Morgunblaðið - 07.04.2001, Qupperneq 48

Morgunblaðið - 07.04.2001, Qupperneq 48
MINNINGAR 48 LAUGARDAGUR 7. APRÍL 2001 MORGUNBLAÐIÐ ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Sími 581 3300 Allan sólarhringinn — www.utforin.is Suðurhlíð 35, Fossvogi Sverrir Olsen útfararstjóri Bryndís Valbjarnardóttir útfararstjóri Sverrir Einarsson útfararstjóri Landsbyggðarþjónusta. Áratuga reynsla. ✝ Marta GuðrúnHalldórsdóttir fæddist 12. febrúar 1923 í Vörum í Garði. Hún lést á Landspít- alanum við Hring- braut 31. mars síðast- liðinn. Foreldrar hennar voru Krist- jana Pálína Krist- jánsdóttir húsfreyja og Halldór Þorsteins- son útvegsbóndi, Vörum í Garði. Systkini Mörtu eru Þorsteinn Kristinn, f. 22.2. 1912, d. 19.1. 1990, Vilhjálmur Kristján, f. 5.7. 1913, d. 1.4. 1997, Gísli Jóhann, f. 10.7. 1914, Halldóra, f. 27.9. 1915, Steinunn, f. 29.10. 1916, Guðrún, f. 23.3. 1918, Þorvaldur, f. 17.8. 1920, Kristín, f. 22.11. 1921, Helga, f. 9.9. 1924, d. 9.9. 1924, Þorsteinn Nikulás, f. 10.1. 1927, d. 24.12. 1984, og Karítas Hallbera, f. 12.9. 1928. Marta Guðrún giftist 28. nóv- ember 1943 Kjartani Ásgeirssyni, f. 8. júní 1922, d. 15. október 1998. Foreldrar hans voru Davíð Ásgeir Bjarnason sjómaður og Jóhanna A. Jónsdóttir ljósmóðir. Börn Mörtu og Kjartans eru: 1) Kristjana Halldóra kennari við Gerðaskóla, f. 20.7. 1943, maki Jóhannes Sigurður Guð- mundsson stýrimað- ur, nú varðstjóri á Keflavíkurflugvelli, þau eiga þrjú börn og eitt barnabarn. 2) Davíð Ásgeir húsa- smíðameistari, f. 13.11. 1948, maki Sólveig Björk Gränz hjúkrunarfræðing- ur, þau eiga fjóra syni og fjögur barnabörn. 3) Þor- valdur húsasmíðameistari, f. 21.11. 1953, maki Jóhanna Svan- laug Sigurvinsdóttir sjúkraliði, þau eiga fjögur börn og tvö barna- börn. 4) Jóhanna Amelía nemi, f. 17.10. 1957. 5) Gísli Lúðvík bygg- ingaiðnfræðingur, f. 21.11. 1960, hann á tvær dætur. 6) Ólafur Þór tækjastjóri á Keflavíkurflugvelli, f. 29.11. 1965, maki Álfhildur Sig- urjónsdóttir stuðningsfulltrúi, þau eiga þrjú börn. Útför Mörtu Guðrúnar fer fram frá Útskálakirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. Nú þegar komið er að kveðju- stund, er mér ljúft að minnast Mörtu tengdamóður minnar. Hún skilur eftir sig minningar í huga mínum, sem ylja og gleðja, því kærleikur hennar, örlæti og glaðværð var svo sannarlega ekki af skornum skammti. Allt frá fyrstu kynnum tóku þau Marta og Kjartan mér opnum örm- um. Það var gott að koma til þeirra á Bjarmaland, þar sem alltaf var glatt á hjalla, mikið hlegið, spjallað og borðað, því Marta vildi ekki láta nokkurn mann fara svangan frá sér. Það var lærdómsríkt að fylgjast með því hve ástfangin og samhent þau hjónin voru alla tíð og hve þau lifðu mikið fyrir börnin sín og fjöl- skyldur þeirra og gáfu mikið af sér til okkar allra. Það er ekki hægt að minnast Mörtu án þess að nefna Kjartan hennar, því svo náin voru þau og samhent í öllu. Barnabörnin og barnabarnabörnin áttu hug þeirra og nutu hlýjunnar og athyglinnar sem þau sýndu þeim öllum. Ég er sérstaklega þakklátur fyrir þau ferðalög sem við fórum í með þeim Mörtu og Kjartani. Þar sást ekki hvað síst hversu samhuga þau voru. Við vorum eitt sinn í sumarhúsi í Húnavatnssýslu í vikutíma, þaðan ókum við um nágrennið og skoðuðum merka staði. Kjartan sá um að fræða okkur um það sem fyrir augu bar. Þegar heim var komið dró hann fram nikkuna sína og spilaði fyrir okkur, meðan Marta reiddi fram góðan mat. Daglega fórum við í sund og nutu þau hjónin sín vel í heita pottinum og ást- in ljómaði af andlitum þeirra. Við fór- um einnig í helgarferð til Braga bróður Kjartans og dvöldum hjá hon- um í sumarhúsinu hans í Fljótunum. Þar áttum við ánægjulegar sam- verustundir í góðu veðri. Þaðan fór- um við í stuttar ferðir m.a. til Siglu- fjarðar. Dætur okkar nutu sín vel í þessum ferðum og minnast þeirra með gleði og þá ekki síst uppátækja ömmu sinnar. Einu sinni sem oftar, þegar við nenntum ekki að fara á tveim bílum í stutta ferð, þurftu syst- urnar að kúldrast aftur í farangurs- rýminu á skutbílnum. Amman lét sig þá hafa það að skipta við þær, henni fannst ómögulegt að þær væru þarna aftur í og skellti sér bara sjálf þang- að, bjó vel um sig og lét vel yfir sér. Að þessu tiltæki hennar gátum við mikið hlegið, en svona var hún oft mikill grallari blessunin. Síðast en ekki síst er eftirminnileg sú ferð sem við hjónin og Jóhanna mágkona mín, fórum með þeim vest- ur á firði, en þaðan var Kjartan ætt- aður eins og ég og nutum við okkar vel í þeirri ferð. Við heimsóttum ætt- ingja og skoðuðum æskuslóðir Kjart- ans. Alltaf var Marta glöð og kát og tók þátt í gleði mannsins síns. Hún var skemmtilegur ferðafélagi og ekki var nú verra að hún hafði yfirumsjón með eldamennskunni eins og fyrri daginn. Nú njótum við þess að skoða myndir úr þessum ferðum og rifja upp allar ánægjustundirnar okkar. Það var gaman að ræða við Mörtu, því hún hafði ákveðnar skoðanir á hlutunum og var svo rökföst, að auð- velt var að snúast á sveif með henni og fara að hennar ráðum í hverju sem var. Hún hafði mikil áhrif á mig, sem aðra og lá ekki á skoðunum sín- um hvort sem um var að ræða stjórn- mál, trúmál, bindindismál eða það hvernig við létum klippa á okkur hár- ið, enda hætti ég fljótlega að láta snöggklippa mig eftir að ég kom í fjölskylduna hennar. Börnin mín eiga ömmu sinni og afa á Bjarmalandi mikið að þakka og litli dóttursonur okkar naut ástúðar hennar í þann stutta tíma sem hann átti með henni. Hann var fljótur að finna hve velkominn hann var til hennar og var farinn að biðja um köku úr búrinu og benda á dótakass- ann sem hún hafði tiltækan fyrir yngstu börnin, um leið og hann kom inn úr dyrunum. Hann naut líka gjaf- mildi hennar sem var mikil, það sýnir sú fyrirhyggja hennar að vera búin að kaupa einar sex fermingargjafir og sjá til þess að þeim væri pakkað inn og skrifað á kortin áður en hún fór á sjúkrahúsið, þar sem hún lést, daginn áður en eitt af barnabörnun- um hennar var fermt. Að leiðarlokum þakka ég Mörtu minni allt sem hún var mér og fjöl- skyldu minni. Gunnar Birgir, Guðbjörg Rann- veig, Marta Guðrún, Böðvar Yngvi og litli Einar Hugi, þakka sömuleiðis alla þá umhyggju og ástúð sem hún sýndi þeim öllum. Ég bið góðan Guð að styrkja alla ástvini hennar og ættingja og veita þeim huggun í sorg þeirra og sökn- uði. Blessuð sé minning Mörtu Guð- rúnar Halldórsdóttur. Jóhannes S. Guðmundsson. Mig langar að minnast móðursyst- ur minnar, Mörtu G. Halldórsdóttur. Ég sit með penna í hönd og minning- arnar flæða um huga minn. Ég sé Mörtu fyrir mér svo líka henni mömmu í svo mörgu, heyri léttan hlátur hennar, man þétt handtak og hvernig hún strauk hlýlega um bak mitt. Það er ekki bara Marta sem kem- ur í huga minn heldur er Kjartan, eiginmaður hennar, svo ljóslifandi líka í mínum huga, en hann lést í október 1998. Þau voru svo samhent hjón, búin að vera saman síðan þau voru 16 og 17 ára gömul. Þau áttu saman sex mannvænleg börn og er fjölskyldan orðin stór því barnabörn- in þeirra eru 16 og barnabarnabörnin 7. Það var erfitt fyrir Mörtu að horfa á eftir Kjartani sínum yfir móðuna miklu, söknuðurinn var svo sár. Hjónaband þeirra var svo einstakt, traust og fullt af ástúð sem skein af þeim hvar sem þau komu. Þau reynd- ust mér svo vel og fylgdust með því sem ég var að gera, leiðbeindu mér ef þeim fannst þess þurfa og glöddust með mér þegar vel gekk. Það er svo erfitt að horfa á eftir þeim sem manni þykir vænt um, horfa fram á þær breytingar sem verða þegar gamla kynslóðin kveður og sú nýja tekur við. Elsku Marta mín, ég kveð þig, nú í hjarta mínu veit ég að þið Kjartan eruð saman á ný. Takk fyrir allt. Ég votta Sjönu, Ása, Valda, Hönnu, Gísla, Óla og fjölskyldum þeirra mína dýpstu samúð. Megi Guð styrkja þau í sorginni. Kristjana V. Jónatansdóttir. Hún Marta mágkona mín er farin í ferðina sem við öll förum að lokum. Þegar langri samveru lýkur ber að þakka allar góðu stundirnar sem við Marta eyddum saman í félögum, ferðalögum og hin síðari ár í daglegri samveru. Það var alltaf gott að koma að Bjarmalandi og margur hefur fengið bita og sopa við borðið hjá þeim, því þegar talað er um Mörtu er Kjartan alltaf líka í huga manns. Þau voru svo samhent og engin hjón geta gert meira fyrir hvort annað en þau gerðu. Mér fannst þau svo miklir krakkar þegar þau voru að byggja Bjarmaland en þau byggðu sér og börnum sínum gott heimili. Ég þakka alla samveruna og elsku krakkar, verið ekki of hrygg, hún fór glöð á fund föður ykkar sem hún var viss um að hitta. Hún trúði því. Þið eigið að trúa því líka. Guð blessi ykk- ur öll og gefi sinn frið. Steinunn Sigurðardóttir. Marta Guðrún Halldórsdóttir mágkona mín hefur gengið sinn veg á enda og hvílist nú þar sem allt mann- anna amstur er að baki. Hún er þó ekki alfarin, því eftirlifendur muna góða konu, hjartahlýja, hreinlynda og opinskáa, eins og sjóinn sem um- lukti hana og fólkið hennar. Fyrst þegar ég kynntist Mörtu og tenda- fólki bróður mins, Kjartans heitins Ásgeirssonar, lærði ég hversu sam- vistir manna við ríki Ægis konungs, hafa meitlað skapgerð íslenskrar al- þýðu, alið með henni gætni, hrein- lyndi og virðingu fyrir lögmálum lífs- ins og minnist ég systkina en þó sérstaklega foreldra Mörtu, Krist- jönu og Halldórs í Vörum, sem ímynd þess besta, sem finna má hjá íslensku alþyðufólki, einstæðri tryggð og hreinlyndi, enda hef ég ekki kynnst samhentara fólki en af- komendum heiðurshjónanna í Vörum. Marta var sérlega hreinlynd og opinská kona og voru oft fjörugar umræður um pólítík, þegar fundum okkar bar saman. Enga betri var heim að sækja en Mörtu og Kjartan bróðir minn, að Bjarmalandi og þar blómstraði barngæskan, enda áttu þau einstöku barnaláni að fagna. Fyrir mig er það sem að missa systur og sendum við hjónin, ættingjum Mörtu og kæru frændfólki okkar, innilegustu samúðarkveðjur en mun- um eiga með þeim huggun í fagurri minningu um góða konu. Elísabet Þorgeirsdóttir og Jón Ásgeirsson. Hún Marta á Bjarmalandi hefur nú kvatt þennan heim og gengið inn til Guðs hvíldar. Aðeins tvö og hálft ár liðu á milli kveðjustunda þeirra Kjartans og minnir það sterklega á hversu samrýnd og samstiga þau hjónin voru alla tíð. Marta var fædd í Vörum í Garði. Varafólkið hefur allt- af verið stórt í dugnaði sínum og vinnusemi en einnig stórt í elsku sinni, samheldni og innileika. For- eldrar hennar, þau Halldór Þor- steinsson og Kristjana Kristjáns- dóttir, voru mikil dugnaðarhjón, reisn og atorkusemi einkenndi þeirra stóra heimili og öll þeirra verk. Hall- dór var annálaður sjósóknari og skipstjórnarmaður og Kristjana mikil húsfrú. Líf þeirra byggðist á og mótaðist af harðri baráttu við ægi. Sjósókn og fiskvinnsla var það sem afkoman byggðist á og daglega lífið snerist um. Þó stunduðu þau einnig búskap sem hvíldi reyndar mest á Kristjönu þar til að börnin fóru að geta hjálpað til. Þau hjónin eignuðust þrettán börn og var Marta tíunda barn þeirra. Hún var rétt um 16-17 ára aldur þegar hún kynntist ungum og glæsilegum dreng sem var um margt sérstakur og hafði komið í Garðinn frá Reykjavík en var ætt- aður að vestan, frá Ísafirði. Marta var á tuttugasta og fyrsta aldursári er þau Kjartan Ásgeirsson gengu í heilagt hjónaband árið 1943. Þá ríkti styrjaldarástand úti í hinum stóra heimi en það kærleiksband sem þau bundust átti eftir að reynast ákaflega farsælt og hamingjuríkt og það svo mjög að erfitt hefur verið að hugsa um annað þeirra án þess að sjá hitt fyrir sér í sömu andrá. Sama árið og þau gengu í hjóna- band reistu þau sér myndarlegt hús af miklum dugnaði og krafti. Og unga parið einsetti sér að bjart yrði yfir þeirra framtíðarheimili. Kjartan sótti timbrið suður á Stafnes og flutti það með ævintýralegum hætti og sameiginlega stóðu þau að því að búa sér og sínum börnum fagurt heimili og nefndu Bjarmaland. Reynslan hefur sannað og sýnt að það var rétt- nefni. Þau Marta og Kjartan eignuðust sex börn og eru þau öll ásamt fjöl- skyldum sínum búsett í Garði. Marta var mikil og traust húsmóðir og þurfti oft að sinna mörgum hlutverk- um einkum þegar Kjartan var á sjón- um. Barnabörn Mörtu eru alls 16 að tölu og barnabarnabörnin eru alls orðin 7 talsins. Sagt hefur verið, að mikilvægustu auðæfi sem við öðl- umst og skiljum síðan eftir í þessu lífi séu börnin og afkomendurnir. Víst er að fjölskyldan skipaði æðsta sess í lífi Mörtu. Hafa þau öll verið bæði stolt hennar og yndi og segja má að í þeim hafi hún uppskorið ríkulega og þau á móti ríkulega heiðrað sáningarkon- una Mörtu með kærleika sínum, ræktarsemi og nálægð. Marta á Bjarmalandi var mjög sérstök kona og fáum lík. Um margt bar hún þó einkenni Varafjölskyld- unnar. En þar má nefna; afar hlýtt viðmót og elskulegt bros, þéttings fast handtak, vinnusemi, trú- mennsku, kappsemi og mikinn metn- að, kátínu, lífsgleði og á sama tíma, MARTA GUÐRÚN HALLDÓRSDÓTTIR bindindi og guðstrú – nokkuð sem einkennt hefur samheldnu stórfjöl- skylduna frá Vörum í Garði. Víst er að í ofangreindu var Marta engin undantekning, þar sem hún var sér- staklega dugleg, kappsfull og atorkusöm en um leið elskuleg og hlý kona. Hún Marta var þeirrar manngerð- ar að þeir sem kynntust henni á ann- að borð gleymdu henni ekki svo auð- veldlega. Hún var hvatgjörn, í jákvæðri merkingu þess orðs; þ.e.a.s. hún var fljót til að svara fyrir sig, sagði beint út það sem henni lá á hjarta og oft voru orð hennar kjarn- yrt og mögnuð. En hennar ætlan var þó aldrei að særa eða meiða heldur aðeins að leggja áherslu á sína skoð- un sem yfirleitt var yfirveguð og vel ígrunduð. Glettni, kapp og spaugsemi áttu stóran þátt í persónu hennar Mörtu. Ekki er hægt að sleppa því að minn- ast á knattspyrnuáhuga hennar. Hún var ákaflega metnaðarfull í öllu því sem hún á annað borð hafði áhuga á. Og ekki vantaði kappið og ákafan. Á knattspyrnuleikjum Víðis fór það ekki framhjá neinum ef Marta var á staðnum. Hún hvatti sína menn af slíku kappi og með slíkri rödd og með svo kjarnyrtu orðfæri að það fór ekki framhjá neinum sem voru á staðnum, eða í nánasta nágrenni, að Marta Halldórs var komin til að hvetja sína Víðismenn. Hún Marta á Bjarma- landi kom víða við í félagsstörfum í Garðinum. Hún var félagi í stúkunni Framför í fjölda ára og var þar æðsti templar í um það bil 30 ár. Hún var meðlimur í slysavarnafélaginu og Kvenfélaginu Gefn í áratugi og setti sannarlega svip sinn á. Hún var gerður heiðursfélagi kvenfélagsins og var vel að þeim heiðri komin. Þá var Marta mikil sjálfstæðiskona í sér. Sjálfstæðisflokkurinn var henn- ar flokkur og starfaði hún fyrir hann af lífi og sál og studdi sína menn af einurð og sannfæringu. En fjölskyld- an og heimilið var henni mikilvægast. Í fimmtíu og fimm ára helgu hjónabandi voru þau hjónin Marta og Kjartan sérstaklega samhent og samstiga, bæði í félagslegum hugð- arefnum sem og í öllu því er varðaði fjölskylduna. Síðustu árin áttu þau saman, í ná- lægð og gagnkvæmri ástúð og voru mörgum þeim sem áttu samleið með þeim sönn fyrirmynd og fordæmi. Megi kærleikans Guð blessa og styrkja öll börn þeirra, afkomendur og ástvini. Guð blessi minningu Mörtu Halldórsdóttur. Hjörtur Magni Jóhannsson. Elsku Marta. Í andartaks þögn, ég átta mig á að lífsneistinn er farinn þér frá. Ég græt og hugsa um tómarúmið í hjarta mínu en geri mér svo ljóst, að mitt lífsins tré er laufgað fögrum minningum um þig. Þær verða aldrei frá mér teknar né heldur kærleikur þinn og trú. Þó svo kynni okkar hafi verið stutt á lífsins vegi, þá eru margar minn- ingarnar til að ylja sér við. Efst er mér í huga dagur sem ég gleymi aldrei, ættingjarnir komu saman hjá Ásgeiri og Sólveigu til að ræða útför Kjartans þíns elskulegs eiginmanns. Þann daginn sátum við tvær saman í lokin hönd í hönd og ræddum um lífið og tilveruna. Margar góðar minning- ar voru rifjaðar upp og að lokum féll- umst við í faðm og grétum saman. Þú sagðir mér frá því er þið Kjartan mynduð hittast aftur og hvað það yrði indælt að sjá hann á ný. Þú vissir að þinn tími var ekki kominn en sagð- ir mér, að þú kviðir ekki vistaskipt- unum, því trú þín var svo sterk á guð almáttugann. Skoðanir okkar á fram- haldslífi gátu ekki verið líkari þó ára- tugum munaði á okkur í aldri. Ég geymi í hjarta mínu minningu um yndislega konu sem sýndi mér ekk- ert nema elskulegheitin. Ég veit þér líður vel, en vildi aðeins láta þig vita að mér þykir vænt um þig, þú varst mér kær. Guð geymi þig. Rakel Dögg Óskarsdóttir.  Fleiri minningargreinar um Mörtu Guðrúnu Halldórsdóttur bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.