Morgunblaðið - 07.04.2001, Page 75

Morgunblaðið - 07.04.2001, Page 75
DAGBÓK MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. APRÍL 2001 75 Fermingartilboð Snittur, brauðtertur, alhliða veisluþjónusta Pantið tímanlega Stúdíó Brauð, Arnarbakka 2 - sími 577 5750 Fallegar kápur stuttar og síðar þykkar og þunnar Úrval af yfirhöfnum á góðu tilboðsverði Opið laugardaga frá kl. 10—16 Mörkinni 6, sími 588 5518 Opið: Mánud.-föstud. frá kl.10-18, laugard. 10-16, sunnud. 13-16. Bæjarlind 4, sími 544 4420 Full búð af nýjum vörum Árnað heilla STJÖRNUSPÁ ef t i r Frances Drake HRÚTUR Afmælisbarn dagsins: Þú flýtir þér hægt og veltir hlutunum vandlega fyrir þér áður en þú lætur til skarar skríða. Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Þú þarft að koma persónuleg- um málefnum þínum í lag áður en þú getur vænst þess að ná nokkrum árangri í starfi þínu því lífshamingjan er undirstaða alls. Naut (20. apríl - 20. maí)  Hættu að láta umhverfið halda aftur af þér. Sæktu þér lærdóm og lífsvisku sem þroskar þig og hjálpar þér að ná lengra á lífs- leiðinni. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Stundum verður maður að taka áhættu ef hlutirnir eiga að ganga upp en það er vanda- samt mat hvort eitthvað er áhættunnar virði eða hvort rétt er að setja öryggið á oddinn. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Taktu það ekki óstinnt upp þótt aðrir séu með spurningar um tilgang þinn og starfsaðferðir. Þú hefur ekkert að fela svo þú getur staðist rannsókn þeirra. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Stundum er svaranna að leita á ólíklegustu stöðum og þú verð- ur umfram allt að sýna hug- kvæmni ef þú vilt ná einhverj- um árangri. Sýndu dirfsku líka. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Þú ættir að leita þér ráða áður en þú hellir þér út í verkefni sem þér stendur til boða. Það skiptir verulegu máli að þú vitir út í æsar hvernig þú ætlar að halda á spilunum. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Þú þarft að finna leiðir til þess að nýta orku þína til hins ýtr- asta. Það er mikil sóun þegar þú leggur hart að þér án þess að útkoman verði þér að nokkru gagni. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Finndu út hvað það er sem þú raunverulega vilt í þessu lífi. Ekkert er eins leiðinlegt og þegar líf manns snýst um hluti sem maður hefur hvorki áhuga á né gleði af. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Það er ekki alltaf víst að ódýr- asta leiðin sé sú besta en þú skalt kanna vandlega alla mála- vexti áður en þú lætur til skar- ar skríða. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Þótt bjartsýni sé góð máttu ekki láta hana hlaupa með þig í gönur. Til þess að ná árangri þarftu að vera raunsær og gera þér glögga grein fyrir því hvað er mögulegt og hvað ekki. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Nú er komið að því að þú verð- ur að setjast niður og fara vandlega yfir eigin mál því ef þú heldur áfram að óbreyttu áttu á hættu að allt fari í hnút. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Farðu ekki á taugum þótt svör við spurningum liggi ekki í aug- um uppi. Hlutirnir mega taka sinn tíma, aðalatriðið er að út- koman sé sú sem menn helst kjósa. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. LJÓÐABROT SIGGA LITLA Sigga litla systir mín situr úti í götu; ærnar sínar auðarlín er að mjólka í fötu. Þjóðvísa. 70 ÁRA afmæli. Í dag,laugardaginn 7. apr- íl, verður sjötugur Árni Val- ur Viggósson, símaverk- stjóri, Lindasíðu 2, Akureyri. Eiginkona hans er Unnur Þorsteinsdóttir. Þau eru að heiman í dag. hafði svart í þessari atskák gegn Vassilí Ivansjúk (2717) og notfærði sér veika kóngs- stöðu hvíts. 34...Bxg3! 35. Df3 35. hxg3 væri svarað með 35...Hh6 og drottningin fellur. 35...Dh6 36. Bf1 Hfg8 37. Bd3 Bf4 38. Rxf5 Rxf5 39. Bxf5 Bxd2 40. Bxg6 Dxg6 41. Dd5 Be3 og hvítur gafst upp. Skákþing Íslands í áskor- enda- og opn- um flokki hefst í dag kl. 14:00 í húsakynnum Taflfélags Reykjavíkur, Faxafeni 12. Fyrstu þrjár umferðirnar verða með atskáksniði en hinar sex með lengri tíma- mörkum. 9.–11. apríl verður teflt kl. 18:00, en síðustu þrjár umferðirnar verða tefldar 13.–15. apríl kl. 14:00. SKÁK Umsjón Helgi Áss Grétarsson STAÐAN kom upp á Amb- er-mótinu, er lauk fyrir skömmu í Mónakó. Ung- verski stórmeistarinn Peter Leko (2745) þykir hafa fremur rólyndislegan skáks- tíl en í sömu mund er hann gríðarlega sterkur. Hann Svartur á leik. EITT af því undarlegasta við bridsíþróttina er sú stað- reynd að spilin hafa kímni- gáfu. Reyndar skilja ekki allir þennan húmor og mörgum „utangarðsmann- inum“ þykir kostuleg um- ræða bridsara um „skemmtileg spil“. En því er ekki að neita að sum spil eru bráðfyndin. Austur gefur; NS á hættu. Norður ♠ 53 ♥ 92 ♦ ÁK10973 ♣ 1087 Vestur Austur ♠ ÁKDG109876 ♠ 4 ♥ 53 ♥ ÁDG1064 ♦ G8 ♦ D65 ♣-- ♣G95 Suður ♠ ♥ K87 ♦ 42 ♣ÁKD6432 Þetta er til dæmis alveg drepfyndið spil, en það er frá annarri umferð Íslands- mótsins um síðustu helgi. Austur er gjafari og það fór eftir stíl manna hvort opnað var á einu eða tveimur hjört- um. Fjölmargir suðurspilar- ar réðu ekki við sig og stukku beint í þrjú grönd. Hvað á vestur, auminginn, að gera við því? Vestur Norður Austur Suður -- -- 2 hjörtu 3 grönd Skynsamlegast er sennilega að passa og spila út spaða- sexunni. Það var ekki óþekkt og vakti mikla kátínu – hjá AV a.m.k. Níu slagir á spaða og einn á hjarta gefa AV 600 stig, sem er alveg prýðilegt þegar fimm lauf standa í NS, en fimm spaðar tapast í AV. En ekki voru allir vestur- spilararnir svo hógværir. Einhverjir dobluðu og á tveimur borðum varð það lokasögnin – 1700 niður. Einn norðurspilari var aftur á móti ánægður með spilin sín, enda með ÁK í tígli í holu, og redoblaði. Enginn veit hvað suður hefði gert, en ekki reyndi á það því að austur tók út í fjögur hjörtu. Sennilega hefur vestri ekki verið skemmt á þeim tíma- punkti þótt hann sæi skop- legu hliðina eftir á. BRIDS Umsjón Guðmundur Páll Arnarson 60 ÁRA afmæli. Í dag, laugardaginn 7. apríl, verða sex-tugir tvíburarnir Hjörleif Einarsdóttir ritari, Funa- lind 7, Kópavogi, og Sveinbjörn Þór Einarsson myndlistar- maður, Hraunbæ 102, Reykjavík. Þau verða að heiman á afmælisdaginn. 50 ÁRA afmæli. Í dag,laugardaginn 7. apr- íl, verður fimmtugur Bene- dikt Jónsson, Hamrabergi 48, Reykjavík. Sambýlis- kona hans er Margrét Hálf- dánardóttir. Þau verða heima í dag. 90 ÁRA afmæli. Í dag,laugardaginn 7. apr- íl, verður níræður Hörður Runólfsson verkstjóri, Hraunbæ 105, Reykjavík. Hann verður að heiman. 80 ÁRA afmæli. Nk.mánudag, 9. apríl, verður áttræð Ásthildur Teitsdóttir, húsfreyja að Hjarðarfelli, Snæfellsnesi, nú búsett að Kaplaskjóls- vegi 39, Reykjavík. Eigin- maður hennar var Gunnar Guðbjartsson, bóndi og form. Stéttarsambands bænda, sem lést 1991. Hún tekur á móti ættingjum og vinum í Sunnusal Hótels Sögu í dag, laugardaginn 7. apríl, kl. 15–17.30. Hjálp! Ég er villt. FRÉTTIR FERÐAFÉLAGIÐ Útivist fer sunnudaginn 8. apríl í fjölskyldu- ferð í Hvalfjörð og er brottför kl. 13 frá BSÍ. Hægt er að koma í rút- una á leiðinni við Select, Vestur- landsvegi, og víðar. „Um er að ræða létta göngu milli Hvítaness og Fossár. Kræklingur verður tíndur og hann steiktur á staðnum en þátttakendur þurfa að taka með sér ílát. Litið verður á stríðsminjar í Hvítanesi eftir því sem tími leyf- ir. Verð 1.400 kr fyrir félaga og 1.600 kr fyrir aðra en ekkert þátt- tökugjald fyrir börn í fylgd for- eldra sinna. Ekki þarf að tilkynna þátttöku og allir eru velkomnir,“ segir í fréttatilkynningu. Stórstraums- og kræk- lingaferð í Hvalfjörð LANGUR laugardagur verður í dag á Laugaveginum þar sem kaup- menn taka á móti fólki með til- boðum og afsláttum ásamt því að mikið verður um að vera og má þar telja Bibba blaðadreng, Bjarna töframann, páskaeggjaratleik og margt fleira. Langur laugardagur HIN árlega keppni nemenda á Hvanneyri um Morgunblaðsskeifuna er í dag og hefst hún með fánareið kl. 13. Hinn kunni hestamaður Jóhann Þorsteinsson á Miðsitju í Skagafirði hefur kennt tamningar í vetur og sagði hann að tamningarnar hefðu gengið ágætlega miðað við þær að- stæður sem væru á Hvanneyri. Hrossin hafi auðvitað verið misjöfn en nemendurnir hafi verið duglegir og stundað hrossin vel. Dagskráin hefst eins og áður segir með fánareið kl. 13. Síðan verður keppt um Morgunblaðsskeifuna en hana hlýtur sá nemandi sem talinn er hafa náð bestum árangri í reið- mennsku og tamningu. Einnig verður veittur Eiðfaxabikarinn fyrir bestu hirðingu og Félag tamningamanna veitir verðlaun fyrir bestu ásetuna. Að lokinni keppninni verður að venju kaffisamsæti í matsal heima- vistarinnar á Hvanneyri þar sem verðlaunin verða veitt. Skeifukeppnin á Hvanneyri í dag NÝ verðskrá fyrir skeytaþjónustu tók gildi um síðustu mánaðamót. Um er að ræða breytingar á gjaldskrá og reglum fyrir símaþjónustu í almenna talsímakerfinu innanlands sem Póst- og fjarskiptastofnun hefur nýlega samþykkt. Nokkurt tap hefur verið á rekstri skeytaþjónustu um tíma, m.a. vegna hækkunar á útsendingar- og launa- kostnaði. Með breytingunni er verið að færa verðskrána til samræmis við raunkostnað. Ný verðskrá ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.