Morgunblaðið - 01.03.2001, Qupperneq 52
UMRÆÐAN
52 FIMMTUDAGUR 1. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ
NÝR grunnskóli í
Áslandi í Hafnarfirði
hefur undanfarið verið
áberandi í umræðunni.
Ástæðan er sú að þar er
ætlun bæjaryfirvalda að
um verði að ræða til-
raunaskóla varðandi
rekstrarform og
kennsluþætti undir
merkjum einkafram-
kvæmdar. Margir hafa
lagt orð í belg og mér
þykir sérstök ástæða til
að fagna því. Enda höf-
um við hjá Hafnarfjarð-
arbæ lagt öll okkar spil
á borðið með því að birta
drög að útboðsgögnum opinberlega á
heimasíðu okkar, www.hafnarfjord-
ur.is, og taka virkan þátt í mikilli um-
ræðu um þetta mál.
Eins og gefur að skilja geta margir
spurt margs þegar kemur að því að
breyta rekstrarformi grunnskóla á
Íslandi. Sumir finna hugmyndinni allt
til foráttu og má af máli þeirra skilja
að nú muni allt skólastarf á landinu
hrynja til grunna vegna þessa. Sumir
segja tilraun af þessu tagi ómögulega
og að ekki megi gera tilraunir á börn-
um. Slíkar fullyrðingar eru auðvitað
út í hött. Það, að í þessum nýja skóla
verði gerðar lífshættulegar tilraunir
á börnum og að jafnvel sé tilrauninni
líkt við uppboð á börn-
um eða hreppsómaga-
fyrirkomulag fyrri
alda, eru auðvitað orð
sem rata rakleiðis aftur
í flasið á mælendum
sínum af miklum
þunga. Orð af því tagi
benda ekki til annars
en að gagnrýnendurnir
séu strax komnir í þrot
með gagnrýni og rök
sem mæla gegn því að
hreyft sé við grunn-
skólastarfi á þennan
hátt. Áhættan er nefni-
lega engin.
Engin aukagjöld fyrir menntun
Hér er verið að ræða um rekstr-
arfyrirkomulag skóla og ég fullyrði
að börnin munu aldrei verða vör við
að verið sé að gera tilraun með það.
Útboðsgögnin gera mjög miklar kröf-
ur til bjóðenda en veita þeim um leið
það frelsi að geta hafið skólastarfið á
mjög styrkum undirstöðum grunn-
vinnu sem krafist er með útboðinu.
Með hefðbundnum aðferðum við
stofnun skóla er auglýst staða skóla-
stjóra og honum falið að stofna til
skólastarfsins, ráða kennara til skól-
ans og annað starfslið. Þessi nýja að-
ferð er jafngóð, ef ekki betri en sú
sem áður hefur verið farin. Og það er
ljóst að seint verður mikill hagnaður
af skólastarfi. Enda viljum við að
þeir, sem gera munu tilboð í rekst-
urinn, geri það vegna þess að þeir vilji
fyrst og fremst búa til góðan skóla og
setji það markmið í fyrsta sæti.
Hagnaður verði aftar á forgangslist-
anum og loku er fyrir það skotið að
krafist verði sérstakra skólagjalda af
foreldrum barna í skólanum. Kostnað
af menntun barnanna greiðir Hafn-
arfjarðarbær en fyrir aukaþjónustu
má auðvitað taka gjald eins og gerist
og gengur í öðrum skólum, t.d. fyrir
skólanesti, heilsdagsvistun eða aðra
stoðþjónustu í skólanum.
Margir hafa spurt góðra spurninga
um þessi mál og flestir, sem ekki eiga
pólitískra hagsmuna að gæta, hafa
talið að þessi tilraun sé tilraunarinnar
virði. En þó hefur meira að segja ver-
ið sett spurningarmerki við það að
um eiginlega tilraun sé að ræða. Ég
veit ekki betur en það sé einmitt eðli
tilrauna – að fyrir liggi tilgátur og
spurningar um viðfangsefnið sem
ætlað er að leiða menn að niðurstöðu
um það. Meirihluti bæjarstjórnar
Hafnarfjarðar hefur sett fram þá til-
gátu að með þessu fyrirkomulagi
megi auðga skólastarfið og bæta það.
Með því erum við ekki að segja að
aðrir skólar hafi staðið sig illa. Þvert
á móti – í grunnskólum Hafnarfjarð-
ar er unnið gott starf en ég held að
drifkraftar breytinga séu forsenda
framþróunar. Það, að vilji sé til þess í
bæjarstjórn Hafnarfjarðar að halda
áfram þróun í skólastarfi í átt til
framfara, eru að sjálfsögðu ekki áfell-
isdómar yfir stjórnendum og öðrum
starfsmönnum hinna grunnskólanna í
bænum. Því ef aldrei má hreyfa við
grundvallargildum er hætta á að
stöðnun verði innbyggð í öll kerfi
þegar til lengri tíma er litið. Tilraun
með kennsluþátt grunnskólans í Ás-
landi er afmörkuð í tíma – fyrst í þrjú
ár, og þá má segja upp samningi og
breyta rekstrarfyrirkomulagi, t.d. í
hefðbundið horf, og aftur eftir fimm
ár. Skólaskrifstofa Hafnarfjarðar
mun fylgjast grannt með þróun mála
og að öllu leyti verða gerðar sam-
bærilegar kröfur um skólastarfið og í
öðrum skólum.
Kennurum er treystandi
Í umræðu um þetta mál á undan-
förnum vikum hafa verið tilgreindir
ýmsir þættir velferðarkerfisins sem
ekki megi setja í hendur einkaaðila –
rétt eins og ,,einkaaðilar“ séu önnur
dýrategund eða úr öðru sólkerfi en
við hin. Þegar ég fer til læknis á
einkastofu hans er ég að eiga við-
skipti við einkaaðila. Einkaaðili selur
mér lyf. Ísaksskóli í Reykjavík er
dæmi um einkarekinn grunnskóla og
þykir góður skóli. Þegar ég fer upp í
flugvél í 33 þúsund feta hæð er ég að
treysta einkaaðila fyrir lífi mínu, fjöl-
skyldu minnar og vina. Þegar ég
borða mat eða drekk límonaði úr dós
er ég að treysta einkaaðila fyrir því
að varan sé mér að skaðlausu. Á
hverjum einasta degi erum við að
treysta svokölluðum einkaaðilum,
sem uppfyllt hafa tilteknar skyldur,
fyrir lífi okkar og limum. Ég get ekki
séð að kennurum sé minna treystandi
til að reka skóla í eigin reikning held-
ur en að ég treysti þeim, sem hér voru
taldir, til þess að leysa sín störf sam-
viskusamlega af hendi. Þvert á móti
treysti ég kennurum fullkomlega til
þess.
Foreldraráð Hafnarfjarðar hefur
lýst áhuga sínum fyrir þessari tilraun
og ég fagna því. Það segir okkur, sem
að þessu stöndum, að foreldrar
grunnskólabarna séu opnir fyrir nýj-
ungum í skólastarfinu. Og ég trúi
ekki öðru en að skólamenn fagni nýj-
um rekstraraðferðum sem beinlínis
geta leitt til betra skólastarfs og
markvissari rekstrar. Skólar eru
nefnilega stór fyrirtæki. Hér í Hafn-
arfirði nemur rekstur grunnskólanna
hundruðum milljóna króna fyrir
hvern skóla og mikil ábyrgð lögð á
skólastjórnendur um fjármálastjórn
og meðferð opinberra fjármuna ekki
síður en að þeir séu faglegir leiðtogar
í skólunum. Með markvissri fjár-
málastjórn, sem ég tel að sé vel borg-
ið í höndum traustra einkaaðila, og
sterku faglegu starfi skólafólks með
öll réttindi og reynslu sem krafist er í
öðrum skólum, er ég þess fullviss að
við fáum góðan skóla í Áslandi. Ég
mun sjálfur eiga tvö barnabörn í
þessum skóla eftir að hann tekur til
starfa og ég hlakka til að fylgjast með
þróun mála í skólanum á svo persónu-
legan hátt, jafnframt því að sem bæj-
arstjóri í Hafnarfirði muni ég sjá
skólann dafna sem fyrirtæki í þjón-
ustu Hafnarfjarðarbæjar til heilla
fyrir Hafnfirðinga.
Útboð kennsluþáttar
grunnskóla í Áslandi
Magnús Gunnarsson
Skólastarf
Meirihluti bæjarstjórn-
ar Hafnarfjarðar hefur
sett fram þá tilgátu,
segir Magnús Gunn-
arsson, að með þessu
fyrirkomulagi megi
auðga skólastarfið og
bæta það.
Höfundur er bæjarstjóri í
Hafnarfirði.