Morgunblaðið - 01.03.2001, Qupperneq 59
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. MARS 2001 59
Miss Jackson Outkast
Road Trippin Red Hot Chili Peppers
Stan Eminem & Dido
Last Resort Papa Roach
Man Overboard Blink 182
Love Dont Cost A Thing Jennifer Lopez
Gravel Pit Wu Tang Clan
Stuck In A Moment U2
Shiver Coldplay
Snoop Dogg Snoop Dogg
Farðu í röð Botnleðja
Your Legacy Dead Sea Apple
Trouble Coldplay
It Was’nt Me Shaggy
The Call Backstreet Boys
Lítill fugl 200.000 Naglbítar
Dont Tell Me Madonna
Independent Women Destinys Child
My Love Westlife
Rollin Limp Bizkit
Vikan 28.02. - 07.03
http://www.danol.is/stimorol
ÁHUGAFÓLK um varðveislu
Hraunsréttar í Aðaldal hefur ákveð-
ið að safna fé til enduruppbyggingar
á réttinni og hefur stofnað söfnunar-
reikning í Landsbankanum á Húsa-
vík af því tilefni.
Á síðastliðnu sumri var hafist
handa í Hraunsrétt og byrjað að
hlaða upp dilka og skipta um und-
irstöður. Áætlað er að verkið taki
nokkur ár og er um mjög kostnaðar-
sama framkvæmd að ræða.
Hraunsrétt í Aðaldal var byggð
upp úr 1830 og er hlaðin úr hraun-
grjóti. Vegna aldurs hennar og
stærðar er hún mjög merkileg í
sögulegu ljósi, en hleðslur hennar
hafa víða riðlast á löngum ferli henn-
ar og því þarfnast réttin mikillar við-
gerðar.
Hraunsréttardagurinn hefur ætíð
verið stór dagur í lífi Aðaldælinga og
allra þeirra sem tekið hafa þátt í
þeim degi og hefur réttin á margan
hátt verið tákn sveitarinnar í nær
170 ár.
Þjóðminjasafnið hefur sýnt rétt-
inni mikinn áhuga og lagt á það
áherslu að réttin verði áfram notuð
þar sem hún sé mikið menningar-
sögulegt verðmæti. Vegghleðslur
beri að varðveita og leggja skuli
áherslu á þá verkmenningu sem
vegghleðslum fylgir.
Þá telur Þjóðminjasafnið, og það
fólk sem að söfnuninni stendur, að
gildi Hraunsréttar verði mun meira
ef réttað verður í henni áfram. Þeir
Þingeyingar sem búsettir eru í hér-
aði sem og þeir sem brottfluttir eru
og bera góðan hug til réttarinnar eru
hvattir til þess að leggja málinu lið.
Reikningsnúmer söfnunarinnar er
60643, segir í fréttatilkynningu frá
aðstandendum hennar.
Hollvinir Hraunsréttar
stofna söfnunarreikning
GIGTARFÉLAG Íslands
stendur fyrir gönguferð um
Laugardalinn laugardaginn 3.
mars kl. 11 og verður gengið frá
húsakynnum félagsins í Ármúla
5. Gert er ráð fyrir fremur þægi-
legri klukkutímagöngu sem ætti
að henta flestum.
Einn af kennurum hópþjálf-
unar gengur með hópnum og sér
um létta upphitun í byrjun og
teygjur í lokin. Öllum er frjáls
þátttaka, bæði félagsmönnum
GÍ og öðrum. Ekkert gjald.
Gigtar-
félagið með
gönguferð
ELSA Ísland og Mannréttindaskrif-
stofa Íslands standa fyrir málþingi
þar sem niðurstöður rannsóknar á
faðernisreglu barnalaga verða kynnt-
ar og ræddar. Málþingið fer fram
föstudaginn 2. mars, milli 14 og 17 í
Kornhlöðunni, sal Lækjarbrekku.
Í fréttatilkynningu segir: „Íslensk-
ar réttarreglur geta útilokað foreldri
frá því að þekkja barn sitt. Feðrunar-
reglur barnalaga gera það að verkum
að barn fætt í hjónabandi verður sjálf-
krafa barn eiginmanns móður, þó að
annar maður geti leitt að því líkur að
hann sé faðir þess. Þó hefur nýlegur
dómur Hæstaréttar gefið tilefni til að
ætla að þessi lög séu andstæð Stjórn-
arskrá Íslands og Mannréttindasátt-
mála Evrópu. Niðurstöður rannsókn-
ar mannréttindahóps ELSA Ísland
og Mannréttindaskrifstofu Íslands
eru þær að með faðernisreglu barna-
laganna sé, eins og hún er í dag, verið
að brjóta á rétti barnsins og hugsan-
legs föður þess.“ Málþingið er öllum
opið og aðgangur ókeypis.
Málstofa um mannréttindi
Rætt um feðrunar-
reglur barnalaga
MARKVISS notkun upplýsinga-
tækni er viðfangsefni tveggja nám-
skeiða sem eru að hefjast hjá Endur-
menntunarstofnun HÍ.
5. mars verður efnt til námskeiðs
fyrir almenna stjórnendur sem þurfa
í starfi sínu að taka ákvarðanir um
notkun upplýsingatækni og fjárfest-
ingar í hátækni. Kennararnir Björn
Ársæll Pétursson verkfræðingur og
Kristján Finnsson tölvunarfræðingur
hjá Hugviti hf. ætla að varpa ljósi á
helstu hugtök í tungumáli upplýs-
ingatækninnar og láta þátttakendum
í té hagnýta þekkingu að byggja
ákvarðanir á.
Dagana 6. og 7. mars verður haldið
námskeið um upplýsingatækni í
markaðssetningu. Það er ætlað þeim
sem starfa við markaðs- og þjónustu-
mál og vilja nýta nýjustu tækni
til að standa betur að vígi í sam-
keppni. Fléttað verður saman mark-
aðsfræðum og upplýsingatækni og
fjallað um hvernig stunda megi við-
skipti á Netinu. Einnig hvernig bæta
megi þjónustu með markvissri upp-
lýsingamiðlun til viðskiptavina. Um-
sjón með námskeiðinu hefur Kristján
Jóhannsson rekstrarhagfræðingur og
framkvæmdastjóri hugbúnaðarsviðs
Nýherja.
Námskeið um upplýs-
ingatækni í stjórnun
og á markaði
BAKKAÐ var á bifreiðina
VD-033, sem er Renault 19,
fólksbifreið, rauð að lit, föstu-
daginn 23. febrúar sl. Atvikið
átti sér stað um hádegisbil við
Skútuvog 1, Rvík. Grunur leik-
ur á að kvenmaður á jeppa-
bifreið hafi verið að verki en
hún mun hafa leitað þarna að
eiganda VD-033 eftir atvikið
án árangurs. Umræddur öku-
maður, svo og vitni að atvik-
inu, eru beðin um að hafa
samband við lögregluna í
Reykjavík.
Lýst eftir
vitnum