Morgunblaðið - 18.03.2001, Blaðsíða 20
L
eikhúsmarkaðurinn er að breyt-
ast. Leikhúsum er að fjölga,
áhorfendur hafa aldrei verið
fleiri og fjölgar enn og aldrei
hafa fleiri starfað að leiklist en
nú um stundir. Þó er þessi gróska í vissum
skilningi sápukúla sem hefur þanist út um
ótrúlega hríð án þess að springa. En ýmis
teikn eru á lofti um að kúlan springi áður en
langt um líður ef ekki verður róttæk breyt-
ing á umhverfi hennar. Þegar talað er um
róttækar breytingar er hægt að tína ýmislegt
til en flest af því er fyrirsláttur, hið eina sem
raunverulega skiptir máli eru peningar.
Peningar í íslenskri leiklist eru líklega um
einn milljarður á ársgrundvelli. Þar af er op-
inbert fé til leiklistar um tveir þriðjungar og
einn þriðjungur eru tekjur leikhúsanna af
sýningum. Hinu opinbera fé er þannig skipt
að Þjóðleikhúsið fær um 400 milljónir, Borg-
arleikhúsið 180, Íslenska óperan 65, sjálfstæð
leikhús um 50 og Leikfélag Akureyrar um
30. Samanlagður áhorf-
endafjöldi þessara leik-
húsa eru um 400 þúsund
og þar af taka sjálf-
stæðu leikhúsin helm-
inginn og hin leikhúsin
auðvitað hinn helming-
inn. Og nú erum við komin að kjarna máls-
ins. Er nokkurt réttlæti í því að sjálfstæðu
leikhúsin fái einungis 10% af opinberum
stuðningi þegar þau taka við 50% af áhorf-
endunum?
Spurningin er lögð upp sem réttlætis-og sanngirnismál en er engu að síð-ur frámunalega grunnhyggin. Op-inber stuðningur við listastarfsemi
er ekki reiknaður út frá aðsókn að einstökum
listastofnunum eða listviðburðum. Opinber
stuðningur við listastarfsemi er skýrasta yf-
irlýsing sem yfirvöld geta gefið um menning-
arpólitíska stefnu sína og felur í sér þann
skilning að ákveðna þætti listastarfsemi er
ekki hægt stunda í fjáraflaskyni. Opinber
stuðningur við listastarfsemi er stuðningur
við eðli starfseminnar en ekki stuðningur við
áhorfendur.
Það er menningarpólitísk stefna að halda
úti Sinfóníuhljómsveit Íslands með ærnum
kostnaði, einnig Listasafni Íslands og Lista-
safni Reykjavíkur svo og Þjóðleikhúsi, Borg-
arleikhúsi og Íslensku óperunni. Aðsókn að
tónleikum hérlendis er með því mesta sem
þekkist á byggðu bóli. Þó er Sinfón-
íuhljómsveit Íslands aðeins tæplega hálf-
drættingur miðað við heildina. Enn hefur þó
enginn látið sér detta í hug að heimta að
fjárveitingar til Sinfóníuhljómsveitarinnar
verði endurskoðaðar á þeim grundvelli.
Listasafn Íslands dregur að sér fjölda gesta
árlega en heildarfjöldi gesta á málverka- og
listasýningar í landinu öllu er þó margfalt
meiri en aðsóknin að Listasafninu einu. Dett-
ur nokkrum manni í hug að heimta að fjár-
veitingunni verði deilt út samkvæmt höfða-
tölu sýningargesta. Nei, auðvitað ekki.
Aðeins í leikhúsheiminum hefur þessi hugsun
náð slíkri fótfestu að Samkeppnisstofnun hef-
ur látið hafa sig út í að eyða mörgum mán-
uðum í skýrslugerð um samkeppnisstöðu
sjálfstæðra leikhúsa og ljúka skoðun sinni
með þeim tilmælum til menntamálaráðherra
að „...hann beiti sér fyrir endurmati á op-
inberri aðstoð við leikhúsrekstur.“ Sam-
keppnisstofnun leggur til í fullri alvöru að
„opinber fjárstuðningur til leiklistar yrði í
meira mæli í formi styrkveitinga til einstakra
verkefna sem valin yrðu af óháðum aðilum á
samkeppnisgrundvelli, þar sem bæði sjálf-
stæð og opinber leikhús gætu leitað eftir
fjármögnun, en í minna mæli í formi styrkja
til reksturs tiltekinna stofnana og launa fast-
ráðinna starfsmanna hjá þeim.“
Þessi tilmæli ganga í fyrsta lagi þvert
gegn inntaki gildandi leiklistarlaga og í öðru
lagi gera þau ráð fyrir að leiklistarstarfsemi
sé fyrst og síðast atvinnugrein sem stunduð
er í ábataskyni þar sem samkeppnisaðstaða
einstakra aðila skal vera sem jöfnust eða eins
og segir í tilmælum til menntamálaráðherra:
„Leitað verði leiða til þess að samræma bet-
ur en nú er hin menningarlegu og listrænu
markmið sem að er stefnt og markmið sam-
keppnislaga um að opinberir styrkir raski
ekki samkeppni á leikhúsmarkaði.“
Væri það svo að tilgangur leiklist-
arstarfsemi væri eingöngu að afla tekna og
skila ágóða þá væri þessi skýra afstaða um
jafna samkeppnisstöðu mjög skiljanleg. En
tilgangur opinbers stuðnings við lista-
starfsemi og þar með talin leiklist er annar.
Þar koma menningarleg sjónarmið til leiks
þar sem menningarstefna stjórnvalda byggist
á því að halda úti listastarfsemi sem undir-
strikar menningarlegt sjálfstæði þjóðarinnar,
leggur áherslu á þróun listgreinarinnar sem í
mörgum tilfellum er ekki fjárhagslega ábata-
söm og býr listamönnum það umhverfi að
þeir geti stundað listsköpun sína án stöð-
ugrar umhugsunar um fjárhagslegar afleið-
ingar hennar. Að þeir þurfi ekki að hafa
samkeppnisstöðu sína sífellt í huga.
Hættan sem hér er verið að bjóðaheim er að setja undir einn ogsama hatt alla umræðu um leik-list burtséð frá innihaldi hennar
og markmiðum. Í svari Leikfélags Reykja-
víkur til Samkeppnisráðs er komið inn á
þetta með athyglisverðum hætti. „Sú skoðun,
að hvaða starfsemi sem er skuli vera lögð til
jafns við þá sem fyrir er og njóta skilyrð-
islaust jöfnuðar án þess að litið sé til sögu-
legra hefða, árangurs og fullgildra samninga
millum lögaðila, er ný af nálinni og styður
sig við jafnræðisreglu og samkeppnislög. Ef
ein lúðrasveit nýtur styrks frá sveitarfélagi
skulu þá allar aðrar lúðrasveitir njóta hans
líka?“
Loks segir í niðurlagi svars LR: „Það er
skoðun stjórnar Leikfélags Reykjavíkur að
fyrrgreint erindi Bandalags sjálfstæðra leik-
húsa sé illa grundað og órökstutt. Tilefni um-
kvartana í því sé ónógt til að Samkeppn-
isstofnun hafi frekari afskipti af frjálsu
leikhúslífi í landinu. Stjórn Leikfélags
Reykjavíkur leggur því til að erindi Banda-
lags sjálfstæðra leikhúsa verði vísað frá.“
Þó mest hafi verið gert úr tilmælum Sam-
keppnisráðs til menntamálaráðherra er meg-
inniðurstaðan engu að síður þessi: „Sam-
keppnisráð hefur komist að þeirri niðurstöðu
að ekki séu lagaleg skilyrði til íhlutunar þess
um meint brot Leikfélags Reykjavíkur, Þjóð-
leikhússins og Íslensku óperunnar á ákvæð-
um samkeppnislaga, sbr. ákvörðun sam-
keppnisráðs nr. 8/2001.“
Hin „meintu brot“ eru fólgin í und-irboði á miðaverði sem stofn-analeikhúsin hafa að sögn stund-að í krafti þess að njóta ríflegra
opinberra styrkja. Stjórn Leikfélags Reykja-
víkur bendir einnig á í svari sínu til Sam-
keppnisstofnunar að ekki sé sjálfsagt að
treysta öllum þeim tölum um aðsókn sem
sjálfstæðu leikhúsin gefa upp. Segir í skýrslu
Samkeppnisstofnunar þar sem vitnað er til
bréfs LR: „Í málflutningi Bandalags sjálf-
stæðra leikhúsa sé mikið gert úr aðsókn-
artölum. Þjóðleikhúsið og Leikfélag Reykja-
víkur séu stofnanir með opið bókhald, sem
geri höfundum sínum og rétthöfum fulla
grein fyrir aðsókn sinni og tekjum. Vandinn
sé hins vegar sá að birtar tölur annarra svo-
kallaðra sjálfstæðra leikhúsa hafi oft reynst
stórlega ýktar og ósannar, en í fæstum til-
vikum sé unnt að færa sönnur á hið rétta,
þar sem leikhúsin hafi ekki falið óháðum að-
ila eftirlit með aðsókn, líkt og dagblöð og
kvikmyndahús gera. „Forsendan fyrir kröf-
um sjálfstæðra leikhópa um aukna styrki frá
sveitarfélögum og ríki er aðsókn að sýn-
ingum þeirra. Það verður ekki hægt að
byggja á slíkum tölum fyrr en þær má sann-
reyna með ábyggilegum hætti af þriðja að-
ila.“ Einfaldur reikningur segir að ef sjálf-
stæðu leikhúsin fá 200 þúsund gesti árlega
og selja hvern miða á 1000 krónur (sem er
vægt áætlað) þá eru brúttótekjur sjálfstæðu
leikhúsanna af starfsemi sinni 200 milljónir.
Þrátt fyrir að hér sé dregið í efa fullt
sannleiksgildi fullyrðinga sjálfstæðu leikhús-
anna um mikla aðsókn þá er öllum ljóst að
aðsókn að sýningum þeirra er mjög mikil og
hefur aukist á undanförnum misserum. Sam-
tímis hefur komið í ljós að ekki er hægt að
byggja leikstarfsemi hér á Íslandi eingöngu á
aðsókn nema leikhús með slíka stefnu hefði
einkaleyfi á flutningi söngleikja og gam-
anleikrita. Þeirri skoðun hefur reyndar verið
haldið fram í fullri alvöru af talsmönnum
ákveðinna sjálfstæðra leikhúsa að stofn-
analeikhúsin ættu að láta sjálfstæðu leikhús-
unum eftir að sinna slíkum verkefnum. En
þá er líka eins gott að kalla leikhús sem set-
ur slík verkefni á oddinn sínu rétta nafni og
tala um markaðsleikhús eða jafnvel búlev-
arðleikhús sem á fullan rétt á sér svo lengi
sem einhver sækir sýningar þess, en engum
með fullu viti dettur í hug að styrkja af op-
inberu fé. Í þeim löndum sem við sækjum
helst leikhúsfyrirmyndir okkar þrífst tvenns
konar fjármögnun leikhúsa. Annars vegar
leikhús sem njóta opinberra styrkja og kost-
unar einkaaðila og hins vegar markaðsleik-
hús sem gera eingöngu út á aðsókn. Mér vit-
anlega hefur enginn framleiðandi sýninga í
West End í London eða á Broadway í New
York farið fram á opinbera styrki með þeim
rökum að sýningar þeirra njóti svo mikillar
aðsóknar að nauðsynlegt sé að styrkja þær.
Þar græða menn á mikilli aðsókn og tapa á
lítilli aðsókn. Þar er leikhúsrekstur talinn
áhættusöm viðskipti þar sem græða má stór-
ar fúlgur og tapa öðrum jafnstórum. En eng-
um dettur heldur í hug að leggja að jöfnu þá
starfsemi við opinberlega styrktu leikhúsin.
Einkaleikhús á Broadway og í West End eru
rekin af þrautþjálfuðum atvinnumönnum sem
fara ekki í grafgötur með tilgang starfsem-
innar og gera út á þekktar stærðir í við-
skiptum sínum. Þar eru ráðnir þekktir leik-
arar og leikstjórar – helst stjörnur – og
aðeins eru tekin til sýninga verk eftir þraut-
reynda og vel þekkta höfunda. Oft eru verkin
gamalreynd en geta líka verið ný eins og
söngleikir Lloyd Webbers eru ágætt dæmi
um en enginn efast um markaðsgildi þeirra.
Hann er þekkt stærð. Atvinnumennska og
fagmennska á öllum póstum er lykillinn að
vel heppnuðu markaðsleikhúsi. Frumleiki og
framúrstefna eru hinsvegar ekki á þeirra
könnu, þar þarf annars konar hugsun til,
hvort sem hún er starfrækt af hugsjón eða
með opinberum stuðningi – nema hvort
tveggja sé.
Hér uppi á Íslandi hefur í gegnum tíðina
mótast eins konar blanda af þessu tvennu
sem gerir allar línur í umræðunni óskýrari
og veldur því að þeir sem reka leikhús með
markaðinn í huga hafa gjarnan afneitað eðli
sínu og viljað skilgreina sig sem „hugsjóna-
leikhús með frumleika og framúrstefnu að
leiðarljósi en vegna óviðráðanlegra aðstæðna
þá neyðist það til að einbeita kröftum sínum
að markaðnum.“ Þetta er hin íslenska sjálf-
stæða leiklistarstarfsemi í hnotskurn og segir
þá sögu að hér er í rauninni ekki grundvöllur
til að þess að starfrækja einkarekið mark-
aðsleikhús á þeim forsendum sem tíundaðar
voru hér á undan. Eðli hinna sjálfstæðu leik-
húsa liggur mun nær því sem ætlast er til af
opinberlega styrktum leikhúsum og á þeim
forsendum er krafan um aukinn opinberan
stuðning fyllilega réttmæt. Með tilvísan til
aðsóknar og vinsælda verður krafan hins
vegar aldrei annað en léttvæg fundin.
Í vetur sendi Bandalag íslenskra lista-manna frá sér vel grundaðar óskir umaukinn stuðning stjórnvalda við sjálf-stæða leiklistarstarfsemi þar sem nið-
urstöðutalan var 84 milljónir og er núverandi
stuðningur (25 milljónir auk starfslauna úr
Listasjóði) þar innifalinn. Hér er skyn-
samlega haldið á málum með tillögum sem
krefjast menningarpólitískrar afstöðu af
stjórnvöldum. Á að styrkja þessa starfsemi
eða ekki er spurt og vísað hvort tveggja til
áhuga almennings á leiklistarstarfi sjálfstæðu
leikhúsanna og hins vegar þess menning-
arlega hlutverks sem þau gegna í nútíma-
landslagi listrænnar sköpunar. Þessar til-
lögur eru raunsæjar og beinast að því að
hefja starf sjálfstæðu leikhúsanna upp úr fari
þeirrar áhugamennsku sem það hefur hjakk-
að í fyrir þær sakir að ekki hefur verið svig-
rúm til að greiða listamönnunum laun fyrir
vinnu sína nema að litlu leyti. Hvort þetta
verður gert með því að dreifa opinberu fjár-
magni á milli fleiri aðila en nú er eða með
því að auka fjárveitingar til þessa málaflokks
á eftir að koma í ljós og er eins og svo marg-
oft hefur verið sagt menningarpólitísk
ákvörðun.
Ósjálfbjarga vegna aðsóknar
Morgunblaðið/Árni SæbergEiga sjálfstæðu leikhúsin ein að hafa leyfi til að
sviðsetja söngleiki og gamanleikrit? Úr sýningu
LR á Kysstu mig, Kata frá síðasta leikári.
AF LISTUM
Eftir Hávar
Sigurjónsson
havar@mbl.is
LISTIR
20 SUNNUDAGUR 18. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Jón Stefánsson
LISTMUNAUPPBOÐ
Í KVÖLD KL. 20.00 Á HÓTEL SÖGU, SÚLNASAL.
Verið velkomin að skoða verkin í Galleríi Fold, Rauðarárstíg 14-16,
í dag kl. 12-17. Seld verða um 100 verk, þar á meðal fjölmörg verk gömlu
meistaranna. Hægt er að nálgast uppboðsskrána á netinu: www.myndlist.is
Rauðarárstíg 14-16
sími 551 0400
og Kringlunni
sími 568 0400
www.myndlist.is