Morgunblaðið - 07.04.2001, Blaðsíða 17
Sækja ber um skólavist við Viðskipta-
háskólann með persónulegu bréfi til
rektors. Í umsókninni eiga meðal
annars að koma fram ástæður fyrir
umsókninni og upplýsingar um
fjölskylduhagi, fyrri skólagöngu, störf
og áhugamál.
Umsóknin skal samanstanda af:
• Umsóknareyðublaði
• Persónulegu bréfi
• Afriti prófskírteina
• Skriflegum meðmælum tveggja
einstaklinga
• Starfsferilsskrá
Afgreiðsla umsókna hefst 15. maí og
lýkur 15. júní. Þeir sem hyggja á nám
við háskólann eru hvattir til að sækja
um fyrir 15. maí nk. Allar nánari
upplýsingar og umsóknareyðublað eru
á vef Viðskiptaháskólans www.bifrost.is
Viðskiptaháskólinn Bifröst 311 Borgarnes Sími 433 3000 Fax 433 3001 bifrost@bifrost.is www.bifrost.is
Viðskiptaháskólinn býður upp á 30
eininga fjarnám til BS gráðu í
viðskiptafræði fyrir þá sem hafa lokið
60 einingum í viðskipta- eða
rekstrarfræðum frá íslenskum eða
erlendum háskólum. Námið er
sambærilegt við þriðja árið í
viðskiptadeild og er skipulagt sem
hlutanám á hálfum hraða miðað við
reglulegt nám. Kennsla fer að mestu
fram á Netinu, þar sem nemendur
hlusta á fyrirlestra, spyrja spurninga,
sækja gögn og skila verkefnum. Tvær
til þrjár helgar á hverju misseri koma
allir fjarnámsnemendur saman til
verkefna- og hópvinnu.
Frumgreinadeild veitir eins árs
sérhæfðan undirbúning fyrir há-
skólanám á Bifröst.
Deildin er ætluð þeim sem ekki fullnægja
inntökuskilyrðum um stúdentspróf og
öðrum þeim sem vilja styrkja umsókn
sína um nám á Bifröst með eins árs
undirbúningi í grunnfögum. Þeir
nemendur sem ljúka fullu námi í
deildinni að vori eiga rétt á plássi í
háskóladeildum Viðskiptaháskólans
næsta haust. Lögð er áhersla á kennslu
í grunnfögum eins og íslensku, ensku,
stærðfræði, hagfræði, lögfræði, bókhaldi
og upplýsingatækni.
Lögfræðideild býður upp á nám til
BS gráðu í viðskiptalögfræði. Um
er að ræða þriggja ára nám sem
samþættir fjármál, viðskipti og
lögfræði með það að markmiði að
mennta stjórnendur með sér-
þekkingu á lagalegum þáttum
viðskipta og rekstrar fyrir atvinnulíf
og samfélag.
Kennslufyrirkomulag er með sama
sniði og í Viðskiptadeild. Lögfræði-
legur hluti námsins felur í sér þau
réttarsvið er lúta almennt að rekstri
fyrirtækja, rekstrarformi og rekstrar-
umhverfi í víðu samhengi. Sérstök
áhersla er lögð á fjármálamarkaðinn
og alþjóðleg viðskipti. Viðskipta-
fræðilegi hlutinn tekur á grunn-
þáttum hagfræði, stjórnunar og
reikningshalds auk sérstakrar áherslu
á fjármál og alþjóðaviðskipti. Auk
áfanga á sviði lögfræði og viðskipta
er leitast við að samþætta þessi svið
í blönduðum framhaldsnámskeiðum
en einnig eru kennd grunnfög á
sviði stærðfræði, upplýsingatækni,
rannsóknaraðferða og samskipta.
Gert er ráð fyrir því að síðasta árið
sé að mestu kennt á ensku og að
mögulegt verði á að taka það að hluta
til erlendis.
Að námi loknu geta nemendur sótt
framhaldsnám til mastersgráðu á sviði
viðskiptalögfræði (cand. merc. jur)
og viðskiptafræða (cand merc.) í
Skandinavíu eða MBA eða masters-
gráðu í viðskiptum og lögum frá
Bretlandi eða Bandaríkjunum.
Viðskiptalögfræði er víða kennd við
erlenda viðskiptaháskóla við mikla
aðsókn og þykir hafa gefist vel. Má
sem dæmi nefna Viðskiptaháskólann
í Kaupmannahöfn sem útskrifar fólk
með B.Sc. gráðu í stjórnun og
viðskiptalögfræði eftir þriggja ára
nám. Það nám nýtur mikilla vinsælda
og er vel metið af dönskum
fyrirtækjum og atvinnulífi.
Miðað við reynslu erlendis má gera
ráð fyrir að útskrifaðir nemendur
starfi sem viðskiptalögfræðingar og
stjórnendur, t.d. hjá fjármála-
fyrirtækjum, upplýsingatækni-
fyrirtækjum og fyrirtækjum er vinna
á alþjóðlegum mörkuðum.
Viðskiptadeild býður upp á þriggja
ára nám til BS gráðu í viðskipta-
fræði en einnig er hægt að ljúka
námi eftir 2 ár með diplómagráðu
í rekstrarfræði. Í Viðskiptadeild eru
öll helstu svið stjórnunar, rekstrar
og viðskipta kennd. Námið er
alhliða viðskiptanám sem ætlað er
að búa nemendur undir ábyrgðar-,
forystu- og stjórnunarstörf í innlendu
og alþjóðlegu samkeppnisumhverfi.
Lögð er áhersla á hópstarf og
verkefnavinnu í nánum tengslum
við fyrirtæki og stofnanir. Fjölbreytt
viðfangsefni, umræður og samstarf
nemenda og kennara tryggir nem-
endum fyrsta flokks undirbúning
fyrir ábyrgðarstöður í íslensku
atvinnulífi.
Fyrstu tvö árin mynda eina heild
og fylgjast nemendur á 1. og 2. ári
að í náminu. Þriðja árið er sjálfstætt
framhald af fyrstu tveimur árunum
og er hluti þess kenndur á ensku.
Nemendum á þriðja ári stendur til
boða að ljúka hluta af náminu við
erlenda háskóla. Einnig er hægt að
taka þriðja árið í fjarnámi. Þeir sem
hafa lokið 60 eininga rekstrar- eða
viðskiptanámi frá íslenskum eða
erlendum háskólum, geta sótt um
að komast beint í staðnám á þriðja
ári (30 einingar) til BS gráðu í
viðskiptafræði.
FRUMGREINADEILD
FJARNÁM
VIÐSKIPTADEILD
UMSÓKNIR
NÁM Á BIFRÖST
LÖGFRÆÐIDEILD
Nánari upplýsingar og umsóknareyðublað á bifrost.is
Viðskiptaháskólinn á Bifröst er eini
háskóli landsins sem sérhæfir sig
eingöngu í viðskiptamenntun. Hlut-
verk hans er að búa nemendur undir
ábyrgðar-, forystu- og stjórnunarstörf
í innlendu og alþjóðlegu samkeppnis-
umhverfi. Viðskiptaháskólinn vill veita
hæfum einstaklingum sem búa yfir
sköpunargleði, frumkvæði og samskipta-
hæfni tækifæri til að beina kröftum
sínum og hæfileikum á svið viðskipta
og rekstrar.
Árlega velur háskólinn nemendur úr
stórum hópi umsækjenda. Við inntöku
leitast háskólinn við að veita jöfn
tækifæri til náms, óháð kynferði, aldri,
efnahag, fötlun eða búsetu og skapa
þannig fjölbreyttan hóp nemenda með
ólíkan bakgrunn, menntun og reynslu.
Viðskiptaháskólinn á Bifröst stefnir að
því að skapa nemendum sínum
samkeppnisyfirburði á vinnumarkaði
að námi loknu. Skólinn hefur
frumkvæði að nýjungum í kennslu-
háttum með tæknivæðingu og skipulagi
sem hentar hraða samtímans. Óháður
háskóli með takmarkaðan fjölda
nemenda býr yfir sveigjanleika til þess
að takast á við breytingar í alþjóðlegu
samfélagi og getur veitt hverjum
nemanda persónulegri þjónustu og betri
aðstöðu til náms og þroska.
Á Bifröst njóta menn nálægðar við fagurt
umhverfi og stöðugrar tengingar við
umheiminn með fullkomnustu tækni
sem völ er á. Þessi blanda gerir námið
á Bifröst að einstakri lífsreynslu sem býr
nemendur undir nám og störf á nýrri
öld.
Starfsfólk Viðskiptaháskólans á Bifröst
hvetur fólk til að kynna sér nánar
starfsemi háskólans á vef hans,
www.bifrost.is, senda fyrirspurnir á
netfangið bifrost@bifrost.is eða
heimsækja háskólaþorpið Bifröst.