Morgunblaðið - 01.03.2001, Síða 47
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. MARS 2001 47
VIÐ stofnun Sorpeyðingar höfuð-
borgarsvæðisins bs, SORPU, voru
sett fram markmið sem fyrirtækið
skyldi hafa að leiðarljósi í starfi. Við
setningu þessara markmiða voru
hagkvæmnisjónarmið höfð í fyrir-
rúmi. Á síðastliðnum 10 árum hefur
fyrirtækið lagt mikið kapp á að starf-
semin spegli þessi markmið sem
best.
Eitt af markmiðum fyrirtækisins
hefur verið að stuðla að aukinni end-
urnýtingu, endurnotkun og endur-
vinnslu úrgangs í samstarfi við fyr-
irtæki og almenning á höfuð-
borgarsvæðinu og minnka með þeim
hætti það sorp sem annars færi til
urðunar. Hafa ber í huga að áður en
SORPA hóf störf var allur úrgangur
urðaður á gömlu Gufuneshaugunum,
hvort heldur var húsasorp, fram-
leiðsluúrgangur, bílhræ eða spilli-
efni.
Óhætt er að segja að SORPA hafi
verið í fararbroddi í meðhöndlun úr-
gangs enda hafa sífellt fleiri mögu-
leikar skapast á því sviði, samfara
auknum skilningi almennings og fyr-
irtækja á nauðsyn þess að nýta efn-
isleg verðmæti sem best.
Það sem helst hefur háð SORPU
varðandi endurnýtingu úrgangs var
og er skortur á lagaramma sem hvet-
ur og skyldar almenning og fyrir-
tæki til að flokka úrgang til endur-
nýtingar. Það má því segja að sá
árangur sem þó hefur náðst í endur-
vinnslu hér á höfuðborgarsvæðinu,
hafi náðst í samstarfi við þá sem vilja
bæta umhverfið. Ekki má þó gleyma
að við höfum löggjöf sem skyldar alla
til að skila inn spilliefnum til eyðing-
ar og einnig var sett skilagjald á
drykkjaumbúðir sem leiddi til þess
að um 84% af einnota umbúðum skila
sér til endurvinnslu.
Á næstu mánuðum vonumst við
hjá SORPU til þess að horfa til betri
daga hvað varðar bætt lagaumhverfi.
Aukin lagasetning um flokkun úr-
gangs til endurnýtingar gæti orðið
að veruleika á næstu mánuðum og
mun það styrkja SORPU enn betur í
því að ná fram þeim markmiðum sem
sett voru fram í stofnsamningi fyr-
irtækisins við stofnun þess.
Allir vinna saman
að settu marki
Eins og áður sagði er eitt af mark-
miðum fyrirtækisins að stuðla að
aukinni endurnotkun, endurnýtingu
og endurvinnslu úrgangs. Hinn al-
menni borgari og fyrirtæki, stór og
smá (þó ekki í eins miklum mæli),
hafa tekið virkan þátt í að koma hrá-
efnum sem felast í sorpinu til endur-
vinnslu og segja má að um 30% þess
úrgangs sem berst til SORPU af höf-
uðborgarsvæðinu fari til endurnýt-
ingar á einn eða annan hátt. Til sam-
anburðar má geta þess að á fyrsta
starfsári SORPU fóru um 10% úr-
gangs til endurnýtingar. Síðan þá
hafa sífellt bæst við nýir endur-
vinnsluflokkar sem SORPA tekur á
móti og kemur til endurvinnslu inn-
anlands sem utan í samvinnu við
ýmsa aðila.
Ein af algengari spurningum sem
kemur inn á borð kynningar- og
fræðslufulltrúa SORPU er „Hvernig
get ég flokkað ruslið mitt og hvert á
ég að fara með það?“ Til að koma til
móts við þann hóp fólks sem stuðla
vill að bættu umhverfi og betri nýt-
ingu hráefna sem í úrganginum leyn-
ast hefur SORPA sent bæklinginn
„Flokkunartafla – Góð flokkun er
forsenda endurvinnslu“ inn á öll
heimili á höfuðborgarsvæðinu.
Bæklinginn er jafnframt að finna á
heimasíðu SORPU, www.sorpa.is.
Í bæklingnum eru kynntir þeir
fjölmörgu flokkar sem hægt er að
flokka úrgang í og hvert hægt er að
fara með þá í endurvinnslu. Bækling-
urinn fékk ágætisviðtökur en tekið
skal sérstaklega fram að með þessu
riti var SORPA ekki að skylda neinn
til að flokka úrgang. Á þennan hátt
vildu starfsmenn SORPU kynna 25
mismunandi leiðir til að bæta um-
hverfið og um leið að minnka þann
úrgang sem fer til urðunar.
En hvaða ávinningur felst í þessu?
Jú, það er umhverfislegur ávinning-
ur af því að minnka það landsvæði
sem þarf til urðunar, minni orku þarf
t.d. við endurvinnslu áls og ágangur
á náttúruauðlindir jarðarinnar verð-
ur minni. Með endurvinnslu komum
við nýtanlegum hráefnum aftur inn í
eðlilega hringrás hráefnanna.
Hvaða hráefni leynast í
ruslapokanum okkar?
Þar má margt finna sem á sér ann-
an farveg en urðun í Álfsnesi.
Meðal þess eru úrgangsflokkar
eins og bylgjupappi, fernur, dagblöð
og tímarit sem eru flutt út til endur-
vinnslu, fatnaður og skór sem ýmist
er endurnotað eða endurunnið,
málmar flokkaðir til endurvinnslu,
timbur sem kurlað er niður og notað
sem kolefnisgjafi við framleiðslu kís-
ilmálms, ásamt fleiri athyglisverðum
flokkum sem jafnvel eru einsdæmi.
Æ fleiri eru að taka neysluvenjur
sínar til endurskoðunar með tilliti til
umhverfisvænni lífshátta. Ýmsar
spurningar vakna eins og t.a.m. „Er
sú vara sem ég þarf á að halda til í
margnota umbúðum? – í endurvinn-
anlegum umbúðum? – í umhverfis-
vænum umbúðum?“ og „Get ég kom-
ið þessu í endurvinnslu?“ Gleymum
því ekki að öllum neysluvörum fylgja
umbúðir sem í flestum, ef ekki öllum
tilfellum, verða að úrgangi sem ým-
ist fer í endurnýtingu eða í tunnuna
þína.
Það sem kemur flokkað til endur-
nýtingar fer til endurnýtingar!
Á næstu vikum munu birtast stutt-
ar greinar um þá helstu flokka úr-
gangs sem almenningur og fyrirtæki
eru að skila til endurvinnslu. Stiklað
verður á stóru um það hvert hægt sé
að skila flokkuðum úrgangi og hvaða
árangri við höfum náð í að draga úr
úrgangi til urðunar.
Það skal skýrt tekið fram að allir
flokkarnir sem skilgreindir eru til
endurnotkunar, endurnýtingar eða
endurvinnslu eiga sér endurnýting-
arfarveg og eru ekki urðaðir! Hún
Gróa á Leiti kemur of oft upp á yf-
irborðið með þann orðróm að hjá
SORPU sé öllum úrgangi, hvort sem
hann eigi sér endurvinnslufarveg
eða ekki, blandað saman og hann
urðaður á urðunarstað SORPU. Það
er ekki rétt. Það sem þú skilar inn til
endurvinnslu fer til endurvinnslu.
Afrakstur
samvinnu við
almenning
og fyrirtæki
Ragna er deildarstjóri gæða- og
þjónustusviðs Sorpu og Sif er kynn-
ingar- og fræðslufulltrúi sama fyr-
irtækis.
,-&
.#&
/$*&
#*%.01 -
2 . # #&
-* #3 *& .-
!"*#3& -
43% # #&
4*5.-
"3 +*&-
&
!" !
#$%
&$#%$
'(
%)*%+'%$#
,-
.*
'/
- - # & 6- # '*) 1) &7
'+-* # - &' -* & 6- #
)
/" - /,0%)(*%
&$#%$
,-
.*
'/
/" - "8
18
$% &'
(
Á næstu vikum birtir Morgunblaðið
stuttar greinar um endurvinnslu. Í þessari
fyrstu grein fjalla Ragna Halldórsdóttir
og Sif Svavarsdóttir um það hvað almenn-
ingur og fyrirtæki geta gert til að
stuðla að aukinni endurnotkun.