Morgunblaðið - 07.04.2001, Síða 60

Morgunblaðið - 07.04.2001, Síða 60
UMRÆÐAN 60 LAUGARDAGUR 7. APRÍL 2001 MORGUNBLAÐIÐ BREYTINGAR á ís- lensku samfélagi hafa verið gríðarlega örar síðustu árin. Eitt af ein- kennum þessarar þró- unar hefur verið hraður vöxtur höfuðborgar- svæðisins. Íbúum höf- uðborgarsvæðisins hef- ur fjölgað um 62% frá 1970 en á sama tíma fjölgaði landsmönnum um 38%. Um helmingur aukningarinnar síðasta áratug var vegna að- flutnings fólks frá landsbyggðinni og vax- andi fjölda útlendinga sem flutti til landsins. Vaxtarverkir. Þessi mikli vöxtur mannfjöldans hefur kallað á mikla byggingarstarfsemi og útþenslu byggðar. Á tímabilinu 1970 til 2000 bættust að meðaltali 85 ha lands á ári undir ný byggðasvæði á höfuðborg- arsvæðinu og hafa sveitarfélögin vart haft undan að skipuleggja ný byggða- hverfi síðustu misseri. Þessi nýju hverfi eru byggð á jaðri byggðarinnar í stöðugt meiri fjarlægð frá miðborg- inni og á sama tíma fækkar íbúum í eldri hverfum. Sú vegalengd sem íbú- ar höfuðborgarsvæðisins þurfa að aka daglega til og frá vinnu og til þess að sinna öðrum erindum vex stöðugt. Lýsandi dæmi um þessa þróun er að á tímabilinu 1960 til 1998 fjölgaði Reyk- víkingum um 47% en bílum um 634%. Ef takast á að þjappa byggð betur saman til að draga úr útþenslu henn- ar og styrkja bakland miðborgarinn- ar og annarra þjónustukjarna á svæð- inu þarf að efla samvinnu íbúa og skipulagsyfirvalda. Þessi hraði vöxtur byggðar og sá hraði og tímaleysi sem einkennir borgarlífið kallar á margskonar rann- sóknir og stefnumótun m.a. á þjón- ustu borgarinnar. Áhrifasvið höfuðborgar. Íbúum í nágrannabyggðarlögum höfuðborg- arsvæðisins hefur fjölgað verulega síðustu 3–4 árin, þ.e. í þéttbýlissvæð- um innan klukkutíma aksturs frá höf- uðborgarsvæðinu. Á þessu svæði búa nú um 75% landsmanna. Þessi stað- reynd kallar á að farið verði að móta raunhæfa byggðaáætlun fyrir allt landið þar sem tekið er tillit til stöðu höfuðborgarsvæðisins í byggða- mynstri landsins. Engin rannsókn hefur nýlega farið fram á þjónustu- svæði höfuðborgarsvæðisins, hve margir búa utan þess og sækja þang- að vinnu og öfugt, né á tengslum höf- uðborgarsvæðisins við aðra þéttbýlisstaði landsins. Vatnsmýrin. Hin mikla umræða sem fór fram fyrstu mánuði árs- ins vegna kosninga um æskilega framtíðarnýt- ingu Vatnsmýrar var mjög jákvæð. Mun meiri umræða var um æskilega þróun byggð- ar á svæðinu en tekist hefur að fá fram þegar aðalskipulagsáætlanir hafa verið kynntar á liðnum árum. Það fer ekki á milli mála að það stóra land- svæði í Vatnsmýri, um 130 ha, sem nú fer undir flugstarfsemi skiptir miklu máli fyrir framtíðarþróun Reykjavík- ur, sérstaklega til að styrkja miðborg- ina og til að efla þekkingariðnað í höf- uðborginni. Í umræðunni kom fram að skortur er á staðgóðum upplýsingum um ýmsa grundvallarþætti sem tengjast æskilegri þróun byggðar á höfuð- borgarsvæðinu. Það vantar t.d. betri upplýsingar um landverð á höfuð- borgarsvæðinu og upplýsingar um ferðavenjur borgarbúa og kostnað þeirra og samfélagsins vegna notkun- ar einkabílsins. Þá komu fram margs konar alhæfingar sem byggjast á tak- mörkuðum upplýsingum t.d. um bú- setu- og húsnæðisóskir mismunandi aldurshópa og verslunarvenjur. Um þessi og fleiri atriði eru því miður ekki til heildstæðar upplýsingar og er þar verk að vinna. Dæmi um þróunarverkefni á vegum Reykjavíkurborgar Reykjavíkurborg vinnur nú að margvíslegum þróunarverkefnum sem nýtast munu til stefnumótunar til framtíðar. Hér er aðeins fjallað um nokkur þeirra sem tengjast æskilegri þróun byggðar. Í ársbyrjun 1999 var sett á laggirnar Þróunarsvið í ráðhúsi Reykjavíkur með það hlutverk m.a. að undirbyggja heildstæða stefnu- mótun um æskilega þróun borgarinn- ar með söfnun og miðlun upplýsinga og með því að stuðla að meiri rann- Bjarni Reynarsson Til þess að skapa fyr- irmyndarborg, segir Bjarni Reynarsson, þarf að hugsa til framtíðar. ÞRÓUN HÖFUÐBORGAR UTANRÍKISRÁÐHERRAR Evrópusambandsins (ESB) koma saman í Lúxemborg í dag til að ræða Norðlæga vídd utanrík- isstefnu ESB við starfs- systkin sín frá sam- starfslöndunum sjö sem í hlut eiga. Norðlæga víddin dregur saman heildar- stefnu ESB í málefnum Norður-Evrópu. Mark- mið hennar er að gagnast löndunum um- hverfis Eystrasaltið sem bezt með því að tryggja samræmi við alla stefnumörkun og framkvæmd stefnu- miða ESB sem snerta þennan hluta álfunnar. Norðlæga víddin er lykilatriði í samskiptum okkar við Rússland og hefur vaxandi hlutverki að gegna í tengslum við væntanlega stækkun ESB til austurs. Kalíníngrad-svæðið, sem tilheyrir Rússlandi, verður meðal þeirra mála sem verða í brennidepli í þessum við- ræðum ráðherranna, eins og reyndar verið hefur á nærri því hverjum ein- asta fundi sem ég hef átt með fulltrú- um rússneskra stjórnvalda síðastlið- ið ár. Pútín forseti vakti máls á stöðu Kalíníngrad á fundi með leiðtogum ESB í síðasta mánuði og verður hún á dagskrá tvíhliða leiðtogafundar ESB og Rússlands í næsta mánuði, sem og á fundi samstarfsráðs ESB og Rússlands á morgun, þar sem við munum ræða við Hr. Khristienko, varaforsætisráðherra Rússlands, sem fer með málefni ESB í rúss- nesku ríkisstjórninni. Þetta er meðal forgangsverkefna sænsku ESB-for- mennskunnar og ég fór sjálfur í heimsókn til Kalíníngrad í fylgd með sænska utanríkisráðherranum, Önnu Lindh, í febrúarmánuði. Hvað veldur þessum mikla áhuga? Svarið liggur í landfræðilegri og pólitískri legu Kalíníngrad-svæðis- ins; það er hluti af Rússlandi en að- skilið frá öðrum hlutum rússneska sambandsríkisins, klemmt inni á milli Litháens og Póllands við strönd Eystrasaltsins. Stækkun Evrópusambandsins til austurs mun auka á stöðugleika og lýðræði í álfunni. Rússland á eftir að hagnast á nýjum tækifærum sem hún mun skapa – og Kalíníngrad mun líka vera vel í sveit sett til að njóta góðs af þessari þróun. En innganga Litháens og Póllands í ESB varpar líka fram fjölda praktískra spurninga sem varða samgöngur, millilandavið- skipti, vegabréfaáritanir, landa- mæraeftirlit og svo framvegis. Við verðum að finna raungóðar lausnir á þessum vandamálum. Tökum vegabréfa- áritanir og frjálsa flutn- inga fólks yfir landa- mæri til dæmis. Eins og er geta íbúar Kalíníng- rad-svæðisins auðveld- lega ferðast í gegnum Pólland og Litháen til Rússlands; árlega eru taldar um níu milljónir ferða yfir landamærin. Það er ekki óeðlilegt að þetta fólk hafi áhyggjur af því að þetta muni breytast við inngöngu Póllands og Litháens í ESB. Hvers konar landamæraeftirliti mun verða þörf á að koma upp? Hvers konar vegabréfaeftirliti? Munu íbúar svæðisins reka sig á það að þeir geti ekki lengur ferðast að vild til og frá meginlandi Rússlands? Þetta eru alvarleg og viðkvæm mál. Ég er ekki í neinum vafa um að hægt sé að leysa þau þannig að allir verði sáttir. En lausnirnar liggja ekki í augum uppi. Þær munu krefjast þess af okkur að nýta með skapandi hætti þann sveigjanleika sem reglur ESB heimila. Framkvæmdastjórn ESB birti í janúar sl. skýrslu sem gagnast átti sem umræðugrundvöllur um stöðu Kalíníngrad. Í þessari skýrslu er ekki aðeins fjallað um þau ýmsu vandamál sem tengjast stækkun ESB til austurs, heldur einnig önnur almennari vandamál sem Kalínín- grad-svæðið stendur frammi fyrir og við viljum hjálpa eftir megni að finna lausnir á. Við höfum nú þegar hafið viðræður um okkar hugmyndir þar að lútandi við stjórnvöld í Moskvu og heimsókn mín til Kalíníngrad í febrúar staðfesti að þær höfðu hlotið góðar viðtökur á vettvangi. Og árangur í Kalíníngrad stendur og fellur með því héraðsyfir- völd séu höfð með í ráðum á öllum stigum og upplýst um þau nýju tæki- færi sem fylgja munu stækkun ESB. Það er þess vegna sem ég fagna sér- staklega þátttöku héraðsstjórans í Kalíníngrad, herra Jegorovs, í ráð- stefnunni um Norðlægu víddina í dag. Í Moskvu er verið að finna svör við aðgerðum ESB. Rússneska ríkis- stjórnin ræddi málefni Kalíníngrad sérstaklega hinn 22. marz sl. Gildis- tími sérlaga um stöðu Kalíníngrads sem sérstaks efnahagssvæðis hefur verið framlengdur um tíu ár og sam- þykktar hafa verið ráðstafanir til að styðja við þróun viðskiptalífs, til að þróa samgöngur á svæðinu og til uppbyggingar í orku- og fjarskipta- málum. Þetta eru allt jákvæð skref. En þeir sem hafa látið sig dreyma um Kalíníngrad sem „Hong Kong Eystrasaltsins“ verða að horfast í augu við að erfiðar hindranir standa í vegi fyrir því. Svæðið á til dæmis við gríðarlegan mengunarvanda að stríða og alvarleg fíkniefna- og heil- brigðisvandamál, þar á meðal mjög háa tíðni HIV- og berklasýkinga. Það er einnig miðstöð skipulagðrar glæpastarfsemi. Gizkað hefur verið á, að yfir 50% „þjóðar“-tekna Kalín- íngrad komi úr svokallaðri „óform- legri starfsemi“. ESB hefur veitt fjármunum og sérhæfða aðstoð til Kalíníngrad til að kljást við þessi vandamál. Á síðustu árum hafa 15 milljónir evra (andvirði 1230 milljóna kr.) runnið úr sjóðum ESB til þess- ara verkefna í Kalíníngrad og aðrar 15 milljónir evra eru á leiðinni. Kalíníngrad, sem áður hét Kön- igsberg, er heillandi staður með ein- staka sögu. Borgin var fæðingarstað- ur Immanuels Kants, sem yfirgaf hana aldrei alla ævi. Það var í Königsberg sem Friðrik I, fyrsti konungur Prússlands, var krýndur fyrir 300 árum. Kópernikus bjó þar og mótaði heimsmynd Evrópubúa. Ég held að Kalíníngrad muni verða stórfenglegur staður á ný. Svæðið gæti orðið að fyrirmynd samstarfs í nafni Norðlægu víddarinnar. Nýj- asta þróun mála í Kalíníngrad gefur líka tilefni til bjartsýni á þróun heild- arsamskipta okkar við Rússland. Kalíníngrad og Norðlæg vídd Evrópusambandsins Chris Patten Utanríkisstefna Kalíníngrad, sem áður hét Königsberg, er heillandi staður með einstaka sögu, segir Chris Patten. Svæðið gæti orðið að fyrirmynd samstarfs í nafni Norð- lægu víddarinnar. Chris Patten fer með utanríkismál í framkvæmdastjórn Evrópusam- bandsins. SKOÐUN
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.