Morgunblaðið - 07.04.2001, Side 33

Morgunblaðið - 07.04.2001, Side 33
ERLENT MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. APRÍL 2001 33 LISTIR þriðja tug sýninga á 17 árum. Erlenda orðið „nostalgía“ er þýtt í orðabók einni sem „(ljúfsár) söknuður eftir liðinni tíð“. Þessi tilfinning ein- kennir margar sýningar leikfélagsins en þó hvergi meira áberandi en ein- mitt í ár. Flest hugleikritanna byggja á atriðum úr þjóðararfinum sem höf- undarnir skemmta sér við að draga sundur og saman í háði. Á þessu ári líta hugleikarar sér nær og byggja grínið á samanburði á tveimur nýliðn- um tímabilum, annars vegar fortíð þar sem gildi þau er ríktu á embættis- mannaheimilum í upphafi tuttugustu aldar eru höfð í heiðri og hins vegar einhvers konar nútíma sem felur í sér ákveðin fyrirbæri sem tilheyra árþús- undamótaárunum en einnig önnur sem höfundarnir minnast úr æsku sinni á sjötta og sjöunda áratugnum. Nostalgían er ríkjandi í atriðum tengdum minningum þeirrar kynslóð- ar sem er að hverfa en verður enn meira sláandi þegar fram koma atriði sem eru fólki sem nú er á miðjum aldri í fersku minni. Ótalmargt í íslenskri kaupstaða- menningu á rætur sínar að rekja til danskra fyrirmynda. Það er ósenni- legt að þeir sem leggja stund á svína- kjötsát, brúnaðra kartaflna og brúnn- ar sósu geri sér grein fyrir hve mikið við höfum þegið af nýlenduherrunum í þessu tilliti. Hversdagsmatarvenj- urnar eru aftur á móti af þjóðlegri rótum runnar. Þegar systurnar í leik- ritinu salta, sulta og taka slátur – þessi dæmigerðu haustverk á hverju myndarheimili – tvinna þær saman þessa tvo þætti íslenskrar matar- menningar. Samspil þessara tveggja þátta gegnsýrir leikritið allt – enda minnisstætt að þegar ein systranna fær að forframast í útlöndum fer hún auðvitað til Kaupmannahafnar. Sýningin er fyrst og fremst óður til horfinna lífshátta og -gilda og margir áhorfenda geta án efa rifjað upp minningar þeim tengdar á meðan þeir njóta skemmtilegrar fléttunnar og kímninnar sem fólgin er í aðstæðun- um og tilsvörunum. Þessi ótrúlega blanda af nútíð og fortíð skapar sinn eigin heim þar sem allt getur gerst og ætt er fram og til baka í tíð og tíma – eftirminnilegt er atriðið sem gæti hafa gerst í framtíðinni en farsæll endir kemur í veg fyrir að verði nokk- urn tíma. Ef allt er talið saman, jafnt þeir sem koma beint að sýningunni og taldir eru upp hér að ofan sem þeir sem sjá um miðasölu, leikskrá, al- mannatengsl og stjórnun leikfélags- ins eru aðstandendur þessarar sýn- ingar sennilega vel á fimmta tug, sumir sem starfað hafa með leikfélag- inu frá upphafi og aðrir sem hefja störf með þessari sýningu. Hér vakir ekki fyrir fólki að skila af sér ein- stæðu listaverki heldur að allir geti verið með og allir hafi gaman af. Og ekki má gleyma áhorfendum – þeim er boðið að hrífast með í hinum hugleikska veruleika og fá tækifæri til að tileinka sér hinn tæra einfald- leika sem sýningar leikfélagsins boða. LEIKFÉLAGIÐ Hugleikur, áhugamannaleikfélag höfuðborgar- innar, hefur fyrir löngu skapað sér ákveðinn sess í leiklistarlífinu. Þar sem framboð á atvinnuleiksýningum hefur á 17 ára líftíma Hugleiks verið töluvert, sumir myndu kannski segja yfrið nóg, hefur aldrei vakað fyrir meðlimum Hugleiks að keppa við rík- isstyrkt stórveldin heldur fyrst og fremst að skemmta sér og öðrum með því að nýta sköpunarkraftinn sem býr í hverjum og einum. Eftir að hafa á upphafsárunum snúið út úr Skugga- Sveini (Skuggabjörg) og Gullna hlið- inu (Sálir Jónanna) hefur Hugleikur einbeitt sér að sýningu frumsaminna verka í „hugleikskum“ anda þar sem bókmenntaarfur þjóðarinnar verður oft og tíðum fyrir barðinu á ímynd- unarafli höfundanna. Sýningarnar eru gjarnan eftir hóp höfunda, en einnig hefur komið fyrir að fjölmörg- um stuttum einþáttungum eftir ýmsa höfunda í hópnum hefur verið safnað í eina sýningu. Hópurinn hefur því ekki bara myndað leikfélag heldur líka höfundarsmiðju þar sem hinir og þessir meðlimir hafa ár hvert ákveðið að semja styttri eða lengri verk í ein- rúmi eða fleiri saman. Samtals hafa hugleiksmenn og -konur sett upp á LEIKLIST H u g l e i k u r í T j a r n a r b í ó i Höfundar: Hjördís Hjartardóttir, Ingibjörg Hjartardóttir og Sigrún Óskarsdóttir. Leikstjóri: Sigrún Valbergsdóttir. Aðstoðarleikstjóri: Halla Rún Tryggvadóttir. Leikmynd og leikmunir: Fríða Bonnie And- ersen, Halla Rún Tryggvadóttir, Hanna Kr. Hallgrímsdóttir, Jón Örn Bergsson, V. Kári Heiðdal og Þor- geir Tryggvason. Búningar: Ásta Gísladóttir, Guðrún Ögmundsdóttir og Sigríður Lára Sigurjónsdóttir. Förðun og hár: Elsa Dóra Grét- arsdóttir, Guðrún Ögmundsdóttir, Sigríður Lára Sigurjónsdóttir og Vilborg Valgarðsdóttir. Hvíslarar: Ella Kristín Karlsdóttir, María Kristjánsdóttir og Ylfa Mist Helga- dóttir. Lýsing: Gunnar Gunnarsson og V. Kári Heiðdal. Hljóðmynd: Þór- unn Guðmundsdóttir. Hljómsveitin Dr. Tóta og alþýðulistamennirnir: Bára Sigurjónsdóttir, Þormóður Dagsson og Þórunn Guðmunds- dóttir. Leikendur: Ásta Gísladóttir, Axel Björnsson, Björn Thorarensen, Einar Þór Einarsson, Elsa Dóra Grétarsdóttir, Fríða Bonnie And- ersen, Gunnar Gunnarsson, Hafdís Hansdóttir, Helga Sveinsdóttir, Hrefna Friðriksdóttir, Jóhann Hauksson, Jóhann Davíð Snorrason, Jónína Björgvinsdóttir, María Rún- arsdóttir, Sesselja Traustadóttir, Sigríður Helgadóttir, Sigríður Lára Sigurjónsdóttir, Sigrún Péturs- dóttir, Sigurborg Hjaltadóttir og V. Kári Heiðdal. Laugardagur 31. mars. VÍST VAR INGJALDUR Á RAUÐUM SKÓM Í leit að liðn- um tíma Sveinn Haraldsson Í GRAFARVOGSKIRKJU lýkur kristnihátíð með tónleikum í dag, laugardag, kl. 17. Þar koma fram tónlistarmennirnir Gunnar Gunn- arsson organisti og Sigurður Flosason saxafónleikari og flytja sálma á nýrri öld. Þá syngja kórar Bústaðakirkju, Fella- og Hóla- kirkju, Krakkakór og Barna- og unglingakór Grafarvogskirkju. Stjórnendur eru Sigrún Stein- grímsdóttir, Lenka Matéova og Oddný J. Þorsteinsdóttir. Ein- söngvarar eru Anna Sigríður Helgadóttir, Páll Rósinkrans, Jó- hann Friðgeir Valdimarsson, KK og Ellen Kristjánsdóttir. Þá syngja Gospelsystur undir stjórn Margr- étar Pálmadóttur, Gospelkór Reykjavíkur undir stjórn Óskars Einarssonar og Kvartett með Þor- vald Halldórsson í fararbroddi. Karlakórarnir Stefnir frá Mos- fellsbæ og Þrestir frá Hafnarfirði syngja. Stjórnendur þeirra eru Atli Guðlaugsson og Jón Kristinn Cortes. Aðgangur er ókeypis. Lokatónleikar á kristnihátíð YOSHIRO Mori, forsætisráðherra Japans, batt í gær enda á mánaðar óvissu í stjórnmálum landsins með því að segja formlega af sér embætti. Tilraunir Ryutaros Hashimotos, fyrrverandi forsætisráðherra, til að taka við af Mori, virðast vera að bera nokkurn árangur. Mori mun gegna embætti uns arf- taki hans hefur verið útnefndur en þess er vænst að það verði gert 26. apríl. Mori hefur verið einhver óvin- sælasti forsætisráðherra Japans á síðari árum vegna axarskafta sinna og hneykslismála. Hann tilkynnti í síðasta mánuði að hann myndi efna til kosninga um leiðtoga flokks síns, Frjálslynda lýðræðisflokksins, FLF, í september. En hann neitaði því að þær fyr- irætlanir jafngiltu í raun afsögn hans og var hann gagnrýndur fyrir að leggja allt kapp á að halda andlitinu. Á endanum sætti Mori sig við að hann yrði að segja af sér þar eð hann væri orðinn til trafala er kæmi til kosninga. „Þegar fólk sagði mér álit sitt sagði það að við myndum ekki geta unnið kosningarnar til efri deildar- innar,“ hafði Jiji-fréttastofan eftir Mori. Flokkurinn hefur reynt eftir fremsta megni að fá einhvern í stað Moris til að forðast niðurlægingu í kosningunum til efri deildar þingsins sem fram fara í júlí. Spá fréttaskýr- endur flokknum miklum hrakförum. Leiðtogakjör 24. apríl Mori tók við embætti fyrir réttu ári eftir að forveri hans, Keizo Obuchi, fékk banvænt heilaáfall. Ákveðið var í fyrradag að halda leið- togakosningar í FLF 24. apríl og mun afsögnin kynda undir barátt- unni um leiðtogasætið sem staðið hefur í mánuð. Er ljóst að Hashi- moto stendur best að vígi. Hann gegnir nú embætti ráðherra stjórn- kerfisumbóta. Samkvæmt fréttum í gær hefur Hashimoto tryggt sér nægan stuðn- ing innan vébanda sinnar flokks- deildar, sem er sú stærsta og öflug- asta í flokknum, til að geta boðið sig fram til formanns. Hashimoto sagði af sér embætti forsætisráðherra 1998 í kjölfar afhroðs flokksins í kosningum til efri deildarinnar eftir almennan uppsteyt gegn hækkun neysluskatts. Stjórn Moris samþykkti í gær að gerðar verði neyðarráðstafanir í efnahagslífinu til þess að bjarga bankakerfi landsins með því að fella niður skuldir á tveim árum. Þá verð- ur gripið til aðgerða sem eiga að bæta stöðuna á hlutabréfamarkaðn- um. Hver svo sem kemur til með að taka við af Mori á forsætisráð- herraembættið víst, sem leiðtogi stærsta flokksins á þingi. Yukio Hatoyama, leiðtogi stærsta stjórnar- andstöðuflokksins, gagnrýndi síð- búna afsögn Moris. „Hvað hefur hann að segja núna?“ sagði Hato- yama við fréttamenn. „Bæði almenn- ingur og fjölmiðlar hafa vitað það vikum saman að hann var í rauninni farinn.“ Hashimoto talinn líklegur arftaki Tókýó. AFP. Forsætisráðherra Japans segir af sér embætti EFTIR sjötíu og fimm daga í emb- ætti er George W. Bush Banda- ríkjaforseti farinn að huga að hags- munum stórfyrirtækja. Það gleður mjög stjórnendur bandarískra stór- fyrirtækja, sem hafa veitt forset- anum fjárhagslegan stuðning, hversu snöggur Bush og banda- menn hans í Repúblikanaflokknum á þingi hafa verið að leggja til hlið- ar ýmis stefnumál sem forveri Bush, demókratinn Bill Clinton, hélt á lofti. Nýjar reglur um öryggi á vinnu- stöðum er miðuðust að því að draga úr meiðslum vegna álagsstreitu, hafa verið felldar úr gildi. Ógilt hef- ur verið samþykkt um hertar að- gerðir gegn verktökum er vinna fyrir hið opinbera og brjóta vinnu- löggjöf eða svíkja út fé. Ný viðmið um orkunýtingu raftækja verða lögð á hilluna, og einnig ný og hert viðmið um arsenik í drykkjarvatni. Og þeir sem hafa áhuga á landi í eigu hins opinbera hafa fengið sam- þykktar tillögur um að numdar verði úr gildi reglur um takmörkun grjótnáms á landi í almannaeign og ennfremur verði ógilduð ný stefna um bann við lagningu vega um fjölda opinberra skóglenda. Ekkert leyndarmál Þessar skjótu breytingar á stefnu síðan í tíð Clintons hafa hlotið ein- róma hrós frá hagsmunahópum allt frá timburframleiðendum til raf- orkuveitna. „Það var aldrei neitt leyndarmál með Bush í kosninga- baráttunni, og það er svo sann- arlega ekkert leyndardómsfullt við það hvernig hann er byrjaður að hrinda í framkvæmd hugmyndum sínum um [Bandaríkin],“ sagði Bill Miller, stjórnmálaráðunautur Versl- unarráðs Bandaríkjanna. „Hann fór ekki dult með stuðning sinn við kaupsýslumenn.“ Demókratar, umhverfissinnar og formenn launþegasamtaka eru farnir að hvetja stjórnmálaaxir sín- ar. „Það er að koma í ljós rík- isstjórn sem greinilega getur ekki sagt nei við sérhagsmunahópa,“ sagði John Podesta, síðasti skrif- stofustjóri Hvíta hússins í tíð Clint- ons. Ari Fleischer, fréttafulltrúi for- setaembættisins, hafnar fullyrðing- um um að Bush gangi erinda bandarískra stórfyrirtækja. „For- setinn lítur svo á að við séum öll á sama báti – verslun, launþegar, neytendur – og hann vinnur í sam- ræmi við það,“ sagði Fleischer. Við Clinton að sakast Repúblikanar segja að það sé að hluta til við Clinton að sakast, fyrir að hafa leitt í lög fjölda stefnumála rétt áður en hann lét af embætti, með því að beita opinberum tilskip- unum og reglum sem sneiddu hjá samþykkt í þinginu. Newt Gingrich, fyrrverandi forseti fulltrúadeildar þingsins, sagði að Clinton hefði „breytt stjórnkerfinu með reglu- gerðartilskipunum um mál sem hann gat ekki fengið þingið til að samþykkja.“ Þetta hafi gert að verkum að Bush hafi staðið frammi fyrir fjölda „pólitískra jarðsprengna sem hefðu glatt bandamenn [Clintons] og erf- itt verið að aftengja án þess að hafa neikvæð áhrif á ímyndina,“ sagði Gingrich. Bush hefur þó ekki veigrað sér við verkefninu, og klippt niður þunglamalegar reglugerðir sem ekki eru í samræmi við hugmyndir hans. Bush hefur stundum svarað gagnrýninni með því að grípa til hugmynda Ronalds Reagans, fyrr- verandi forseta, um minni og sveigjanlegri ríkisstjórn. En oftast svarar forsetinn því til að menn hafi áhyggjur af því að reglugerðirnar eða stefnumálin er um ræðir hafi slæm áhrif á efnahagslífið, sem þegar eigi undir högg að sækja. Gingirch sagði þetta augljóslega eiga við rök að styðjast í þeim til- vikum þar sem kostnaður við reglu- gerðir er meiri en nemur ágóð- anum. En margt af því sem Bush hafi gert til að ógilda reglur sem séu launþegasamtökum í hag og auka veg raforkuframleiðslu eigi sér fremur rætur í hugmyndafræði. „Endurgjald“ Larry Noble, framkvæmdastjóri rannsóknarmiðstöðvarinnar Center for Responsive Politics, sagði að kaupsýsluslagsíðan á fyrstu stjórn- ardögum Bush væri „endurgjald fyrir kosningaherferðina.“ Repú- blikanar hafi fengið mikið af pen- ingum frá mörgum þeirra hags- munaaðila sem njóti góðs af þessum breytingum „og þetta er það sem þeir voru að vonast eftir,“ sagði Noble. Rannsóknir sem unnar voru í miðstöð Nobles sýna, að Bush safn- aði mun meiri peningum en and- stæðingur hans, Al Gore, í öllum 10 viðskiptageirum bandarísks efna- hagslífs. Eini geirinn sem var vil- hallur Gore voru samtök launþega. Gagnrýndur fyrir sérhagsmunahygli AP George W. Bush gengur út í Rósagarðinn við Hvíta húsið. Washington. AP. Fyrstu mánuðir George W. Bush í forsetaembætti

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.