Morgunblaðið - 01.03.2001, Qupperneq 43

Morgunblaðið - 01.03.2001, Qupperneq 43
UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. MARS 2001 43 VIÐ, sem höfum at- vinnu af tónlist á Ís- landi, hvort sem er að flytja hana eða kenna öðrum, stöndum frammi fyrir þeirri nöpru staðreynd að geta ekki framfleytt okkur af launum okk- ar. Hverju sætir þetta? Fyrirrennarar okk- ar voru flestir hug- sjónafólk sem gaf af sér án umhugsunar, byggði upp tónlistarlíf- ið í landinu af ódrep- andi dug og miðlaði til annarra, oft án endur- gjalds. Það er ekki auðvelt að taka við af slíku fólki. Þetta voru kenn- arar okkar og fyrirmyndir. Nú hafa tímarnir breyst og músíknám ekki lengur munaður heldur hluti þeirr- ar menntunar sem hver þjóð metur sem sjálfsagðan þátt í uppeldi þegna sinna. Það dylst engum sem lagt hafa stund á hljóðfæranám, hversu krefj- andi það er. Framfarir eru hægar og þrotlaus ástundun er eina leiðin til að ná tökum á verkefnunum. Eiginleikar, s.s. þolinmæði, einbeit- ing og samhæfing, fá þjálfun sem nýtist hverjum og einum, hvort sem hann leggur tónlist fyrir sig eða ekki. Nálægðin er mikil því kennsl- an fer fram í einkatímum, þar sem taka verður mið af hverjum nem- anda. Þar eru engir tveir eins. Kennarinn kynnist nemandanum persónulega, kennir honum að þekkja veikleika sína og styrk og vinna vel úr hvoru tveggja. Námið byggist annars vegar á þjálfuninni að ná valdi á hljóðfærinu og síðan að þekkja tilfinningar sínar og geta tjáð þær á tungumáli tónlistar- innar. Þarna gætir ákveð- ins misskilnings þeirra sem ekki þekkja til. Margir halda að þeir sem fæddir eru með tónlistargáfu þurfi að- eins lítillega að fín- pússa hana og geti síð- an stokkið fullskapaðir á tónleikapall og brill- erað. Ekkert er fjær sannleikanum. Sá sem á auðvelt með að læra erlend tungu- mál, talar þau ekki fyrirhafnarlaust þótt að hann sé fæddur með gott minni. Á sama hátt þarf sá sem leggur stund á tónlistarnám að stunda það af kappi í langan tíma til að ná árangri. Síðan, þegar lang- þráðu valdi á hljóðfærinu er náð, þarf viðkomandi að geta tjáð sig og það er ekki sjálfgefið hvernig til tekst. Það er því mikið undir því komið hvernig leiðsögn hver og einn fær og hlýtur það að segja talsvert að flestir þeir sem kenna á hljóð- færi, eru yfirleitt háskólamenntaðir tónlistarmenn með áralanga þjálfun að baki. Þetta er „abstrakt“ þekk- ing og þjálfun sem enginn er fær um að miðla, nema hafa til þess ótvíræða menntun og hæfni. Í þessi störf ganga engir staðgenglar. Við stöndum frammi fyrir því að nú eru byrjunarlaun tónlistarkenn- ara með B.A. próf rúmar 97.000 krónur. Það þarf ekki að fjölyrða um þau áhrif sem slík laun hafa á sjálfsvirðingu viðkomandi og það hlýtur að vera óhjákvæmilegt að tónlistarfólk leiti annarra leiða til að framfleyta sér, ef ekki verður mikil breyting á í komandi kjarasamn- ingum. Það kann að vera í ört fækk- andi tilfellum satt, að tónlistarfólk hafi mikla ánægju af störfum sín- um, en ég þekki marga lögfræðinga, viðskiptafræðinga og aðra sem hafa geysilega gaman af vinnu sinni og aldrei hef ég heyrt um að sú ánægja væri dregin frá launum þeirra. Menningarlíf okkar þarf á því að halda að vel sé búið um hnútana, svo við verðum ekki eyðibýli í því samfélagi sem við tökum þátt í með öðrum þjóðum. Við getum ekki endalaust krafist þess að uppskeran sé góð, ef ekki er hlúð að akrinum. Músíknám, munað- ur eða menntun? Steinunn Birna Ragnarsdóttir Kjarabarátta Það hlýtur að vera óhjákvæmilegt að tón- listarfólk leiti annarra leiða til að framfleyta sér, segir Steinunn Birna Ragnarsdóttir, ef ekki verður mikil breyting á í komandi kjarasamningum. Höfundur er píanóleikari. Verzlunarmanna- félag Reykjavíkur mótmælir harðlega dylgjum upplýsinga- fulltrúa Samtaka at- vinnulífsins í umfjöll- un um launakönnun VR í grein í Morg- unblaðinu 22. febrúar sl. Þar segir að ekki sé ætlunin að væna VR um ósannindi en að til séu „lygar, bölv- aðar lygar og svo töl- fræði“. SA geta ekki bent á að rangt sé við haft í könnuninni og gera ekki annað en að telja upp þá fyrirvara sem getið er um í útgefinni launa- könnun VR. Í könnuninni eru birt- ar launatölur eftir viðurkenndum aðferðum og einnig er birt launa- könnun Kjararannsóknarnefndar (KRN) vegna VR félaga fyrir sama tímabil til að hafa sem áreið- anlegastar upplýsingar. Tilgangur SA er augljóslega ekki að vera með málefnalega gagnrýni, heldur að reyna að útiloka launakönn- unina sem umræðugrundvöll í ár- legu viðtali félagsmanna við vinnu- veitendur sína samkvæmt kjara- samningi VR við SA. Ríkulegt launaskrið SA gagnrýna framsetningu hækkunar meðallauna milli kann- ana þar sem dagvinnulaun hækk- uðu um 19% og heildarlaun um 21% og segja hana villandi. Það eina sem forsvarsmenn VR hafa sagt um þessa meðaltalshækkun er að hún skýrist að hluta með betri svörun þeirra hærra launuðu en að öðru leyti sýni hún að VR félagar hafi notið ríkulegs launa- skriðs. SA staðfestir það því þeir hafa reiknað út að raun- veruleg hækkun dag- vinnulauna hafi verið á bilinu 10% til 16% á sama tíma og að launa- vísitalan hafi hækkað um 9% (sjá heimasíðu SA; www.sa.is). VR hvetur félagsmenn til að nota þessar tölur sem viðmiðun nú þeg- ar kemur að árlegu viðtali félagsmanna við sína vinnuveitendur. Gefa meðaltöl ranga mynd? Breytingar á íslenskum vinnu- markaði eru örar, starfsfólki í smásöluverslun fækkaði t.d. um 20% með tilkomu strikamerkja, en félagsmönnum VR hefur fjölgað um 10% á ári síðustu 5 ár og ár- lega útskrifast á annað þúsund Ís- lendingar með háskólapróf. Þessi breyting er ein af ástæðum þess að VR hefur kostað til sérstakrar launakönnunar. Því könnun kjara- rannsóknarnefndar greinir ekki laun í eftirfarandi atvinnugreinum: Útgáfustarfsemi, prentiðnaði, tölvu- og fjarskiptaþjónustu, fjár- málastarfsemi, trygginga- og líf- eyrissjóðastarfsemi, endurskoðun- ar-, lögfræði-, verkfræði-, aug- lýsingastofum eða líftæknifyrir- tækjum, starfsemi samtaka og félaga, tómstunda- og menningar- starfsemi s.s. starfsemi útvarps- og sjónvarpsstöðva. Þriðjungur félagsmanna VR vinnur í þessum atvinnugreinum. Því eru meðaltöl ekki villandi eins og t.d. upplýs- ingar um meðalhæð Íslendinga sem sýna að þjóðin verður æ há- vaxnari, en paraður samanburður þar sem hæð sama einstaklingsins er borin saman ár eftir ár, sýnir að hæð landsmanna stendur í stað eða fer e.t.v. lækkandi. Traustari tölur hjá kjara- rannsóknarnefnd? SA halda fram að mun fleiri standi á bak við niðurstöður könnunar KRN en í launakönnun VR og því sé hún mun áreið- anlegri. Ef einungis VR félagar eru teknir út eru þeir 1.610 í könn- un KRN á móti 2.619 einstakling- um í launakönnun VR. Í launa- könnun VR eru því 63% fleiri einstaklingar á bak við niðurstöð- urnar og í fleiri atvinnugreinum. Þeir sem vilja kynna sér launa- könnun VR af alvöru og hafa það sem rétt er, geta nálgast hana á skrifstofu félagsins eða á heima- síðu VR; www.vr.is. „Lygar, bölvaðar lyg- ar og svo tölfræði“ Gunnar Páll Pálsson Atvinnulífið Breytingar á íslenskum vinnumarkaði, segir Gunnar Páll Pálsson, eru örar. Höfundur er forstöðumaður fjár- mála- og hagdeildar Verzlunar- mannafélags Reykjavíkur. OUTLET 10 ++++merki fyrir minna++++ Faxafeni 10 s. 533 1710 Merkjavara og tískufatnaður á 50-80% lægra verði Dæmi: dömur/herrar BUXUR frá 500 BOLIR - 500 PILS - 500 VESTI - 500 PEYSUR - 990 SKYRTUR - 990 SKÓR - 500 STÍGVÉL - 500 Opið mán.-fös. 12-18, lau. 11-16 OUTLET 10 ++++merki fyrir minna++++ K O R T E R losaðu þig við hana... gre nn ing
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.