Morgunblaðið - 18.03.2001, Side 51
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18. MARS 2001 51
DAGBÓK
EINHVERN tíma var
minnzt á no. óöryggi í
þessum pistlum, sem virð-
ist vera orðið algengara í
munni margra en no. ör-
yggisleysi. Síðan skrifað
var um þetta hefur mér
fundizt sem óöryggið hafi
enn unnið á í tali manna og
riti. Eins og þá sagði, verð-
ur ekki alltaf að því fundið,
þótt ó-forskeyti sé sett
framan við no. öryggi og
mörg önnur fallorð, sem
andstæða eða neitun, í
stað atviksorðsins ekki.
Þar er af mörgu að taka.
Talað er um gæfu eða
ógæfu og líka gæfuleysi án
þess að fundið verði að
þeirri notkun. Talað er um
jöfnuð og andstæðu þess
ójöfnuð. Hér verður ekki
öðru orði við komið eftir
minni málkennd. Árni
Böðvarsson benti á það í
bók sinni, Málfar í fjöl-
miðlum, að mjög illa fari á
því, að tvö sérhljóð komi
hér saman. Ekki bætir
heldur úr skák, að tvö for-
skeyti lendi saman, ó- og
ör-. Kemur Árna hér helzt
í hug sú samlíking, að
menn færu að tala um
óandstæðing. Sem betur
fer mun það orð ekki enn
hafa heyrzt eða sézt í ræðu
eða riti. Tilefni þess, að
hér er aftur minnzt á þessi
orð, er það, að ég heyrði í
fréttatíma Ríkisútvarpsins
9. febr. sl. talað um óum-
burðarlyndi. Orðrétt var
sagt: Hann var sakaður
um óumburðarlyndi.
Aldrei hef ég heyrt
þetta orð áður. Hér hefði
hiklaust átt að tala um um-
burðarleysi og annað ekki.
- J.A.J.
ORÐABÓKIN
Óumburðarlyndi
ÞAU eru ófá spilin sem
byggjast á því að finna
drottninguna fjórðu í
trompi. Oft er um hreina
ágiskun að ræða, en ein-
staka sinnum fær sagn-
hafi tækifæri til að fresta
tromptökunni og reyna
að afla upplýsinga um
skiptinguna. Eins og hér:
Suður gefur; NS á
hættu.
Norður
♠ Á742
♥ ÁG84
♦ 1054
♣ 63
Vestur Austur
♠ 653 ♠ DG10
♥ 3 ♥ D62
♦ ÁKDG97 ♦ 32
♣1084 ♣G9752
Suður
♠ K98
♥ K10975
♦ 86
♣ÁKD
Vestur Norður Austur Suður
– – – 1 hjarta
2 tíglar 3 tíglar * Pass 4 hjörtu
Pass Pass Pass
* Góð hækkun í þrjú
hjörtu.
Vestur tekur tvo
fyrstu slagina á ÁK í
tígli, en suður trompar
drottninguna og austur
hendir laufi. Tapslagur á
spaða blasir við, svo
trompdrottninguna þarf
helst að finna. Sagnhafi
nýtur ekki þeirra forrétt-
inda að sjá allar hendur
eins og lesandinn, en
hann þreifar fyrir sér.
Fyrst spilar hann spaða-
kóng. Svo tekur hann
ÁKD í laufi. Vestur
fylgir lit, svo það er ljóst
að hann á sex tígla og
a.m.k. þrílit í laufi. Og
einn spaða hefur hann
sýnt. Næst er spaða spil-
að að ásnum. Vestur má
trompa, því það er taps-
lagur hvort sem er. En
vestur fylgir lit og nú er
myndin farin að skýrast.
Vestur er með a.m.k. tvo
spaða, sex tígla og þrjú
lauf. Þetta eru 11 spil,
svo ekki á hann meira en
tvílit í hjarta. Því er
óhætt að taka hjartaás-
inn og vestur fylgir lit.
Þá er vitað um tólf spil á
hendi hans og hið þrett-
ánda gæti auðvitað verið
drottningin í hjarta. En
hins vegar gerir það ekk-
ert til, því þá er skipting
vesturs 2-2-6-3. Með öðr-
um orðum – það er ekki
hægt að tapa á því að
svína fyrir trompdrottn-
inguna í austur. Ef vest-
ur fær slaginn á hann að-
eins tígul eftir og verður
að spila út í tvöfalda
eyðu og þá hverfur taps-
lagurinn á spaða.
Skemmtileg flétta.
BRIDS
Umsjón Guðmundur Páll
Arnarson
STJÖRNUSPÁ
ef t i r Frances Drake
FISKAR
Afmælisbarn dagsins: Þú ert
mikill gleðigjafi fyrir um-
hverfi þitt um leið og þú ert
næmur á viðkvæmar stundir
annarra.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Láttu ekki hugfallast þótt
eitthvað gangi þér í móti í
vinnunni. Ef þú tekur rétt á
málum, þá snúast þau þér í
hag, því þú hefur verksvitið.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þú hefur mikla æfingu í að til-
einka þér upplýsingar úr
löngu máli. Vertu því hvergi
smeykur við að ráðast í að
lesa tölvuhandbókina!
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Þér kann að falla illa að vita
til þess að þú sért umræðu-
efni annarra. Gakktu því
beint til verks og gerðu hreint
fyrir þínum dyrum.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þú hefur á tilfinningunni að
einhver ógn steðji að þér og
þínum nánustu. Það er frum-
skilyrði að skilgreina ógnina
áður en þú snýst til varnar.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Aðstæður krefjast þess að þú
leggir óvenju hart að þér um
skeið. Það er í lagi, en mundu
að gefa þér lausa stund, þeg-
ar allt er komið á rétt ról aft-
ur.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Það er betra að láta hlutina
ógerða, en ganga til verks
með hálfum hug. Þú ættir að
setjast niður, fara í gegn um
málin og hefjast svo handa af
kappi.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Þú þarft að koma öllum mál-
um á hreint milli þín og þinna
nánustu og þarft á öllum þín-
um sannfæringarkrafti að
halda til þess að koma mál-
unum í samt lag aftur.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Gættu þess í samskiptum við
aðra að spurningar þínar séu
skýrt orðaðar þannig að svör-
in sem þú færð veiti raun-
verulega þær upplýsingar
sem þú sækist eftir.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Þú ættir að kíkja á fjármála-
stöðuna og athuga hvað þú
skuldar og hvaða skuldir þú
átt útistandandi.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Sígandi lukka er best og í
uppbyggingarstarfi er far-
sælast að vinna hægt en af ör-
yggi því öll fljótfærni hefnir
sín grimmilega.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Það er eitt og annað sem þú
átt ólokið en getur nú ekki
lengur vikist undan að ganga
frá.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Þú hefur um skeið vitað hvað
þig raunverulega langar til
þess að gera og ert tilbúinn til
þess að ná markmiðum þín-
um á því sviði. Láttu slag
standa.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
Árnað heilla
60 ÁRA afmæli. Í dag,sunnudaginn 18.
mars, verður sextugur Sig-
urður Guðleifsson, verk-
stjóri, Nönnufelli 1, Reykja-
vík.
50ÁRA afmæli. Á morg-un, mánudaginn 19.
mars, verður fimmtug Torf-
hildur Rúna Gunnarsdóttir,
Ástúni 2, Kópavogi. Eigin-
maður hennar er Eggert
Konráðsson. Hún ætlar að
verja deginum austur í
sveitum.
70ÁRA afmæli. Á morg-un, mánudaginn 19.
mars, verður sjötugur Ósk-
ar Magnússon, fyrrv. skóla-
stjóri Barnaskólans á Eyr-
arbakka. Hann og
eiginkona hans, Þórunn Vil-
bergsdóttir, taka á móti
gestum í samkomuhúsinu
Stað á Eyrarbakka kl. 15–18
í dag, sunnudag.
Skákfélag Akureyrar er
100 ára á þessu ári. Af-
mælisbarnið ber sig vel
enda hefur starfsemi
félagsins verið gróskumik-
il undanfarin ár. Nýverið
lauk Skákþingi Akureyrar
og kom staðan upp á
mótinu á milli Þórs Valtýs-
sonar (2070)og Hreins
Hrafnssonar (1725). Sá
fyrrnefndi hafði hvítt og
tókst að knésetja and-
stæðinginn með því að
lokka drottningu hans frá
vörninni. 24.Hc1! Df6
25.Hxc6! Dxc6 26.Hh4 og
svartur gafst upp enda
stutt í mátið. Lokastaða A-
flokks skákþingsins varð
þessi: 1.-2. Gylfi Þórhalls-
son og Þór Valtýsson 6½
vinninga af 7 mögulegum
3. Jón Björgvinsson 4½
4.-5. Stefán Bergsson og
Halldór B. Halldórsson 3½
v. 6. Hreinn Hrafnsson 2 v.
7. Sigurður Eiríksson 8.
Skúli Torfason 0 v. Gylfi
og Þór tefldu einvígi um
fyrsta sætið sem Gylfi
sigraði 3-1 og varð hann
þar með Skákmeistari Ak-
ureyringa 2001.
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
LJÓÐABROT
OFLOF
Með oflofi teygður á eyrum var hann,
svo öll við það sannindi rengdust,
en ekki um einn þumlung hann vaxa þó vann.
Það voru’ aðeins eyrun, sem lengdust.
Steingrímur Thorsteinsson.
Full búð af dönskum og þýskum
sumarfatnaði
Laugavegi 84
sími 551 0756
LAUGAVEGI 36
Opnaðu
augun
30% verðlækkun
á öllum
gleraugnaumgjörðum
& glerjum.
Spilakvöld Varðar
sunnudaginn 25. mars
Hið árlega spilakvöld Varðar
verður haldið í Súlnasal Hótels
Sögu sunnudaginn 25. mars
kl. 20.30.
Glæsilegir spilavinningar að vanda.
Meðal annars: Utanlandsferðir,
bækur, matarkörfur o.fl.
Gestur kvöldsins er
Inga Jóna Þórðardóttir, borgarfulltrúi
og oddviti sjálfstæðisflokksins.
Aðgangseyrir kr. 700.
Vörður - Fulltrúaráð sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík
Allir velkomnir
húð og spa skin care center
N U D D
Elín Geirsdóttir nuddari hefur hafið störf
hjá dermalogica húð og spa,
Laugavegi 42b, (Frakkastígsmegin)
Elín hefur próf frá Nuddskóla Íslands og
Aromatherapy frá Tate Queensland (Ástralíu).
Tímapantanir í sími 551 0211Elín Geirsdóttir, nuddari
Námskeið fyrir 10. bekkinga á leið í samræmdu prófin
Prófaundirbúningur - lestraraðferðir - tekist á við prófkvíða.
Námskeiðið haldið á tímabilinu 29 mars til 5 apríl, hvert
námskeið er 3 skipti, 2 tímar í senn.
Leiðbeinendur; Ingibjörg Markúsdóttir, sálfræðingur og
Ásta Kr. Ragnarsdóttir, náms- og starfsráðgjafi
Upplýsingar
og bókanir
í síma 561 2428