Morgunblaðið - 16.03.2001, Page 48
UMRÆÐAN
48 FÖSTUDAGUR 16. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ
KJÓSI Reykvíking-
ar að flugvöllurinn fari
úr Vatnsmýrinni nk.
laugardag er það ekki
um leið atkvæða-
greiðsla um að flugvöll-
urinn flytji til Keflavík-
ur. Það er afar brýnt að
allir landsmenn – ekki
bara Reykvíkingar –
geri sér það ljóst. Líka
að ákveðið var að ráð-
ast í endurbætur á
Reykjavíkurflugvelli
1996 þar sem hann var
orðinn hættulegur flug-
öryggi, en ekki vegna
þess að borgaryfirvöld
hefðu lagt blessun sína
yfir staðsetningu flugvallarins til
framtíðar í Vatnsmýrinni.
Lýðræðisleg kosning
Samgönguráðherra er með afar
ósmekklegum hætti að rugla fólk og
reyna að hafa óeðlileg áhrif á hvernig
Reykvíkingar með lýðræðislegum
hætti í atkvæðagreiðslu velji hvernig
byggðaþróun verður í framtíðinni í
sínu bæjarfélagi. Það er einmitt fagn-
aðarefni að Reykvíkingar fá í fyrsta
sinn í atkvæðagreiðslu að hafa bind-
andi áhrif á þróun byggðar í höfuð-
borginni.
Þegar sjálfstæðismenn stjórnuðu
borginni fengu Reykvíkingar bara að
greiða atkvæði um hundahald, sem
hafnað var í atkvæðagreiðslu, en
sjálfstæðismenn leyfðu samt.
Tímamótaatkvæðagreiðsla
Það er mikil blekking sem komið
hefur fram hjá mörgum að kosningin
á laugardaginn kemur skipti engu
máli. Þetta er þvert á móti kosning
sem hefur úrslitaáhrif um þróun
byggðar í höfuðborginni í framtíð-
inni.
Vatnsmýrin er afar mikilvæg í
skipulagsmálum höfuðborgarsvæðis-
ins og hefur geysilega þýðingu fyrir
farsæla byggðaþróun, lífskjör, at-
vinnuuppbyggingu,
ferðamannaiðnaðinn og
blómlegt mannlíf í mið-
borginni. Athyglisverð
er líka ábending hag-
deildar ASÍ um mikinn
þjóðhagslegan ávinning
af flutningi vallarins og
hvernig kosningin get-
ur haft áhrif á lífsgæði,
jákvætt umhverfi og
kjör höfuðborgarbúa í
framtíðinni.
Reykvíkingar eru því
að móta stefnu um þró-
un byggðar, nýtingu
lands og meginumferð-
aræðar í höfuðborginni,
en ekki bara að kjósa
um hvort flugvöllurinn eigi að fara
eða vera.
Tími skiptir máli
Lenging á ferðatíma ef flugvöllur-
inn er fluttur skiptir vissulega máli
fyrir landsbyggðarfólk. Tími skiptir
líka máli fyrir höfuðborgarbúa.
Byggð er nú komin uppundir Úlfars-
fell og stefnir út á Kjalarnes. Fjöldi
Reykvíkinga sem vinna nálægt mið-
borginni eyða daglega upp undir ein-
um klukkutíma í ferðir til og frá
vinnu. Það skiptir líka máli og 20–30
þúsund manna byggð í Vatnsmýrinni
gæti breytt því.
Vegna svæðisskipulags og aðal-
skipulags sem unnið er fram í tímann
þarf strax að liggja fyrir hvernig nýt-
ing Vatnsmýrarinnar verður eftir ár-
ið 2016. Síðan geta menn haft áratug
eða meira til að ákvarða hvert flug-
völlinn á að flytja ef sú verður nið-
urstaðan í atkvæðagreiðslunni. Í því
sambandi þarf auðvitað sérstaklega
að tryggja staðsetningu sem best
þjónar öryggismálum og hagsmun-
um sjúkra- og neyðarflugs, auk
landsbyggðarinnar.
Nýir staðsetningar-
möguleikar
Reykvíkingar eiga að ákveða sjálf-
ir þróun byggðar í höfuðborginni,
þess vegna hvet ég alla til að taka
þátt í atkvæðagreiðslunni á laugar-
daginn kemur. Á 16 árum koma
örugglega fram nýir staðsetningar-
möguleikar sem ekki eru á borðinu í
dag og aðrir sem uppi eru nú geta
reynst mjög hagstæðir, ekki síst með
tilliti til þeirrar öru þróunar og
tæknibyltingar sem er í fluginu sem
annars staðar. Á laugardaginn kem-
ur eru Reykvíkingar fyrst og fremst
að taka afstöðu til framtíðarþróunar
höfuðborgarinnar en ekki framtíðar-
staðsetningar innanlandsflugs. Það
er kjarni málsins.
Tíminn og
Vatnsmýrin
Jóhanna
Sigurðardóttir
Höfundur er 1. þm. Reykvíkinga
fyrir Samfylkinguna.
Flugvöllur
Lenging á ferðatíma ef
flugvöllurinn er fluttur
skiptir vissulega máli
fyrir landsbyggðarfólk,
segir Jóhanna Sigurð-
ardóttir. Tími skiptir
líka máli fyrir höfuð-
borgarbúa.
Í Morgunblaðið í
fyrradag skrifar Hilm-
ar B. Baldursson, for-
maður Flugráðs, grein
til varnar því sérfræð-
ingaveldi sem ég gerði
að umtalsefni í grein
minni í blaðinu hinn 9.
mars. Grein Hilmars
staðfestir í raun allt
sem ég hef haldið
fram um málflutning
flugmálayfirvalda
varðandi flugvöll í
Vatnsmýri. Það er
hins vegar greinilegt
að sérfræðingarnir
bregðast illa við þegar
bent er á þversagnir í
málflutningi þeirra og kunna því
illa þegar aðrir en þeir tjá sig um
„þeirra sérsvið“. Kjarni málsins er
sá að þeir aðilar sem eiga mikilla
sértækra hagsmuna að gæta varð-
andi það að flugvöllur verði áfram í
Vatnsmýri hafa í gegnum tíðina
þverskallast við öllum hugmyndum
um breytingar á svæðinu. Þessir
sérfræðingar töldu Keflavík vera
eina kostinn utan Vatnsmýrar,
þessir sérfræðingar töldu óæski-
legt að flytja æfinga-, kennslu- og
einkaflugið í burtu,
þessir sérfræðingar
fundu flutningi starf-
semi á svæðinu allt til
foráttu og þessir sér-
fræðingar töldu úti-
lokað að fækka flug-
brautum á vellinum.
Það er síðan þegar
borgaryfirvöld og
samvinnunefnd um
svæðisskipulag láta
vinna úttekt á öðrum
möguleikum að „sér-
fræðingarnir“ átta sig
á að ekki verður leng-
ur spyrnt við fótum.
Allt í einu er að sjálf-
sögðu allt til skoðunar
– reyndar svo lengi sem flugvöll-
urinn verður áfram í Vatnsmýri!
Hvassahraunskostinn afgreiðir
„sérfræðingurinn“ með einu neii og
tínir fram „sérfræðingsrök“ varð-
andi veðurfar máli sínu til stuðn-
ings. Ég hef alla tíð talið Hvass-
ahraun álitlegan kost en viðurkenni
nú, sem fyrr, að gera þarf ítarlegri
rannsóknir, til að mynda á veð-
urfari. Hvorki ég né „sérfræðing-
arnir“ höfum hins vegar þau gögn í
höndunum að geta afgreitt Hvass-
ahraun með einfaldri neitun.
Það hefur nefnilega komið í ljós
að undanförnu að flugmálayfirvöld
hafa hvað eftir annað þurft að
draga í land með fyrri staðhæf-
ingar og standa nú uppi eins og
keisarinn í nýju fötunum. Umræð-
an síðustu vikur hefur hins vegar
sýnt að fólk hefur áhuga á málinu
og því er fyllilega treystandi til að
taka afstöðu í kosningunum á
morgun.
Hörundsárir
„sérfræðingar“
Steinunn V.
Óskarsdóttir
Flugvöllur
Flugmálayfirvöld hafa
hvað eftir annað þurft
að draga í land með
fyrri staðhæfingar, seg-
ir Steinunn Valdís Ósk-
arsdóttir, og standa nú
uppi eins og keisarinn í
nýju fötunum.
Höfundur er borgarfulltrúi.
NÚ DREGUR senn
að því að við Reykvík-
ingar göngum að kjör-
borðinu til þess að láta
í ljós vilja okkar um
framtíð Vatnsmýrar-
innar. Viljum við að
þar verði flugvöllur um
aldur og ævi eða höf-
um við eitthvað þarf-
ara við hana að gera?
Kostirnir á kjörseðlin-
um eru afar einfaldir:
„Vilt þú að flugvöllur
verði í Vatnsmýri eftir
árið 2016 eða vilt þú að
flugvöllurinn fari úr
Vatnsmýri eftir árið
2016?“ Um þetta og ekkert annað
snýst þessi skoðanakönnun. Hún
snýst ekki um það hvar innanlands-
flugið eigi að vera, heldur um það
hvar innanlandsflugið eigi ekki að
vera. Þeim mun undarlegra er þess
vegna að heyra samgönguráðherra,
formann samgöngunefndar, flug-
málastjóra og svonefnda hollvini
flugvallarins tönnlast á þeim
hræðsluáróðri, að verið sé að velja
milli þess hvort innanlandsflugið
eigi að vera í Reykjavík eða Kefla-
vík. Það er bara ekki satt.
Þessir herrar hafa sagt okkur að
aðrir möguleikar komi einfaldlega
ekki til greina. Undirritaður er ekki
verkfræðingur og sleppur líklega
seint í Flugráð, en ég neita að trúa
því að í gervöllu landnámi Ingólfs
komi aðeins tvö flugvallarstæði til
greina: sumsé Miðnesheiði og
Vatnsmýrin. Tveir skikar á mörg-
þúsund ferkílómetra svæði! Suð-
vesturhornið væri náttúruundur á
heimsmælikvarða ef
þetta væri satt.
Enda kom á daginn
að þetta er ekkert
svona. Ágúst Einars-
son þingmaður rifjaði
upp gamla hugmynd
um að leggja mætti
flugvöll á Bessastaða-
nesi, en þar eru land-
kostir afar góðir, um-
hverfisrask yrði með
minnsta móti, miðbær-
inn væri innan seiling-
ar (ekki síst ef Skerja-
fjörður yrði brúaður)
og flugskilyrði eru
betri heldur en í
Vatnsmýri. Meira að segja hollvin-
irnir játtu því að þetta væri afar
áhugaverður kostur og Jón Karl
Ólafsson, forstjóri Flugfélags Ís-
lands, tók í sama streng á fundi í
ráðhúsinu á mánudag.
Nú ætla ég ekki að halda því fram
að á Bessastaðanesi sé fundinn
framtíðarflugvöllur innanlands-
flugsins á höfuðborgarsvæðinu,
enda þarf að rannsaka málið til hlít-
ar fyrst. En þessi hugmynd, sem
fljótt á litið virðist ákjósanleg og
hagsmunaaðilarnir eru hrifnir af
líka, sýnir hins vegar svo ekki verð-
ur um villst að allar fullyrðingar um
að valið standi milli Vatnsmýrar og
Keflavíkurflugvallar eru mark-
leysa.
Allir þeir, sem ég hef talað við
undanfarnar vikur – bæði andstæð-
ingar og hollvinir flugvallarins í
Vatnsmýri – hafa verið á einu máli
um að flugvellinum þar verði lokað
fyrr eða síðar.
Hollvinirnir vilja bara að það
verði gert miklu síðar og hafa
margendurtekið að í þessum efnum
verði menn að gefa sér góðan tíma.
En í þessum kosningum er verið
að taka afstöðu til þess sem á að
gera eftir árið 2016. Árið 2016 verð-
ur undirritaður 51 árs gamall, Frið-
rik Pálsson formaður Hollvina 69
ára, Sturla Böðvarsson samgöngu-
ráðherra 71 árs, Árni Johnsen for-
maður samgöngunefndar 72 ára og
Þorgeir Pálsson flugmálastjóri 75
ára. Hversu mikinn tíma í viðbót
telja þessir valinkunnu sæmdar-
menn að þeir þurfi til þess að koma
þessum málum í lag? Fimmtán ár
eru auðvitað nægur tími til þess að
finna viðunandi lausn á því hvar
innanlandsfluginu skuli komið fyrir
þegar vellinum í Vatnsmýri verður
lokað. Það kæmi mér jafnframt
verulega á óvart ef Bessastaðanesið
yrði síðasta góða hugmyndin í því
ferli.
Þess vegna eigum við að kjósa að
flugvöllurinn víki úr Vatnsmýrinni
eftir árið 2016, því ella verður engra
annarra kosta leitað: lagt verður í
frekari nýbyggingu vallarins sem
mun festa hann frekar í sessi, borg-
arbúar munu áfram hafa ama af há-
vaðanum og ugg um öryggi sitt í ná-
grenni vallarins og búseta í
borginni mun halda áfram að mið-
ast við þarfir flugsins fremur en
fólksins.
Það eru nægir kostir aðrir fyrir
innanlandsflugið á höfuðborgar-
svæðinu og menn ættu að hafa hug-
fast, að áköfustu talsmenn þess að
innanlandsflugið verði flutt til
Keflavíkur hafa verið þeir Sturla
Böðvarsson og Árni Johnsen, en
ekki Reykvíkingar, sem þvert á
móti vilja nokkuð á sig leggja til
þess að landsbyggðin njóti viðun-
andi samgangna við höfuðborgina.
Keflavík hvað?
Andrés Magnússon
Flugvöllur
Það er undarlegt, segir
Andrés Magnússon, að
heyra menn tönnlast á
þeim hræðsluáróðri, að
verið sé að velja milli
þess hvort innanlands-
flugið eigi að vera í
Reykjavík eða Keflavík.
Það er bara ekki satt.
Höfundur er í stjórn samtakanna
102 Reykjavík.
SEM gamall verka-
lýðssinni er ég yfir mig
glaður vegna þeirrar
lýðræðislegu tilraunar
sem R-listinn í borgar-
stjórn stendur að, með
dyggum stuðningi
ungra sjálfstæðis-
manna. Já, innilega
glaður vegna formsins,
ekki innihaldsins.
Borgin okkar, svo ég
gerist væminn, er
byggð í kringum höfn-
ina og flugvöllinn.
Þarna á velgengni
Reykjavíkur og Reyk-
víkinga rætur sínar.
Enn streymir kapítal í gegnum
höfnina og í gegnum flughöfnina
forsmáðu í Vatnsmýrinni, með
hækkandi öldu ferðamennskunnar,
sem spáð er að margfaldist á næstu
árum.
Sá sem kýs flugvöllinn burt, hvað
er hann að gera,
hverju vill hann áorka?
Er hann að kjósa flug-
völlinn til Keflavíkur,
fram á Álftanes, út í
Kúagerði eða austur á
Hólmsheiði? Hann veit
ekkert um það. Hann
er bara að nýta kosn-
ingaréttinn. Eflaust
koma fyrr en seinna
nýir ráðherrar og nýr
borgarstjóri, sem eru
óbundnir og löngu áð-
ur en 2016 rennur upp
verða orðnar breyting-
ar á flugrekstri. Þessar
löngu flugbrautir
heyra vafalaust sögunni til og tím-
inn leysir þau vandamál sem vefjast
fyrir okkur í dag.
Fram til ársins 2016 verður mikið
byggt í Reykjavík, ef borgarstjórnin
gerir ekki í því, eins og hingað til, að
hefta lóðaframboð. Ég sé fyrir mér
jarðgöng úr Laugarnesi í Viðey og
þaðan tengingu í Álfsnes. Í Viðey
gæti risið glæsilegasti miðbær ver-
aldar og vegatengingarnar myndu
leysa stóran vanda. Allir yndu glaðir
við. Reykvíkingar fengju fegurstu
borg norðan Mundíafjalla og hinir
erlendu gestir þyrftu ekki að tvíst-
rast eins og forystulaust fé og týn-
ast í gjám og gjótum Reykjanes-
skagans eða meiðast í jarðskjálft-
um.
Brotsjór í baðkeri
Jóhannes Eiríksson
Flugvöllur
Borgin okkar, segir
Jóhannes Eiríksson, er
byggð í kringum höfn-
ina og flugvöllinn.
Höfundur er prentari.