Morgunblaðið - 01.03.2001, Síða 65
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. MARS 2001 65
DAGBÓK
DÚNDUR TILBOÐ
Yfirhafnir
tvær fyrir eina
Greitt fyrir dýrari flíkina
Opið laugardag
frá kl. 10—16
Mörkinni 6,
sími 588 5518
P E R L A N
Öllum fyrirspurnum verður svarað
í síma 562 9701 – Perlunni, Reykjavík
og síma 897 6427 – Blómalist
Hafnarstræti 26, Akureyri
á bókamarkaði
Félags íslenskra bókaútgefenda
Bókaveisla í Perlunni Reykjavík
og Blómalist á Akureyri
Opið alla daga kl. 10 - 19
Einnig um helgar
350.000,-
Heildarverðmæti vinninga
kr.
KRINGLUNNI 4-12, s. 800 6000
Logafold - Grafarvogar
Vorum að fá í sölu fallega 3ja herbergja íbúð á 2.hæð ( gengið upp nokkrar
tröppur) í litlu fjölbýli á útsýnisstað. Íbúðinni fylgir stæði í bílskýli. Þvottahús
í íbúð.
Kaplaskjólsvegur - Við KR-völl
Vorum að fá í einkasölu góða 4-5 herb. íbúð + ris , á 4.hæð til vinstri í þessu
fjölbýlishúsi sem stendur við KR-völlinn. Stofa og tvö svefnherb. á hæðinni
og eitt stórt herb,.gætu verið tvö, í risi. Parket og dúkur á gólfum.Nýlega
endurnýj.baðherb. Verð 12,8 millj. Áhv. 4 millj.
Efstasund
Vorum að fá í einkasölu góða 75 fm íbúð í tvíbýli með sér-inngangi á
rólegum stað. Parket og dúkur á gólfum. Rúmgott og bjart eldhús með
innréttingu á tvo veggi. Nánari uppl. á skrifstofu.
Lindarhverfi - Kópavogur
Í sölu glæsileg 151fm penthouse íbúð á tveimur hæðum í þessu nýlega
fjölbýli. Vandaðar innréttingar. 4. svefnherb. og rúmgóð stofa. Tvennar
svalir. Þvottahús í íbúð. Eign fyrir vandláta ! Nánari uppl. á skrifstofu.
Kaplaskjólsvegur - Við KR-völl
Vorum að fá í sölu góða 4ra herb íbúð á 2.hæð til hægri í fjölbýlishúsi sem
stendur við KR-völlinn. Þrjú svefnherb. og stofa með suður svölum. Dúkur
á gólfum. Góð eign á eftirsóttum stað ! Verð 12,4 millj. Áhv. 3,3.millj
Barðastaðir - LAUST !!
Í einkasölu falleg 111 fm íbúð á 2.hæð í þessu nýlega lyftu húsi. Fallegar
innréttingar. Stórkostlegt útsýni ! Áhv. 7,4 millj.húsbr. Afhending við kaup-
samning !!
Bústaðavegur LAUS !!
Vorum að fá í sölu góða 82 fm íbúð á 1.hæð í fjórbýli. Nýleg eldhúsinnrét-
ting. Nýlegar flísar á gólfum. Góð eign á eftirsóttum stað ! Verð 10.8 millj.
Áhv. húsbr.5.5 millj. Afhending við kaupsamning !
„ÉG hélt að það væri óhætt
að bjóða upp á slemmu með
15 punkta og fimmlit á móti
sterku grandi. Varstu að
teygja þig eitthvað í grand-
ið?“
Suður gefur; allir á hættu.
Norður
♠ ÁD2
♥ 63
♦ K93
♣ KDG54
Suður
♠ KG3
♥ ÁK92
♦ Á872
♣ 93
Vestur Norður Austur Suður
-- -- -- 1 grand
Pass 4 grönd Pass Pass
Pass
Það eru ótal leiðir til að ávíta
makker og hinar fínlegu
dylgjur eru síst betri en
beinar árásir. En suður átti
fyllilega fyrir sínu 15-17 HP
grandi og var óheppinn að
fara einn niður. Reyndar
spilaði hann ekki sem best,
en norður tók ekkert eftir
því. Hvernig myndi lesand-
inn spila með spaða út?
Ekkert nema hellega í
laufi getur komið í veg fyrir
að hægt sé að fría tíunda
slaginn þar. Ef vestur er
með Á10xxx þýðir ekkert að
spila tvívegis að blindum,
því vestur gefur bara og þá
fær sagnhafi aðeins tvo slagi
á lauf. Hins vegar má ráða
við Á10xxx í austur og rétta
spilamennskan er að spila
strax smáu laufi úr borði að
níunni heima:
Norður
♠ ÁD2
♥ 63
♦ K93
♣ KDG54
Vestur Austur
♠ 109864 ♠ 75
♥ D105 ♥ G875
♦ D1054 ♦ G6
♣ 6 ♣ Á10872
Suður
♠ KG3
♥ ÁK92
♦ Á872
♣ 93
Þannig má tryggja þrjá
slagi á litinn í flestum tilfell-
um, nema auðvitað þegar
vestur á Á10xxx eða tíuna
staka. En svo óheppinn get-
ur enginn verið! Suður gerði
hins vegar þau mistök að
spila laufinu að borðinu og
gat þá aldrei fengið nema
tvo slagi á litinn. Og þar eð
tígullinn lá einnig illa, var
engin leið að fá nema níu
slagi.
Það er slæmur siður að
skamma makker, en fyrir-
gefanlegt ef það er gert með
góðum rökum.
BRIDS
Umsjón Guðmundur
Páll Arnarson
STAÐAN kom upp á Norð-
urlandamótinu í skólaskák
sem lauk fyrir skemmstu í
Laugum í Dalasýslu. Árang-
ur íslensku keppendanna var
með ágætum en í tveim
flokkum báru þeir sigur úr
býtum. Færeyingar höfðu
keppendur í nokkrum flokk-
um og stóðu
þeir sig með
miklum sóma.
Einn þeirra var
Martin Poul-
sen (2056) sem
lenti í 4. sæti í
B-flokki og
hafði hvítt í
stöðunni gegn
Halldóri B.
Halldórssyni
(1910).
24.Hxf5! gxf5
24...Rxf5 gekk
ekki upp þar
eftir 25.Dh8
verður svartur
mát. 25.Dg6+
Kh8 26.Dxh5+ Kg7
27.Dg5+ Kh7 28.Hd3! Og
svartur gafst upp enda óverj-
andi mát. Töluverður fjöldi
íslenskra skákmanna tekur
þátt nú um stundir í mikilli
skákhátíð í Cappelle í Frakk-
landi. Þetta opna alþjóðlega
mót er gríðarlega sterkt og
spennandi verður að fylgjast
með hvernig efnilegustu
skákmönnum þjóðarinnar
reiðir af í ólgusjó þess. Á
Netinu er hægt að fylgjast
með gangi mála á Skak.is.
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
LJÓÐABROT
Stökur
Enginn grætur Íslending
einan sér og dáinn.
Þegar allt er komið í kring,
kyssir torfa náinn.
Mér er þetta mátulegt,
mátti vel til haga,
hefði ég betur hana þekkt,
sem harma ég alla daga.
Lifðu sæl við glaum og glys,
gangi þér allt í haginn.
Í öngum mínum erlendis
yrki ég skemmsta daginn.
Sólin heim úr suðri snýr,
sumri lofar hlýju.
Ó, að ég væri orðinn nýr
og ynni þér að nýju.
Jónas Hallgrímsson
Árnað heilla STJÖRNUSPÁ
ef t i r Frances Drake
FISKAR
Afmælisbarn dagsins:
Þú ert rómantískur æv-
intýramaður, fær í flestan
sjó en þarft að hafa taum-
hald á sjálfselsku þinni.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þú átt erfitt með að gera
upp á milli þess sem í boði
eru en nú verður að taka af
skarið svo að lífið geti hald-
ið áfram.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þú hefur jákvæð áhrif á
samstarfsmenn þína með
því að sýna þeim vinsemd
og umhyggju. Mundu að all-
ir eiga leiðréttingu orða
sinna.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Þú hefur lagt hart að þér en
munt nú uppskera árangur
erfiðis þíns. Haltu þínu
striki og þá munu draumar
þínir rætast.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Nú er tímabært að þú drag-
ir fram áætlanir þínar. Þú
munt undrast hversu marg-
ir eru þeim fylgjandi og
vilja lúta leiðsögn þinni.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Reyndu að komast út í nátt-
úruna frá erli dagsins því
mikið liggur við að þú getir
um frálst höfuð strokið og
endurnýjað orku þína.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Þú kemst langt á sjálfs-
traustinu en farðu samt
varlega því að orðum þurfa
alltaf að fylgja athafnir ef
fólk á að trúa á þig.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Þú hefur unnið vel og
skipulega og hefur nú lokið
verkefni þínu í tæka tíð.
Njóttu árangursins en
mundu að ný verkefni bíða
handan hornsins.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Oft er betri krókur en
kelda. Vertu djarfur en
láttu vera að berjast gegn
öflum sem þú veist að eru
þér yfirsterkari.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Þótt sigurinn sé sætur
skaltu varast að velta þér
upp úr honum því í annan
tíma getur þú verið sá sem
tapar. Þá er gott að eiga
góðvild inni.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Þér gefast mörg tilefni til
upplyftingar en vertu vand-
látur og veldu þér skemmt-
un við hæfi. Mundu samt að
hóf er best á hverjum hlut.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Það er eitt og annað sem
hvetur þig til varfærni þótt
þig langi mest sjálfan til að
láta skeika að sköpuðu. En
kapp er best með forsjá.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Til þín verður leitað í sam-
bandi við lausn á viðkvæmu
vandamáli. Gættu þess að
blandast ekki persónulega í
málið.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
70 ÁRA afmæli. Sjötug-ur er í dag, fimmtu-
daginn 1. mars, Guðni Jóns-
son, Suðurbraut 1, Kópa-
vogi, Hann og eiginkona
hans Edda Magnúsdóttir
taka á móti gestum á heimili
dóttur sinnar í Birkibergi 12
, Hafnarfirði, laugardaginn
3. mars frá kl. 16–19.
70 ÁRA afmæli. Í dag,fimmtudaginn 1.
mars, er sjötugur Skúli H.
Flosason málarameistari og
fyrrverandi umsjónarmað-
ur húseigna Menntaskólans
á Akureyri, Hamarsstíg 23,
Akureyri. Hann er að heim-
an í dag.
50 ÁRA afmæli. Ámorgun, föstudaginn
2. mars, verður fimmtug,
Vigdís Hjartardóttir, Reyr-
haga 15, Selfossi. Í tilefni af
því taka hún og eiginmaður
hennar Þórður Grétar
Árnason, á móti ættingjum
og vinum laugardaginn 3.
mars í samkomuhúsinu Stað
á Eyrabakka, milli kl. 12 og
15.
DILBERT mbl.is