Morgunblaðið - 21.03.2001, Page 16
AKUREYRI
16 MIÐVIKUDAGUR 21. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Blaðbera
vantar
• Skerjafjörður
Upplýsingar fást í síma
569 1122
Hjá Morgunblaðinu starfa um 600 blaðberar á
höfuðborgarsvæðinu
í Huldugil
og Teigahverfi
•
Blaðburður verður að hefjast um
leið og blaðið kemur í bæinn.
Góður gö gutúr sem borgar sig!
Morgunblaðið, Kaupvangsstræti 1, Akureyri. Sími 461 1600
LEIKSKÓLINN Holtakot á Akur-
eyri átti 10 ára afmæli sl. sunnudag
og af því tilefni var efnt til afmæl-
isveislu í skólanum sl. föstudag.
Starfsfólk, börnin og foreldrar
þeirra gerðu sér dagamun í tilefni
tímamótanna og var boðið í afmæl-
iskaffi með tertum og öðru góð-
gæti. Holtakot er blandaður leik-
skóli en þar er rými fyrir 32 börn.
Ásta Reynisdóttir, leiðbeinandi á Holtakoti, sker væna sneið af afmælis-
kökunni handa Steinari Gauta.
Morgunblaðið/Kristján
Guðbjörg og Helga Nína fá sér afmæliskaffi á Holtakoti.
Holtakot
10 ára
ÁTTA tilboð bárust í innréttingu
5. hæðar Heilsugæslustöðvarinnar
á Akureyri, sem opnuð voru hjá
Ríkiskaupum í gær. Tilboðin voru
öll yfir kostnaðaráætlun, sem
hljóðaði upp á rúmar 27,5 milljónir
króna.
Trétak ehf. átti lægsta tilboðið í
verkið, rúmar 28,3 milljónir króna,
eða tæplega 103% af kostnaðar-
áætlun. Hagleiksmenn ehf. bauð
rúmar 28,5 milljónir króna, eða
tæplega 104% af kostnaðaráætlun
og Trésmiðja Ásgríms Magnússon-
ar bauð rúmar 29,8 milljónir
króna, eða rúmlega 108% af kostn-
aðaráætlun. Hæsta tilboðið kom
frá Raftó ehf., rúmar 33,5 milljónir
króna eða um 122% af kostnaðar-
áætlun. Samkvæmt útboði skal
verkinu að fullu lokið 1. ágúst
næst komandi.
Jón Ásbjörnsson hjá Ríkiskaup-
um sagði að það kæmi í sér ekki á
óvart að tilboðin væru öll yfir
kostnaðaráætlun. Það væri launa-
skrið úti á markaðnum sem mæld-
ist illa í byggingavísitölunni. Jón
sagði það sína tilfinningu að launa-
liðurinn í svona verki væri ástæð-
an fyrir því að tilboðin eru öll yfir
kostnaðaráætlun.
Töluverð þensla er í bygginga-
markaðnum á Akureyri og stór
verk að fara í gang, má þar nefna
viðbyggingar við Amtsbókasafn og
Giljaskóla og framkvæmdir við
fjölnota íþróttahús.
Svipuð staða er uppi á höfuð-
borgarsvæðinu og sagði Jón laun
iðnaðarmanna þar hafa hækkað
mikið og að erfiðlega gangi að fá
iðnaðarmenn til starfa nema að
borga þeim góð laun.
Öll tilboðin yfir
kostnaðaráætlun
Heilsugæslustöðin á Akureyri
HAPPASKÝLIÐ ehf. hefur í Hér-
aðsdómi Norðurlands eystra verið
dæmt til að greiða fyrrverandi
starfsmanni sínum 350 þúsund
krónur auk vaxta frá maí í fyrra
vegna ólögmætrar riftunar á ráðn-
ingarsamningi. Kröfu um miska-
bætur að upphæð 400 þúsund
krónur var vísað frá dómi. Félag-
inu var einnig gert að greiða 180
þúsund krónur í málskostnað.
Konan starfaði hjá fyrirtækinu
sem rak myndbandaleigu í Sunnu-
hlíð á Akureyri en var sagt upp
störfum fyrirvaralaust í maí á síð-
asta ári jafnframt því sem hún var
sökuð um að vera völd að vöru-
þurrð og draga sér fé úr sjóðsvél.
Konan fékk ekki greidd laun fyrir
maímánuð. Í kjölfarið kærðu for-
svarsmenn félagsins konuna til
lögreglu fyrir fjárdrátt. Komu rift-
un vinnusambandsins og kæran
konunni í opna skjöldu og kvaðst
hún ekki kannast við þær sak-
argiftir sem á hana voru bornar.
Sýslumaðurinn á Akureyri felldi
málið niður.
Fram kemur að konan hafi verið
barnshafandi er atburðurinn átti
sér stað og því óheimilt að segja
henni upp störfum eða rifta ráðn-
ingarsamningi bótalaust. Þá hafi
hún aldrei verið áminnt í starfi
sínu.
Forsvarsmenn félagsins kröfðust
sýknu í málinu og töldu sig hafa
fulla heimild til að víkja konunni
úr starfi þar sem hún hefði orðið
uppvís að refsiverðu athæfi. Undir
slíkum kringumstæðum væri ekki
þörf á sérstakri áminningu og þó
að kæra vegna fjárdráttar hefði
verið felld niður lægju fyrir sann-
anir í málinu að mati félagsins.
Dómurinn komst að þeirri nið-
urstöðu að ósannað væri að konan
hefði framið refsiverðan verknað
og féllst hann því á að henni hefði
verið vikið úr starfi með ólögmæt-
um hætti. Konunni voru dæmdar
bætur sem samsvara launum henn-
ar frá hinni ólögmætu riftun og
fram í byrjun ágúst, en hún ól
barn sitt mánuði síðar.
Hvað miskabótakröfu konunnar
varðar er það álit dómsins að sak-
arefni málsins hvað hana varðar
séu svo óljós að henni verði að vísa
frá.
Bætur vegna ólögmætrar
riftunar á ráðningarsamningi
DR. Svend Aage Madsen, yfirsál-
fræðingur á Ríkisspítalanum í
Kaupmannahöfn, heldur fyrirlest-
ur í Háskólanum á Akureyri, Þing-
vallastræti 23, um jafnrétti í sam-
starfi foreldra við fæðingu barns.
Hann verður haldinn á morgun,
fimmtudaginn 22. mars, kl. 16.30.
Svend Aage er aðalfyrirlesari á
málþingi á vegum Jafnréttisstofu
um nýju fæðingar- og foreldraor-
lofslögin sem haldið verður á Ak-
ureyri 23. mars nk.
Svend Aage hefur frá 1996
stjórnað rannsóknaverkefni í Dan-
mörku um tengsl feðra við ung
börn sín. Einnig er hann þátttak-
andi í norræna rannsóknaverkefn-
inu „Kynferði og völd“, en þar
vinnur hann m.a. með Guðrúnu
Agnarsdóttur og neyðarmót-
tökunni á Landspítala að því að
kanna áhrif kynferðis meðferðar-
aðila á upplifun og batahorfur
þeirra sem leita sér aðstoðar
vegna nauðgana.
Fyrirlesturinn er öllum opinn en
hann er haldinn á vegum heil-
brigðisdeildar Háskólans á Akur-
eyri og Jafnréttisstofu.
Jafnrétti í samstarfi for-
eldra við fæðingu barns
UPPLÝSINGATÆKNIDAGUR
verður á Húsavík á morgun, fimmtu-
dag, á Hótel Húsavík. Kynnt verður
skýrsla um nýtingu ljósleiðarakerf-
isins á Húsavík og þá verður und-
irritaður samningur milli heilbrigð-
ishóps Eyþings og heilbrigðis- og
tryggingaráðuneytisins um verkefn-
isstjórn heilbrigðisnets og á milli áð-
urnefnda ráðuneytisins og Heil-
brigðisstofnunar Húsavíkur um
árangursstjórnun. Þá verður af
þessu tilefni fyrsti rafræni lyfseðill-
inn á Íslandi sendur.
Upplýsingatækni-
dagur á Húsavík
LÁRUS H. List, listamaður á
Akureyri, hefur opnað heimasíðu
á Netinu þar sem er að finna
upplýsingar um listamanninn,
myndir af málverkum og ágrip af
fjölmiðlagagnrýni. Þar eru einn-
ig nokkrar myndir úr mynda-
safni Lárusar af samferðamönn-
um hans á listasviðinu.
Þröstur Ásmundsson, formað-
ur menningarmálanefndar Akur-
eyrar, opnaði síðuna formlega.
Slóðin á þennan nýja vef er
http://larushlist.com
Lárus sendi frá sér skáldsög-
una Gátuhjólið árið 1993 og mun
sjónvarpsstöðin Aksjón sýna
þátt nú á laugardag sem tekin er
á söguslóðum hennar. Þar er far-
in svokölluð Listamannaleið í
þjóðgarðinum við Jökulsárgljúf-
ur í Öxarfirði.
Málverk
á heimasíðu
Jarðgerð
heimilis-
úrgangs
tekin upp
SVEITARSTJÓRN Eyjafjarð-
arsveitar hefur samþykkt að
hefja nú þegar undirbúning að
jarðgerð lífræns heimilisúr-
gangs með það að markmiði að
öll heimili í sveitarfélaginu hafi
gerst þátttakendur í því verk-
efni frá og með 1. janúar 2003.
Auglýst verður eftir
sjálfboðaliðum
Í tillögunni sem sveitar-
stjórn samþykkti er gert ráð
fyrir að auglýsa eftir sjálfboða-
liðum á þessu ári til að taka
þátt í tilraunaverkefni á þessu
sviði og að því stefnt að á
næsta ári stundi allt að helm-
ingur heimila jarðgerð á líf-
rænum úrgangi. Þá var sveit-
arstjóra falið að taka upp
samstarf við Sorpeyðingu
Eyjafjarðar b.s. um skipulag
og framkvæmd þessa verkefnis
og standa fyrir kynningu á því
til íbúanna. Samhliða þessu
verkefni verði skipulag annarr-
ar sorphirðu tekið til endur-
skoðunar.
Eyjafjarðarsveit