Morgunblaðið - 01.03.2001, Side 42

Morgunblaðið - 01.03.2001, Side 42
UMRÆÐAN 42 FIMMTUDAGUR 1. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ H ugmyndir fólks um vinnuaðferðir við uppsetningu leik- sýninga eru vafa- laust margvíslegar. Hvernig starfsvið hvers og eins er skilgreint innan leikhússins er auðvitað ekki áhyggjuefni hins al- menna leikhúsgests; hann er bara kominn til að horfa á leiksýningu. Starfsheiti eins og sviðstjóri, sýn- ingarstjóri og leikstjóri hljóma kannski ekki ósvipað og hver er munurinn á því að stjórna sviðinu, sýningunni eða leiknum? Í sem stystu máli má segja að sviðstjór- inn sé verkstjóri þeirra starfs- manna (sviðsmanna) sem sjá um tilfærslu leik- tjalda, innan sviðs og utan, sýningarstjór- inn ber ábyrgð á sýn- ingunni eftir að leikstjórinn hefur skilað henni af sér og er jafnframt tæknilegur yfirstjórnandi hennar. Leikstjór- inn er listrænn stjórnandi sýning- arinnar, stýrir leikurunum í vinnu þeirra og leiðir alla listræna hug- myndavinnu leikmyndahöfundar, búningahönnuðar og ljósameist- ara sýningarinnar. Vinnu leik- stjórans er í rauninni lokið með frumsýningu, eftir það sér sýning- arstjórinn um hana þótt margir leikstjórar kjósi að fylgjast með. Þá er jafnframt reginmunur á starfi leikstjóra og leikhússtjóra þar sem sá síðarnefndi fer með yf- irstjórn leikhússins, velur verk- efnin, sér um ráðningar allra lista- manna að leikhúsinu og leggur þannig hina listrænu stefnu sem fylgja á. Fyrir nokkrum vikum reifaði ég þá skoðun mína að fyrir lista- mennina sem í leikhúsinu starfa geti verið erfitt að finna alltaf hinn nauðsynlega skapandi kraft sem þarf til að koma jafnflóknu verk- efni og heilli leiksýningu til skila ef þeir eiga engan þátt í að velja sér verkefni. Leikhússtjóri sem siglir einstefnu og deilir út verk- efnum að geðþótta siglir fyrr en síðar upp á sker; honum er nauð- synlegt að taka tillit til allra þeirra fjölmörgu þátta sem halda við sköpunargleðinni í áhöfn hans. Hinn skapandi þáttur í starfi leik- hússtjórans er ekki hvað síst fólg- inn í því að kveikja áhuga og eld- móð samstarfsmanna sinna og rétta þann kyndil síðan áfram til leikstjóra einstakra verkefna sem verða svo að glæða þann loga með samstarfsmönnum sínum. Fyrir nokkrum vikum reifaði ég þá skoðun mína að í leikhúsi þar sem listamennirnir ættu lítinn eða eng- an þátt í vali verkefna og tækju ávallt við þeim úr hendi leik- hússtjórans væri hætt við að list- rænn árangur yrði á stundum ris- lítill enda er það viðurkennd forsenda fyrir skapandi starfi að listamennirnir eigi sjálfir frum- kvæði að hugmyndum sínum en taki ekki við þeim til útfærslu æ ofan í æ. Leikhús er reyndar sér- kennileg blanda af skapandi starfi og endurtekningu hins sama. Þetta mætti kannski kalla því frumlega nafni „skapandi end- urtekningu“, þar sem sama leik- sýningin er margendurtekin en aldrei alveg nákvæmlega eins. Hin skapandi endurtekning er kjarn- inn í list leikarans og kannski það sem heillaði hann að þeirri list- grein í upphafi, a.m.k. gefur einn kunningi minn úr leikarastétt, sem staðið hefur á leiksviðinu um árabil, lítið fyrir réttinn til að velja sér verkefni sjálfur. Gefum þess- um kunningja mínum orðið en margt af því sem hann segir er forvitnilegt. „Þú gengur út frá því að varla sé hægt að ætlast til stórra list- rænna afreka af leikstjóra og leik- urum í verkefni sem þeir áttu eng- an þátt í að velja. Þetta getur vel átt við rök að styðjast hvað leik- stjórann varðar en ég tel að nokk- uð öðru máli gegni um leikarana. Stundum hefur því reyndar ver- ið haldið fram að leikarinn ætti síðastur manna að hafa eitthvað um það að segja hvaða hlutverk hann leikur og byggist þá líklega á því að flestir menn hafa svo skakka mynd af sjálfum sér og sínum hæfileikum að þeir geti ekki lagt hlutlægt mat á hvaða verkefni þeim hæfa best. Og trú- lega eru ekki mörg tilfelli að finna í íslenskri leiklistarsögu um að leikari hafi valið sér hlutverk og ábyggilega enn færri dæmi um að honum hafi tekist sérstaklega vel upp í þeim tilfellum. Það er nú einu sinni svo að við leikarar verð- um bara að taka að okkur þau verkefni sem að okkur eru rétt og hef ég a.m.k. aldrei séð ástæðu til að kvarta undan því; hef reyndar verið svo heppinn að mér hefur nánast alltaf fundist ég fá besta hlutverkið...! Ég geri mér sem sagt enga rellu út af því þó að ég eigi ekki neinn þátt í að velja verkefnin en hitt þykir mér öllu alvarlegra að stundum finnst mér eins og leik- arar fái ekki heldur að eiga þátt í því að ákveða hvernig þeir vinna hlutverk sitt í verkefninu. Ég held að það sé vaxandi tilhneiging hjá leikstjórum (a.m.k. sumum) að líta svo á að leikarinn sé bara verkfæri eða iðnaðarmaður sem ekki hefur annað hlutverk en að framkvæma það sem leikstjórinn ákveður – og svo kemur leikmyndateiknarinn og ákveður hvernig hann á að líta út; sennilega í samráði við leik- stjórann en án nokkurs samráðs við leikarann. Leikmyndateikn- arar, sumir hverjir, eru reyndar kapítuli út af fyrir sig og þar verð- ur maður stundum var við hug- myndina „við og þeir“ – þ.e. leik- stjórinn og leikmyndateiknarinn annars vegar og leikararnir hins vegar – sem er auðvitað algjört til- ræði við hugmyndina um sam- vinnu listamannanna. Þessi þróun mun óhjákvæmilega leiða til verri leiklistar þegar þeir listamenn sem á endanum eiga að standa frammi fyrir áhorfendum eru sviptir frumkvæðinu og ekki er óskað eftir hugmyndum þeirra eða framlagi til þeirrar sköp- unarvinnu sem fram fer á æfing- um. Við þessar aðstæður er í mesta lagi hægt að búast við þokkalegri fagmennsku en engum listrænum tíðindum.“ Skapandi endur- tekning „Það er nú einu sinni svo að við leik- arar verðum bara að taka að okkur þau verkefni sem að okkur eru rétt...“ VIÐHORF Eftir Hávar Sigurjónsson havar@mbl.is ÞAR sem Marðar- fári Ríkisútvarpsins er nú væntanlega lokið er ekki úr vegi að líta yfir farinn veg og spyrja hvernig þetta mál gat yfirleitt orðið til. Þar sem ég er ekki kunnugur innviðum útvarpsins get ég að- eins spekúlerað út frá þeim hughrifum sem ég hef orðið fyrir, og auðvitað voru fyrstu hughrif svipuð margra annarra, þ.e. hvers vegna? Hvað fékk út- varpsráð til að sam- þykkja barnaskap á við þennan? Því þó að Mörður verði ávallt með þennan þröngsýnis-for- ynjustimpil á sér eftir þetta mál var hann þó aðeins talsmaður út- varpsráðs. Mér sýnist málið tví- þætt. Misnotkun valds og skilgreining alþýðutónlistar sem lágmenningar Það hefur verið dálítið sérkenni- legt að hlusta á umræður síðustu daga um þetta mál. Það er eins og menn hálfpartinn fari hjá sér að tala um það. Þetta er ekki svona merkilegt mál eins og flugvallar- málið þar sem mýmargir hafa skoð- un á máli sem þeir munu líklega aldrei þurfa að taka ákvörðun um jafnvel þótt þeir taki þátt í kosn- ingunni. Eða öryrkjamálið sem kom við tilfinningar flestra lands- búa þótt ég leyfi mér að efa að mjög margir hafi sett sig inn það í eins og þyrfti til að geta tekið ábyrga afstöðu. Af hverju skyldi það vera? Er það kannski af því að alþýðutónlist er skilgreind sem eitthvað óæðra? Eitthvað sem ekki er þörf á að taka mjög alvarlega? Lágmenning? Hvað eru margar út- varpsstöðvar á Íslandi, og hve margar af þeim spila næstum því eingöngu alþýðutónlist? Það þarf auðvitað ekki að svara þessari spurningu. En það er þá kannski hægt að spyrja í staðinn hvort allur landslýður sé þá svona mikill pöpull? Stað- reyndin er sú að al- þýðutónlist er svo rík- ur þáttur í lífi okkar allra að við veltum því ekki fyrir okkur, hún bara er! Hugsið ykkur ef við slepptum allri tónlist einn dag. Bara einn dag! Það yrði algjört atvinnuleysi á flestum útvarpsstöðvunum. Auglýsingar myndu ekki skila sér. Og at- vinnugrein sem sér þúsundum manna, jafnvel tugþúsundum, farborða á alls kyns vísu, svo sem í plötuútgáfu, hljóðupptöku, texta- smíð, auglýsingum, fjölmiðlun, kvikmyndum o.fl. o.fl. væri okkur ljós í snarhendingu (Tónlistariðn- aðurinn færir Svíþjóð þriðju mestu tekjur af flutningi tónlistar í heim- inum!). En hvar eru skilin á milli há- menningar og lágmenningar? Eða skilin á milli hinnar æðri og óæðri tónlistar? Ósýnileg og ótúlkanleg að stórum hluta til. Sjálfum finnst mér léleg tónlist alveg jafnléleg hvort sem menn flytja hana í galla- buxum eða klæða sig í kjól og hvítt og flytja hana með fulltingi sinfón- íuhljómsveitar. Og ekki misskilja mig, ég hlusta engu minna á klass- íska tónlist en alþýðutónlist. Atla Heimis verður alltaf minnst, lífs eða liðins, vegna Fuglasöngsins við ljóðið hans Davíðs. Ekki vegna þess að tónsmíðar hans séu ómerkilegar á neinn máta nema síður sé. Heldur vegna þess að Fuglasöngurinn er alþýðutónlist. Alþýðutónlist er okkar einfaldasta form af tónlist. Þess vegna á hún greiðari leið að hjörtum okkar en flóknari tónlist. Útvarpsráð hefur ekkert um það mál að segja og á að sjálfsögðu ekki að vera að vasast í þeim málum. Tónlistin er alheimstungumál sem allir skilja. Faðirvorið sungið fær augu flestra til að vökna af því að tónlistin á greiðari aðgang að hjartanu en talað orð. En hún er atvinna ótal manna, bæði þeirra sem spila í gallabuxum og þeirra sem klæða sig í kjól og hvítt. Þegar Mörður og félagar setja sig á háan hest í krafti valds síns til þess, að því er virðist, að setja standard, svo maður sletti nú, þá vekja þeir upp draug, draug þess tíma þegar skilin á milli hægri og vinstri voru skýr og maður vissi af hverju mað- ur var hægrisinnaður en ekki vinstrisinnaður. Af því að í því fólst frelsið til að ákveða fyrir sjálfan sig það sem maður taldi vera rétt, með öllum þeim göllum sem því fylgja. Útvarpsráð ætlaði að hafa „vit“ fyrir okkur hinum. Lélegt klór í bakkann um að útvarpsráð hafi ekki órað fyrir því að tjáningar- frelsi væri skert með „sakleysis- legri“ tillögu sinni kom allt of seint til að nokkur maður trúi því. Evró- visjón-keppnin er sams konar vett- vangur fyrir flytjendur alþýðutón- listar og Grammy, Oscar, Sundance og aðrar slíkar stofnanir fyrir þá sem þangað sækja. Það hefði aldrei hvarflað að neinum heilvita manni að fara að skikka Baltasar eða Friðrik til að fara með myndirnar sínar ótextaðar til Sundance. Eða krefja Björk um að syngja bara á íslensku. En mér segir svo hugur að Merði og félögum hafi tekist að sýna fram á einmitt hvers vegna al- þjóð er alltaf meira og meira andsnúin lögbundinni áskrift að Ríkisútvarpinu. Forsjárhyggja þeirra sem hafa valdið er fortíðin í allri sinni dýrð. Það er vandmeð- farið, valdið. Alþýðutónlist – lágmenning? Heimir Sindrason Söngvakeppnin Klór í bakkann um að útvarpsráð hafi ekki ór- að fyrir því að tjáning- arfrelsi væri skert með „sakleysislegri“ tillögu sinni kom, að mati Heimis Sindrasonar, allt of seint til að nokkur maður trúi því. Höfundur er tannlæknir. VIÐUNANDI lausn er fundin í deilunni um söngvakeppni evr- ópskra sjónvarpsstöðva. Sé horft til þess góða, sem sú um- ræða leiddi af sér, blasa við ýmis teikn. Í fyrsta lagi varpaði umræðan ljósi á aðstæður og starfsumhverfi skapenda þeirrar tónlistar sem mest er notuð til íslenskrar dagskrárgerð- ar annars vegar og til landkynningar á alþjóðavettvangi hins vegar. Ljóst má vera að uppljóstranir þar að lútandi hafa komið ýmsum á óvart. Þar blasir m.a. við áhuga- og af- skiptaleysi þess ráðherra sem falin hefur verið æðsta stjórn og stefnu- mótun menningarmála í landinu, þar með þeirra ljósvakamiðla sem ríkið á og rekur. Á móti kemur að Bandalag ís- lenskra listamanna, sem lengst af hafnaði aðkomu umræddrar stéttar að bandalaginu og lét sig mál hennar litlu varða, hefur nú með nýjan for- seta í fararbroddi, boðið Félag tón- skálda- og textahöfunda velkomið í BÍL og jafnframt beitt sér ítrekað og með afgerandi hætti í þágu stétt- arinnar á undanförnum vikum. Það ber að virða og þakka, af heilum hug. Stjórnmálamenn 21. aldarinnar Í þriðja lagi markar framkoma Marðar Árnasonar í þessu máli, ákveðin þáttaskil í íslenskri pólitík. Að íslenskur stjórnmálamaður skuli stíga fram að eigin frumkvæði, við- urkenna fleiri sjónar- mið en sín eigin og draga til baka jafn um- deilda tillögu og þá er hér um ræðir, felur í sér kærkomna ný- breytni í stjórnsýsl- unni. Í því frumkvæði felst von um nýja tíma, von um nýja gerð stjórnmálamanna, sem eru reiðubúnir að hlusta eftir röddum og óskum fólksins í land- inu og viðurkenna að þeirra persónulegu sjónarmið kunni að hafa verið að einhverju leyti vanhugsuð eða úr takti við tím- ann. Skyldi einhver sjá fyrir sér „klettinn í hafi“ Framsóknarflokks- ins eða „sólkonung“ Sjálfstæðis- flokksins sýna slíkan sveigjanleika? Varla, enda þar á ferð menn ann- arrar gerðar og eldri kynslóðar. Röggsemi Marðar er náskyld lýðræðisleið Ingibjargar Sólrúnar og Reykjavíkurlistans í flugvallarmálinu: Borgararnir sjálfir fá að taka af skarið. Hið raunverulega ákvörð- unarvald í nútímalegu lýðræðisríki skal fært í hendur þegnunum sjálfum hvenær sem kostur er. Í nánustu framtíð verður fram- kvæmd rafrænna kosninga eða hald- bærra kannana bæði raunhæfur og ódýr kostur fyrir stjórnvöld á hinu tölvu- og farsímavædda Ís- landi. Nýgild tónlist sem getur í fyllingu tímans orðið sígild Loks fæddi áðurnefnd umræða af sér nýyrði sem ber að fagna. Tónlist- in sem hér um ræðir hefur löngum goldið þess að vera kölluð ýmsum ill- um nöfnum s.s. síbylja, dægurtón- list, popp, eða alþýðutónlist. Umbeð- inn lagðist hinn öflugi hugmyndasmiður, Jón Þorvaldsson frá Ásum, undir feld, og kvað síðan uppúr með þetta: Allir skilja hvað felst í orðinu „sígild tónlist“. Það sem utan þess ramma fellur gæti einfaldlega heitið „nýgild tónlist“. Heyr! Heyr! Nýgild tónlist vs. sígild Jakob Frímann Magnússon Þáttaskil Framkoma Marðar Árnasonar, segir Jakob Frímann Magn- ússon, markar í þessu máli ákveðin þáttaskil í íslenskri pólitík. Höfundur er tónlistarmaður.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.