við undirritun samningsins voru
mættir, auk samgönguráðherra og
bæjarstjórans í Snæfellsbæ,
fulltrúar allra samningsaðila, Þor-
geir Pálsson flugmálastjóri, Her-
mann Guðjónsson, forstjóri Sigl-
ingastofnunar, Helgi Hallgrímsson
vegamálastjóri. Þá voru einnig við-
staddir athöfnina starfsmenn hins
nýja þjónustuvers og bæjarstjórn-
arfólk úr Snæfellsbæ.
Tilraunaverkefni samgönguráðuneytis og Snæfellsbæjar
Sameinast um rekstur þjón-
ustuvers samgöngumála
Morgunblaðið/Elín Una Jónsdóttir
Frá undirritun samstarfssamningsins. F.v. Jón Birgir Jónsson, ráðuneytisstjóri í samgönguráðuneytinu, Þor-
geir Pálsson flugmálastjóri, Sturla Böðvarsson samgönguráðherra, Kristinn Jónasson, bæjarstjóri í Snæ-
fellsbæ, Helgi Hallgrímsson vegamálastjóri og Hermann Guðjónsson, forstjóri Siglingastofnunar.
Þumalína, Pósthússtræti 13
Meðgöngufatnaður
til hvunndags og spari.
Póstsendum.
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. MARS 2001 19