Morgunblaðið - 08.04.2001, Side 55
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8. APRÍL 2001 55
Heimsferðir bjóða flug til London alla föstudaga í sumar á hreint frábærum
kjörum og þú getur valið um úrval hótel í hjarta heimsborgarinnar. Flug út
á föstudögum. Heim á mánudögum. Flogið með Go.
London
í sumar
frá kr. 17.855
Verð kr. 17.855
M.v. hjón með 2 börn,
með sköttum.
Verð kr. 20.690
Flugsæti fyrir fullorðinn
með sköttum.
Skógarhlíð 18, sími 595 1000. www.heimsferdir.is
Fyrir
páskafríið
tískuverslun
v. Nesveg,
Seltjarnarnesi.
Sími 561 1680.
bolir og
kvart-buxur
U
NDIR lok
níunda ára-
tugarins
var eitt
helsta til-
efni heimsókna tónlist-
arvina til Lundúna að
komast í Rough Trade-
búðina í Notting Hill í
Lundúnum. Búðin var
upphaflega stofnuð til að
flytja inn tónlist frá Jam-
aica og Bandaríkjunum,
en ekki leið á löngu þar til
pönkið tók að blómsta í
Lundúnum og ekki síst í
versluninni.
Plötubúð og útgáfa
Á þessum tíma var mik-
il gerjun í plötuiðnaðinum
í Bretlandi, upp spruttu
fjölmörg óháð plötufyr-
irtæki og til að standast
stórfyrirtækjunum snún-
ing komu þau sér upp
dreifingarfyrirtækjum.
Rough Trade tók að sér
að dreifa plötum fyrir
ýmsar útgáfur, þar á með-
al Factory, en einnig fór
Rough Trade að gefa út
plötur, gaf út fyrstu smá-
skífuna, „Paris Maquis“
með Metal Urbain, 1975.
Eftir því sem útgáfunni
óx fiskur um hrygg komu
brestir í samstarf manna
og á endanum var skilið á
milli verslunar og útgáfu/
dreifingar. Útgáfan, sem
Geoff Travis stýrði, óx
mjög hratt í upphafi ní-
unda áratugarins, en var
ekki að sama skapi vel
rekin, sem bitnaði meðal annars á dreifingarfyrirtækinu
Cartel sem ýmis fyrirtæki tengdust, en Rough Trade þó
helst. Travis og félögum var ekki lagið að reka fyrirtæki,
en voru naskir á að finna áhugaverða tónlist til útgáfu,
enda gaf fyrirtækið út plötur með Stiff Little Fingers,
Young Marble Giants, The Slits, Cabaret Voltaire, Wire,
Pere Ubu, Fall, Aztec Camera, Scritti Politti, Woodentops,
Go-Betweens, The Smiths, Robert Wyatt, Sundays, James
og Jonathan Richman svo dæmi séu tekin, en þess má geta
að Travis sótti það fast að ná samningi við Sykurmolana og
Rough Trade í Þýskalandi gaf Molana út þar í landi. Einn-
ig hugðist Rough Trade í Bandaríkjunum, sem var sjálf-
stætt fyrirtæki að mestu, dreifa Bless, Risaeðlunni og
Ham, en fór á hausinn áður en af því varð.
Þrátt fyrir margar góðar söluskífur fór reksturinn í
handaskolum og um tíma eignuðust aðrir fyrirtækið, en
það er víst aftur komið í hendur Geoffs Travis.
Framsækin tónlist í 25 ár
Búðin hélt aftur á móti sínu striki sem verslun, plötu-
dreifing og póstsala og gengur enn. Fyrir hálfum öðrum
áratug flutti búðin á Talbot Road og stuttu síðar opnaði
Rough Trade útibú í kjallara skate-búðar í Neals Yard
skammt frá Covent Garden í Lundúnum. Einnig rak
Rough Trade um tíma verslun í París, en gafst upp á því
fyrir stuttu, en rekur nú tvær verslanir í Tókýó.
Til að fagna 25 ára afmælinu gaf Rough Trade-
verslunin, ekki útgáfan, út safnkassa með fjórum diskum,
56 lögum alls, sem gefa einkar góða mynd af því sem helst
var á seyði í framsækinni tónlist á Bretlandseyjum á síð-
asta aldarfjórðungi. Þeir sem hlustað hafa á tónlist þann
tíma, og þá á spennandi og krefjandi tónlist en ekki popp-
froðu, ganga í endurnýjun lífdaga við það að hlusta á safn-
ið, þótt tónlistin hafi elst
misvel, og þeir sem yngri
eru og búnir að hlusta
skemur átta sig margir á
því að það er búið að finna
upp hjólið nokkrum sinn-
um.
Fjölbreytt og
skemmtilegt safn
Það vekur vissa eft-
irtekt hve lítið er af lögum
frá Rough Trade-
útgáfunni í kassanum,
eins áhrifamikil og hún
var, en fyrir vikið er safn-
ið fjölbreyttara og
skemmtilegra. Eins og
getið er eru diskarnir
fjórir og lögin 56, allt frá
1975 fram á síðustu daga,
og spanna allt frá hráu
pönki, í harða danstónlist,
industrial, framúr-
stefnurokk og allsúrt
dubreggí. Til gamans má
geta þess að Sykurmol-
arnir eiga eitt lag á disk-
inum, „Ammæli“, nema
hvað. Af öðrum sem þar
eiga lög má nefna Cabaret
Voltaire, Throbbing
Gristle, Go-Betweens, Joy
Division, Fall, Birthday
Party, Robert Wyatt,
Cocteau Twins, Smiths,
Einstürzende Neubauten,
Nick Cave, Sonic Youth,
Pixies, Stereolab, Lamb-
chop, Plastikman, Corn-
ershop, Boards of Can-
ada, Clinic, Ryan Adams
og Tindersticks, sem eiga
nýjasta lagið, endurgerð
af „Talk to Me“.
Plötubúðin merka Rough Trade
átti 25 ára afmæli um daginn.
Árni Matthíasson skoðaði kassa
sem aðstandendur búðarinnar
gáfu út til að halda upp á daginn.
Evan Dando,
leiðtogi Lemon-
heads, á meðan
allt lék í lyndi.
Lemonheads
byrjaði í pönki
og endaði í
poppi.
Þeir Smiths-félagar Morr-
issey og Marr þegar allt lék í
lyndi, en Smiths var drif-
kraftur óháðrar útgáfu í
Bretlandi, sönnun þess að
hægt væri að gefa út fram-
sækna tónlist og selja vel af
henni.
Afmælisútgáfa
merkisbera
Aðal Joy
Division
var þung-
lyndi og ör-
vænting.
l
i i i
-
l i -
i .
Ljósmynd/Björg Sveinsdóttir
Ammæli,
sem Bretar
kölluðu
Birthday,
er talið með
merkustu
smáskífum
síðasta ald-
arfjórðungs
á Bret-
lands-
eyjum.
FÓLK Í FRÉTTUM