Morgunblaðið - 07.04.2001, Qupperneq 61
SKOÐUN
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. APRÍL 2001 61
sóknum á borgarsamfélaginu. Mörg
mikilvæg verkefni og rannsóknir hafa
verið unnin á Þróunarsviði og hvet ég
alla að kynna sér þau á heimasíðu
borgarinnar. Í árslok 1999 hleypti
Þróunarsvið af stokkunum verkefn-
inu Framtíðarborgin sem er undir-
búningur fyrir langtímastefnumótun
fyrir höfuðborgina unnið í samráði við
borgarbúa, en um 800 manns komu að
þessu verkefni. Sú langtímastefnu-
mótun sem hér um ræðir snýst um
ímynd borgarinnar, starfsemi og
þjónustuhlutverk. Verkefnið snerist
um það að afla hugmynda, einskonar
gagnabanka, um hvernig borgin gæti
verið eftir um 15 ár. Efnis í hug-
myndabankann var aflað með ráð-
stefnum, níu sérfræði- eða rýnihópum
(9 líf), samstarfi við félagasamtök og
með viðhorfskönnunum svo dæmi séu
tekin. Einnig var fundað með fulltrú-
um á landsbyggðinni og leitað álits
þeirra á höfuðborginni og æskilegu
hlutverki hennar. Í febrúar sl. var efni
úr þessari hugmyndavinnu tekið sam-
an og birt í blaði sem dreift var til
allra heimila í Reykjavík. Með þessari
vinnu hafa borgarfulltrúar fengið í
hendurnar mikið magn af gagnlegum
upplýsingum til að móta langtíma-
stefnu fyrir höfuðborgina.
Hinn 17. mars 2000 skrifuðu borg-
arstjóri og rektor Háskóla Íslands
undir samstarfssamning um Borgar-
fræðasetur, samstarfsvettvang
Reykjavíkurborgar og háskólans í
þéttbýlisrannsóknum með áherslu á
höfuðborgarsvæðið. Markmiðið með
stofnun setursins er að standa fyrir,
efla og samhæfa rannsóknir og
fræðslu í greinum sem tengjast bæj-
um og byggðum, einu nafni borgar-
fræðum. Það verður m.a. gert með því
að efla rannsóknatengt framhalds-
nám í borgarfræðum, kynna niður-
stöðu rannsókna og gangast fyrir ráð-
stefnum og fyrirlestrum í
borgarfræðum. Setrið mun hafa að-
setur í Skólabæ, húsnæði háskólans
við Suðurgötu og mun starfsemin
hefjast á næstu vikum. Næsta haust-
misseri verður í fyrsta skipti boðið
upp á sérstakt nám við Háskóla Ís-
lands í borgarfræðum sem 30 eininga
aukagrein. Stofnanir borgarinnar
sem vinna að þróunar- og rannsókna-
verkefnum munu hafa náið samstarf
við Borgarfræðasetur um rannsókna-
vinnu á næstu misserum.
Svæðisskipulag fyrir höfuðborgar-
svæðið. Í rúm tvö ár hafa sveitar-
félögin á höfuðborgarsvæðinu unnið
sameiginlega að svæðisskipulagi fyrir
höfuðborgarsvæðið og er vinnan nú á
lokastigi. Megináherslan er lögð á
landnotkun, samgöngur, þróun
byggðar og umhverfismál og að
mörkuð verði samræmd stefna í þess-
um málaflokkum. Í tengslum við
þessa vinnu hefur farið fram mikil
upplýsingaöflun um þessa þætti og er
sjálfsagt að viðhalda þeim gagna-
banka fyrir áframhaldandi vinnu að
stefnumótun fyrir svæðið.
Skipulagstímabilið er til 2024, en
eftir árið 2018 þarf að ákveða hvort
meginuppbygging byggðar næstu ár-
in á eftir verði á Álfsnesi, í suðurhluta
Hafnarfjarðar eða í Vatnsmýri. Fram
að þeim tíma er gert ráð fyrir að nýta
sem best þau svæði til byggingar sem
eru miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu
og þau svæði sem sveitarfélögin höfðu
þegar áætlað undir byggð næstu 10 til
12 árin. Í tillögunum eru áform um
verulega þéttingu byggðar m.a. um 5
þúsund nýjar íbúðir innan núverandi
byggðar í Reykjavík. Alls gera tillög-
urnar ráð fyrir að taka þurfi um 1.600
ha lands fyrir nýja byggð á höfuð-
borgarsvæðinu næsta aldarfjórðung-
inn. Það skiptir því miklu máli, hvar
og hvernig þessari byggð verði komið
fyrir. Sveitarfélögin á höfuðborgar-
svæðinu verða að fylgja stefnumótun
svæðisskipulagsins þegar þau endur-
skoða aðalskipulagsáætlanir sínar í
framhaldi af staðfestingu þess.
Áformað er að kynna svæðisskipulag-
ið ítarlega á næstu mánuðum.
Tilgangurinn með þessari grein er
að vekja áhuga almennings á þeirri
þróunarvinnu sem nú er verið að
vinna að af Reykjavíkurborg og sveit-
arfélögunum á höfuðborgarsvæðinu-
.Til þess að skapa fyrirmyndarborg
þarf að hugsa til framtíðar og hún
verður ekki að veruleika nema með
upplýstum umræðum og þátttöku al-
mennings í stefnumótun. Umræðan
um framtíð Vatnsmýrar sýndi að Ís-
lendingum er ekki sama um framtíð
höfuðborgarinnar.
Höfundur er verkefnastjóri á
þróunarsviði í Ráðhúsi Reykjavíkur.
Aukning byggðar 1971 - 2000
fimm daga vikunnar