Morgunblaðið - 18.03.2001, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 18.03.2001, Blaðsíða 40
FRÉTTIR 40 SUNNUDAGUR 18. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ Í þessu fallega þríbýlishúsi er til sýnis í dag 96,4 fm opin og mjög björt íbúð á jarðhæð. Húsið er fráb. staðsett rétt við skóla, íþrótthús og fl. í grónu hverfi. Rúmgóð herb. Stór stofa. Parket. Sigríður og Kristján taka á móti áhugasömum í dag frá kl. 14-17. Áhv. 4,6 m. V .11,3 m. 4420 122 fm mjög góð 4ra herb. íb. á 2. h. í vönduðu klæddu lyftuhúsi. Gegnheilt parket. Yfirbyggðar svalir. 3 góð herb. Hjörtur og Hanna taka á móti þér og þínum frá kl 14-17 í dag. Áhv. 4 m. V. 12,6 m. 4448 í nýl. fjölb. á fráb. stað í Lindahverfi. Vandaðar innréttingar. Glæsil. nýl. tæki frábær staðsetn. Stutt í ört vaxandi þjónustu. Friðrik og Lilja taka á móti þér og þínum frá kl. 10-15 í dag. Áhv. 6 m. V. 12,4 m. 4673 í fallegu litlu fjölb. Þvottahús innan íbúðar. Stutt í skóla og alla þjónustu. Áhv. 5,8 m. V. 11,1 m. 4243. Heiða og Guðmundur taka á móti áhugasömum í dag frá kl 14 -16. Skálaheiði 7 - Kóp - 1. hæð. Kríuhólar 2 íb. 0205 - vönduð eign Funalind 3, íb. 101 - Glæsileg 85 fm íb. á jarðhæð Fróðengi 6, íb. 303. Góð 86 fm útsýnisíb. á 3. h. OPIÐ HÚS Í DAG Ingólfur Gissurarson löggiltur fasteignasali Til leigu í Skeifunni Í Skeifunni 756 m² á jarðhæð. Frábært húsnæði fyrir þá, sem þurfa ódýrt húsnæði og vera miðsvæðis með starfsemi sína eins og t.d. heildverslanir eða ýmis þjónustufyrirtæki. Grunn- flöturinn er 606 m², að auki eru 150 m² á millilofti, samtals 756 m². Rýmið er mjög opið og aðgengilegt með fullbúnum skrif- stofum á milliloftinu. Ágæt 3 m há innkeyrsluhurð og góð að- staða til affermingar gáma. Lofthæð 5 m. Sérbílastæði fylgja. Húsnæðið er allt ný klætt að utan og hefur gott aug- lýsingagildi. Laust strax. Hafið samb. við Ólaf í síma 698 6686 eða Guðlaug í síma 896 0747. Leiguverð kr. 650 á m². sími 511 2900 Bolungarvík - Það var létt yfir þess- um fyrrverandi stafsmönnum Nasco í Bolungarvík þar sem þau voru að vinna að átaksverkefnum sem komið var á meðan beðið er að úr rætist í atvinnumálum staðarins en eins og kunnugt er hefur verið skortur á at- vinnu í Bolungarvík að undanförnu. Í síðustu viku setti Bolungarvík- urkaupstaður í samvinnu við Vinnu- miðlun Vestfjarða af stað átaksverk- efni þar sem átta einstaklingar munu vinna við að smíða bekki og borð sem komið verður fyrir á opnum svæðum í bænum og einnig verða smíðuð ým- is leiktæki á leikvelli bæjarins. Stjórnandi verkefnisins er Bragi Björgmundsson húsasmiður. Gert var ráð fyrir því að þetta átaksverk- efni standi fram til 5. maí eða skemur ef úr rætist á vinnumarkaðinum. Um það leyti er þetta verkefni fór af stað voru 42 á atvinnuleysisskrá í Bolungarvík en eru um þessar mundir komnir líklega niður í um 30. Nú hafa tekist samningar um kaup á rækjuverksmiðju þrotabús Nasco og er þess að vænta að þar geti starf- semi hafist innan mánaðar. Það er því ýmislegt sem bendir til þess að úr atvinnumálum Bolvíkinga sé að rætast og jafnvel betur en menn þorðu að vona. Aflabrögð hafa verið mjög góð og vor í lofti. Morgunblaðið/Gunnar Hallsson Sveinn Þórisson, Gísli Helgason, Guðmunda Hreinsdóttir, Sigríður Run- ólfsdóttir og Bragi Björgvinsson verkefnisstjóri tylltu sér stundarkorn á einn garðbekkinn sem þau voru að smíða. Í átaksverkefn- um meðan beðið er eftir atvinnu Laxamýri - Það var mikið um að vera í Húsmæðraskólanum á Laug- um um síðustu helgi en þar var hald- inn árlegur starfsdagur kvenfélag- anna í héraðinu. Eins og venja er til var margt hægt að gera auk þess sem konur notuðu tímann til þess að hittast og rabba saman. Þetta er í sjöunda sinn sem starfs- dagur sem þessi er haldinn og hefur það mælst vel fyrir hjá kvenfélags- konum. Til marks um það má geta þess að fyrsta árið mættu tólf konur á starfsdaginn en í þetta sinn mættu 70 konur og hafa aldrei verið fleiri. Þá var unnið lengur en áður og var byrjað strax um morguninn og síð- ustu konurnar fóru ekki fyrr en um kvöldmat. Velvilji héraðsnefndar Hægt var að kaupa hádegismat og miðdegiskaffi sem er fjáröflun Kven- félagasambandsins til þess að halda við húsnæðinu en þarna er geymdur mikill fjöldi muna frá tímum hús- mæðrakennslunnar. Auk eigin fjár- öflunar hefur skólinn notið velvilja héraðsnefndar S-Þing. og Reyk- dælahrepps. Fyrrverandi handavinnukennarar skólans, þær Helga Jósefsdóttir og Hjördís Kristjánsdóttir, sýndu kven- félagskonunum ýmsar saumgerðir svo sem augnsaum og harðangur auk þess sem hægt var að kaupa ým- is efni í handavinnu. Þá kenndi Sig- ríður Pálsdóttir gamla krosssaum- inn, sem nefndur hefur verið fléttusaumur, en Kristlaug Pálsdótt- ir var á staðnum með penslana sína til þess m.a. að mála á dúka og krukkur með konunum. Gréta Ásgeirsdóttir leiðbeindi í Vonalandi en það heitir tölvuher- bergi hússins. Kvenfélagasambandið fékk fyrir nokkrum árum tölvur að gjöf frá Símanum sem hafa komið að mjög góðum notum fyrir þær konur sem hafa viljað læra ritvinnslu, bók- hald og ýmislegt sem alnetið gefur tækifæri til. Sigrún Ingvarsdóttir kaupkona kynnti ýmislegt föndur og hægt var að kaupa hjá henni efni til þess að prófa. Hjá henni var m.a. málað á tré og hægt var að gera smáhluti úr leir en leiðbeinandi við það var Aðal- björg Pálsdóttir. Sumar konur komu með sinn eigin efnivið og jók það á fjölbreytnina. Þá var hægt að sýna öðrum og ef til vill að fá hjálp hjá leiðbeinendum. Að sögn Söru Hólm formanns Kvenfélagasambands S-Þing. var hún mjög ánægð með þennan dag sem tókst vel og hefur sú hugmynd komið fram að halda starfsdag tvisv- ar á ári héðan í frá. Morgunblaðið/Atli Vigfússon Gréta Ásgeirsdóttir leiðbeinir Árdísi Sigurðardóttur. Morgunblaðið/Atli Vigfússon Sara Hólm, formaður Kvenfélagasambands S-Þing, lítur á útsauminn hjá Gerði Benediktsdóttur. Starfsdagur Kven- félagasambandsins Morgunblaðið/Atli Vigfússon Sigrún Ingvarsdóttir leiðbeinir Sögu Jónsdóttur t.v. og Guðnýju Gríms- dóttur í föndurhorninu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.