Morgunblaðið - 18.03.2001, Side 12
12 SUNNUDAGUR 18. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Eingöngu verður heimilt að koma inn á Schen-
gensvæðið eða yfirgefa það á tilgreindum
landamærastöðvum og á opnunartíma þeirra.
Jafnskjótt og borgarar ríkja utan svæðisins fá
að koma inn á Schengen-svæðið njóta þeir
sama réttar og aðrir til ferða um öll Schengen-
löndin án persónueftirlits á innri landamærum
í allt að þrjá mánuði.
Skoðun farþegalista skemmti-
ferðaskipa valdi ekki töfum
Með gildistöku Schengen-samstarfsins verð-
ur einnig viðhaft landamæraeftirlit í höfnum.
Hafnasamband sveitarfélaga benti á í umsögn
sinni til Alþingis að vegabréfaafgreiðsla
skemmtiferðaskipa í höfnum gæti lengst veru-
lega með tilkomu Schengen-reglna og einnig
reglna um skoðunarstöðvar fyrir fisk. „Flest
skemmtiferðaskip hafa aðeins stutta viðdvöl í
hverri höfn og því bagalegt ef mikil lenging eða
töf verður vegna vegabréfaskoðunar,“ sagði í
umsögninni.
Högni Kristjánsson telur að Schengen-þátt-
takan muni ekki hafa miklar breytingar í för
með sér í höfnum. Skip sem er að koma frá ríki
utan Schengen þarf að tilkynna sig til Land-
helgisgæslu áður en það kemur til hafnar og þá
er áhafnarlistinn skoðaður og annað eftirlit. Ef
ekkert athugavert kemur í ljós þá hefur þetta
engin áhrif. Ef skemmtiferðaskip sem hingað
koma eru á siglingu innan Schengen-svæðisins
þarf ekkert eftirlit að fara fram, að hans sögn.
Hvert aðildarríki skráir upp-
lýsingar í gagnabanka SIS
Schengen upplýsingakerfið (SIS) er einn
viðamesti hluti samstarfsins en það eru sam-
tengdir gagnabankar Schengen-ríkjanna og
gegnir kerfið þýðingarmiklu hlutverki við sam-
ræmingu ytra landamæraeftirlits alls Schen-
gen-svæðisins og við víðtækara samstarf Evr-
ópuríkja til að stemma stigu við
fíkniefnasmygli og annarri alþjóðlegri glæpa-
starfsemi.
SIS geymir upplýsingar um eftirlýsta ein-
staklinga, einstaklinga sem lýstir hafa verið
óæskilegir til innkomu á Schengen-svæðið
ásamt eftirlýstum hlutum, s.s. bifreiðum, skot-
vopnum, ferðaskilríkjum, peningaseðlum o.fl. Í
gagnabanka þessa kerfis er nú að finna nálægt
10 milljónir skráninga sem aðildarríkin hafa
fært inn í kerfið og landamæraverðir og lög-
regla hafa aðgang að.
Strangar reglur hafa verið settar um eftirlit
og aðgangstakmarkanir að SIS, hvað skrá má í
kerfið og hvernig persónuupplýsingarnar eru
varðveittar. Landamæravörðum er skylt að
fletta öllum, sem ekki eru borgarar Evrópu-
sambandslanda, Íslands eða Noregs, upp í
kerfinu þegar landamæraeftirlit fer fram.
„Hvert aðildarríki skráir upplýsingar í upp-
lýsingakerfi Schengen (SIS), þ.m.t. tilteknar
persónuupplýsingar. Er þessum upplýsingum
dreift til allra aðildarríkja sem þannig hafa yfir
að ráða sömu upplýsingunum. Það byggist á
landslögum hvers ríkis hvað það skráir í SIS.
Getur því erlent ríki skráð íslenska ríkisborg-
ara á grundvelli eigin reglna og verður Ísland
bundið af þeirri skráningu en á hinn bóginn
gerir Schengen-samningurinn ráð fyrir að að-
ildarríki geti sett fyrirvara við skráningu ann-
ars ríkis sem þar með undanþiggur viðkomandi
ríki þeirri skyldu að bregðast við í samræmi við
efni beiðninnar,“ segir í grein sem Högni S.
Kristjánsson ritaði um Schengen í tímaritið
Úlfljót.
Útlendingar hafa fundist skráðir í
í SIS hér á landi
Schengen-upplýsingakerfið var tekið í fulla
notkun hér á landi og á öðrum Norðurlöndum
skömmu eftir síðustu áramót og hafa landa-
mæraverðir og lögreglumenn um allt land not-
að það við löggæslustörf að undanförnu, eins og
fram kom í frétt Morgunblaðsins sl. föstudag.
Hefur kerfið þegar komið að notum. Íslensk-
ir löggæslumenn og landamæraverðir hafa
nokkrum sinnum stöðvað útlendinga hér á
landi frá áramótum, þar sem í ljós kom við upp-
flettingu í SIS að þeir eru skráðir í kerfið. Í
þremur tilfellum var um svokallaða „óæskilega
útlendinga“ að ræða sem synja ber um komu
inn á Schengen-svæðið skv. 96. grein Schen-
gen-samningsins.
Í einu tilviki kom í ljós þegar flett var upp í
kerfinu að einstaklingur sem var stöðvaður var
skráður í SIS á þeirri forsendu að hann ætti að
mæta fyrir dómi erlendis.
Hollendingur stöðvaður í Leifs-
stöð vegna skráningar í SIS
Fyrir nokkru var erlendur ferðamaður einn-
ig stöðvaður við eftirlit í Leifsstöð en í ljós kom
að ferðaskilríki hans var skráð í kerfið sem
stolið. Um var að ræða einstakling sem kvaðst
vera hollenskur en vegabréfinu hafði verið stol-
ið nokkrum dögum áður. Var hann sendur til
baka undir eftirliti til Stokkhólms þaðan sem
hann kom. Nokkur sambærileg tilfelli hafa
einnig komið upp á öðrum Norðurlöndum frá
áramótum.
Schengen-ríki skrá eingöngu borgara ríkja
sem eru utan Schengen-svæðisins inn í upplýs-
ingakerfið á grundvelli 96. greinar (óæskilegir
útlendingar) Byggist það á ákvörðun hvers
lands um að viðkomandi sé talinn ógnun við al-
mannaöryggi og allsherjarreglu eða þjóðarör-
yggi.
Geta ekki breytt
skráningu annars ríkis
Þegar skráning fer inn hjá einhverju ríki
getur ekkert annað ríki breytt henni, að sögn
Þorsteins Jónssonar. „Ef við viljum hins vegar
til dæmis ekki framselja mann sem er skráður í
öðru landi, þurfum við að biðja um svonefnda
flöggun á þessa skráningu, sem þýðir að þó að
viðkomandi einstaklingur finnist hér á landi þá
verður hann ekki handtekinn og framseldur,“
segir hann.
„Hver þjóð getur ákveðið hvort hún skráir
hlut eða einstakling í Schengen-upplýsinga-
kerfið. Það er ekki skráningarskylda,“ segir
hann.
Nú þegar hafa nokkrir Íslendingar sem ósk-
ast framseldir verið skráðir í Schengen-upplýs-
ingakerfið. Önnur lönd kunna einnig að hafa
skráð Íslendinga, af ýmsum ástæðum. Ekki er
þó búist við mörgum skráningum á Íslandi en
svonefnd Sirene-skrifstofa hjá ríkislögreglu-
stjóra hefur umsjón með skráningum í íslenska
hluta kerfisins. Áætlað hefur verið að ekki
verði skráðir fleiri en 5 til 10 Íslendingar á ári í
þeim tilgangi að fá þá framselda og færri en tíu
sem óæskilegir útlendingar sem ekki mega
koma til Schengen-landa. Einnig er gert ráð
fyrir sárafáum skráningum í upplýsingakerfið
vegna stolinna skilríkja en ekki hefur verið tek-
in endanleg ákvörðun varðandi skráningu
muna. Er m.a. til skoðunar hversu langur tími
ætti að líða þar til bifreiðum sem talið er að hafi
verið stolið verða skráðar í kerfin enda ósenni-
legt að þær finnist í öðrum löndum og þjónar
því litlum tilgangi að skrá þær, að sögn Þor-
steins. „Við getum auðvitað skráð í upplýsinga-
kerfið þegar vegabréfum er stolið eða menn
týna þeim og ekki síður ef stolið er óútfylltum
vegabréfum. Við munum skrá öll slík tilvik en
skráningar af hálfu íslenskra yfirvalda verða
sárafáar,“ segir hann.
Fylla út skráningarkort á
hótelum og öðrum gististöðum
Samkvæmt reglum Schengen-samstarfsins
ber starfsmönnum hótela og annarra staða þar
sem fólki er seld gisting (s.s. á tjaldsvæðum,
hjólhýsasvæðum og bátum) að sjá til þess að
erlendir gestir, þar með taldir ríkisborgarar
Schengen-landanna, að undanskildum mökum,
börnum og þátttakendum í hópferðum, fylli
persónulega út og undirriti eyðublað eða
skráningarkort og sanni á sér deili með því að
framvísa gildum persónuskilríkjum til staðfest-
ingar. Þessi gögn skulu vera aðgengileg fyrir
yfirvöld vegna öryggis, málsmeðferðar, eftir-
lýstra manna o.s.frv.
Þessar reglur hafa ekki í för með sér neinar
breytingar á Íslandi frá því sem verið hefur, að
sögn viðmælenda Morgunblaðsins, þar sem
þessar reglur eru í fullu samræmi við gildandi
reglugerð um útlendingaeftirlit.
Eftirlit lögreglu milli landa
getur komið til greina hér
Sá hluti Schengen-samningsins sem vakið
hefur hvað mestar umræður í nágrannalöndum
er heimild lögreglu í einu Schengen-ríki í af-
mörkuðum tilvikum til að fara yfir landamæri
og inn í annað Schengen-land í þeim tilgangi að
halda áfram eftirliti með grunuðum einstak-
lingi skv. 40. grein samningsins eða veita hon-
um „órofna eftirför“ skv. 41. grein. Gera verður
skýran greinarmun á eftirliti og órofinni eft-
irför, að sögn Þorsteins.
Slík eftirför á ekki við hér á landi, að sögn
hans, vegna þess að hún kemur eingöngu til
þegar ríki eiga saman landamæri á landi.
Hins vegar getur órofið eftirlit lögreglu
komið til greina bæði hér á landi og órofið eft-
irlit íslenskrar lögreglu í öðrum Schengen-ríkj-
um, að sögn hans. „Í þessum tilvikum skal hins
vegar alltaf sótt um heimild þess Schengen-
ríkis þar sem eftirlitið fer fram. Samkvæmt 2.
málsgrein 40. greinar er undir neyðaraðstæð-
um heimilt að framkvæma eftirlitið án fyrir-
framfengins leyfis en þá skal tafarlaust um það
tilkynnt. Vegna landfræðilegrar legu Íslands
geta þessar neyðaraðstæður þó aldrei átt við
hér á landi. Þannig getur til dæmis íslensk lög-
regla sem hefur grunaðan einstakling undir
eftirliti hér á landi haldið því eftirliti áfram til
dæmis í Hollandi að fengnu leyfi hollenskra yf-
irvalda. Sama gildir að sjálfsögðu um hollenska
lögreglu hér á landi. Í 3. málsgrein 40. greinar
eru tilgreind skilyrði sem lögregla skal fylgja í
þessu eftirliti,“ segir Þorstein.
Mega hafa með sér vinnuvopn
Umrædd skilyrði kveða m.a. á um að lög-
reglumennirnir hafi meðferðis skjal sem sýni
að leyfi hafi verið veitt. Mega þeir hafa með sér
vinnuvopn sín meðan á eftirliti stendur, nema
samningsaðilinn, sem beiðni er beint til, hafi
tekið annað sérstaklega fram, en notkun þess
er ekki leyfileg nema í nauðvörn. Þeim er bann-
að að fara inn á einkaheimili og staði sem eru
ekki opnir almenningi og mega hvorki stöðva
né handtaka þann sem er undir eftirliti. Þá skal
gefa yfirvöldum sem ráða yfirráðasvæðinu
skýrslu um hverja aðgerð.
Viðbúnaðurinn
UMFANGSMIKILL og kostnaðarsamurundirbúningur hefur átt sér stað svoÍslendingar gætu talist færir um að
taka þátt í Schengen-samstarfinu. Nú á allt
að vera til reiðu 25. mars þegar Schengen-
samningurinn gengur í gildi hér á landi.
1. áfanga við stækkun
flugstöðvar lokið í sumar
Byggingarframkvæmdir eru í fullum gangi
við stækkun Leifsstöðvar. Schengen-
samningurinn krefst algers aðskilnaðar far-
þega sem ferðast innan og utan Schengen-
svæðisins og þurfti því að hanna hina nýju
17 þúsund fermetra suðurbyggingu með til-
liti til þess. Stærstur hluti byggingarinnar
verður opnaður 25. mars en verktaki áætlar
að byggingin verði fullbúin um miðjan júlí í
sumar, töluvert á undan áætlun.
Uppsetningu tölvuvædds og samtengds
upplýsingakerfis Schengen (SIS) er lokið
hér á landi. Dagrétt útgáfa gagnagrunnsins
er staðsett hjá Skráningarstofunni hf. Per-
sónuvernd hefur fylgst með uppsetningu
kerfisins og annast öryggiseftirlit. Búið er að
tengja allar lögreglustöðvar landsins við
kerfið.
Sérstök lögregluskrifstofa (SIRENE) hefur
verið opnuð hjá alþjóðadeild Ríkislög-
reglustjóra, með 11 starfsmönnum. Verður
hún opin allan sólarhringinn. Svonefnt
VISION-tölvukerfi hefur verið sett upp hjá
Útlendingaeftirlitinu.
Nálægt 1.000 lögreglumenn, tollverðir og
fleiri hafa fengið fræðslu og þjálfun vegna
Schengen-samstarfsins, m.a. í notkun SIS
og við landamæraeftirlit.
Landamærasveit sýslumannsins á Kefla-
víkurflugvelli, lögreglumenn og tollverðir,
hafa fengið sérstaka þjálfun. Öryggiseftirlit
á flugstöðvarstæðinu hefur verið hert og
fullkominn tækjabúnaður tekinn í notkun
vegna landamæraeftirlits.
Landamærastöðvar á fimm
flugvöllum og í 25 höfnum
Fjórir innanlandsflugvellir verða landa-
mærastöðvar Schengen-svæðisins auk
Keflavíkurflugvallar og 25 hafnir. Gera þurfti
ýmsar breytingar á flugvöllum og höfnum
vegna landamæravörslunnar.
Sex úttektarnefndir á vegum Schengen-
ríkjanna hafa komið til Íslands á undanförn-
um mánuðum til að sannreyna að Ísland
geti uppfyllt skyldur sínar. Gerð var úttekt á
SIS, lögreglusamvinnu og búnaði á lög-
reglustöðvum, öryggisþáttum og persónu-
eftirliti og aðstöðu á flugvöllum og höfnum,
vernd persónuupplýsinga og á rekstri SIR-
ENE-skrifstofunnar.
„Það er nýjung í alþjóðlegu samstarfi að
ekki er lengur nægilegt að segjast ætla að
uppfylla skyldurnar sem þú tekur að þér
heldur er haft eftirlit með því hvort þú gerir
það,“ segir einn viðmælenda blaðsins. „Við
stóðumst skoðun með ágætum. Við erum
tilbúnir.“
Morgunblaðið/Golli
Lögreglumenn á Keflavíkurflugvelli skoða nýju landamærahliðin í Leifsstöð, sem verða tekin í notkun þegar Ísland verður aðili að Schengen. Allir farþegar sem koma frá löndum utan Schengen fara í gegnum þessi hlið.