Morgunblaðið - 07.04.2001, Side 52

Morgunblaðið - 07.04.2001, Side 52
MINNINGAR 52 LAUGARDAGUR 7. APRÍL 2001 MORGUNBLAÐIÐ ✝ GuðmundurJónsson fæddist á Selbakka á Mýrum í Austur-Skaftafells- sýslu 11. desember 1917. Hann lést á sjúkrahúsinu á Eg- ilsstöðum 1. apríl síð- astliðinn. Foreldrar hans voru Jóhanna Kristín Guðmunds- dóttir frá Skálafelli í Suðursveit, f.18.1. 1891, d.1.3.1983, og Jón Magnússon frá Sævarhólum í Suð- ursveit, f. 9.4. 1889, d. 21.10. 1962. Þau bjuggu á Eskey og Selbakka á Mýrum í A-Skaft. en fluttu í Höskuldsstaði í Breiðdal 1925. Systkini Guðmundar eru Brynhildur Kristín, f. 28.4. 1914, d. 26.6. 1997, Hafsteinn, f. 25.1.1919, Sigurður, f. 16.11. 1921, og Hauk- ur Sigurður, f.10.10. 1937. Guð- mundur kvæntist 8.9. 1946 Mál- þeirra eru Guðmundur, Margrét Fríða, Guðlaugur Már og Hólmar Þór. Barnabörnin eru 3. 4) Svavar Magnús, f. 16.8. 1949, kvæntur Steinvöru Einarsdóttur f. 21.9.1952, börn þeirra eru Kristján Már og Einrún Ósk. Barnabörnin eru 4. 5) Jón Steinar, f. 22.11. 1951, maki Erla Sigurðardóttir, f. 15.9. 1956, börn þeirra eru: Sigrún Jóna, Maríanna og Andri Steinar. 6) Ari Bergsveinn, f. 24.6. 1953, kvæntur Jónu Björgu Margeirs- dóttur, f. 26.10. 1957, börn þeirra eru Þóra Margrét, Örvar og Íris Dögg. Barnabörnin eru 3. 7) Jó- hanna Björk f. 12.2. 1956, gift Hirti Ágústsyni, f. 13.11. 1952, synir þeirra eru Atli Vilhelm og Kjartan Ottó. 8) Ásta Sólrún, f. 24.4. 1958, maki Gísli Baldursson, f. 9.1. 1955, börn þeirra eru Júlía Dröfn, Andri Snær, Þórir Rúnar, Sveinn Áki og Ólafur Freyr. 9) Guðný Helga, f. 18.3. 1961, gift Guðmundi Elissyni f. 22.10. 1944. Börn þeirra eru: Að- alsteinn Pétur, Svanbjört Brynja, Hjalti Bergsteinn og Guðný Val- borg. Barnabörnin eru 3. Útför Guðmundar fer fram frá Egilsstaðakirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 14. fríði Hrólfsdóttur frá Hallbjarnarstöðum í Skriðdal, f. 24.6. 1925. Þau bjuggu á Hösk- uldsstöðum í Breiðdal frá 1945-1984 en fluttu þá á Egilsstaði. Börn Guðmundar og Málfríðar eru: 1) Jó- hann Hrólfur f. 17.10. 1945, kvæntur Svein- björgu Sveinbjörns- dóttur, f. 28.11. 1951, börn þeirra eru Þór- unn Björg, Sveinbjörn Valur, Guðmundur Ástþór og Heiða Mál- fríður. 2) Sigríður Guðbjörg, f.15.1. 1947, gift Ægi Kristinssyni, f. 8.2. 1943, börn þeirra eru Ásta Auð- björg, Hafþór, Eygló Hrönn, Mál- fríður Hafdís og Sigurður Ægir. Barnabörnin eru 9. 3) Katrín Þor- gerður, 12.4.1948, gift Unnari Magnússyni, f. 3.8. 1943, börn Upp hef ég augu mín, alvaldi Guð, til þín. Náð þinn’er ljúft að lýsa, lofa þitt nafn og prísa. Ég veit, að aldrei dvín ástin og mildin þín, því fel ég mig og mína, minn Guð, í umsjá þína. (H. Andrésd.) Elsku pabbi. Nú ertu farinn frá mér og margs er að minnast, margar góðar stundir áttum við saman, bæði í sveitinni og síðan á Egilsstöðum. Ég man eftir hvað mér fannst gaman að keyra gömlu Farmal-dráttarvél- ina þó að ég væri ekki gömul. Og þegar þurfti að huga að heyvinnu- tækjunum fyrir sumarsláttinn fannst mér svo gaman að skrúfa í sundur og smyrja og helst að vera skítug upp fyrir haus. Það er margt fleira sem ég gæti talið upp, t.d. þegar verið var að byggja nýju fjárhúsin árin 1968– 69. Þá var ég þar öllum stundum og þóttist vera ein af aðalsmiðunum og vildi að sjálfsögðu vera með hamar og nagla á mér, þó svo að ég hafi ekki verið nema sjö og átta ára og er það nú ekki hár aldur fyrir smið. Minningin um þig í sveitinni er góð og skemmtileg öll árin sem við vor- um þar saman. Síðan fluttir þú og mamma í Egilsstaði 1984, og ég síðan 1987, svo að við vorum aftur komin á sama stað. Við fórum margan bíltúr- inn saman og fróðleikur þinn hefur kennt mér svo margt, eins og öll ör- nefnin og sögurnar sem þeim fylgdu. Eftir að þú og mamma fluttuð í Mið- vang 22 fórst þú að læra bókband, sem þú lærði svo vel, handbragð þitt var svo fallegt og þetta stytti þér margar stundirnar. Eftir að ég flutti til Akureyrar 1996 lengdist bilið á milli okkar, en aldrei í huganum, ég fór oft skottúra austur. Síðustu jól dvaldi ég eina viku hjá ykkur og var það dýrmætur tími fyrir mig. Ég varð fertug hinn 18. mars síðastlið- inn og var ég ákveðin í því að fara helgina á eftir til að heimsækja þig, sem ég gerði. Á sunnudaginn, hinn 25. mars, um hálffimmleytið var komið að kveðju- stund sem ég gerði mér ekki grein fyrir að yrði sú síðasta. Þú spurðir mig af hverju ég væri að fara alein yfir hálendið um hávet- ur þegar allra veðra væri von. Ég sagði þér að ég væri orðin fer- tug og teldist því vera orðin fullorðin, við hlógum mikið að þessu. Þessi stund var yndisleg og mun ég aldrei gleyma henni. Síðan kvöddumst við og ég sagði að ég kæmi fljótt aftur til að hitta þig. Ég elska þig, pabbi, og bið Guð að vera með þér. Kveðja. Þín dóttir, Guðný Helga. Í dag kveðjum við kæran tengda- föður minn, Guðmund Jónsson frá Höskuldsstöðum í Breiðdal. Fyrir rúmum 30 árum kom ég fyrst í Höskuldsstaði, feimin 16 ára unglingsstúlka. Þar var mér strax tekið af mikilli alúð og hlýju sem mér hefur ætíð síðan fundist vera ein- kennandi í fari tengdaföður míns. Guðmundur var afskaplega rólyndur maður og hreinskiptinn. Hann fór með rólegheitunum það sem hann ætlaði sér. Heimilið á Höskuldsstöð- um var mannmargt. Systkinin 9 og síðar tengdabörn og barnabörn. Gestagangur var þar mikill, þjóðveg- urinn lá þar um hlaðið. Þar var frændum, frænkum og ferðamönn- um, jafnt útlendum sem íslenskum, tekið opnum örmum. Þar var aldrei þröngt. Ég minnist þess hve ömmu minni þótti gott að á þar og þiggja kaffisopa, þegar hún, þá öldruð, var á leið frá Álftafirði til Neskaupstaðar. Kátína, líf og fjör og gleði var ein- kennandi fyrir heimilið. Guðmundur tók virkan þátt í því, á sinn rólynda hátt. Guðmundur og Málfríður höfðu gaman af að ferðast. Fóru bæði til Ameríku og Evrópulanda og vítt og breitt um Ísland, jafnt hálendið sem byggðir landsins. Guðmundur hafði yndi af bókum, las mikið og eftir að hann hætti bú- skap og var fluttur í Egilsstaði fór hann á námskeið í bókbandi. Nokkr- ar voru ferðir hans til okkar á Reyni- völlunum til að athuga hvort við ætt- um ekki bækur sem þyrfti að binda inn eða lagfæra. Ég minnist hans þegar ég horfi í bókahillurnar og sé hans vandaða handbragð. Guðmundur átti oft við erfið veik- indi að stríða en hann tók öllu með jafnaðargeði og glettnin og brosið fylgdu honum alla tíð. Ég fékk að sjá brosið hans þegar ég heimsótti hann daginn áður en hann lést. Gott er sjúkum að sofna meðan sólin er aftanrjóð, og mjallhvítir svanir syngja sorgblíð vögguljóð. Gott er sjúkum að sofna meðan sólin í djúpinu er og ef til vill dreymir þá eitthvað sem enginn í vöku sér. (Davíð Stefánsson.) Ég þakka Guðmundi alla hans vin- áttu og hlýju. Guð blessi minningu hans. Sveinbjörg Sveinbjörnsdóttir. Elsku besti afi, mig langar til að kveðja þig með nokkrum minningum frá því þegar ég var lítil í sveitinni hjá þér og ömmu. Ég man að það var alltaf svo gott að vera hjá ykkur og þegar ég var hjá þér í fjárhúsinu og fylgdist með þér hjálpa litlu lömb- unum að koma í þennan heim. Ég fékk að hjálpa til að gefa þeim mjólk úr pelanum og hlaupa heim á bæ til ömmu að sækja meðulin þeirra, svo þú gætir gefið þeim. Þið sögðuð alltaf við mig að ég væri svo ágætis vinnu- kona því að ég væri svo létt á mér og snögg að hlaupa og það var auðvitað til þess að þá hljóp maður bara hrað- ar og var sneggri ef eitthvað var. Það er mér alltaf minnisstætt þegar ég fór í ferðalag suður á land með ykkur ömmu og þegar við komum á bæinn Hala í Suðursveit þar sem þitt fólk býr, svo þegar við vorum á söndun- um að skoða skúmana og eggin þeirra. Það var gaman þegar amma var að leiðbeina þér svo þú keyrðir ekki yfir eggin þeirra. Einnig þegar við vorum að fara um Breiðdalsheiði og amma heimtaði að stoppa við sæluhúsið þar. Ég held að þá hafið þið nú bjargað útlendu stelpunni sem sem var þar, en úti var slydda og kuldi, en hún kom til Íslands til að skoða landið. Þið tókuð hana með heim í sveitina og amma gaf henni að borða og drekka og sú var nú þakklát fyrir. Ég kveð þig nú, elsku afi, með söknuði og þakka fyrir allar minn- ingarnar. Málfríður. GUÐMUNDUR JÓNSSON ✝ Gunnar Jón Guð-mundsson var fæddur 16. nóvember 1984. Hann lést af slysförum hinn 1. apríl síðastliðinn. Foreldrar hans eru Guðmundur Karl Baldursson útgerð- armaður í Þorláks- höfn, f. 12.12. 1949 og Kim Brigit Sorn- ing, f. 16.12. 1961. Systkini hans eru: Magnús Joachim, f. 29.1. 1983, Valdís Klara, f. 1.12. 1985, og Guðmundur Karl, f. 30.3. 1991. Gunnar Jón ólst upp í Þorlákshöfn og lauk námi við Grunnskóla Þor- lákshafnar vorið 2000 og hóf síðan nám við Fjölbrauta- skóla Suðurlands síðastliðið haust. Hann lagði mikla rækt við íþróttir alla sína tíð og stundaði golf og fótbolta af miklu kappi og var ákafur stuðnings- maður Manchester United. Veiðiskapur var einnig mikið áhugamál hjá Gunn- ari Jóni og þrátt fyr- ir ungan aldur hafði hann náð góðum tök- um á stangveiði og þótti einstaklega fengsæll. Útför Gunnars Jóns fer fram frá Þorlákskirkju í Þorlákshöfn í dag og hefst athöfnin klukkan 14. Bróðir okkar hann Gunnar Jón er farinn, farinn fyrir fullt og allt, en hann mun alltaf eiga stóran hlut í hjarta okkar. Sem betur fer eru að- eins til góðar minningar um hann, hann var alltaf svo góður strákur. En það sem kemur upp í huga okkar þegar við hugsum til hans er það hvað hann gat borðað mikið, og mið- að við hvað hann borðaði var hann ekki neitt neitt. Hann var grindhor- aður lítill strákur sem talaði alltaf út frá hjartanu. Hann sagði alltaf hvað honum fannst en samt vissi hann alltaf hvar átti að draga mörkin. Gunnar Jón var á fullu í íþróttum eins og við systkinin hans. Þegar þetta hörmulega slys átti sér stað var hann á leið til Hafnafjarðar til að fara að spila sinn fyrsta meistara- flokksleik með Knattspyrnufélaginu Ægi. Hann elskaði fótbolta og var mikill stuðningsmaður Manchester United. Gunnar Jón fór að spila golf, og var hann ekki lengi að ná tökum á þeirri íþrótt og hefur unnið til margra verðlauna. Hann þótti einnig vera mjög sprækur í veiðimennsk- unni, enda var hann mjög fengsæll, og kepptust hann og pabbi við að fá mestan afla í hvert skipti sem þeir fóru saman að veiða. Hann var ný- byrjaður að æfa körfu þegar þessi sorgaratburður átti sér stað og var hann einungis búinn að æfa í rúma tvo mánuði og vissi ekki mikið um körfubolta. Það var samt alltaf eitt- hvað sem dreif hann áfram í körf- unni. Hann var búinn að hlakka svo mikið til þess að fara að spila með vinum sínum á Opna Reykjarvíkur- mótinu í körfu og hann ætlaði að sýna strákunum að hann væri miklu betri en bróðir sinn og systir. Gunn- ar Jón var ekki hár í loftinu en það háði honum ekkert því hann var með svo stórt hjarta sem dreif hann áfram í gegnum hvað sem var, hann var alltaf til í smá fíflalæti sem særðu engan, hann passaði sig á því en hann var þannig gerður, hann elsku bróðir okkar, að hann gat aldr- ei gert flugu mein. Gunnar Jón beið alltaf spenntur eftir þeim helgum sem mamma og pabbi ætluðu að fara í bústaðinn, sérstaklega ef það var grillveður því þá var hægt að grilla allan þann mat sem hann vildi fá að borða og borðaði hann manna mest. Núna verður enginn fjörkálfur sem kemur öllum til að hlæja á æf- ingum, í skólanum, og í rútunni heim úr skólanum, en þess vegna verðum við að taka þetta erfiða skref og varðveita þessar góðu og fallegu minningar um hann Gunnar Jón okkar. Við munum aldrei gleyma þér, Gunnar Jón, megi Guð geyma þig og varðveita. Þín systkin, Magnús Joachim, Valdís Klara og Guðmundur Karl. Sunnudagurinn rann upp, sólin skein, lífið var svo eðlilegt og tilver- an öll virtist svo góð þangað til sú harmafregn barst að Gunnar Jón hefði látist í bílslysi. Ég vildi ekki trúa þessu, þetta gat ekki verið satt. En þetta er staðreynd sem erfitt er að sætta sig við. Minningarnar um Gunnar Jón birtust í huga mínum, minningar um dreng sem aldrei var nein lognmolla í kringum. Það var alltaf eitthvað að gerast þar sem hann var. Gunnar Jón lauk grunn- skólaprófi vorið 2000 ásamt bekkj- arsystkinum sínum. Gunnar Jón var orkumikill, fjörugur og duglegur og við sem vorum honum samtíða í grunnskólanum fengum vel að njóta þessara einkenna hans. Hann var mjög efnilegur knatt- spyrnumaður og einnig átti hann framtíð fyrir sér í golfinu og ég sá fyrir mér keppnismanninn Gunnar Jón, sem aldrei gaf eftir, ná langt í þeirri íþrótt. Í knattspyrnunni hefði framtíðin væntanlega getað gefið Gunnari Jóni svo margt, svo margt sem hann hefði svo sannarlega átt skilið. Efnilegur piltur hefur nú ver- ið kallaður á æðra tilverustig en minningin mun lifa áfram í hjarta okkar. Við munum aldrei gleyma þessum fjörmikla og ótrúlega út- haldsmikla dreng sem svo sannar- lega átti framtíðina fyrir sér. Drottinn er minn hirðir, mig mun ekkert bresta. Á grænum grundum lætur hann mig hvílast, leiðir mig að vötnum, þar sem ég má næðis njóta. Hann hressir sál mína, leiðir mig um rétta vegu fyrir sakir nafns síns. Jafnvel þótt ég fari um dimman dal, óttast ég ekkert illt, því að þú ert hjá mér, sproti þinn og stafur hugga þig. Með þessum orðum úr 23. Davíðs- sálmi viljum við þakka samveruna og fyrir hönd okkar allra í Grunnskól- anum í Þorlákshöfn votta ég fjöl- skyldu Gunnars Jóns, ættingjum og vinum dýpstu samúð. Halldór Sigurðsson skólastjóri. Kveðja frá Fjölbrautaskóla Suðurlands Enn hefur orðið hörmulegt dauða- slys á Suðurlandi. Foreldrar, ætt- ingjar og vinir eru harmi slegnir. Nemendur og starfsfólk Fjölbrauta- skóla Suðurlands syrgja. Of oft höf- um við staðið í sömu sporum í sal skólans og minnst ungra nemenda okkar sem fallið hafa frá af slysför- um. Mikið væri gefandi fyrir að slys- unum linnti. Ungur piltur, Gunnar Jón Guð- mundsson, hóf nám við skólann í haust, fjörmikill drengur sem stóð sig í náminu þrátt fyrir verkfallið. Hann stundaði nám á Náttúrufræði- braut. Gunnar Jón sat í horninu við bókasafnið með dökkbláa húfu á höfði, í Þorlákshafnarhópnum, lífleg- um hópi sem lét vel í sér heyra. Þetta er hópur sem stendur þétt saman. Þau hafa þekkst frá því í fyrsta bekk í grunnskóla, lært saman og leikið sér, skemmt sér og lent í deilum hvert við annað, hlegið saman og grátið. Áfallið er því mikið og sorgin sár. Nú ríður á fyrir þennan hóp að hver gæti annars og styrki. Mikil- vægast er að hópurinn standi með og styrki piltana þrjá sem fóru með Gunnari Jóni í þessa örlagaríku för. Þeir lögðu af stað á knattspyrnuleik í Reykjavík, fjórir piltar úr Þorláks- höfn, allir nemendur við skólann. Þeir komust ekki á leikinn. Einn þeirra, Gunnar Jón, kemur ekki meir til okkar. Á augabragði var hann tek- inn frá foreldrum og systkinum, vin- um og frá okkur öllum. Lífsgátan hefur sjaldan verið tor- ræðari. Fyrir hönd okkar allra í Fjöl- brautaskóla Suðurlands færum við fjölskyldu hans og vinum okkar dýpstu samúðarkveðjur og biðjum þeim styrks og blessunar. Blessuð sé minning Gunnars Jóns Guðmundssonar. Örlygur Karlsson aðstoðarskólameistari. Sigurður Sigursveinsson skólameistari. Elsku Gunnar Jón. Ég man fyrir stuttu þegar við vorum í fótbolta ég, þú, Baldur og Guðmundur. Þið strákarnir vildu endilega hafa þetta fótbolta sem mátti tækla og tudda í. Mér gekk voða vel þar sem þarna mátti tudda. Þú varst og ert svo góð- ur í fótbolta og öllu öðru. Þú ert góð- ur í frjálsum, körfubolta, badminton og svo ertu svo góður í að koma öðr- um til að hlæja og líða vel. Þú ætlaðir að taka einn einliðaleik við mig í bad- minton en í rauninni neitaði ég því, ég vissi alltaf að þú myndir vinna, en nú er það of seint. Þú hjálpaðir mér þegar vondir tímar voru hjá mér, þú varst mér besti frændi sem hægt er að eiga. Ég hugsa með mér hvað ég var heppin að þekkja þig. Elsku Gunnar, þú varst og ert besti frændi minn, og ég mun alltaf sakna þín svo sárt. Ég sakna þín. Ég leita þín. En ég GUNNAR JÓN GUÐMUNDSSON

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.