Morgunblaðið - 18.03.2001, Qupperneq 18
ÍÞRÓTTIR
18 SUNNUDAGUR 18. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ
GUÐJÓN Þórðarson, þjálfari Stoke
City, segir á heimasíðu stuðnings-
manna félagsins að eftir dapurt
gengi í undanförnum leikjum liðsins
hafi leikmenn liðsins og þjálfarar
sett sér ný markmið fyrir lokaátökin
í ensku 2. deildinni.
Guðjón segir það óraunhæft
markmið að ætla Stoke að verða í
einu af tveimur efstu sætunum og að
eini raunhæfi möguleiki liðsins sé að
komast í úrslitakeppni liðanna sem
enda í 3. til 6. sæti deildarinnar.
Stjórn félagsins setti það sem
markmið í upphafi keppnistímabils-
ins að innbyrða 92 stig í deildar-
keppninni í vetur og var það talið
nægja til að vera í einu af tveimur
efstu sætum deildarinnar. Ljóst er
að það tekst ekki en miðað við síð-
asta tímabil þarf liðið að ná um eða
yfir 80 stigum til að enda í einu sex
efstu sætanna.
SKIPULEGGJENDUR fimm
helstu maraþonhlaupa heims
hafa sent frá sér yfirlýsingu
þar sem þeir óska endregið eft-
ir því að lyfjaeftirlit með kepp-
endum í maraþonhlaupum um
heim allan verði stórhert. Óska
þeir meðal annars eftir því að
blóðpróf verði tekin af kepp-
endum til þess að fylgjast með
hvort þeir noti blóðrauðuster-
ann EPO og blóðþynningarefni
HES, svo dæmi sé tekið. Lengi
hafa verið uppi grunsemdir um
að langhlauparar freistist til
þess að nota þessi efni en ekk-
ert hefur sannast. Eftir að sex
finnskir skíðagöngumenn féllu
á heimsmeistaramótinu á dög-
unum hefur þrýstingur á hert
eftirlit vaxið enn með kepp-
endum í þolgreinum.
Forsvarsmenn maraþon-
hlaupanna í Berlín, Boston,
Chicago, Lundúnum og New
York segja algjörlega nauðsyn-
legt að blóðprufur verði teknar
af keppendum í maraþon-
hlaupi. Það sé eina leiðin til
þess að hægt verði að taka úr-
slit hlaupanna trúanleg. Skora
skipuleggjendur hlaupanna
fimm á Alþjóðafrjálsíþrótta-
sambandið, IAAF, að hefja sem
fyrst töku blóðsýna af lang-
hlaupurum. Til þess þurfi að
breyta lögum og það verði að
gera svo fljótt sem auðið verð-
ur. Segja þeir að með núver-
andi lyfjaprófum, þar sem
þvagsýni eru rannsökuð, sé
ekki hægt að finna þau efni
sem helst freisti íþróttamanna
sem stundi þolgreinar og vilji
hafa rangt við.
Undir þessa skoðun hefur
tekið heimsmeistarinn í hálf-
maraþonhlaupi karla, Paul
Tergat frá Kenýa. „Ég styð
heilshugar þá kröfu að eftirlit
með lyfjamisnotkun verði hert
og að hvergi verði til sparað
við að koma upp um þá sem
hafa rangt við,“ segir Tergat.
Jason lék með Fram og Aftureld-ingu áður en hann hleypti heim-
draganum og hélt til Þýskalands um
miðjan síðasta áratug
og lék um tíma hjá
Leutershausen. Það-
an kom hann heim á
nýjan leik og lék með
Aftureldingu einn vetur, 1997 til 1998,
áður en hann hélt aftur til Þýskalands
þar sem hann gerði samning við 2.
deildarliðið Dessau. Eftir nokkra leiki
með félaginu haustið 1998 fékk Jason
þungt högg á vinstra augað í leik
gegn B-liði Magdeburgar snemma í
nóvember. Eftir það fór hann í að-
gerðir og skoðanir af ýmsu tagi en svo
virðist sem flest hafi snúist í höndum
lækna ytra með þeim afleiðingum að
sjóninni á vinstra auga varð ekki
bjargað. Jason hefur hins vegar full-
komna sjón á hægra auga.
Í ljósi sögu Jasonar hefur það vakið
eftirtekt að hann er farinn að leika
handknattleik á ný.
„Ég byrjaði að hreyfa mig á nýjan
leik í haust og hef tekið þetta skref
fyrir skref, ekki verið að ana að
neinu,“ sagði Jason í samtali við
Morgunblaðið fyrir helgi. „Það er
mjög gaman að vera kominn í boltann
á nýjan leik. Ég hef fengið mikinn
stuðning og meðbyr frá félögum mín-
um innan handknattleikshreyfingar-
innar síðan ég byrjaði að leika á nýjan
leik. Það hefur verið mér ómetanlegt.
En eins og mál standa nú þá gengur
námið fyrir og þess vegna æfi ég
minna en æskilegt væri,“ segir Jason
sem er að ljúka námi í kerfisfræði við
Háskólann í Reykjavík í vor.
Leikur með
hlífðargleraugu
Jason segir að fyrir utan sérstök
hlífðargleraugu sem hann ber í leikj-
um þá hafi aðgerð, sem hann gekkst
undir sl. vor hér á landi, verið lykillinn
að því að hann gat leikið handknatt-
leik á nýjan leik. „Í aðgerðinni var
tekinn beinmergur úr mjöðminni og
honum smurt í augnbotninn, en hann
hafði aldrei gróið að fullu eftir slysið.
Þar af leiðandi bólgnaði augað alltaf
upp við áreynslu. Eftir aðgerðina var
ég allur annar maður og gat farið að
hreyfa mig að einhverju ráði á nýjan
leik. Síðan leiddi eitt af öðru og ég fór
að prófa að kasta knetti. Til að byrja
með var ég eins og byrjandi, en hef
náð mér jafnt og þétt á strik,“ segir
Jason sem búsettur er í Hafnarfirði.
„Ég bý ekki langt frá Kaplakrikanum
og því kom ég að máli við FH-inga í
haust og spurði hvort ég mætti ekki
mæta á æfingar. Það var auðsótt mál
og þegar á veturinn leið var ég spurð-
ur hvort ég treysti mér til að spila og
mig langaði til að prófa,“ segir Jason
sem lék í fyrsta sinn með FH gegn
ÍBV í Eyjum 23. febrúar. Skoraði
hann fjögur mörk í leiknum. Síðan
hafa fjórir leikir bæst við, síðast gegn
KA nyrðra sl. föstudag.
„Það er enginn annar örvhentur
leikmaður með FH svo Guðmundur
Karlsson þjálfari setur mig inn á til
þess að auka fjölbreytnina í sóknar-
leiknum.
Mér þykir gaman að vera kominn í
leikinn á ný. Það var mjög erfitt að
vera tekinn svo skyndilega út úr
leiknum og gott að geta verið með að
nýju á meðan maður getur komið sér í
æfingu til þess að spila. Vonandi get
ég orðið félagi mínu eitthvað að liði.“
Skrýtið að byrja aftur
Jason segir það hafa verið skrýtið
að byrja aftur þar sem hann hafi ekki
sjón á vinstra auga og því hafi hann
þurft að laga sig að leiknum á nýjan
hátt, t.d. þar sem sá sem leikur við
hlið hans á miðjunni er á blindu hlið-
inni. „Þetta er öðru vísi en áður, en
mér hefur gengið vel að venjast þess-
um breyttu aðstæðum.“
Jason er á 29. aldursári og er
kvæntur Helenu Björk Magnúsdótt-
ur. Þau eiga tvö börn, Ísak, 5 ára, og
Ísabellu, sem er þriggja ára, og þriðja
barnið er væntanlegt í vor.
Ekki fengið skaðabætur
Jason hefur ekki fengið neinar
skaðabætur fyrir slysið sem hann
varð fyrir í Þýskalandi. Hann á í
málaferlum við félagið og einnig
lækna vegna meintra mistaka þeirra
sem leiddu til þess að hann missti
sjónina við höggið. Ekki sér fyrir end-
ann á þessum málarekstri. „Það er
mjög erfitt að reka þetta mál út af
læknamistökunum. Sönnunarbyrðin
hvílir öll á mér og þar af leiðandi er
allt frekar þungt í vöfum,“ segir Jas-
on en er bjartsýnn á að mál hans fái
farsæla niðurstöðu þegar fram líða
stundir. Það varð heldur ekki til að
bæta úr skák að félagið sem hann lék
með, Dessau, lýsti sig gjaldþrota
fljótlega eftir að hann varð fyrir slys-
inu. Fyrir vikið er erfiðara en ella að
sækja skaðabætur þar sem trygg-
ingamál voru ekki eins og best varð á
kosið.
„Þetta er allt í vinnslu,“ segir Jas-
on, sem flutti heim til Íslands vorið
1999 og hellti sér þá út í nám við Há-
skólann í Reykjavík og nú hefur
handknattleikur bæst við á nýjan leik.
„Á meðan allt gengur að óskum, er
ég staðráðinn í að halda eitthvað
áfram í boltanum,“ segir Jason Krist-
inn Ólafsson, handknattleiksmaður
með FH.
Jason Kristinn Ólafsson handknattleiksmaður hefur dregið fram skóna á ný
Blindur
á vinstra
auga
JASON Kristinn Ólafsson handknattleiksmaður hefur dregið fram
keppnisskóna á nýjan leik og hefur leikið undanfarna leiki með FH.
Jason varð fyrir slysi í leik með þýska liðinu Dessau fyrir rúmum
þremur árum. Fékk hann þungt högg á vinstra augað. Höggið og röð
mistaka ytra ollu því að sjóninni varð ekki bjargað og hefur Jason
síðan verið blindur á auganu. Í framhaldinu lagði hann keppn-
isskóna á hilluna og flutti heim til Íslands með fjölskyldu sinni.
Morgunblaðið/Ásdís
Jason Ólafsson handknattleiksmaður með hlífðargleraugun góðu og í búningi FH-liðsins.
Eftir
Ívar
Benediktsson
Ný mark-
mið hjá
Stoke City
Vilja hert lyfjaeftirlit
í maraþonhlaupi
Eiga titil
að verja
LILJA Rós Jóhannesdóttir og
Guðmundur E. Stephensen,
borðtennismenn úr Víkingi,
eiga titil að verja á Íslands-
mótinu, sem lýkur í TBR-
húsinu í dag. Úrslitaleikir
karla og kvenna í einliðaleik
verða kl. 15.
Úrslitaleikir í tvíliðaleik
karla og kvenna verða leikn-
ir kl. 13.