Morgunblaðið - 07.04.2001, Síða 77
FÓLK Í FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. APRÍL 2001 77
HLJÓMSVEITIN 808 State er
brautryðjandasveit á sviði elektrón-
ískrar tónlistar, stofnuð árið ’88, en
vakti fyrst á sér athygli hér á landi
þegar Björk „okkar“ Guðmundsdótt-
ir söng lag með sveitinni árið ’91. Í
kjölfarið tók hljómsveitin upp mynd-
band með söngkonunni í Djúphelli í
Bláfjöllum.
Í upphafi síðasta áratugar átti
sveitin nokkra smelli. Má þar þá helst
nefna lögin „Pacific State“, “In Yer
Face“ og „Cubik“. Síðan þá hefur
sveitin unnið með fjölda listamanna,
þ.á m. David Bowie, Paul Weller og
Bernard Sumner. Tveir meðlimir
sveitarinnar, þeir Andrew Barker og
Darren Partington, eru nú mættir
aftur á klakann til þess að þeyta skíf-
um á Gauk Á Stöng, en þetta er
fimmti innflutti plötusnúðahópurinn
sem Rými flytur inn.
„Halló, þetta er Andy úr 808
State,“ þannig svaraði Andrew Bark-
er í símann þegar blaðamaður hringdi
í hann í hljóðverið þar sem sveitin er
að vinna væntanlega breiðskífu.
Sæll vertu, eru þið við upptökur
þessa stundina?
„Já, við erum búnir að vera lengi að
taka upp þessa nýju plötu. Hún er
ekki alveg tilbúin. Ætli við séum ekki
búnir að klára um 75% af heildarvinn-
unni núna. Það kemur út ný smáskífa
núna í júní.“
Hvernig hljómar þetta nýja efni?
„Uhmm, ég veit það ekki alveg.
Þetta er frekar brenglað núna. Þetta
er ekki algjörlega „beint á dansgólf-
ið“ tónlist. Það er frekar óþægilegt að
reyna útskýra hana, þetta er vonandi
ný tegund tónlistar. Við förum yfir
víðan völl. Ég myndi ekki vilja kalla
þetta taktbrot, trans, harðkjarna-
elektró eða hústónlist. Þessi tónlist er
dálítið sér á báti.“
Ætlið þið að spila eitthvað af þess-
ari plötu á Gauknum?
„Jú, það er aldrei að vita nema við
setjum eitt eða tvö lög á fóninn. Það
ætlast alltaf margir til þess þegar við
erum að þeyta skífur að við spilum
mikið af gömlu efni en við gerum það
ekki. Við spilum ekki mikið af 808 tón-
listinni, leyfum yfirleitt einu eða
tveimur lögum að fljóta með.“
Spilið þið mikið af tónlist þeirra
sem hafa haft áhrif á ykkur?
„Já, við spilum hitt og þetta af
þeirri tónlist sem hefur haft áhrif á
okkur í gegnum árin. En meirihlutinn
er splunkunýtt efni. Við spilum lík-
lega bara svipaða tónlist og allir
helstu plötusnúðar heims í dag. Við
erum reyndar ekki í þeirra deild.“
Hvað finnst þér um þróun elektr-
ónískar tónlistar frá því að þið byrj-
uðuð?
„Mér finnst hafa ræst alveg stórvel
úr henni. Það er fullt af góðum tón-
listarmönnum að gefa út plötur þessa
dagana. Það hafa skapast margar
góðar stefnur í gegnum árin. Fullt af
tilraunastarfsemi. Ég held að fyrir tíu
árum hefði enginn getað giskað á hve
stór hluti af tónlistarlífinu þetta er
orðið. Fyrir tíu árum hefði maður
aldrei heyrt elektróníska tónlist spil-
aða í verslunum. Í dag er hún í gangi í
nánast hverri einustu verslun sem
maður fer inn í. Í lengri tíma var
þetta hálfdapurt. Það var mikið um að
tónlistarfólk væri að taka þekkt göm-
ul lög og færa þau yfir í okkar stíl.
Ég held að almenningur sé betur
upplýstur í dag og sé hættur að kaupa
svoleiðis. Fólk vill heyra meiri jaðar-
tónlist í dag. Þetta er allt afar heilsu-
samlegt þessa dagana.“
Eruð þið spenntir fyrir komunni?
„Já, við getum ekki beðið. Það er
svo langt síðan síðast. Ég get ekki
beðið eftir því að sjá hve mikið hefur
breyst.“
Já, það var þá sem þið og Björk
tókuð upp myndbandið við lagið
OOOPS í Djúphelli, hvernig gekk
það?
„Það var undarleg upplifun.
Nokkrir meðlimir sveitarinnar týnd-
ust eina nóttina þegar þeir voru að
rölta um hálendið. Það var góð upp-
lifun (hlær).“
Þannig að þið farið líklegast ekki í
neinar hellaferðir yfir helgina?
„Ég býst nú ekki við því (hlær).
Þetta var ævintýri á sínum tíma.“
Einhver skilaboð að lokum?
„Ef einhverjir lesendur hafa áhuga
á því sem 808 State er að gera þá vil
ég benda á heimasíðu okkar
www.808state.com. Þar er fullt af
upplýsingum, myndböndum, hljóð-
dæmum og heilu útvarpsþættirnir
sem hægt er að hlusta á. En ekkert er
til sölu, þetta er ekki búð, allt er frítt.“
Við getum ekki beðið
Meðlimir 808 State ásamt Björk.
Meðlimir 808 State þeyta skífur á Gauk á Stöng í kvöld
Dans á Rósum
Vesturgötu 2, sími 551 8900
Frá Vestmannaeyjum í kvöld
Kringlunni - Faxafeni
Fjórar gerðir,
verð frá 4.990.-
eyrnalokkar í stíl
F e r m i n g a rg j ö f s e m e r
f r a m t í ð a re i g n
S i l f u r -
F a l l e g
f e r m i n g a r g j ö f
k r i s t a l s k r o s s a r