Morgunblaðið - 18.03.2001, Side 36
MINNINGAR
36 SUNNUDAGUR 18. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ
✝ Guðmundur JónGuðjónsson
fæddist 19. júlí 1933 í
Reykjavík. Hann
varð bráðkvaddur í
Neskaupstað 12.
mars síðastliðinn.
Faðir hans var
Guðjón Jónsson sjó-
maður og síðar um-
sjónarmaður Verka-
mannabústaðanna í
Reykjavík, f. 20. júlí
1891, d. 30. maí 1971.
Móðir hans var Gróa
Guðnadóttir, hús-
freyja í Reykjavík, f.
3. maí 1893, d. 5. júlí 1985. Systir
Guðmundar er Sunneva Guðjóns-
dóttir Snæhólm.
Guðmundur var tvíkvæntur.
Fyrri kona hans var Jónína Guð-
björg Sigurgeirsdóttir, húsfreyja.
Börn þeirra eru: Guðjón Páll flug-
maður, Hjalti Geir rafeindavirki
og Gunnhildur Þóra, fulltrúi í
tölvudeild Lsp. Seinni kona hans
er Guðrún Sverrisdóttir, hjúkrun-
arkona. Þeirra börn eru: Ragn-
heiður hjúkrunarfræðingur, Erna
lögfræðingur, Sól-
veig leiklistarnemi
og Guðrún nemi.
Barnabörn Guð-
mundar eru níu.
Guðmundur lauk
cand. med. prófi frá
HÍ 1965 og varð sér-
fræðingur í bæklun-
arskurðlækningum
1985. Hann starfaði
lengst af sem bækl-
unarskurðlæknir á
Landspítalanum
ásamt hlutastarfi á
Hrafnistu. Var ráð-
gefandi sérfræðing-
ur frá Landspítalanum fyrir bækl-
unarlækningar við Reykjalund og
rak einnig eigin stofu í Domus Me-
dica. Síðustu fimm árin starfaði
hann sem yfirlæknir við Fjórð-
ungssjúkrahúsið í Neskaupstað,
en hélt jafnframt heimili með fjöl-
skyldu sinni að Sæbraut 3 á Sel-
tjarnarnesi.
Útför Guðmundar fer fram frá
Dómkirkjunni í Reykjavík á
morgun, mánudaginn 19. mars, og
hefst athöfnin klukkan 15.
Í minningu föður míns
„Dagurinn er liðinn, myrkrið grúf-
ir yfir jörðunni. Það er kominn tími
til þess að ég haldi niður að fljótinu
og fylli krús mína. – Kvöldloftið er
þrungið hinum tregabundna hljómi
vatnsins. Æ, það kallar mig út í
rökkrið. Enginn göngumaður fer um
hinn afskekkta veg, vindurinn þýtur
og bylgjurnar hreykja sér hátt á
fljótinu. – Ég veit ekki hvort ég kem
aftur til baka. Ég veit ekki hverjum
mér auðnast að mæta. Í kænunni
niðri við vaðið leikur hinn ókunni á
lútu sína.“
(R. Tagore.)
Guðjón Páll Guðmundsson.
Miklar harmafregnir bárust okkur
aðfaranótt mánudags er tengdafaðir
okkar, Guðmundur J. Guðjónsson
læknir, varð bráðkvaddur í Neskaup-
stað.
Okkar kynni af þessum öðlingi
hófust fyrir rúmum áratug síðan er
við kynntumst elstu dætrum hans, þá
við lítinn fögnuð tengdamóður okkar.
Guðmundur hafði þó trú á dóm-
greind dætra sinna og reyndist líkt
og svo oft áður, hafa rétt fyrir sér.
Fyrstu búskaparárin okkar kom
ekki annað til greina en að við byggj-
um í sitthvorri íbúðinni í húsi þeirra á
Sæbrautinni undir verndarvæng
þeirra Guðmundar og Guðrúnar. Var
þá oft glatt á hjalla og háreysti mikið,
ekki síst þegar öll hersingin var sam-
an komin á einum stað, af einskærri
tilviljun oftast á kvöldmatartíma.
Þá var Guðmundur nú ekki að æsa
sig, lá bara í sínu sófahorni og „svaf“
en lét ekki svona klið raska ró sinni.
Það var ekki hans háttur að láta smá-
atriði trufla sig.
Það var ekki fyrr en kom að því að
við tengdasynirnir seildumst inn á
heilagt umráðasvæði hans, bílskúr-
inn, að hann taldi aðgerða þörf. Við
áttum það nefnilega til að vera full
ágengir þegar kom að óteljandi verk-
færum tengdapabba. Gekk það svo
langt að þegar eitthvert verkfæri
fannst ekki strax, þá hafði Guðmund-
ur það alltaf að orði að nú hefði Frið-
þjófur tekið það. Var Friðþjófur þá
jafnvel í öðrum landshluta. Þetta
leystist þó farsællega, hengilás var
settur á verkfærakistuna, okkur til
sárrar gremju og flest öll verkfærin
flutt austur til Norðfjarðar.
Hann þóttist engu að síður vera
nokkuð lánsamur með val dætra
sinna á mannsefnum, því þekking
þeirra lá á sitthvoru sviðinu. Annar
gat smíðað, hinn gat fiktað með hon-
um í tölvunni og báðir gátu eldað, en
helsta umkvörtunarefni okkar við
Guðmund var að móðirin hefði
hvorki kennt dætrunum að elda góð-
an mat né þvo þvott.
Þetta voru góð ár sem við áttum öll
saman á Sæbrautinni og ekki voru
síðri hinar mörgu ánægjulegu sam-
verustundir eftir að Guðmundur tók
að sér yfirlæknisstöðu við Sjúkra-
húsið á Norðfirði. Sá siður var kom-
inn á að jólunum eyddum við öll sam-
an á Sæbrautinni en hittumst á
páskum og yfir sumartímann í Nes-
kaupstað. Svo ferðuðumst við öll í
kross eftir því sem hægt var, við
austur eða Guðmundur í bæinn. Við
eigum margar góðar minningar sem
gætu fyllt heilu bækurnar, ef ritaðar
væru. En þetta eru minningar sem
ekki verða frá okkur teknar, þó svo
þessi yndislegi tengdafaðir hverfi á
braut. Þessi góði maður, sem ávallt
var tilbúinn að rétta fram hjálpar-
hönd og veita hverjum sem er aðstoð
sína hvenær sem hann mögulega gat.
Það var því ekki að ástæðulausu að
margir, ekki síst sjúklingar hans,
tækju hann í dýrðlingatölu og köll-
uðu hann Guðmund góða. Hann var
einfaldlega dýrðlingur. Menn eins og
Guðmundur eru „raritet,“ fjársjóður
sem ekkert kemur í staðinn fyrir.
Guð blessi minningu hans og megi
hún lifa lengi og verða öðrum til eft-
irbreytni.
Friðþjófur og Sigurður T.
Jæja Guðmundur minn, nú er víst
komið að leiðarlokum hjá okkur.
Þetta er bara alltof snemmt. Við
kynntumst fyrir tæplega þremur ár-
um og vinátta okkar var rétt að
byrja. Það var alltaf svo gaman þeg-
ar þú komst í bæinn, hún Rúna þín
ljómaði öll af gleði yfir því að pabbi
hennar væri loksins kominn eftir
alltof langa fjarveru í Neskaupstað.
Ég er svo feginn því að við komum öll
til þín um síðustu verslunarmanna-
helgi og áttum yndislegar stundir
saman. Ég er líka svo feginn því að
þið Guðrún áttuð frábæran tíma út af
fyrir ykkur síðustu mánuðina, um
jólin, fyrir austan, í London og San
Francisco, og svo loks heima á Sel-
tjarnarnesinu. Þetta var ykkur ómet-
anlegur tími sem aldrei verður tek-
inn frá ykkur. Þú varst alveg hreint
yndislegur maður, það þótti öllum af-
skaplega vænt um þig og þú varst
vinsæll hvar sem þú fórst. Íbúar í
Neskaupstað sýndu það í verki þegar
Guðrún, stelpurnar þínar og Agnar
fóru að sækja þig. Ég vil nota tæki-
færið og þakka íbúunum þann ein-
staka hlýhug sem þeir sýndu í þeirra
garð á þessum erfiðu tímum.
Við vorum alltaf eitthvað að spjalla
saman, ég og þú, og það síðasta sem
við ræddum um áður en þú fórst var
flugvallarmálið. Þótt við værum ekki
alveg sammála skildum við afstöðu
hvor annars og bárum virðingu fyrir
henni. Þannig var það alltaf þegar við
spjölluðum saman. Það var alltaf
hægt að leita til þín ef maður hafði
ekki svarið við einhverju, þú vissir
svo margt. Við höfðum sameiginlega
tækjadellu og ég var búinn að hlakka
til að grúska með þér í því þegar þú
loksins flyttir heim. Það verður bara
að bíða betri stundar. Ég gæti örugg-
lega skrifað um þig heila bók en ég
læt hér við sitja. Ég vil þó að lokum
lofa þér tvennu: Ég lofa því að mæta
vel í skólann það sem eftir er. Og ég
lofa því að vera eins góður og ég get
við hana Rúnu þína því hún saknar
þín svo ofboðslega mikið. Mér þykir
mjög vænt um þig Guðmundur minn
og ég sakna þín mikið. Ég vona þó að
við munum hittast aftur seinna. Takk
fyrir allt.
Þinn vinur,
Jóhann Bjarni Kolbeinsson.
Afi, þú átt að knúsa mig, sagði litli
Bessi við afa sinn fyrir nokkru. Og
Guðmundur knúsaði alla, – fjöl-
skyldu sína, vini og vandamenn, spít-
alann sinn og samferðamenn sína.
Ánægja hans og lífsfylling fólst í því
að hjálpa öðrum. Og hann var mjög
fær um það. Ég heyrði frá því sagt,
að það væri eins og eitthvert sjötta
skilningarvit hjálpaði honum við að
leysa erfiðustu vandamálin í læknis-
fræðistarfinu. Guðmundur var mjög
hagur maður og lék allt í höndum
hans. Hann var „píparinn“ minn,
þegar hann lagði lagnir fyrir mig í
bæ fyrir norðan, smíðaði, múraði, og
jafnvel setti upp rafmagnsgirðingar,
en „sérgrein“ hans var þó þekking á
bílum og bílaviðgerðir.
Og nú hringdi Bessi litli í ömmu
sína og sagði. Amma, vektu hann afa.
Og við söknum hans öll.
Agnar Norland.
Sviplegur og sár er missir ástvina
Guðmundar J. Guðjónssonar sem
lést aðfaranótt 12. mars síðastliðins.
Að leiðarlokum sækja minningar um
góðan mann á hugann. Ernu og
Ransý dætrum hans kynntist ég í
átta ára bekk í Melaskóla en þá tókst
mikill vinskapur með okkur. Á ég
margar góðar minningar af notalegu
heimili þeirra Guðmundar og Guð-
rúnar fyrst á Sólvallagötu og síðar á
Sæbraut. Þar var oft margt um
manninn enda hefur heimili þeirra
alltaf staðið öllum vinum og kunn-
ingjum dætranna opið.
Guðmundur var ljúfur og hlýr
maður og hafði einstaklega góða
nærveru. Þær voru ófáar stundirnar
þar sem hann stóð í eldhúsinu með
kaffibollann sinn og spjallaði við
yngra fólkið um heima og geima og
góð kímnigáfa hans var aldrei langt
undan. Hann var mikill fjölskyldu-
maður og gaf sér alltaf tíma til að
ræða málin við dætur sínar. Það var
gaman að fylgjast með hversu náið
og hlýtt samband var þeirra á milli.
Hann hrósaði þeim óspart fyrir það
sem þær gerðu vel og hvatti þær
áfram ef þess þurfti. Hann vissi ná-
kvæmlega hvernig hann gat laðað
fram það besta hjá þeim. Faðmlag,
hvatning og hrós voru hans aðferðir
til að hvetja dætur sínar til dáða.
Það var aðdáunarvert að fylgjast
með samheldni fjölskyldunnar þegar
Guðmundur tók við stöðu yfirlæknis
á Fjórðungssjúkrahúsinu í Neskaup-
stað fyrir hartnær fimm árum. Það
hefur eflaust ekki verið auðveld
ákvörðun að taka starfi sem krafðist
langra fjarvista frá fjölskyldunni. En
eins og öll önnur verkefni leystu þau
Gunna þetta vel af hendi og nýttu
fjarlægðina til að styrkja enn frekar
fjölskylduböndin. Gunna varði mikl-
um tíma í að búa honum heimili þar
og hafði hún ákveðið að eyða meiri
tíma fyrir austan þegar andlát hans
bar að.
Stelpurnar höfðu líka mikla unun
af því að fara austur í fríum sínum og
heimsækja pabba sinn með fjölskyld-
ur sínar. Hann hringdi reglulega í
stelpurnar sínar og fylgdist þannig
náið með þeim og fjölskyldum þeirra.
Þau hjónin voru nýkomin úr löngu
ferðalagi þar sem þau höfðu meðal
annars heimsótt Sólveigu dóttur sína
í London. Eftir heimkomu dvaldi
Guðmundur í nokkra daga heima á
Sæbraut í faðmi fjölskyldunnar.
Ekki hvarflaði að neinum þegar hann
kvaddi fjölskyldu sína sunnudaginn
11. mars til að halda austur til Nes-
kaupstaðar að þetta yrði hans hinsta
kveðja. En vegir Guðs eru órannsak-
anlegir.
Elsku Gunna, Ransý, Erna, Sól-
GUÐMUNDUR JÓN
GUÐJÓNSSON
!
""
##$
% &
'
(
'
&
)
!
#
!$ !
#
%
%! & #'
(%) *+,) % !$ -+
%! '. / 0
!
"
#$$
!"
# $ % &
$ %
$ " !'
( ) $ !% ( * %
++ % +++ ,
!" #$ "
#"! %
$'" (
!"
#
#
$
%
&
'
$
"
# ) * +,- .!!
* /- +,- .!!
* -. 0- -. -
+,- -1 # --
" 2- .!!
2" +,- .!!
23"' 45! 6 ' !$-
!(- +,- .!!
- +,- -
* +, )-- * -. .!!
+ - +,- + - + - + -1
!!!"
# " !
!
"
! #$
"" $"$!
%" ! % % !$!
"& % !$! '$" %()"
$ % !)"
* " *" )% * " * " *"+