Morgunblaðið - 22.04.2001, Blaðsíða 16
LISTIR
16 SUNNUDAGUR 22. APRÍL 2001 MORGUNBLAÐIÐ
OLGA Bergmann hefur ekki verið
mjög áberandi á íslenzkum myndlist-
arvettvangi síðan hún útskrifaðist úr
MHÍ 1991. Hún var á námstímabilinu
gestanemandi við Valands-listahá-
skólann í Gautaborg, 1989–1990, tók
þátt í tveim samsýningum 1993 en
hélt svo utan til Kaliforníu og nam við
California College of Arts and Crafts
næstu tvö árin og lauk þar MFA-
gráðu 1995.
Síðan virðist hún hafa verið á far-
aldsfæti milli vinnustofa heima og er-
lendis, tekið þátt í fleiri samsýning-
um ytra en hér heima og haldið jafn
margar einkasýningar, þ.e. í Stokk-
hólmi, Oakland og Worpswede. Þá
hafa henni hlotnast hvorki meira né
minna en fimm erlendir styrkir frá
1997 og að auki ein starfslaun frá ís-
lenzka ríkinu.
Þetta er rétt og heilbrigð þróun, ís-
lenzkur listamarkaður einslitur,
þröngur og takmarkaður nú um
stundir, ef yfirleitt er hægt að tala
um listamarkað eins og þeir gerast
erlendis.
Það sem Olga er helst upptekin af í
augnablikinu eru innsetningar og
ýmsar furður hlutveruleikans; þann-
ig er hálf sýningin sviðsmynd af
garði, sem er blekprent á dúk sem
gengur þvert yfir salinn en hitt er
eins konar sviðsmynd af rannsóknum
á ýmsum furðum úr fórum dr. Berg-
manns.
Eins og skrifað stendur: „Dr Berg-
mann“ er einskonar Alter Ego, þ.e.
annað sjálf, og gegnir aðalhlutverki á
þessari sýningu. Doktorinn og verkin
sem tengjast þessari persónu eru að
nokkru leyti sprottin af þeim ævin-
týralegu og furðulegu möguleikum
sem erfðaverkfræði og klónun bjóða
upp á: með öðrum orðum – af þeim
möguleika að ævintýri og veruleiki
hafi hlutverkaskipti. Verk þessi eru
einnig tengd áhuga mínum á söfnum
fyrri tíma, sem gengu undir heitinu
Wunderkammer, þar sem hvaðeina
sem vakti áhuga eða furðu safnarans
gat fundið sér stað. Jafnframt hef ég
áhuga á hvernig náttúrugripasöfn,
dýragarðar, sædýrasöfn og fleiri
stofnanir „sviðsetja“ safngripi sína.“
Af hinu heilbrigða að hafa áhuga á
hlutunum í kringum sig og furðum
þeirra, en ekki held ég að hægt sé að
tala um „Wunderkammer“ sem fortíð
því ég veit ekki betur en að þau séu til
ennþá og að þessi leikur sé í fullu
gildi. Eins og fram kemur er þó mun-
urinn sá, að þessar furður eru orðnar
að bláköldum veruleika í hátækni-
þjóðfélaginu, styðjast þannig ekki
einvörðungu við ímyndunaraflið.
Í senn undirfurðuleg og áhugaverð
sýning í bland við súrrealisma, en Ás-
mundarsalur naumast rétti staðurinn
til að magna upp stemmningu við
hæfi; til þess skortir hann sveigjan-
leika.
Mjúkar pípur
Anna Hallin, sem sýnir 8 málverk í
Gryfjunni, er með BA-gráðu í leirlist
frá háskólanum í Gautaborg þar sem
hún nam 1986–1990; var á tímabilinu
gestanemandi við MHÍ 1988–1989.
Lauk meistaragráðuprófi í fagurlist-
um við Mills College of Art 1996.
Hefur verið athafnasöm á sýninga-
vettvangi, meira hvað einkasýningar
snertir en samsýningar; þá hefur hún
hlotið á annan tug styrkja og verð-
launa frá 1993.
Hallin kynnir verk sín sem mjúkar
pípur, fjölgun, samskipti og fæðu-
keðjur. Í nánari útlistan: „Ég hef bú-
ið til röð myndverka, málverka og
teikninga, og til þeirra hef ég sótt
myndvaka í heim örvera og hrygg-
leysingja og um leið tekið nokkurt
mið af formi ýmiss konar heimilis-
tækja. Hugmyndir mínar í þessum
verkum eru á braut kringum bakt-
eríur og aðra einfrumunga, sem eru
þeir miklu efnafræðingar sem knýja
áfram hringrás alls sem er. Bakter-
íurnar hafa lifað lengur á jörðinni en
nokkurt annað lífsform og ráða
mestu hvernig til tekst með okkar
sameiginlegu frumusúpu.“
Alveg rétt, þetta eru mjúkar
myndir mjúkra forma og litbrigða,
þar sem millitónarnir og nostursemin
ráða för, einnig rétt að bakteríur og
örverur ráði mestu um hvernig líf
þróast og mætti margur taka meira
tillit til þess en reglustikunnar,
rassapúðans og vitsmunalegra yfir-
burða, sem falla um sjálfa sig ef ekki
er tekið tillit til náttúruskapanna allt
um kring.
Lítil sýning á notalegum málverk-
um sem vinna á við nánari skoðun og
eru þeim mun hrifmeiri sem flæði
formanna er rökréttara; nefni hér
einkum „Blátt efnahvarf“, olía á lér-
eft, 2001 og „Shy Green Plunge“, olía
á léreft, 2001. Báðar eru sýningarnar
vel þess virði að þeim sé veitt sérstök
eftirtekt.
„Doktor Bergmann“MYNDLISTL i s t a s a f n A S Í
Á s m u n d a r s a l
Opið alla daga kl. 14–17. Lokað
mánudaga. Til 29. apríl.
Aðgangur 300 krónur.
MYNDVERK/
INNSETNING
OLGA BERGMANN
Anna Hallin, málverk, 2001.
Morgunblaðið/Bragi Ásgeirsson
Olga Bergmann; Hundálfur,
2001, gifs, plast og tré.
Bragi Ásgeirsson
G r y f j a n
„SOFT PLUMBING“
ANNA HALLIN
EIN af okkar ungu
og efnilegu sópran-
söngkonum kemur
fram á tónleikum í
Salnum í Kópavogi í
kvöld, sunnudags-
kvöld. Magnea Tóm-
asdóttir hefur sung-
ið við Kölnaróp-
eruna síðustu ár og
ekki haft hér kons-
ert síðan 1998. Því
er fengur að þessu
hjá söngkonunni
sem skipast í radd-
hóp þeirra sóprana
af yngri kynslóð
sem þykja fremur dramatískir. Þann-
ig mun hún syngja ljóð eftir þá
þungavigtarmenn Wagner og
Beethoven, en einnig aríur eftir Moz-
art og Verdi.
Magnea segir efnisskrána einfald-
lega með ýmsu fallegu sem hún haldi
upp á, þau Gerrit Schuil píanóleikari
hafi sæst á þetta. Þau hafa áður hald-
ið tónleika saman, í Gerðarsafni og
síðast Garðabæ fyrir þremur árum.
Gerrit segist svona vera til taks fyrir
Magneu og hún hlær að því lítillæti
listamannsins góðkunna í smá æf-
ingahléi fyrir helgina.
Annars er Magnea ein af þeim
söngkonum sem freistað hafa gæf-
unnar í Þýskalandi; hún var á samn-
ingi við Kölnaróperuna 1997–2000 og
sér nú meðal annars fram á að syngja
þar Geirhildi í Valkyrju Wagners.
Það verður á næsta leikári og þá
hyggur Magnea jafnframt á prufu-
söng í þýskum óperuhúsum. Í vor
verður hún einnig ytra og síðan hér
heima yfir sumarið, þegar leikhús eru
hvort sem er mörg lokuð.
Magnea er fædd og uppalin í Kópa-
vogi svo Salurinn er nú sjálfsagður til
tónleikanna. Að loknu námi hjá Unni
Jensdóttur í Tónlistarskóla Seltjarn-
arness sneri söngkonan til Lundúna.
Þar hélt hún áfram söngnáminu hjá
Hazel Wood í Trinity-tónlistarháskól-
anum, árin 1993–96.
Árið eftir byrjaði hún í óperustúd-
íóinu í Köln og var síðar tekin í tölu
fullgildra söngvara óperuhússins.
Meðal hlutverka hennar voru fyrsta
daman í Töfraflautunni, prinsessan
frá Granada í Les Brigands og Shar-
on Graham í leikritinu Masterclass
sem fjallar um þá stórfenglegu Maríu
Callas. Og nýlega tók Magnea þátt í
flutningi Gurre-lieder eftir Schön-
berg í Royal Festival Hall í Lund-
únum en þar voru fimm aðrir ein-
söngvarar og hljómsveit.
Vonlitlar ástir Wagners
Magnea segir að sig hafi lengi lang-
að að syngja Wesendonk-ljóð eftir
Richard Wagner en hann nefndi þau
eftir skáldkonunni sem hann felldi
hug til og hún fékk tónlistina við ljóð-
in sín að gjöf. Ekki fengu þau Wagner
og Mathilde Wesendonk að eigast en
ljóðasöngvarnir, samdir 1855, voru
eins konar uppkast að Tristan og Ís-
old tónskáldsins.
Annars verða á tónleikunum sex
ljóð Gellerts eftir Beethoven, en lof-
söngurinn frægi er þeirra á meðal, og
svo Mozart-aríurnar Bella mia fi-
amma, skrifuð fyrir konsert, og Ecco
il punto eða aría Vitelliu úr óperunni
Clemenza di Tito. Kvöldinu lýkur svo
með Verdi; aríunum Tacea la notte,
sem Leonóra syngur í Il Trovatore,
og Tu che le vanita sem Elisabet fer
með í Don Carlo. Allt er þetta í sam-
ræmi við vilja Magneu til að syngja
bæði óperur og ljóð, hér á Íslandi og
þar úti í heimi.
Frá Köln í Kópa-
vog með Wagner
og fleirum
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Magnea Tómasdóttir og Gerrit Schuil.
DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra
afhendir verðlaun í ljóða- og smá-
sagnasamkeppni Bókasafns Garða-
bæjar á Degi bókarinnar, á morgun,
mánudag, kl. 17.30.
Keppnin er framlag Bókasafns
Garðabæjar til hátíðarhalda vegna
25 ára afmælis Garðabæjar.
Ljóðasamkeppnin var opin öllum
Garðbæingum 16 ára og eldri en
grunnskólanemendur í Garðabæ
höfðu rétt til þátttöku í smásagna-
samkeppninni. Í smásagnasam-
keppninni var keppendum skipt í tvo
flokka eftir aldri. Veitt verða þrenn
peningaverðlaun í hverjum flokki.
Alls bárust rúmlega 50 smásögur í
keppnina og ljóð eftir 17 höfunda.
Ljóða- og smá-
sagnaverðlaun
SESSELJA Tómasdóttir er nafn
á ungri listakonu sem útskrifaðist
frá MHÍ vorið 1999 og heldur um
þessar mundir sína fyrstu einkasýn-
ingu í listhúsi Ófeigs á Skólavörðu-
stíg 5. Sesselja var ein af þeim sem
stóðu að rekstri listhússins Lista-
kots við Laugaveg og kom þar við
sögu um níu mánuða skeið, en rek-
ur nú vinnustofu og sýningarsal í
Auðbrekku 25 í Kópavogi. Hefur
eins og skrifað stendur, verið að
kljást við mannamyndir frá öðru ári
í MHÍ, og í lokaverk-
efni sínu vann hún tvö
málverk af frænku
sinni og andlitsmynd af
dóttur sinni.
Í þráðbeinu fram-
haldi nefnist þessi
fyrsta einkasýning
Sesselju Gullmolar og
samanstendur af por-
trettmyndum af dóttur
hennar og vinum, öllum
á fjórða aldursári. Hafa
það sameiginlegt að
vera gullmolar foreldra
sinna og hefur gerand-
inn fylgst með þeim frá
fæðingu, leitast við að
láta persónutöfra hvers
fyrir sig njóta sín í
myndunum. Listakon-
an hefur þannig frá
upphafi einbeitt sér að afmörkuðu
viðfangsefni sem er mjög algengt í
listaskólum nú um stundir og ekki
beinlínis aðfinnsluvert í sjálfu sér.
En satt að segja er alhliða þjálfun
vænlegri til árangurs á byrjunar-
reit, að öðrum kosti er hætta á að
viðkomandi máli sig út í horn og
staðni á þröngu tæknilegu sviði,
sem þeir eiga afar erfitt með að
vinna sig frá. Þetta virðist hafa
gerst með Sesselju, því tæknibrögð
hennar í þessum níu portrettmynd-
um uppi á loftinu eru afar einhæf,
að ekki sé fastar að orði kveðið.
Sérhver einstaklingur hefur til að
bera ákveðið litarraft í útgeislan
sinni, skylt því að engir tveir eru
með eins fingraför, sem þarf ekki að
vera einungis það sem við ytra auga
blasir mun frekar litir sem koma
upp í huga hins þjálfaða málara er
hann lítur viðfangið. Sé þessi alhliða
þjálfun ekki fyrir hendi minnist
hann einungis við þá liti sem snúa
að ytra auganu og eftirgerir þá, hin
innri móttökustöð óvirk.
Þetta og fleira kom upp í hugann
við skoðun málverkanna uppi, sem
sannfærðu hvorki sem málverk né
hugmyndafræði. Það gerir hins veg-
ar myndverk blandaðrar tækni í
stigaganginum þar sem stórum
hressilegra er gengið til verks.
Verkið er utan skrár en reynist svo
kjölfesta sýningarinnar fyrir fjöl-
þætt og lifandi vinnubrögð.
„GULLMOLAR“
MYNDLIST
L i s t h ú s Ó f e i g s
Opið alla daga á tímum verslunar-
innar. Lokað sunnudaga.Til 25.
apríl. Aðgangur ókeypis.
MÁLVERK
SESSELJA
TÓMASDÓTTIR
Gullmoli, blönduð tækni, utan skrár.
Bragi Ásgeirsson
Ljósmynd/Bragi Ásgeirsson