Morgunblaðið - 07.04.2001, Qupperneq 55

Morgunblaðið - 07.04.2001, Qupperneq 55
UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. APRÍL 2001 55 „HEYRÐU, Siggi hefur alveg tapað sér, hann var settur á geð- deild.“ „Hvað segirðu, klikkaðist hann?“ Margir tengja geð- veiki við „brjálsemi“, fólk gangi af göflunum og sé hættulegt. Sú er þó sjaldnast raunin því býsna hátt hlutfall þjóðarinnar þarf að leita sér aðstoðar vegna geðrænna vandamála einhvern- tíma á lífsleiðinni. Í dag, laugardaginn 7. apríl, er Alþjóðlegur heilbrigðis- dagur WHO – Heilbrigðisstofnunar Sameinuðu þjóðanna. Að þessu sinni er hann tileinkaður geðheilbrigði og áhersla lögð á fordóma og hvaða leið- ir séu færar til að aðstoða geðfatlaða við að taka virkan þátt í þjóðfélaginu, eða „Stop exclusion – dare to care“. Á Íslandi er talið að 1–2% þjóð- arinnar séu haldin geðklofasjúk- dómi, ívið fleiri geðhvarfasýki auk allra þeirra sem eiga við andlega erf- iðleika að etja, oft tímabundið, í líf- inu. Það má vel hugsa sér að þetta hlutfall sé svipað í öðrum löndum. Margir sem fá geðsjúkdóm hætta námi eða vinnu, einangrast og tapa sjálfsáliti því það getur verið erfitt að fá aftur vinnu eða hefja nám að nýju. Oft fá þeir að heyra að veik- indin séu bara vesaldómur, „farðu nú að rífa þig upp úr þessari depurð“ er oft viðkvæðið. Fjárhagur hreinlega hrynur hjá mörgum því margir þurfa að lifa á örorkubótum, stundum tímabundið, oft til frambúðar. Á ári hverju eru innlagnir um 3.000 á geðdeildum í Reykjavík auk þeirra sem leggjast inn á Akureyri. Stundum koma einstaklingar inn oft- ar en einu sinni á ári en þessi tala sýnir hvað geðheilbrigðismál eru stór þáttur í þjóðfélaginu. Taka verð- ur fram að mikil þróun hefur verið á sviði geðheilbrigðismála undanfarna áratugi. Það eru ekki nema 100 ár síðan geðsjúkt fólk var geymt í fjós- um og fjárhúsum eða hlekkjað svo að minna ónæði hlytist af því. Árið 1871 vakti Þorgrímur Johnsen héraðs- læknir athygli á hræðilegum aðbún- aði geðsjúkra í ársskýrslu sinni. Kleppsspítali var svo opnaður 1907 og þurfti fljótlega stækkunar við. Meðferðarúrræðin voru býsna frum- leg, svo ekki sé meira sagt, fyrstu áratugina. Eftir 1950 varð ger- bylting með nýjum lyfj- um og fólk átti mögu- leika á að útskrifast af geðsjúkrahúsi sem hafði fram að því verið nær óhugsandi. Samtök geðsjúkra og aðstandenda þeirra hafa hérlendis sem og erlendis unnið að bættri þjónustu og réttarstöðu fyrir þá sjúku sem nú hafa sjálf- ir oftast meira að segja um meðferðarúrræði en áður var og lyfjagjöf er ekki eina lausnin. Samtalsmeðferðir og fleira þarf til að fólk nái bata og auka þarf aðstoð til að fólk nái að koma undir sig fótunum eftir erfið veikindi. Athvörf og klúbbar 8. febrúar 1993 var sett á stofn at- hvarf fyrir geðfatlaða á Hverfisgötu 47 í Reykjavík sem fékk nafnið Vin. Rauði kross Íslands hefur alla tíð séð um rekstur athvarfsins en Reykja- víkurborg hefur undanfarin ár lagt til húsnæðið endurgjaldslaust. Strax varð ljóst að þörf var á athvarfi sem þessu sem opið er á daginn. Gesta- komur hafa aukist ár frá ári og er staðurinn fastur punktur í lífi margra. Meginmarkmið Vinjar eru: Að rjúfa félagslega einangrun geðfatlaðra á höfuðborgarsvæðinu. Að draga úr endurinnlögnum á geðdeildir. Að skapa umhverfi þar sem gagn- kvæm virðing og traust ríkir og tekið er tillit til hvers og eins. Að efla þekkingu okkar og ann- arra á málefnum geðfatlaðra. Síðan athvarf þetta var sett á laggirnar hefur RKÍ staðið að opnun tveggja annarra athvarfa fyrir geð- fatlaða. 9. okt. 1998 var Dvöl í Kópa- vogi opnuð. Það er samstarfsverk- efni Kópavogsdeildar Rauða krossins, Kópavogsbæjar og Svæð- isskrifstofu Reykjaness. Formleg opnun Lautarinnar á Akureyri var 8. des. sl. Þar sér Akureyrardeild Rauða krossins um reksturinn í húsi sem Öryrkjabandalagið lagði til. Geðverndarfélag Akureyrar, Akur- eyrarbær og heilbrigðisráðuneytið aðstoðuðu dyggilega við að koma Lautinni á laggirnar. Gestakomur í Lautina hafa aukist jafnt og þétt og er mikið um að vera þar. Einnig er félagið Geðhjálp með viðamikla starfsemi. Það var stofnað 1979 og hefur ætíð barist fyrir hags- munum geðsjúkra með ýmsum hætti. Geðhjálp var í leiguhúsnæði frá 1982 til ’99 þegar félagið flutti í eigið húsnæði á Túngötu 7. Klúbburinn Geysir var opnaður í sept. 1999 við Ægisgötu í Reykjavík eftir mikla undirbúningsvinnu. Geysir er sjálfseignarstofnun sem rekin er m.a. með fé frá Reykjavík- urborg, nágrannasveitarfélögum og Alþingi. Þar koma geðsjúkir sem eft- ir veikindi þurfa aðstoð við að koma sér út í þjóðlífið. Þar tekst fólk á við raunveruleg verkefni og unnið er að því að útvega fólki vinnu og aðstoða við að komast á skólabekk, svo dæmi séu tekin. Allir hafa þessir staðir sannað gildi sitt svo um munar. Þörf á stöð- um sem þessum er greinilega mikil og eykst með hverju árinu. Rauða krossdeildir á Austur- og Vestur- landi eru að vinna að áætlunum um hvernig hægt sé að koma á meiri að- stoð við geðfatlaða úti á landi og von- andi verður aðstaða bætt fyrir þá á næstu árum. Ekki má gleyma að geta þeirra fjölmörgu sjálfboðaliða sem komið hafa að rekstri húsa RKÍ. Ungliðahreyfing RKÍ hefur þar unn- ið gríðarlega mikið og gott starf. Geðsjúkdómar valda nægum þján- ingum fyrir þá sem veikjast og að- standendur þeirra. Heimskuleg við- horf sem geta leitt til einangrunar og einsemdar leiða til ógæfu fyrir alla. Fordómar spretta af vanþekkingu og ljótt væri ef fordómar væru í garð þeirra sem t.d. þjást af hjartveiki eða krabbameini. Bætum forvarnir, fræðslu og stuðning. Horft um öxl – og fram á veginn Arnar Valgeirsson Höfundur er starfsmaður í Vin, RKÍ. Geðsjúkir Heimskuleg viðhorf til geðsjúkra geta leitt til einangrunar og ein- semdar, segir Arnar Valgeirsson, og leiða til ógæfu fyrir alla. STOFNENDUR og félagar í siglinga- klúbbnum Vogi í Garðabæ birtu grein í Morgunblaðinu 27. mars sl. þar sem þeir hvetja til þess að skútu- siglingar og æskulýðs- starf verði endurvakið á Arnarnesvogi. Full ástæða er til þess að taka undir þessi sjónar- mið. Heilbrigt æsku- lýðsstarf er mikilvægt fyrir okkur öll sem bú- um í sveitarfélaginu og siglingar á skútum eða róður á kajökum er ekki líklegur til að trufla lífríkið eða valda íbúunum við voginn ónæði. Landfylling er óþörf Ástæða er til að vekja athygli á því að rétt eins og enginn hefur mótmælt því að íbúðarbyggð komi í stað óhrjá- legs umhverfis skipasmíðastöðvar- innar fyrir botni Arnarnesvogs hefur enginn talað gegn því að aðstaða sigl- ingaklúbbsins verði bætt. Mjög auð- velt ætti að vera að koma þeim úrbót- um við, t.d. með því að nýta hluta af þeim hafnarmannvirkjum sem fyrir eru, enda er ljóst að skipasmíðastöð verður ekki rekin áfram á svæðinu. Ábendingar félaga siglingaklúbbs- ins eru enn eitt lóðið á þá vogarskál að ekki verði ráðist í landfyllingu í voginum. 7,3 hektara tangi langt út í voginn, sem jafngildir 10 Laugar- dalsvöllum, er fullkomlega óþörf framkvæmd. Tangi með á annað þús- und íbúa byggð á svæði sem nú er hafflötur, með bryggjum þar sem hraðskreiðir og hávaðasamir mótor- bátar gætu athafnað sig, yrði til trufl- unar fyrir skútusiglingar jafnframt því sem hann raskaði lífríkinu og for- sendum núverandi byggðar við vog- inn. Skútusiglingar á Arnarnesvogi Ásmundur Stefánsson Garðabær Ábendingar félaga sigl- ingaklúbbsins, segja þeir Ásmundur Stef- ánsson og Tómas H. Heiðar, eru enn eitt lóð- ið á þá vogarskál að ekki verði ráðist í landfyll- ingu í voginum. Höfundar eru íbúar við Arnarnesvog. Tómas H. Heiðar
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.