Morgunblaðið - 16.03.2001, Page 67
FÓLK Í FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. MARS 2001 67
ALMENNUR
DANSLEIKUR
með Önnu Vilhjálms
og hljómsveit
í Ásgarði, Glæsibæ,
í kvöld, föstudagskvöldið
16. mars
Húsið opnað kl. 22.00.
Allir velkomnir!
spila frá miðnætti
Vesturgötu 2, sími 551 8900
Hljómsveitin Furstarnir
ásamt Geir Ólafs, Mjöll Hólm
og Harold Burr, föstudags- og
laugardagskvöld.
Veitingahúsið
Naustið
Í ÁR eru liðin átján ár frá því að
íslensk Visa-kreditkort komu sér
fyrst fyrir í seðlaveskjum Íslend-
inga. Í tilefni stofnunarafmælisins
hélt fyrirtækið hugmynda-
samkeppni, þar sem þeim sem
einnig eiga 18 ára afmæli á árinu,
gafst kostur á senda inn spádóma
sína og hugmyndir um „hvernig
við munum greiða fyrir vöru og
þjónustu eftir önnur 18 ár“.
Það er skemmst frá því að segja
að mörg hundruð hugmynda bár-
ust og margar hverjar mjög bylt-
ingarkenndar.
Af hugmyndum má nefna; að
húðflúra strikamerki á fólk sem
tölvur þurfa aðeins að lesa til þess
að hafa aðgang að bankareikn-
ingnum, sérstakt tæki með
DNA-skynjara (til þess að enginn
geti notað það nema eigandinn)
fest við höndina eins og úr sem er
allt í einu – farsími, klukka, sjón-
varp, útvarp og greiðslutæki,
notkun fingrafara- og augnhimnu-
skynjara í stað greiðslukorta.
Á föstudaginn voru svo 20
þeirra sem sendu inn hugmyndir
verðlaunaðir á Vínbarnum við
Austurvöll.
Fimm hugmyndaríkir unglingar
fengu að launum utanlandsferð að
eigin vali fyrir tvo en það voru
þau Magnús Helgason, Baldur
Finnsson, Eygló Traustadóttir, Ýr
Káradóttir og Bjartmar Steinn
Steinarsson. Hinir fimmtán fengu
afhent Visa-kort með 10 þúsund
króna inneign. Í dómnefnd voru
þau Leifur Steinn Elísson, aðstoð-
arforstjóri Visa, Snæfríður Inga-
dóttir frá Skjá 1 og Guðjón Már
Guðjónsson frá Oz.
Greiðslu-
máti
framtíðar
Morgunblaðið/Jim Smart
Guðlaugur Ingason (t.v.) fékk tíu þúsund krónur en Magnús Helgason
vann utanlandsferð að eigin vali fyrir tvo.
Morgunblaðið/Jim Smart
Dómnefnd samkeppninnar skipuðu (f.v.) Leifur Steinn Elísson, Snæfríð-
ur Ingadóttir og Guðjón Már Guðjónsson.
Sigurvegarar í hugmyndasamkeppni Visa verðlaunaðir