Morgunblaðið - 18.03.2001, Qupperneq 58
FÓLK Í FRÉTTUM
58 SUNNUDAGUR 18. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ
kvikmyndagerð og leiklist
spennandi nám í
Kvikmyndaskóli Íslands býður nú, einn skóla á Íslandi, upp
á raunhæft alhliða og sértækt nám í kvikmyndagerð og tengdum
greinum sjónvarps- og kvikmyndaiðnaðar. Öflugur tækjakostur
og hæfir kennarar og leiðbeinendur gera nemendum skólans
kleift að mynda traustan grunn kunnáttu og færni sem opnar
þeim dyrnar að tækifærum í ört vaxandi heimi myndmiðla og
margmiðlunar. Kvikmyndaskóli Íslands leggur ríka áherslu á
að kenna nemendum ekki eingöngu á nýjustu tækni heldur
einnig að tileinka sér hugmyndafræði og lögmál hinna ýmsu
myndmiðla. Einungis þannig nýtist tæknin sem tæki til að gera
hugmyndir að veruleika.
Kvikmyndagerð
Sjónvarpsþættir, heimildarmyndir, tónlistarmyndbönd, auglýsingar,
margmiðlun, tilraunamyndir.
Kvikmyndataka, klipping, hljóðvinnsla. Námið er 80% verklegt.
Örfá sæti laus í 4 mánaða grunnnám sem hefst 19. mars.
Leiklist
Leiklist 1. Undirstöðuatriði í leiklist. Raddbeiting, framsögn,
líkamstjáning, spuni.
Unnin atriði tekin upp á myndband.
24 tímar. Leiðbeinandi: María Ellingsen, leikkona.
Enn getum við bætt við nokkrum nemendum
í neðantalin námskeið á vorönn:
Skráning og nánari upplýsingar í síma 588 2720
Kvikmyndaskóli Íslands
Skúlagötu 51, 101 Reykjavík
kvikmyndaskoli@kvikmyndaskoli.is
NÝVERIÐ kom út blaðið Maskína,
sem er hugarsmíð Árna Ólafs Helga-
sonar. Blaðið er tileinkað því námi og
möguleikum sem bjóðast við Iðnskól-
ann í Reykjavík, eða eins og Árni
segir sjálfur: „Blaðið kemur við á öll-
um flötum Iðnskólans, bæði hvað
varðar lífið úti á vinnumarkaðinum
að námi loknu, sem og það sem lýtur
að skólanum og náminu sjálfu. Til-
gangurinn með þessu blaði er síðan
að kynna starf skólans og iðnaðinn
fyrir grunnskólanemendum sem eru
að fara að velja sér námsleið í fram-
haldsskóla.“
Blaðið er óvenjuveglegt, eða heilar
84 síður, og inniheldur greinargóðar
umfjallanir um námsgreinar sem í
boði eru við Iðnskólann og sömuleið-
is félagslífið í skólanum. „Ég tek við-
töl við nemendur í hverri deild en svo
skrifa menntafélög eða fræðslumið-
stöðvar um hvert fag fyrir sig. Til
dæmis skrifar Rafiðnaðarsambandið
um rafiðnaðarfög og tölvufyrirtæki
um tölvufræðideildina.“
Varð til í verkfallinu
Árni, sem sjálfur er á tæknibraut,
vill með þessu bæta skort á kynningu
á verknámi fyrir grunnskólanemend-
um: „Þegar ég var sjálfur í 10. bekk
var ekkert blað á við þetta, þar sem
hægt var að fletta í og lesa sér til um
hvað væri í boði, bæði varðandi iðn-
nám sem og annað nám. Sömuleiðis
þekki ég í gegnum Iðnskólann margt
það færasta fólk sem ég hef kynnst í
gegnum tíðina og mér fannst Iðn-
skólinn þurfa á meiri og dýpri um-
fjöllun að halda.“
Blaðið varð til, að segja má óvart, í
kennaraverkfallinu sem reið yfir í
byrjun nóvember: „Ég var of seinn
að sækja um vinnu í verkfallinu og
var með þessa flugu í hausnum og
ákvað að láta verða af þessu. Ég fékk
síðan vel útilátið verkfall til að vinna
blaðið og er óneitanlega ánægður
með útkomuna, enda mikil vinna að
baki, og ómetanleg reynsla sem situr
eftir,“ segir Árni. „Ég vann þó ekki
blaðið hjálparlaust og munaði þar
mest um Unu Stígsdóttur útlitshönn-
uð sem var ómetanleg hjálp. Einnig
var Baldur Gíslason, hinn nýi skóla-
meistari Iðnskólans sem, alveg eins
og ég, hafði ekkert að gera í verkfall-
inu, allur af vilja gerður að hjálpa.“
Holdgervingur iðnnáms
Hugmyndina bakvið nafn blaðsins
segir Árni felast í eðli iðnnámsins:
„Orðið „maskína“ er táknrænt fyrir
iðnnám. Þetta er gamalt og grípandi
orð sem er nokkuð flott og ef skoðuð
er hver deild Iðnskólans fyrir sig
sést að alls staðar eru notaðar mask-
ínur.“
Maskína er prentað í 6.000 eintök-
um og ætti, að sögn Árna, að hafa
borist öllum 10. bekkingum á Suður-
landi, Reykjanesi og höfuðborgar-
svæðinu, námsfúsum til glöggvunar
á því umfangsmikla og skemmtilega
starfi og námi sem á sér stað innan
veggja Iðnskólans í Reykjavík.
Maskína Iðnskólans
Morgunblaðið/Þorkell
Árni Ólafur Helgason ritstjóri,
og Una Stígsdóttir útlitshönnuð-
ur Maskínu 2001.
Út er komið blaðið Maskína um Iðnskólann í Reykjavík
Forsíða fyrsta tölublaðs
Iðnskólablaðsins Maskínu.
Taska
aðeins 1.800 kr.
NETVERSLUN Á mbl.is