Morgunblaðið - 22.04.2001, Page 23

Morgunblaðið - 22.04.2001, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22. APRÍL 2001 23 Nú þarftu að taka bílinn í gegn eftir veturinn. Frábærar rispuviðgerðir á bílalakki. Málum rispurnar, ekki bílinn. Sparar tíma og peninga. Bíllinn tilbúinn samdægurs. Frábær útkoma. Erum fluttir á Smiðjuveg 26, græn gata (Hjólkó) Símar 557 7200 og 567 7523 FJARÐABYGGÐ hefur nú tekið upp vinabæjarsamband við borgina Rongcheng sem er í Shandong hér- aði á austurströnd Kína. Segja má að vinabæjarsamstarfið hafi hafist formlega á sumardaginn fyrsta s.l. þegar Xu Dong Pu vara- borgarstjóri Rongcheng kom í heim- sókn til Fjarðabyggðar. Með honum í för var Wang Xuwei frá kínverska sendiráðinu á Íslandi.Auk þess að funda með bæjarráði Fjarðabyggðar heimsótti Xu Dong Pong m.a. stóru sjávarútvegsfyrirtækin í Fjarða- byggð, Hraðfrystihús Eskifjarðar og Síldarvinnsluna í Neskaupstað. Að sögn Guðmundar Bjarnasonar bæjarstjóra í Fjarðabyggð þótti gestunum einna merkilegast að koma á heimili hans þar sem þeir fengu að skoða dæmigert alþýðu- heimili á Íslandi. Fjarðabyggð tekur upp vinabæjar- samband við Rongcheng í Kína Morgunblaðið/Kristín Xu Dong Pu og Guðmundur Bjarnason í skoðunarferð um höfnina. Bæjarstjórinn í heimsókn Neskaupstað. Morgunblaðið. KRISTJÁN Þór Júlíusson, bæjar- stjóri á Akureyri, og Sigurður Sig- urðsson, framkvæmdastjóri SS Byggis ehf., undirrituðu í vikunni samning um byggingu síðari áfanga Giljaskóla við Kiðagil á Akureyri. Heildarstærð nýbyggingar er 2.407 m². Um er að ræða tveggja hæða byggingu sem í er salur skól- ans, bókasafn, tölvuver, heilsugæsla og sérgreinastofur. Ennfremur þriggja hæða byggingu sem í eru 12 almennar kennslustofur og stofa fyr- ir tónlistarkennslu. Samningur tek- ur einnig til frágangs lóðar norðan og vestan byggingar ásamt bílastæð- um og leiktækjum á lóð. Verkið er hafið og því skal að fullu lokið 15. ágúst 2002. Aðalhönnuður skólans er Arkitekta- og verkfræði- stofa Hauks ehf. Þá verður lokið uppbyggingu Giljaskóla nema aðstöðu til íþrótta- kennslu. Skólinn verður tveggja hliðstæðna skóli með 450 til 500 nem- endur þegar Giljahverfi verður full- byggt. Þegar skólinn er fullbúinn verður skólinn einn best búni skóli á landinu og aðstaða fyrir nemendur og kennara öll til fyrirmyndar. Framkvæmdir við síðari áfanga Giljaskóla hafnar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.