Morgunblaðið - 07.04.2001, Blaðsíða 26
VIÐSKIPTI
26 LAUGARDAGUR 7. APRÍL 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Klapparstíg 40
Sími 552 7977.
Handmálaðir
grískir íkonar
Falleg
fermingargjöf
GJALDEYRISFORÐI Seðlabank-
ans jókst um 1,4 milljarða króna í
mars og nam 36 milljörðum króna í
lok mánaðarins, sem er jafnvirði 395
milljóna Bandaríkjadala á gengi í
mánaðarlok. Gengi íslensku krónunn-
ar, mælt með vísitölu gengisskrán-
ingar, veiktist í mánuðinum um 2,8%.
Í frétt frá Seðlabankanum kemur
fram að bankinn seldi gjaldeyri á
millibankamarkaði fyrir 6,8 milljarða
króna í mars. Erlend skammtímalán
bankans jukust um 7,9 milljarða
króna í mánuðinum og námu 28,8
milljörðum króna í lok hans.
Markaðsskráð verðbréf í eigu
bankans námu 4,8 milljörðum króna í
marslok miðað við markaðsverð,
drógust saman um um 1,4 milljarða
króna í mánuðinum. Markaðsskráð
verðbréf ríkissjóðs í eigu bankans
námu 2 milljörðum króna.
Kröfur Seðlabankans á innláns-
stofnanir hækkuðu um 3,3 milljarða
króna í mars og námu 41,2 milljörð-
um króna í lok mánaðarins. Kröfur á
aðrar fjármálastofnanir jukust einnig
í mánuðinum um 1,8 milljarða króna
og voru 20,4 milljarðar króna í lok
mánaðarins. Nettókröfur bankans á
ríkissjóð og ríkisstofnanir lækkuðu
um 0,3 milljarða króna í mars og voru
neikvæðar um 13,6 milljarða króna í
lok mánaðarins, þ.e. nettóinnstæður
ríkissjóðs námu 13,6 milljörðum
króna.
Grunnfé bankans dróst saman um
1,5 milljarða króna í marsmánuði og
nam 26,4 milljörðum króna í lok hans.
Gjaldeyrisforð-
inn jókst um 1,4
milljarða í mars
TAP af rekstri Íslandspóst á síðasta
ári nam 18 milljónum króna. Í frétta-
tilkynningu frá fyrirtækinu segir að
veruleg batamerki séu á grunn-
rekstri fyrirtækisins og að framlegð
fyrir fjármagnsliði hefði batnað á
síðasta ári eins og undanfarin ár.
Ástæðuna fyrir tapi í rekstri á síð-
asta ári megi m.a. rekja til þess að
jaðartekjur hafi dregist saman um
200 milljónir króna. Muni þar mestu
um að Landssíminn hefði að veru-
legu leyti dregið viðskipti sín út úr
pósthúsum. Þá hafi afkoma fjár-
magnsliða verið 113 milljónum króna
lakari en á árinu 1999.
Stefnt að hagnaði á næstu árum
Í tilkynningu Íslandspóst segir að
stefnt sé að því markmiði að ná
hagnaði á næstu árum. Fyrirséð sé
að herða þurfi róðurinn til þess að
það náist. Samkeppni eigi eftir að
aukast og upplýsingatæknin sé stöð-
ugt að leysa bréfasamskipti af hólmi.
Til að mæta þessu hafi mikil stefnu-
mótunarvinna farið fram innan Ís-
landspósts ásamt hagræðingu í
rekstri og sókn inn á nýja markaði.
Góður árangur hafi náðst á böggla-
markaði og áhersla verið lögð á að
efla vitund markaðsfólks um auglýs-
ingapóst.
Höfuðáhersla á að þjónustan
skerðist ekki
Íslandspóstur hefur samkvæmt
tilkynningunni endurskilgreint þá
þjónustu sem veitt er á pósthúsum.
Dregið hafi verið úr starfsmanna-
haldi og yfirbyggingu og unnið sé
markvisst að uppbyggingu póstaf-
greiðslna í samstarfi við önnur þjón-
ustufyrirtæki. Sömu þróunar gæti
hjá póstfyrirtækjum á öðrum Norð-
urlöndum. Miðað við heildarafkomu
Íslandspósts og horfur í rekstri sé
ljóst að halda þurfi áfram á sömu
braut. Höfuðáhersla sé lögð á að
þjónustan skerðist ekki með þessum
breytingum.
Stjórn Íslandspósts var endur-
kjörin á aðalfundi fyrirtækisins í
gær. Í stjórn sitja Björn Jósef Arn-
viðarson, stjórnarformaður, Ólafur
Sigurðsson, varaformaður, Elías
Jónatansson, ritari, Ellert Kristins-
son, Guðmundur Oddsson, Lilja
Rafney Magnúsdóttir og Ísólfur
Gylfi Pálmason.
Batamerki hjá
Íslandspósti
HJÁ norska tryggingafélaginu
Storebrand hefur verið tekin sú
ákvörðun að hreinsað skuli til í
hlutabréfasafni líftryggingahluta
fyrirtækisins af siðferðilegum
ástæðum, að því er greint er frá í
Aftenposten. Líftryggingadeild
Storebrand mun draga sig út úr öll-
um fjárfestingum í fyrirtækjum í
tóbaksiðnaði og óumhverfisvænum
iðnaði, fyrirtækjum sem framleiða
hluti sem notaðir eru í jarðsprengj-
ur og fyrirtækjum sem brjóta
mannréttindi á einhvern hátt. Að
mati forsvarsmanna Storebrand er
á þennan hátt komið til móts við
óskir viðskiptavina fyrirtækisins
sem fram komu í könnun sem gerð
var meðal þeirra nýlega. Líftrygg-
ingadeild Storebrand á hlutabréf í
600 fyrirtækjum um allan heim og
er samanlagt markaðsverðmæti
bréfanna um 300 milljarðar ís-
lenskra króna. Þegar hafa hlutabréf
í nokkrum tóbaksfyrirtækjum verið
seld og verið er að gera ráðstafanir
til að selja hluta fyrirtækisins.
Þessar ráðstafanir felast m.a. í því
að senda út spurningalista til fyr-
irtækjanna og safna upplýsingum
um ákveðin fyrirtæki frá mannrétt-
inda- og umhverfisverndarsamtök-
um.
Norðmenn sem neytendur gera
almennt miklar kröfur til fyrir-
tækja varðandi umhverfismál og
mannréttindi en sem fjárfestar hafa
þeir ekki verið eins vakandi þótt
könnun Storebrand og ákvörðun
fyrirtækisins nú virðist marka upp-
hafið að þeirri vakningu. Nýlega
var bent á að fé úr olíusjóði ríkisins
hefði verið fest í fyrirtækjum sem
starfa á ofangreindum sviðum og
slíkt sæmdi ekki norska ríkinu.
Svein Gjedrem seðlabankastjóri
segir að ómögulegt sé að komast að
því hvaða fyrirtæki uppfylli ákveðn-
ar kröfur og hver ekki þar sem þau
séu öll meira og minna tengd. Fjár-
festingarstefna olíusjóðsins hefur
því ekki verið endurskoðuð og fé er
enn lagt í tóbaksfyrirtæki og fyr-
irtæki í efnaiðnaði. Það sem meira
er, verðbréfafyrirtæki Storebrand
sér um fjárfestingar olíusjóðsins
samkvæmt umboði frá norska rík-
inu og þar hefur stefnubreyting líf-
tryggingarhluta Storebrand ekkert
að segja.
Hreinsað til hjá Storebrand
Ósló. Morgunblaðið.