Morgunblaðið - 01.03.2001, Síða 35
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. MARS 2001 35
ÉG er eiginlega alveg viss um að
bókin um litlu vampíruna Rudolph
og dauðlegan vin hennar, hann
Tony, sé bráðskemmtileg. Einmana
dreng er strítt í nýja landinu sem
hann býr í. Hann eignast vin úr
draumheimum, úr blóðsuguheimin-
um, og saman geta þeir skelft
stríðnispúkana, snúið á vonda karl-
inn og bjargað örlögum vampíru-
fjölskyldunnar. Á meðan situr ung-
ur lesandinn og lifir sig af öllu
hjarta inn í ævintýri vinanna ólíku
sem saman öðlast kraft. Um leið
fræðist hann um nýjan heim sem er
ógnvekjandi, spennandi, skemmti-
legur og uppfyllir réttlætiskennd
barnsins. Voða gaman.
En kvikmyndin er ekki alveg
jafnskemmtileg, og frásögnin ekki
alltaf nógu skýr. Ég býst við að
myndin sé hugsuð fyrir frekar
unga krakka. Og þá er synd að
heimur blóðsugnanna er ekkert út-
skýrður, þar sem viss lög gilda.
Hvernig eiga þau að skilja að þau
þola ekki að sjá kross eða hvítlauk?
Ef á að fara í leik með börnum
verður að byrja á því að skýra regl-
urnar, annars er ekkert gaman.
Þegar litli Tony sér sýnirnar, er
ekkert myndrænt gert til að skýra
út að hann sé að sjá þetta í hug-
anum.
Í heildina er myndúrvinnslan
heldur ekki sú skemmtilegusta, og
frekar á sjónvarpsmælikvarða en
kvikmynda. Það er synd því bæði
búningarnir, sviðsmyndin og leik-
munir eru smekkleg og vel til fund-
in. En takan skiptir sköpum, og
ekki síst þegar á að búa til nýjan
töfraheim sem gerist á mörkum
draums og veruleika.
Nokkrir góðir brandarar prýða
myndina að mati krakkanna. Það
er ósköp sætt þegar fljúgandi belja
kúkar á bíl vonda karlsins, þá velt-
ust krakkarnir um af hlátri. Kúka-
og pissbrandararnir klikka aldrei.
Hins vegar er ég viss um að til-
gangur myndarinnar hafi frekar
verið að læra um að vinátta og
traust sigrar allt.
Allir leika í þessum barnamynda-
stíl, þar sem allt er létt ýkt og lítils
háttar yfirdrifið, einsog við þekkj-
um úr leiknu Disneymyndunum.
Aðalleikarinn hann Jonathan Lipn-
icki, sem flestir kannast við sem
litli strákurinn úr Jerry Maguire
og Stuart Little. Hann er agalega
mikið krútt, sem gaman er að horfa
á en hann er ekki sérlega góður
leikari, einsog margir krakkar geta
verið. Í Jerry Maguire stóð hann
sig vel í takmörkuðu hlutverki, en
hann á erfiðara með að halda uppi
heilli kvikmynd, sem er skiljanlegt.
Það er áreiðanlegt að börn á
aldrinum sjö til tíu ára geti haft
gaman af þessari mynd. Það er
hægt að vera spenntur og hræddur
og hlæja að myndinni þótt ýmsilegt
megi að henni finna.
KVIKMYNDIR
S a m b í ó i n
Leikstjóri: Ulrich Edel. Handrit:
Karey Kirkpatrick eftir skáldsögu
Angelu Sommer-Bodenburg. Aðal-
hlutverk: Jonathan Lipnicki, Rollo
Weeks, Jonathan E. Grant. New
Line Cinema 2000.
LITLA VAMPÍRAN Blóðbræður
Hildur Loftsdótt ir
KARLAKÓR Siglufjarðar og
karlakór Bólstaðarhlíðarhrepps í
A-Húnavatnssýslu héldu sameig-
inlega tónleika í Blönduóskirkju
fyrir skemmstu. Þetta er í fyrsta
sinn sem hinn rúmlega ársgamli
kór Siglfirðinga hættir sér út fyrir
bæjarmörkin með söngdagskrá
sína og af viðbrögðum áheyrenda
að dæma er eins líklegt að Sigl-
firðingar muni fara víðar.
Tónleikarnir í Blönduóskirkju
byrjuðu með söngdagskrá karla-
kórs Bólstaðarhlíðarhrepps undir
stjórn Sveins Árnasonar. Undir-
leikari var Soffía Fransiska Rafns-
dóttir. Svavar Hákon Jóhannsson
söng einsöng með kórnum og þeir
Halldór Maríasson og Þorleifur
Ingvarsson sungu tvísöng. Að lok-
inni dagskrá Bólhlíðinga sungu
Siglfirðingarnir undir stjórn
Elíasar Þorvaldssonar. Sönginn
skreyttu þeir með fjölbreyttum
hljóðfæraleik og var ekki fjarri
lagi að menn skynjuðu undir niðri
áhrif Geirharðs Valtýssonar sem
stjórnaði hinum margfræga sigl-
firska kór Vísi til margra ára. Í
lokin sungu kórarnir saman tvö
lög.
Af undirtektum áheyrenda að
dæma tókust tónleikarnir mjög vel
og þurftu kórarnir oftar en ekki
að endurtaka lög sín, slíkar voru
viðtökurnar.
Karlaraddir ómuðu
í Blönduóskirkju
Blönduós. Morgunblaðið.
Morgunblaðið/Jón Sig.
Svavar Hákon Jóhannsson söng einsöng með Bólhlíðingum.
Hafnarborg
Sýningu á málverkum Sveins
Björnssonar, Krísuvíkurmyndir, í
aðalsal Hafnarborgar lýkur á mánu-
dag. Sýningin nefnist Krísuvíkin mín
og er fyrsta yfirlitssýning sem hald-
in er í samvinnu Hafnarborgar og
Sveinssafns. Með henni er rifjuð upp
saga listamannsins.
Hafnarborg er opin frá kl. 11–17
alla daga nema þriðjudaga.
Sýningu lýkur
TÓNSKÓLI Fljótsdalshéraðs er 30
ára á þessu ári og í tilefni afmælisins
verða sérstakir afmælistónleikar í
Egilsstaðakirkju nk. sunnudag kl.
20. Þar koma fram kór skólans, sem
flytur Ástarvalsa Op. 52 eftir
Brahms, og tvo þætti úr Messu KV
339 eftir Mozart undir stjórn Keith
Reed. A – hljómsveit skólans leikur
Eine kleine Nachtmusik eftir W.A.
Mozart undir stjórn Charles Ross og
söngnemendur syngja Sextett úr óp-
erunni Lucia de Lammermoor eftir
Donizetti.
Þá verður einleikur á píanó, klar-
ínettu og fiðlu auk fleiri atriða.
Síðari afmælistónleikar skólans
verða miðvikudagskvöldið 28. mars
nk. í Egilsstaðakirkju en þá mun
hljómsveit skólans flytja Karnival
dýranna eftir C. Saint Saens undir
stjórn Charles Ross og Suncana
Slamnig.
Skólastjóri hefur verið frá upphafi
Magnús Magnússon og aðstoðar-
skólastjóri er Jón Guðmundsson.
Tónskóli
Fljótsdals-
héraðs 30 ára
♦ ♦ ♦
LAUGAVEGI 95 & KRINGLUNNIKRINGLUNNI
NÝ SENDING AF
HIT PEYSUM
KR. 1.990
NÝJAR
VORVÖRUR