Morgunblaðið - 16.03.2001, Page 50
SKOÐUN
50 FÖSTUDAGUR 16. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ
hefur aukist mikið í nokkur ár vegna
verðlækkana sökum óraunhæfrar
samkeppni í flugi. Á síðasta ári
hækkuðu flugfargjöld hins vegar
geysilega, enda fækkaði flugfarþeg-
um þá um 6% – staðreynd sem lítt er
haldið á lofti. Þótt Flugfélagið sé á
ný orðið eitt um reksturinn í innan-
landsfluginu, tapaði það 400 til 500
milljónum á því á síðasta ári. Far-
miðaverð verður því að hækka geysi-
lega enn í viðbót á þessu ári, sem
mun þýða að enn mun draga úr flug-
ferðum, og að fólk tekur að nota bíl-
inn enn meira í staðinn.
Skrökvað
með uppdrætti
Nýlega hefur Flugmálastjórn birt
skipulagsuppdrátt sinn af flugvallar-
svæðinu og nágrenni þess. Þessi
uppdráttur er birtur með þessari
grein til að sýna hvernig lævíslegar
blekkingaraðferðir eru notaðar til að
villa um fyrir Reykvíkingum núna í
aðdraganda kosninganna.
Tökum fyrst gulu fletina á kortinu
fyrir. Í skýringum með uppdrættin-
um er látið í veðri vaka, að Reykvík-
ingar fái öll þessi gulu svæði til
byggingar fyrir atbeina Flugmála-
stjórnar.
Skoðum fyrst framtíðarbyggðar-
svæði Landspítalans sunnan Hring-
brautar. Hér hefur Flugmálastjórn
látið gera nýtt skipulag fyrir spít-
alann, þótt spítalinn hafi sjálfur birt
nýtt deiliskipulag fyrir svæðið í
haust enda hefur þetta svæði aldrei
tilheyrt flugvellinum. Álíka er að
segja um svæði Háskólans sunnan
Norræna hússins; það svæði er líka
Reykvíkinga hafa átt
sér lævísan bandamann
í Flugmálastjórn, sem
– þó hún eigi að vera
hlutlaust ráðgefandi
stjórnvald, sem kostað
er af almannafé – hefur
beitt alls konar klækj-
um í að villa um fyrir
umræðunni, t.d. með
birtingu uppdráttar í
blöðunum, sem dregur
upp mjög villandi mynd
af þeim skipulagsraun-
veruleika sem blasa
mundi við á flugvallar-
svæðinu og nágrenni
þess, ef flugvöllurinn
færi ekki.
Hér hafa hagsmunagæslumenn
okkar – stjórnmálamennirnir sem
við höfum sýnt það traust og þann
trúnað að vera málsvarar okkar í
baráttunni við þá sem vilja skerða
hagsmuni okkar – fundið tækifæri til
að slá ryki í augu okkar um hvað val-
kostirnir tveir í kosningunum á laug-
ardaginn raunverulega þýða er varð-
ar framtíð Reykjavíkur.
Hvernig villt er um fyrir
Dæmi um hvernig villt er um fyrir
okkur er að farþegar til Reykjavíkur
eru sagðir 440 þúsund meðan þeir
eru í raun 220 þúsund. Þetta er gert
með að telja bæði lendingu og flug-
tak hvers farþega í Reykjavík. Að
auki er bæði flugtakið og lendingin
talin, t.d. á Akureyri, þannig að hver
ferð Akureyrings til Reykjavíkur er
fjórtalin í tölum Flugmálastjórnar
um heildartölu innanlandsflugs á Ís-
landi.
Önnur dæmalaus og óprúttin að-
ferð er að nota geysiháar spátölur
um vöxt innanlandsflugsins í fram-
tíðinni, til að hafa áhrif á umræðuna
og fá ríkið til að ana út í meiri flug-
vallafjárfestingar. Þetta er gert með
að taka prósentuvöxt síðustu ára og
bæta honum ofan á hvert komandi
ár, 20 ár fram í tímann. Það þekkja
allir úr vaxtavaxtareikningi til hve
hárra talna þetta leiðir.
Öllum má ljóst vera, að þetta er
aðferð sem gengur ekki, því mikil-
vægi flugsins, hingað til, hefur
byggst á lélegu vegakerfi. Þar er í
raun öllum ljóst, að með bættum
vegum og betri bílum stækkar það
svæði stöðugt þar sem bílarnir eru
að taka við af fluginu.
Einnig er rangt af Flugmálastjórn
að taka á ógagnrýnan hátt vaxtatöl-
ur í uppsveiflu góðæris. Hér skekkir
það líka myndina að farþegafjöldi
Í UMRÆÐUNNI
um flugvallarsvæðið er
búið að benda rækilega
á hversu stórt og dýr-
mætt þetta svæði er.
Ljóst er orðið að
Reykjavík á stórkost-
legan möguleika á að
byggja hér fallega og
blandaða miðborgar-
byggð, og að spara sér
um leið geysilegar fjár-
hæðir við að gera nýja
fjarlæga úthverf-
abyggð byggingar-
hæfa, og sem sparar
líka miklar upphæðir í
gatnagerð og akstri.
Sá mikli hluti ungs fólks sem ekki
vill flytja í fjarlæg úthverfi og það
eldra fólk, sem lokið hefur við að ala
upp börnin sín úti í úthverfum, – og
vill aftur komast í lifandi borgar-
byggð – sjá nú orðið að draumarnir
geta orðið að veruleika á þessu stór-
kostlega svæði undir Öskjuhlíðinni
og við fagra suðurströnd Skerja-
fjarðarins.
Vegna þessa alls er nauðsynlegt
að skoða af alvöru, hvaða tvo valkosti
er í raun verið að takast á um í kosn-
ingum á laugardaginn.
Hagsmunabundnir
stjórnmálamenn
Vegna þess hve hagsmunaverj-
endur flugmálageirans og tiltekinna
landsbyggðarsvæða eru sterkir, hafa
bæði borgarfulltrúar og þingmenn
Reykjavíkur varla þorað að taka þátt
í umræðunni, sem nú hefur geisað í
þjóðfélaginu í um fjóra mánuði.
Það eru nær eingöngu fjárvana
áhugaaðilar um framtíðarvelferð
Reykjavíkur, sem hafa tekist á við
fjársterka vél flugmálageirans – og
jafnvel þurft að takast á við einstaka
borgarfulltrúa og þingmenn Reykja-
víkur, sem sýnna er um hagsmuni
flugsins og landsbyggðarinnar en
framtíðarhagsmuni Reykvíkinga.
Þessir kjörnu fulltrúar okkar
sýnt gult og gefið í skyn að Flug-
málastjórn sé að gera mögulegt að
byggja á þessu svæði með nýju deili-
skipulagi sínu. Á svæðunum við
Skerjafjörðinn, nálægt enda SV/NA-
flugbrautarinnar, er einnig sýndur
stór gulur flekkur og íbúðarbyggð
sem Flugmálastjórn hefur skipulagt.
Svarta þverstrikunin sýnir hins veg-
ar að svæðið var þegar komið út úr
flugvallarsvæðinu þegar síðasta að-
alskipulag var samþykkt, m.a. vegna
þess að olíuhöfnin þar hefur verið
lögð niður.
Það sem Flugmálastjórn vill ná
fram með hinu nýja flugvallardeili-
skipulagi er mjög stækkað athafna-
svæði austan vallarins og sýnir
rauða strikunin á myndinni svæði
sem hún vill fá í viðbót við svæði sitt
þar miðað við núgildandi aðalskipu-
lag. Jafnframt hefur hún mikinn
áhuga á að gera AV-brautina að að-
alflugbraut, sem þýðir t.d. að brautin
þyrfti að dragast fjær Öskjuhlíðinni
og lengjast í staðinn til vesturs út í
sjó á Ægisíðunni. Þetta hefði þær af-
leiðingar að rífa þyrfti mikinn fjölda
húsa sem standa of nálægt þessari
braut.
Annar valkostur, ef framlenging
yrði ekki valin, er að byggja nýja
AV-braut á fyllingum meðfram
ströndinni á miklu dýpi. Þessari
flugbraut hefur greinarhöfundur
bætt inn á kortið, til að fólk geti byrj-
að á að átta sig á umhverfisafleiðing-
unum.
„Í breyttri mynd“
Þegar gengið er á suma þeirra
borgarfulltrúa okkar, sem styðja
hagsmuni flugsins og landsbyggðar-
innar, og vilja því láta okkur sitja
uppi með flugvöllinn um alla framtíð,
– segja þeir feimnislega „já, ég styð
það að flugvöllurinn verði áfram“, en
bæta síðan við töfraorðunum „... en í
breyttri mynd!“ og vísa svo til ofan-
greindrar myndar um hve nýja flug-
vallarskipulagið sé fallegt og hve
stór ný byggðarsvæði mundu fást
við að samþykkja hið nýja deiliskipu-
lag Flugmálastjórnar. – Og sum
þeirra láta meira að segja sem svo,
að það sé stórkostleg umhverfisbót
að nýju AV-brautinni úti í sjónum,
þar sem flogið yrði í lágflugi beint
fyrir framan ströndina og Nauthóls-
víkina fögru.
Og svo bæta borgarfulltrúarnir
við „... og við getum strax farið að
byggja upp í hornunum á milli flug-
brautanna. Hér er, – þó það leynist
fyrir mörgum, – komið að langalvar-
legasta þætti alls þessa máls. Ein-
mitt þetta, að fara að byggja skækla-
byggð lágra húsa uppi í hornin á
milli flugbrautanna, mundi koma í
veg fyrir, – til allrar framtíðar, – að
hægt væri að byggja heilsteypta og
fagra miðborgarbyggð á þessu dýr-
mætasta byggingarlandi Reykjavík-
ur.
Eina tækifærið sem við Reykvík-
ingar eigum til að koma í veg fyrir að
þetta skemmdarverk á framtíðar-
möguleikum borgarinnar okkar
verði unnið, er að mæta á kjörstað á
laugardaginn og merkja við þann
valkost að flugvöllurinn eigi að víkja.
BREYTTUR
VÖLLUR ER
VERSTA
LAUSNIN
Trausti Valsson
Þar er í raun öllum ljóst
að með bættum vegum
og betri bílum, segir
Trausti Valsson, stækk-
ar það svæði stöðugt
þar sem bílarnir eru að
taka við af fluginu.
Höfundur er arkitekt og skipulags-
fræðingur.
Ef Reykvíkingar kjósa að flugvöllurinn fari yrði þetta sú byggð, við stórkostlegar aðstæður við Öskjuhlíð og
suðurströnd Skerjafjarðarins, sem gæti risið. (Tillaga Borgarskipulags.)
Ef Reykvíkingar kjósa að flugvöllurinn verði áfram á sama stað, er þetta sá skipulagsraunveruleiki sem mun
blasa við. (Sjá skýringar á kortinu í greininni.)