Morgunblaðið - 01.03.2001, Page 68

Morgunblaðið - 01.03.2001, Page 68
FÓLK Í FRÉTTUM 68 FIMMTUDAGUR 1. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ HELENA Stefánsdóttir hefur lok- ið BA-prófi í frönsku og heimspeki og einnig hlotið menntun í leiklist, leikstjórn og leikmyndagerð. Hún hefur tekið þátt í, sett upp og skipulagt sýningar og ýmsa við- burði hér heima og erlendis. Hel- ena segir að sýningin sé tileinkuð börnum sem fá ekki að vera börn þ.e. þeim börnum sem rænd eru sakleysinu á einn eða annan hátt. Börnum sem þurfa að vera ein heima og börnum sem beitt eru óréttlæti eða ofbeldi. Börnum sem rétt eru vopn í hendur, stríðshrjáð- um börnum, börnum sem hafa áhyggjur, hræddum og einmana börnum. „Ég held sýninguna í heimahúsi vegna þess að algengt er að brotið sé á börnum inni á heimilum og þar er allt mjög vel falið og geymt. Heimilið er sá stað- ur þar sem mikið óréttlæti fer fram óáreitt og þess vegna fannst mér þessi sýning ekki geta verið annars staðar en á heimili,“ segir Helena. Myndirnar verða birtar í fimm gluggum og eru því sýni- legar frá götunni. Þannig er vegfarendum sýnt það sem venjulega er falið inn- an veggja heimilanna. Lambið mitt Sýningin er ekki ádeila eða gagnrýni heldur einskonar óður til barna, segir Helena, en henni hefur lengi verið það hugleikið að vinna með börnum og fyrir börn. „Mig lang- ar líka aðeins að velta þessu upp vegna þess að ég held að við gerum okkur oft ekki grein fyrir því þegar við rænum börn okkar sakleysinu. Allir kannast við „lambið mitt“ og þá er átt við „barnið mitt“. Í dag eru börn notuð sem markaður fyrir nýja tísku, ný leikföng og eru jafn- vel notuð sem fyrirsætur. Börn eru send í stríð til að berjast við það sem þeim er sagt að sé „óvinur“. Þau eru auðveld bráð vegna þess að þau eru hrifnæm og saklaus og auðvelt er að sannfæra þau um að eitthvað sé betra en annað,“ segir hún enn fremur. Helena hefur mik- ið unnið með börnum, sett upp fjölda leiksýninga með þeim og tekið af þeim myndir. Hún hefur einnig tekið þátt í einni samsýn- ingu þar sem hún sýndi myndir af börnum sem fórnarlömbum tísku- nnar. Þessi sýning er fyrsta einkasýning hennar af þessu tagi og er hlekkur í keðju sem hún er að vinna að. „Þetta þema er mér mjög hugleikið. Ég hef alltaf haft áhuga á að vinna með börnum og mikið gert af því síðastliðin 10 ár. Næsta skref hjá mér verður líklega að vinna með nokkrum góðum vinum mínum úr Austurbæjar- skóla (14–15 ára), að verkefni sem hefur verið í þróun í rúm- lega ár og langar mig að nota myndbands- og hljóðtækni við það. Ég hef orðið vitni að ýmiss konar framkomu við börn, þegar fólk veit ekki að ég er á staðnum og smám saman hefur vaknað hjá mér sú þrá að birta það sem ekki má tala um, vekja fólk til umhugs- unar, þar á meðal mig sjálfa,“ segir Helena að lokum. Sýningin mun standa yfir til 17. mars og verður hún opin daglega frá kl. 21:00 fram eftir nóttu. Laugardaginn 3. mars kl. 21 opnar Helena Stefánsdóttir sýningu í húsnæði Undra- lands á horni Þórsgötu og Baldursgötu. Sýningin, sem nefnist Íslenskt lambakjöt, er tileinkuð börnum og er sérstök að því leyti að gestir skoða hana frá götunni. Unnar Jónasson ræddi við listamanninn. Morgunblaðið/Jim Smart Íslenskt lambakjöt Hér gefur að líta eitt þeirra verka sem prýða sýningu Helenu. Helena Stefánsdóttir, höfundur sýningarinnar Íslenskt lambakjöt. Helena Stefánsdóttir opnar sýningu Valdasvið Spreading Ground S p e n n u m y n d Leikstjóri Derek Van Lint 2000. Handrit: Mark Katsumi Nakamura. Bandarísk. PÓLITÍK og morðmál eru undir- stöður Valdasviðs en þar fer leikarinn Dennis Hopper með hlutverk leyni- lögreglumannsins DeLongpre í Bur- man City sem á að baki frábæran feril innan lögreglunnar en margir eru hræddir um að hann sé brunninn út. Þegar raðmorð- ingi einn byrjar að ógna áformum borgastjórans um að laða að fólk til borgarinnar er DeLongpre látinn fá þetta mikilvæga mál og hefur næst- um enginn trú á aðhonum takist að leysa það. Meira að segja glæpafor- ingjar borgarinnar eru ekki sáttir við morðin svo að þeir láta mann úr sín- um eigin hópi reyna við það og ekki líður á löngu að þessir tveir ólíku ein- staklingar þurfa að vinna saman að lausn málsins. Þetta er prýðileg spennumynd en ekkert sérstaklega eftirminnileg og leikararnir sýna ekki mikla tilburði í hlutverkum sýnum. Þrátt fyrir það er hún langt frá því að vera léleg og ætti að renna ljúflega í gegn á meðan áhorf stendur yfir. Ottó Geir Borg MYNDBÖND Glæpamenn úti um allt „KJALLARINN er rækilega skreyttur í tengslum við það þema sem valið er hverju sinni. Í ár gengum við meira að segja svo langt að panta framhluta af amerískum kagga og höfðum í kjallaranum,“ sagði Árni Helgason, forseti Framtíð- arinnar við Menntaskólann í Reykjavík, en menntskælingar héldu á dögunum árshátíð með tilheyrandi glaum og gleði. Að þessu sinni var þemað dans- og söngvamyndin Grease, og var öll árshátíð- arvikan í sama anda: strákarnir voru í leð- urjökkum með koppafeiti í hárinu og stelp- urnar bleikklæddar klappstýrur. „Það voru, að vanda, uppákomur í árshá- tíðarvikunni. Við vorum með Dr. Love- kvöld á á mánudag þar sem Páll Óskar átti skemmtilegt rabb við nemendur og veitti ráðgjöf,“ sagði Árni. „Á þriðjudagskvöldið sýndum við Grease-myndina og buðum, í anda mynarinnar, viðstöddum upp á mjólk- urhristing og nammi. Á miðvikudags- kvöldið héldum við síðan Twister-keppni.“ „Það voru líka uppákomur á skólatíma í frímínútunum: við héldum karaoke-keppni, krýndum Prom King og Prom Queen skól- ans og seldum sykurfroðu („candy floss“) – að sjálfsögðu bleika.“ Árshátíðarútvarpsstöð Annað árið í röð var starfrækt árshátíð- arútvarp, FMMR 98,3 og sendi stöðin út í viku, fram að árshátíðardegi. Nemendur skólans voru þáttastjórnendur og hafa þættirnir, að sögn Árna, aldrei verið fleiri. Þættirnir spönnuðu alla flóruna, frá því að vera léttir spaugþættir til alvörugefinna spjallþátta þar sem helstu mál samtímans voru brotin til mergjar. Að auki kom, að venju, út vegleg árshá- tíðarútgáfa Loka Laufeyjarsonar, mál- gagns Framtíðarinnar. Þessu öllu til við- bótar var gefinn út geisladiskur með 19 frumsömdum lögum fluttum af nemendum skólans. Dapurlegt einkalíf Illuga Hápunkturinn var á fimmtudag þegar hátíðarskemmtun var haldin í Háskólabíói og dansleikur um kvöldið á Broadway: „Í háskólabíói voru flutt söngatriði, dans- atriði og árshátíðarmyndin sýnd, sem að þessu sinni var Grease – director’s cut, þar sem farið var nokkuð frjálsum höndum um myndina,“ sagði Árni. „Illugi Jökulsson var hátíðarræðumaður kvöldsins og sagði, við góðar undirtektir, frá fremur dapurlegum afrekum sínum við skólann, jafnt á sviði náms sem einkalífs.“ Hápunkturinn var síðan dansleikur á Broadway um kvöldið þar sem Páll Óskar og Milljónamæringarnir stigu á svið, ásamt Botnleðju, á meðan PS-Daði, DJ-Steinar, DJ-Big G og DJ-Cocoon þeyttu skífur af miklum móð. Árshátíð Framtíðarinnar í Menntaskólanum í Reykjavík Nemendur stóðu í ströngu við að teygja sig og beygja í Twister-leik. Strákarnir í leðurjökkum og stelpurn- ar í bleiku Morgunblaðið/Ásdís Ásgeirsdóttir KÁRI TULINIUS er ungt skáld sem hefur tekið að sér það viðamikla verkefni að skrifa eitt ljóð á dag fyrir allra augum í Hinu húsinu. Ljóðin verða rituð á ritvél sem er á borði út við glugga sem snýr út að Ingólfs- torgi. Ljóð dagsins verður svo hengt upp til aflestrar út í gluggann en Kári hóf verk sitt núna á mánudaginn, á tvítugsaf- mælinu sínu, og mun ljúka ársverkinu 26. febrúar 2002. Kári segir að hann hafi eiginlega skellt saman tveim hugmyndum sem honum fannst eiga heima saman. Aðra rakst hann á þegar hann las bókadóm á Netinu fyrir svona ári, en sú bók var samansafn ljóða eftir bandarískt skáld sem hafði sett sér það markmið að skrifa eitt ljóð á dag. „Mér fannst þetta alveg bráðsniðug hug- mynd og mig langaði lengi að gera eitthvað svipað,“ segir Kári um hugmyndina að þessu uppátæki. „Hina hugmyndina hafði ég þekkt lengi. Það er saga sem er sögð af franska rithöfundinum Georges Simenon um að hann hafi verið úti í glugga í heila viku og skrifað skáldsögu. Mér var reyndar seinna tjáð að sagan væri ósönn. Reyndar er banda- rískur rithöfundur að nafni Harlan Ellison sem stundar það að fara í búðir og skrifa eina smásögu. Svo núna um miðjan janúarmánuð datt mér í hug að skella þessu tvennu saman.“ Poetry.com Kári hefur áður birt ljóð í Skólablaði MR, þar sem hann er nemandi 6. bekk, og einnig á að lesa ljóð eft- ir hann á ensku inn á geisladisk sem vefsíðan poetry.com gefur út. Poetry.com er eins konar vettvangur fyrir áhugaljóðskáld sem yrkja á ensku. Kári segir líka að ein af ástæðunum fyrir því að hann fór útí þetta verkefni sé sú að það neyði hann til að aga sjálfa sig. „Ég þarf að skrifa eitt ljóð og líka hugsa eitthvað um ljóð á hverjum degi. Ég hef reyndar verið að þjálfa mig í því að geta sest niður með penna og blað og byrjað að skrifa. Að hluta til var það leti, ég nennti bara ekki að bíða eftir innblæstri.“ Ljóðin eru rituð á ritvél og aðeins eitt eintak af hverju ljóði er til en það er hluti af hugmynd Kára. „Mér fannst ritvélin flott, svo er líka ákaflega agandi að skrifa á gamla ritvél. Það er ekki hægt að stroka út eða breyta neinu þegar stafirnir eru komnir á blaðið. Ég þarf að hugsa mig vel um áður en ég byrja að festa orð á blað. Þetta er líka frábært tækifæri fyrir mig til að gera ýmsar tilraunir. Þetta eru allt önnur vinnu- brögð heldur en ég mundi nota ef ég væri að semja í heila ljóðabók.“ Þegar árið er liðið ætlar Kári að festa ljóðin saman og fara með þau upp á Þjóðarbókhlöðu. Reyna svo að gleyma þeim til að geta tekist á við næsta verkefni. Kári Tuliníus að verki. Kári Tuliníus er afkastamikið skáld Ljóð á hverjum degi í heilt ár Morgunblaðið/Árni Sæberg

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.