Morgunblaðið - 07.04.2001, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 07.04.2001, Qupperneq 20
LANDIÐ 20 LAUGARDAGUR 7. APRÍL 2001 MORGUNBLAÐIÐ Egilsstöðum - Námskeið fyrir hreindýraeftirlitsmenn var haldið á Egilsstöðum um helgina. Það skiptist í tvo hluta; fyrri daginn mættu 38 nýliðar og seinni dag- inn bættust í hópinn 52 eftirlits- menn að sækja sér endur- menntun. Áki Ármann Jónsson veiðistjóri sagði námsefnið afar fjölbreytt. Það fæli m.a. í sér allt um hrein- dýr, þ.e.a.s. sögu, innflutning, vistfræði og lög og reglur um hreindýraveiðar. Þá eru kenndar almennar reglur um leiðsögn og veiðisiðfræði. Gefin hefur verið út yfirgripsmikil handbók með námsefninu á vegum hrein- dýraráðs og Veiðistjóraembætt- isins. Kennarar á námskeiðinu voru 10 talsins, þ. á m. Norð- maður og Svíi, sem komu frá sænska vopnafyrirtækinu Norma. Áki sagði langt síðan námskeið fyrir leiðsögumenn var haldið síðast, eða ekki síðan 1992, en að stefnt væri að því að halda nám- skeið á fjögurra ára fresti. Þátt- takendur að þessu sinni sagði hann flesta hafa verið úr Austur- landsfjórðungi og voru þeir allir karlar. Í lok námskeiðsins var prófað úr námsefninu og að auki lagt fyrir menn staðþekkingarpróf um það svæði sem ætlunin er að sinna eftirliti á hjá hverjum og einum, en fjórðungnum er skipt niður í sérstök veiðisvæði. Til að ná prófi þurftu menn að hafa 70% rétt af svörum. Þá var próf í skotfimi á skotsvæði Skotfélags Austurlands á Þrándarstöðum. Umhverfisráðherra, Siv Frið- leifsdóttir, lauk námskeiðinu formlega á laugardag. Eftir langt og strangt próf og skotfimi frétt- ist af glaðbeittum hreindýraeft- irlitsmönnum og ráðherranum á dynjandi harmónikkuballi í Vala- skjálf og var þá mikið um dýrðir. Námskeiðið var haldið af hrein- dýraráði, í samstarfi við Veiði- stjóraembættið og Náttúrustofu Austurlands. Fræðslunet Austur- lands sá um alla framkvæmd. Fjölmenn sveit hreindýraeftir- litsmanna Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir Um 90 þátttakendur voru á námskeiði fyrir hreindýraeftirlitsmenn á Egilsstöðum um helgina. Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir Kjálkar úr törfum, kúm og kálf- um lágu frammi til skoðunar. Rauðhetta kynnist litlu gulu hænunni Grindavík - Árshátíð Grunnskóla Grindavíkur var haldin nú á dög- unum. Árshátíðin er reyndar tví- skipt en árshátíð 1.–4. bekkjar verður haldin síðar. Þarna voru það nemendur í 5.–10. bekk sem lögðu sig fram um að gera árshá- tíðina sem glæsilegast úr garði í nýjum sal skólans. Það stóð reynd- ar glöggt að næðist að klára að setja upp ljóskastara, hátalara og annað tilheyrandi, en allt tókst það áður en árshátíðardagurinn rann upp. Frábær leikatriði Óhætt er að segja að leikatriðin sem boðið var upp á hjá 5.–7. bekk hafi verið frábær og greinilegt á atriðunum að mikil vinna lá að baki. Fimmti bekkur G bauð upp á tvo leikþætti, m.a. blöndu úr nokkrum sögum sem hét „Rauð- hetta og úlfurinn, amman, kenn- arinn og litla gula hænan“. Þetta var ansi skemmtilegur kokteill og svo hægt sé að varpa einhverju ljósi á hvað gerðist þá hét Rauð- hetta sínu nafni vegna þess að hún fékk rauðu hundana og hettusótt í sama mánuðinum. Amman var að mati úlfsins fullseig þegar hann snæddi hana. Þá þvældist litla gula hænan inn í söguna ásamt fleirum. Fleiri atriði voru þarna, m.a. Viltu vinna 1000, ævintýri þar sem blandað var saman hinum ýmsu sögum, Síldin kemur og síldin fer, Spegill, spegill, atriði úr Rocky Horror, leiknir brandarar og fleira. Unglingarnir í 8.–10. bekk buðu upp á stórt leikrit sem tókst frá- bærlega í öruggri leikstjórn þeirra Boga Hallgrímssonar og Brynjars Þorsteinssonar. Þetta var leikritið „Dagbókin hans Dadda“. Um kvöldið var síðan ball með hljómsveitinni „Í svörtum fötum“ sem hélt uppi miklu fjöri fram á nótt í Festi. Árshátíð Grunnskóla Grindavíkur Egilsstöðum - Fyrir nokkru var formlega opnuð í Héraðsskjalasafni Austurlands svokölluð Sigmarsstofa. Í samtali við Arndísi Þorvaldsdóttur, starfsmann safnsins og umsjónar- mann Ljósmyndasafns Austurlands, sagði hún að um væri að ræða lítið af- drep sem ætlað er þeim er leggja stund á ættfræði. „Stofan ber nafn Sigmars Magnússonar bónda í Döl- um í Fáskrúðsfirði en hann lést fyrir rúmu ári. Sigmar ánafnaði Héraðs- skjalasafninu bókasafn sitt og ýmis ættfræðihandrit og einnig tölvu sem geymir töluvert af ættfræði,“ sagði Arndís. Sigmar gekk á Bændaskólann á Hvanneyri og tók að því búnu við búi á föðurleifð sinni í Dölum. Hans starfsævi var að vera bóndi en alla tíð stundaði hann einnig fræðistörf og eftir því sem leið á ævina mun hann hafa hneigst meira að ættfræði. Sig- mar vann mikið í ættum á Suður- fjörðum og skrifaði drög að byggða- sögu Fáskrúðsfjarðar, einkum um upphaf Búðakauptúns. Hann kom þessum upplýsingum á tölvutækt form sem gerir þær einkar aðgengi- legar. Í bókagjöfinni er mikið um niðjatöl og stéttatöl. Þá eru einnig íslenskar ævisögur og skáldsögur í safninu. „Það má segja hér til gamans,“ sagði Arndís, „að þegar ég var að sækja bókagjöfina í Dali og ganga frá henni til flutnings kom þarna upp bók sem var dálítið á öðru sviði en allar hinar. Þetta var saga ungrar stúlku sem hafði lent í hremmingum eiturlyfja. Ég minntist eitthvað á þetta við syst- ur Sigmars sem var þarna stödd, að bókin sé nú dálítið frávik frá hans bókmenntasmekk. Þá var mér tjáð að Sigmar hefði sagt frá því að það hefði komið svo dæmalaust ljúf og góð stúlka að selja bókina og hann hefði ekki getað annað en keypt af henni. Þannig held ég að þessi maður hafi verið. Mikið ljúfmenni, hægur og ró- legur, en líka kankvís og skemmti- legur. Vill sjá fleira fólk á safninu Arndís var spurð að því hvers virði bókagjöf á borð við þessa er Héraðs- kjalasafninu og sagði hún slíkar gjaf- ir ómetanlegar. „Ég vildi þó sjá miklu fleira fólk hér á safninu til að nýta sér þessar bækur. Hér er aðstaða til þess að skoða mjög mikið í ættfræði og al- mennt í fræðistörfum. Hjá okkur eru geymd skjöl og bækur sem varða sveitarfélögin, mikið er hér af bréfa- söfnum og bókum um þjóðleg íslensk efni auk austfirskra blaða frá fyrstu tíð og gífurlega góðs tímaritasafns. Það hefur sagt mér Laufey Eiríks- dóttir bókasafnsfræðingur, sem vel er kunnug í Þjóðarbókhlöðunni, að hér sé eitt albesta og heildstæðasta tímaritasafn sem hún hefur séð. Þá má geta þess að meirihluti gagna Héraðsskjalasafnsins er tölvuskráð- ur og því mjög aðgengilegur. Arndís hefur m.a. unnið að því að bera kennsl á fólk á miklum fjölda gamalla ljósmynda og hafa 7.000 myndir nú verið skráðar í gagna- grunn. Hún segir ljósmyndasafnið byggjast á því að fólk vilji láta þangað myndir. „Ég vil að fólk komi og kynn- ist því hvernig við förum með þessar gömlu ljósmyndir og hvað við gerum við þær, þannig að þeir sem vilja láta hingað myndir átti sig á því hvernig varðveislan er. Kynslóðir koma og fara og oft er það svo að enginn veit hvað á eiginlega að gera við mynda- safnið hennar langömmu. Ég get ekki nógsamlega brýnt fyrir fólki að merkja myndir. Ekki láta það gerast að fólk hverfi héðan úr heimi og skilji eftir sig ómerktar myndir. Þarna er um að ræða menningararf sem þarf að varðveita sagði Arndís að lokum. Forstöðumaður Héraðsskjalasafn Austurlands er Hrafnkell A. Jónsson. Sigmarsstofa Magnússonar opnuð í Héraðsskjalasafni Austurlands Aðstaða fyrir ættfræðigrúskara Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir Arndís Þorvaldsdóttir, starfsmaður Héraðsskjalasafns Austurlands. Þangað koma þeir er unna austfirskum fræðum. Laxamýri - Ekki sjást víða belt- óttir holdakálfar í fjósum nú orð- ið eftir að aberdeen angus- og limousin-holdakynin komu í al- menna notkun hjá bændum en þau kyn hafa verið valin fram yf- ir galloway-kynið. Beltótt er eitt af litaafbrigðum galloway, en mun minna er af þeim gripum í landinu miðað við það sem áður var. Gripir þessir eru svartir með hvítan hring um sig miðja og þykja mjög fallegir. Fáir einbeita sér að ræktun galloway, en í Ár- bót í Aðaldal er næstum ein- göngu galloway-stofn. Að sögn Hákonar Gunnarssonar bónda hefur hann snúið sér að ræktun beltóttra holdagripa og segir þá gæfa og meðfærilega. Nú stendur yfir burður hjá kúnum í Árbót en Hákon hefur fengið fjölda beltóttra kálfa sem ganga sjálfir undir holdakúnum og er víða líf og fjör í stíunum. Beltóttum holda- gripum fer fækkandi Morgunblaðið/Atli Vigfússon Nýfædd beltótt kvíga í fjósinu í Árbót.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.